Fréttablaðið - 26.02.2009, Page 58

Fréttablaðið - 26.02.2009, Page 58
34 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Meistaradeild Evrópu: Real Madrid-Liverpool 0-1 0-1 Yossi Benayoun (82.). Chelsea-Juventus 1-0 1-0 Didier Drogba (12.). Sporting-Bayern 0-5 0-1 Franck Ribery (42.), 0-2, Miroslav Klose (57.), 0-3 Ribery, víti (63.), 0-3 Toni (84.), 0-5 Toni (90.) Villarreal-Panathinaikos 1-1 0-1 G. Karagounis (59.), 1-1 Giuseppi Rossi (67.). Enska bikarkeppnin: Middlesbrough - West Ham 2-0 1-0 Stewart Downing (5.), 2-0 Sanli Tuncay (20.). Middlesbrough mætir Everton í 8-liða úrslitum. N1-deild karla: Haukar-Víkingur 31-26 Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 10, Kári Kristján Kristjánsson 7, Arnar Jón Agnarsson 5, Elías Már Halldórsson 4, Tjörvi Þorgeirsson 1, Freyr Brynjarsson 1, Andri Stefan 1, Stefán Rafn Sigurmannsson 1, Einar Örn Jónsson 1. Mörk Víkings: Davíð Georgsson 7, Sveinn Þorgeirsson 7, Sverrir Hermannsson 3, Hreiðar Haraldsson 3, Hjálmar Þór arnarson 2, Þröstur Þráinsson 2, Brynjar Loftsson 1, Óttar Pétursson 1. IE-deild kvenna (A): KR-Hamar 62-48 Stig KR: Sigrún Ámundadóttir 13, Margrét Kara Sturlud. 12, Helga Einarsd. 11, Guðrún Þorsteinsd. 8, Hildur Sigurðard. 8, Gréta Guðbrandsd. 6, Heiðrún Kristmundsd. 2, Guðrún Ámundard. 2. Stig Hamars: LaKiste Barkus 15, Julia Demirer 10, Fanney Guðmundsd. 6, Jóhanna Sveinsd. 5, Sóley Guðgeirsd.3, Dúfa Ásbjörnsd.3, Hafrún Hálfdánardóttir 1. Keflavík-Haukar 71-50 Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsd.18, Pálína Gunnlaugsd. 13, Bryndís Guðmundsd. 10, Hrönn Þorgrímsd.10, Halldóra Andrésd.8, Rannveig Randversd. 4, Svava Ósk Stefánsd. 3, Bára Brag- ad. 2, Lóa Másd. 1. Stig Hauka: Monika Knight 11, Helena Hólm 10, Guðbjörg Sverrisd. 9, María Sigurðard. 6, Kristrún Sigurjónsd. 6, Telma Fjalarsd. 4, Bryndís Hreinsd. 2, Heiðrún Hauksd. 1, Sara Pálmad. 1. IE-deild kvenna (B): Fjölnir-Snæfell 47-75 Grindavík-Valur 59-79 Meistaradeildin í handb.: Kiel-GOG 37-29 Ásgeir Hallgrímsson skoraði tvö mörk fyrir GOG. ÚRSLIT FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Baldur Sigurðsson staðfesti við Fréttablaðið í dag að hann myndi ganga í raðir KR, FH eða Vals á næstu dögum. Baldur fundaði með KR og FH í gær og mun líklega hitta Vals- menn að máli í dag. Það verður því ekkert af því að hann gangi í raðir síns gamla félags, Keflavíkur. „Ég er að velta þessu fyrir mér og meta þetta, Báðir fundirnir gengu vel og báðir klúbbar eru mjög fínir. Það verður erfitt að taka ákvörðun sem er samt bara mjög gaman. Það er betra að hafa skemmti- lega kosti en enga,“ sagði Baldur og bætti við að aðeins hefði verið rætt um fótbolta á fundinum en ekkert um peninga. „Ég geri ráð fyrir að hugsa þetta vel um helgina og ákveða mig á mánu- daginn nema eitthvað óvænt komi upp á. Ég hallast ekkert meira að öðru hvoru félaginu enda báðir kostir mjög góðir. Þetta verður ekki auðvelt val,“ sagði Baldur. Hann mun væntanlega semja á þeim for- sendum að komi tilboð erlendis frá fyrir ákveðinn tíma geti hann tekið slíku tilboði. Hann er með að minnsta kosti eitt járn í eldinum sem eitthvað gæti orðið úr. „Eins og staðan er í dag mun ég spila heima en maður veit aldrei hvað gerist. Mér standa til boða valkostir heima núna og maður skoðar bara það sem er í boði,“ sagði Baldur. - hbg