Fréttablaðið - 26.02.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 26.02.2009, Síða 8
8 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR STJÓRNSÝSLA „Ég vil að borgin taki við lóðunum og endurgreiði eins og gert hefur verið við aðra. Fólk er tæknilega gjaldþrota,“ segir Arney Einarsdóttir, lóðarhafi í Úlfarsárdal. Arney og maður hennar keyptu útboðslóð í Úlfarsárdal vorið 2006. Þau buðu 14 milljónir í lóðina sem þau fengu í Iðunnarbrunni. Fram- kvæmdir áttu að hefjast í síðasta lagi í fyrrahaust en borgin fram- lengdi þann frest að sögn Arneyj- ar um tvö ár. „Þeir láta líta svo út að það sé ívilnandi fyrir okkur en er í raun fyrst og fremst ívilnandi fyrir borgina,“ segir hún. Arney kveður níu lóðarhafa frá útboðinu 2006 nú hafa ráðið sér sameiginlegan lögmann því borg- in neiti að taka lóðir þeirra til sín og endurgreiða. Allar forsendur fyrir lóðar- kaupunum brustu með hruni bankakerfsins og frystingu fast- eignamarkaðarins að sögn Arn- eyjar. Hennar fjölskylda beri ekki ábyrgð á þeim hörmungum og blóðugt sé að þurfa að fara í langvinn málaferli. „Þetta getur tekið nokkur ár svo áður en því lýkur geta allir verið orðnir gjald- þrota,“ segir hún. Arney bendir á að lóðum í hverfinu hafi verið úthlutað með öðrum hætti en með uppboði eftir vorið 2006. Allir sem fengu lóðir í þeirri úthlutun og voru ekki byrj- aðir að byggja hafi mátt skila og fá endurgreitt. Þetta sé brot gegn stjórnsýslulögum því jafnræð- is sé ekki gætt. Einn úr hópnum hennar hafi sent inn stjórnsýslu- kæru. „Fólk sem fékk úthlutunar- lóð ódýrara hér við hliðina og ætl- aði að byggja í samfloti við okkur er búið að skila og fá endurgreitt,“ útskýrir hún. Borgin hefur verið að úthluta lausum lóðum með hagstæðari skilmálum að undanförnu. „Við getum engan veginn keppt við borgina um að selja lóðir. Við höfum verið með okkar á sölu frá því í mars í fyrra og það hafa engar fyrirspurnir komið. Ég get náttúrulega ekki boðið sömu lánakjör og Reykjavíkurborg eða lækkað verðið niður í ellefu millj- ónir. Sömuleiðis höfum við reynt að selja íbúðina okkar til að geta fjármagnað byggingu á lóðinni en það gengur bókstaflega ekki neitt,“ segir Arney. Í svari Ágústar Jónssonar, skrifstofustjóra framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar, kemur fram að borgarráð hafi ákveðið að umræddum lóðum mætti ekki skila enda hafi ekkert ákvæði um slíkt verið í útboðsskilmálum. Staða efnahagsmála snerti borg- ina eins og aðra. „Það væri ekki til að bæta ástandið ef Reykjavíkurborg breytti útboðs- og úthlutunarskil- málum vegna lóða eftir því hvern- ig vindar blása,“ segir í synjun- arbréfi skriftstofustjórans til Arneyjar. gar@frettabladid.is Kærir borgina vegna lóðar í Úlfarsárdal Kona sem keypti lóð á uppboði í Úlfarsárdal segir mismunun að hún fái ekki að skila lóðinni líkt og þeir sem fengu úthlutað. Einn lóðarhafi kærir. Borg- in segir ekki hægt að breyta reglum eftir vindi. ARNEY EINARSDÓTTIR Bauð hæst í einbýlishúsalóð á uppboði vorið 2006. Nú getur hún hvorki fjármagnað byggingu á lóðinni né selt hana. Borgin neitar að taka lóðina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DEIGLAN Uppspretta hugmynda, hvatningar og samstöðu Í dag opnar DEIGLAN, atvinnu- og þróunarsetur Hafnarfjarðarbæjar, í Menntasetrinu við Lækinn. Deiglan er vettvangur fyrir fólk sem vill hrinda hugmyndum til atvinnusköpunar í framkvæmd auk þess að vera aðstaða fyrir námskeið, samveru, hugmyndavinnu og þróun nýrra atvinnutækifæra. Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið og ráðgjöf í kjölfar atvinnu- missis. Fulltrúar stéttafélaga, Vinnumálastofnunar, Nýsköpunar- miðstöðvar o. fl. verða með fasta viðtalstíma til að tryggja greiðan aðgang að upplýsingum, leiðum til úrbóta og hugsanlegum atvinnutækifærum. Allir sem vilja leggja hönd á plóginn við uppbyggingu Deiglunnar eru hvattir til að líta inn eða hafa samband við Brynhildi Barðadóttur, verkefnisstjóra Deiglunnar, í síma 664 5526 eða á netfangið brynhildur@hafnarfjordur.is. F A B R I K A N www.hafnarfjordur.is Deiglan verður opin kl. 09.00 – 12.00 alla virka daga. Láttu sjá þig! 1. Prinsessa hvaða frændþjóðar okkar giftir sig á næsta ári? 2. Konu hvaða leikmanns Manchester United var ógnað með hnífi í innbroti? 