Tíminn - 04.01.1990, Síða 3
Fimmtudagur '4. jánúár '1990
Tíminn 3
Vinnufundir um starf-
semi Þjóðleikhússins
, á þessu ári:
Akvörðun í
lok janúar
Enn hafa engar ákvarðanir verið
teknar, varðandi starfsemi Þjóðleik-
hússins seinni part þessa árs, en sem
kunnugt er verður því lokað í vor, á
meðan fram fara endurbætur á hús-
inu. Að sögn Gísla Alfreðssonar
þjóðleikhússtjóra verður ekki tekin
endanleg ákvörðun um framvindu
mála fyrr en í lok mánaðarins.
Þjóðleikhússtjóri hefur undan-
farna daga setið á fundum með
menntamálaráðherra og öðrum
þeim aðilum er málið varða. Engar
ákvarðanir varðandi starfsemina
hafa verið teknar og að sögn Gísla
hefur verið um vinnufundi að ræða,
þar sem menn hafa velt upp ýmsum
hugmyndum um hvernig halda megi
leikstarfsemi gangandi þann tfma
sem Þjóðleikhúsið verður lokað.
Verðmæti alls
sjávarafla 37
milljarðar kr.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands er heildarafli
landsmanna á árinu sem er að líða
1522 þúsund tonn og er það sjötta
árið í röð sem sjávarafli fer yfir 1500
þúsund tonnin. Áætlað er að verð-
mæti alls afla upp úr sjó verði um
37,5 milljarðar króna, en á árinu
1988 var verðmætið rúmlega 30,7
milljarðar og hefur aukningin á milli
ára því orðið 22,1%.
Þetta segir hins vegar ekki alla
söguna, því í dollurum talið minnk-
aði verðmætið úr 714 milljónum
1988 í 661 milljón dollara eða um
7,4%. Sé miðað við gengi SRD
gjaldmiðilsins þá var andvirði aflans
nú 517 milljónir en var í fyrra 534
milljónir, sem er samdráttur upp á
3,2%.
Áætlað er að andvirði útflutnings
sjávarafurða 1989 verði 57,5 millj-
arðar króna, miðað við 45,2 millj-
arðar árið áður. í dollurum talið
verður andvirði útflutningsins 1.013
milljónir, en var 1.052 milljónir í
fyrra. Þetta þýðir samdrátt upp á
4%. Sé hins vegar miðað við SRD er
aukning upp á 1% milli áranna, úr
785 milljónum 1988 í 793 milljónir
króna 1989. Þess ber að geta að
birgðir sjávarafla eru minni í ár en
undanfarin ár. - ABÓ
Hörður Ágústs-
son fær heið-
ursverðlaun
Herði Ágústssyni listmálara hefur
verið veitt heiðursverðlaun úr Verð-
launasjóði Ásu Guðmundsdóttur
Wright. Verðlaunin eru viðurkenn-
ingarskjal og peningaverðlaun að
upphæð 155 þúsund krónur. Hörður
fær verðlaunin fyrir rannsóknir á
sögu byggingarlistar á íslandi og
fyrir að kanna þróun og gerð bygg-
inga hér á landi allt frá Landnáms-
öld.
í stjórn sjóðsins eiga sæti Sturla
Friðriksson, Ármann Snævarr próf-
essor og Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri, - EÓ
VÖRURIVIRÐISAUKASKATTI:
Samaverð
stunaum lægra!
Nýmjólk, G-mjólk,
undanrennaog
léttmjólk lækka í
veröi vegna
endurgreiðslunnar.
Þessi lækkun á aö
skilasérbeint í
vöruverðinu strax
eftir áramótin.
Neyslufiskur á að
lækka í verði.
Endurgreiðslan
miðast við ferskan
óunninn neyslufisk í
heildsölu.
Álagningin er frjáls,
og er mikilvægt að
fisksalar og
neytendurtaki
höndum saman til
að skattalækkunin
skili sér í
vöruverðinu.
Tegundirnar sem
lækka eru:Ýsa,
þorskur, ufsi,
steinbítur, karfi,
langa, keila, lúða,
koli, skata,
skötuselur,
rauðmagi og
grásleppa.
Vöruverð á ekki að hækka þegar virðisaukaskattur leysir
söluskatt af hólmi nú um áramótin.
Vissar vörutegundir lækka verulega og almennt
vöruverð stendur í stað eða þokast niður á við.
Meö virðisaukaskatti breytist skatthlutfallið úr 25% í 24,5%. Þá hverfa einnig
uppsöfnunaráhrif söluskatts í vöruverðinu því að virðisaukaskattur leggst aðeins
einu sinni á sömu vöruna, óháð fjölda framleiðslu- og viðskiptastiga. Vöruverð á
því alls ekki að hækka vegna kerfisbreytingarinnar. Þvert á móti ætti breytingin
að leiða til lækkunar á almennu vöruverði.
Vegna sérstakrar endurgreiðslu hefur skattbreytingin þau áhrif að neyslumjólk,
ferskfiskur, kindakjöt og ferskt innlent grænmeti bera ígildi 14% skatts í stað 24,5%
á öðrum vörum. Ef aðrir þættir, til dæmis álagningin, haldast óbreyttir geta
skattaumbæturnar haft í för með sér að þessi matvæli lækka um allt að 7-9%
strax eftir áramótin.
\skm
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
Kindakjöt í heilum
og hálfum skrokkum
lækkar i verði frá
afurðastöðvunum
nú strax eftir
áramótin vegna
endurgreiðslunnar.
Verðlækkun átil
dæmis
lambalærum,
lærissneiðum,
hrygg, kótilettum og
súpukjöti er háð
aðgæslu
kjötkaupmanna og
aðhaldi neytenda
þvifrjáls álagning er
á unninni kjötvöru.
Allt innlent
grænmeti lækkar í
verði, til dæmis
kartöflur, sveppir,
baunaspírur,
gulrófurog
gulrætur. Álagning
er frjáls á þessari
matvöru. Þess
vegna er það ekki
sístkomið undir
árvekni neytenda og
aðgæslu
verslunarmanna að
endurgreiðslan skili
sérað fullu í
vöruverðinu.
FYLGJUMST MEÐ - VEITUM AÐHALD
Það er mikilvægt að almenningur veiti aðhald og beri saman verðlag fyrir og eftir
áramót. VERÐLAGSSTOFNUN fylgist með því af fremsta megni að
skattbreytingin um áramót leiði ekki til verðlagshækkunar, og að endurgreiðslan
skili sér í lækkuðu verði þeirra innlendu matvæla sem hún tekur til.
Ef þú verður var/vör við óeðlilegar verðhækkanir eftir áramótin, og ekki fást
fullnægjandi skýringar hjá kaupmanninum,
skaltu hafa samband við VERÐLAGSSTOFNUN. Hún kannar hvert tilvik og hefur
sérstakt eftirlit með verðlagsbreytingum.
r,
PÓSTFAX TÍMANS 687691
HEIMSMEISTARA-HAPPDRÆTTI
HANDKNATTLEIKSSAMBANDS ÍSLANDS
Stöndum saman um landsliðið okkar