Baldur Sigurðsson fundaði með KR og FH í gær og hittir Valsmenn í dag: Verður ekki auðvelt að velja félag EFTIRSÓTTUR Það er hart slegist um Mývetning- inn sterka þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu til- kynnti í gær 20 manna hóp sem er á leiðinni til Portúgals til að taka þátt í Algarve-bikarnum. Sigurður valdi þær Ernu Björk Sigurðardótt- ur og Guðnýju Björk Óðinsdóttur að nýju inn í landsliðið en þær eru báðar að koma til baka eftir krossbandaslit. Erna Björk var að slíta krossbönd í þriðja sinn og nú á hægri eftir að hafa slitið á vinstri fæti í tvö fyrri skiptin. „Ég var mjög glöð þegar þegar ég frétti að þessu. Ég var búin að stefna að þessu og búin að leggja hart að mér síðustu þrjá mánuði,“ segir Erna en hún var síðast með landslið- inu á Algarve fyrir tveimur árum og var þá í byrjunarliðinu í þremur síðustu leikjunum. „Maður var að vinna sig inn í landsliðið og þá var svo leiðinlegt að slíta,” sagði Erna sem sleit krossböndin skömmu eftir að hún kom heim frá Portúgal vorið 2007. Erna segist hafa undirbúið sig fyrir að komast ekki í landsliðið núna. „Það eru svo margar góðar fyrir utan hópinn núna og margar sem voru að standa sig vel á landsliðsæf- ingum um helgina þannig að maður var alls ekki viss um að komast í hópinn. Við stelpurnar í Breiðabliki erum að æfa mikið aukalega og það hefur alveg örugglega hjálpað til,“ segir Erna sem segir landsliðið hafa hvatt hana til að koma til baka. „Ég hafði alltaf sagt að ef ég myndi slíta einu sinn enn þá væri ég hætt. Svo var ég búin að sjá að það væru svo spennandi tímar framundan hjá landsliðinu að ég gæti ekki hætt því þá hefði ég alltaf séð eftir því. Ég er komin aftur í hópinn og það er flott. Ég hætti pottþétt ef ég slít aftur,“ segir Erna. „Nú er ég ekkert að hugsa um þetta heldur stefni að því að halda mér í landslið- inu. Maður getur alltaf bætt sig meira og ég held að ég sé ekki alveg komin þangað sem ég var,“ segir Erna. Hún segist hafa sett stefnuna á að komast á EM í Finnlandi en veit að margt getur breyst þangað til. „Það þýðir ekki neitt fyrir sumarið að vera komin í þennan hóp. Það eiga örugglega aðrar stelpur eftir að standa sig vel í sumar,” segir Erna að lokum. ERNA BJÖRK SIGURÐARDÓTTIR: KOMIN AFTUR Í A-LANDSLIÐIÐ Í FÓTBOLTA EFTIR ÞRIÐJU KROSSBANDASLITIN Gat ekki hætt á svona spennandi tímum Nýting íslenska rjúpnastofnsins Málstofa á vegum Skotveiðifélags Íslands verður haldin laugardaginn 28. febrúar 2009 kl. 14:00 á Fosshótel Lind, Rauðarárstíg 18. Dagskrá Rjúpnarannsóknir á Íslandi Dr. Ólafur K. Nielsen, fuglafræðingur Náttúrufræðistofnun Íslands Um sníkjudýr rjúpunnar Karl Skírnisson, dýrafræðingur Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði, Keldum Rjúpnaveiðar á Íslandi, lesið í veiðiskýrslur Bjarni Pálsson, deildarstjóri Svið náttúruauðlinda, Umhverfisstofnun Veiðiráðgjöf Náttúrufræðistofnunnar Dr. Ólafur K. Nielsen, fuglafræðingur Náttúrufræðistofnun Íslands Stofnlíkan fyrir rjúpu Gunnar Stefánsson, prófessor við Háskóla Íslands Veðrið á veiðitíma rjúpunnar Árni Sigurðsson, veðurfræðingur, Veðurstofu Íslands Um veiðitíma á rjúpu Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands Þeir sem hyggjast sækja málstofuna eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku á tölvupósti: skotvis@skotvis.is Fundarstjóri: Elvar