Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.02.2009, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 26.02.2009, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 26. febrúar 2009 3 Sumarið 2009 verður kjóla-sumar eins og það síð-asta og því styttri sem kjólarnir eru því betra. Ekki kannski alveg það besta í klæðnaði í sjö gráðu rigningar- sudda í Reykjavík í júlí (nema að það verði enn eitt góðviðris- sumarið?) eða roki og rigningu á Stórhöfða. Hinir himinháu hælar sem nota á við kjólana eru held- ur ekki það þægilegasta í göng- ur í grasbrekkum. En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott eins og sungu eitt sinn þau systkin Ellý og Vilhjálmur og það sem mun bjarga íslenskum konum frá kulda og veikindum í sumar eru þykku sokkabuxurnar sem nota má við kjólana. Auðvitað eru þessar sokkabuxur ekki bein- línis kynntar hjá tískuhúsunum sem algjört „must“ í sumar og ekki eru þær heldur komnar úr vor- og sumartískunni í ár. Fæstir eru tískuhönnuðirnir með höfuðstöðvar í Reykja- vík og því verður að taka tískunni eins og hún er, breyta og aðlaga aðstæð- um í hverju landi svo að innfæddir hætti ekki lífi og limum. Endurkoma kjólanna einkennir tískuna síð- ustu misseri eftir að hafa verið í áralangri útlegð ef frá eru tald- ir síðkjólar sérstaklega gerðir fyrir rauða dregla Ósk- arsverðlaunahátíða í Los Ang- eles eða Cesar-verðlaunakvölda í París. Þeir teljast varla með í lífi venjulegra kvenna. Nú er kjóllinn ekki aðeins kom- inn inn úr kuldanum heldur er hann lykilatriðið í fataskápnum. Stuttu kjólana má nota eina sér eða með þykkum sokkabuxum eða leggins eins og um mussu væri að ræða. Aðrir eru fínir með klassískum, víðum síðbux- um eða jafnvel gallabuxum að hætti Ségolène Royal, fyrrver- andi forsetaframbjóðanda hér í landi, sem hefur breyst úr íhaldslega klæddri stjórnmála- konu í Hvatardragt í „póst-hippa- mussu-komma“, „peace and love“ og kemst nú í tískudálka meðal vel klæddu kvennanna í staðinn fyrir að sitja undir háðsglósum meðan hún var reyrð í dragtir líkt og spennutreyju. Hér eins og víðar er fyrst talað um hár- greiðslur og föt þegar stjórn- málakonur eru annars vegar. Hjá ítalska tískuhúsinu Val- entino eru framleiddar þrjár tískulínur og ein þeirra kall- ast RED sem dregið er af hinum fræga rauða Val- entino-lit. Valentino opn- aði á dögunum í fínustu stórverslun Parísar, Le Bon Marché, sem er á „Rive Gauche“ en á Vinstri bakk- anum eru menn sagðir hugsa. Reyndar merkilegt að ekkert er um rauða kjóla þrátt fyrir nafn- ið. Þessi tískulína bíður upp á fjöldann allan af fínum kjólum í hvítu, svörtu og heilmargir í sterkum fjólulit sem sést víða í sumar. Verðið er fimm sinnum lægra en á kjólum aðallínunnar sem verður að teljast plús á þessum síðustu og verstu. bergb75@free.fr Kjólar á allar konur ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá París Alheimskreppan setur mark sitt á tískuvikuna í Mílanó. Tískuvikan í Mílanó hófst í gær en hún verður með ögn fábreytt- ara sniði en oft áður enda hefur alheimskreppan sett mark sitt á tískuheiminn eins og annað. Tæplega áttatíu tískuhús munu kynna haust- og vetrar- línur sínar en það eru um tíu færri tískuhús en í fyrra. Hönn- uðir á borð við Giorgio Armani, Versace og Gucci munu þó ekki láta sig vanta. Æ fleiri framleið- endur leita þó leiða til að kynna vörur sínar öðruvísi en með kostnaðarsömum tískusýningum, og er Roberto Cavalli á meðal þeirra. - ve Tískuvika í kreppu Skeifunni 11 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 • Fax: 517-6465 www.belladonna.is Laugaveg 54, Sími: 552 5201 Vefdeild 365 miðla leitar að kraftmiklum .net forritara Helstu verkefni eru: Viðhald og þróun margvíslegra .net kerfa, ss. Vísir.is, blogcentral.is, veftv-kerfis o.fl., skjölun kerfa, samskipti við innlenda og erlenda undirverktaka/birgja vegna verkefna Þekking/reynsla/menntun: - háskólamenntun æskileg, verkfræði, tölvunarfræði eða samsvarandi menntun - mikil reynsla af visual studio 2005 og 2008 - reynsla á MS SQL Server 2005 og T-SQL - þekking á HTML/DHTML, Java Script, XML, XSLT Viðkomandi þarf að: Geta unnið sjálfstætt og skilað verkefnum á réttum tíma, hafa góða samskiptahæfileika og þjónustulund, hafa gott vald á íslensku og ensku, geta unnið vel undir álagi og hafa a.m.k. þriggja ára reynslu af .net forritun Sótt er um á vef 365 miðla - www.365midlar.is. Frekari upplýsingar veitir Ágúst Valgeirsson framkvæmdastjóri tæknisviðs 365 í síma 5125540 eða agustv@365.is Vilt þú vinna hjá skemmtilegu og líflegu fyrirtæki?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.