3. Hvaða hljómsveit verður leiðbeinandi í rokksmiðju í félagsmiðstöðinni Garðalundi í Garðabæ? LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kæru Catalinu Mikue Ncogo þess efnis að gæsluvarð- haldi yfir henni yrði aflétt. Form- galli var á kæru Catalinu og því mun hún sitja í varðhaldi til morg- undagsins eins og héraðsdómur hafði úrskurðað um. Catalina var handtekinn við komuna til landsins frá Hollandi á föstudaginn síðasta grunuð um skipulagt mansal og að hafa ætlað að flytja til Íslands allt að tíu kíló af kókaíni frá Amsterdam. Hollensk lögregla handtók kærasta henn- ar, Helga Val Másson, með efnið í fórum sínum á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í síðustu viku. Þá þykir lögreglu vera til stað- ar „rökstuddur grunur þess efnis að hinn ætlaði innflutningur fíkni- efnanna tengist mun umfangsmeiri innflutningi fíkniefna hingað til lands á undanförnum mánuðum og árum,“ segir í gæsluvarðhalds- úrskurði. Yfirheyrslur hafa haldið áfram yfir Catalinu síðustu daga og sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins neitar hún alfarið sök í málinu, bæði hvað varðar meintan innflutn- ing á fíkniefnum og skipulagningu á mansali. Catalina er talin hafa rekið vændisþjónustu í húsi á Hverfis- götu um nokkra hríð þar sem hún mun hafa gert út fjórar konur og hagnast á því. - sh Grunaður kynlífsþrælahaldari og fíkniefnasmyglari: Catalina í varðhaldi en neitar öllu LÖGREGLUMÁL Þrítugur maður var handtekinn á Hvammstanga á þriðjudag eftir að hafa kveikt í íbúð sinni og síðan ekið bíl unn- ustu sinnar út í sjó. Maðurinn bjó ásamt unnustu sinni í kjallara þríbýlishúss við Höfðabraut á Hvammstanga. Unn- ustan hafði nýverið flutt út og virð- ist það hafa orðið honum tilefni til verknaðarins. Slökkvilið var kallað til á þriðja tímanum um daginn þegar eldur logaði í íbúðinni. Maðurinn hafði þá gengið berserksgang í íbúð- inni og borið eld að fötum sem þar voru. Að því loknu ók hann brott á bíl sem skráður er á unnustu hans og út í sjó við ströndina. Bíllinn var hálfur í kafi þegar Blönduóslög- regluna bar að garði. Ekki mun þó hafa verið bráð hætta á ferðum og svo virðist sem maðurinn hafi ekki ætlað að vinna sjálfum sér tjón. Íbúðin er töluvert skemmd eftir brunann, einkum vegna reyks að sögn lögreglunnar á Akureyri sem annast rannsókn málsins. Allt inn- anhúss er ónýtt. Þá er bíllinn einn- ig töluvert skemmdur, enda ók maðurinn yfir nokkuð af stórgrýti á leið sinni niður fjöruna. Maðurinn var drukkinn og ját- aði verknaðinn við yfirheyrslur hjá lögreglu. Honum var sleppt um hádegisbil í gær. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu vegna ýmissa afbrota. - sh Þrítugur íbúi á Hvammstanga tók sambandserfiðleikum illa og skemmdi íbúð: Kveikti í fötum og ók út í sjó FRÁ HVAMMSTANGA Efri hæð hússins er einnig töluvert skemmd, að sögn lögreglu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR SJÁVARÚTVEGUR Ný gulldeplumið hafa fundist djúpt suður af Vest- mannaeyjum. Frá þessu var sagt á heimasíðu Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) í gær. Í fréttinni segir að sjö skip séu nú á veiðum á miðunum nýfundnu, Hugin VE, Kap VE, Birtingur NK, Jóna Eðvalds SF, Guðmundur VE, Hoffell SU og Ásgrímur Halldórsson SF. Öll hafi þau fengið einhvern afla í fyrradag, en bræla og leið- indaveður hafi haft í för með sér að ekki hafi verið hægt að kasta í gærmorgun. Nokkrir erfiðleikar hafa verið með geymslu aflans sökum smæðar gulldeplunnar, en lausn- ar á þeim vanda mun ekki langt að bíða. - kg Miðsjávarfiskur: Ný gulldeplu- mið fundin SKÓLAMÁL Hársnyrtinemar Tækniskólans bjóða gestum klippingu á 1.500 krónur á opnu húsi á kynningardegi skólans, sem haldinn verður laugardaginn 28. febrúar á milli kl. 12 og 16. Á kynningardeginum verða auk þess í boði opnar vinnustofur í teiknun og hönnun, köfunarskóli, ljósmyndastúdíó, skartgripagerð, ratleikur og sýningar á verkefn- um nemenda ásamt því að þyrla Landhelgisgæslu mætir. Opið verður í Sjómannaskóla- húsinu, gamla Iðnskólanum, Vörðuskóla og Flugskólanum. Nánari upplýsingar má nálgast á www.tskoli.is Opið hús í Tækniskólanum: Bjóða klippingu á 1.500 krónur VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.