Árni Lund www.skotvis.is > KR náði þriðja sætinu KR vann í gær sigur á Hamri, 62-48, og tryggði sér þar með þriðja sæti A-riðils Iceland Express deildar kvenna en deildakeppninni lauk í gær með heilli umferð í bæði A- og B-riðlum. KR mætir því Grindavík í fyrstu umferð úrslitakeppninn- ar en Hamar þarf að kljást við Valsmenn. Haukar og Keflavík voru búin að tryggja sér efstu tvö sætin í A-riðli og fara því beint inn í undanúrslitin þar sem þeirra bíða sigurvegarar hinna leikjanna tveggja. Keflavík vann í gær stórsigur á deildarmeist- urum Hauka á heimavelli, 71-50, í leik sem hafði þó litla þýðingu. FÓTBOLTI Ensku liðin Liverpool og Chelsea standa vel að vígi fyrir síðari viðureignir sínar í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Bæði lið unnu 1-0 sigra á sterkum andstæðingum sínum. Þá vann Bayern München 5- 0 stórsigur á Sporting Lissabon og það í Portúgal. Panathinaikos gerði einnig góða ferð til Spán- ar þar sem liðið náði 1-1 jafntefli gegn Villarreal. Steven Gerrard var ekki í byrj- unarliði Liverpool í gær en hann er að jafna sig á meiðslum. Þar að auki var hann veikur í gær en lék þó síðustu mínúturnar í leiknum. Fyrri hálfleikur var fjörlegri en sá síðari þó svo að mörkin hafi látið standa á sér. Heimamenn byrjuðu betur en Liverpool fékk betri færi. Iker Casillas var vel á verði gegn þeim Fernando Torres og Benayo- un sem fengu báðir ágæt færi. Real Madrid skoraði svo mark sem var dæmt af vegna rangstöðu en þar var Gonzalo Higuain á ferð- inni. Arjen Robben þekkir Liver- pool vel frá sinni tíð hjá Chelsea en hann átti eitt hættulegasta færi Real Madrid er hann þrumaði knettinum að marki á 71. mínútu en Pepe Reina sá við honum. Madrídingar náðu annars lítið að ógna í leiknum og gerðu sig seka um slæma varnarvinnu er Liver- pool skoraði markið. Fyrst fékk Gabriel Heinze á sig aukaspyrnu á hættulegum stað er hann handlék knöttinn en úr henni kom mark- ið. Fabio Aurelio tók auka- spyrnuna sem rataði beint á Benayoun sem skor- aði með kröftug- um skalla, einn og óvaldaður í teignum. Didier Drogba var hetja Chelsea gegn Juventus en eina mark þess leiks kom strax á 12. mínútu. Hann fékk sendingu frá Salomon Kalou á vítateigslínunni, náði að snúa af sér rang- stöðugildru Ítalanna og skora með ágætu skoti. Bæði lið fengu ágæt færi eftir þetta og komst til að mynda Pavel Nedved nálægt því að jafna í blá- lokin er skot hans breytti um stefnu á varnarmanninum Alex og fór hárfínt framhjá marki Chel- sea. Bayern München setti met í gær þegar liðið skoraði í sínum fjór- tánda útileik í röð í Evrópukeppn- um. Óhætt er að Bæjarar hafi gert það með stæl þar sem þeir skor- uðu fimm sinnum í mark lánlausra heimamanna í Sporting Lissabon. eirikur@frettabladid.is Benayoun hetja Liverpool Yossi Benayoun var hetja Liverpool er hann tryggði sínum mönnum 1-0 sigur á Real Madrid á útivelli í gær. Chelsea vann einnig 1-0 sigur á Juventus á Brúnni en alls fóru fjórir leikir fram í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. DROGBA FAGNAR Didier Drogba hefur oft reynst Chel- sea dýrmætur í stóru leikjunum og það var tilfellið í gær. NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES SIGURMARKIÐ Yossi Benayoun skallar hér að marki Real Madrid og tryggir Liverpool sigurinn. NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.