Tíminn - 04.01.1990, Síða 12
Toyota Landcruser
TIL SÖLU
árg'67
12 Tíminn
Fimmtudagur 4. janúar 1990
lllIilllllllllllllHilllll DAGBÓK llllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllilllllllllllllllllllllll BÆKUR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Hlíf Sigurjónsdóttir, David Tutt og Christian Giger leika saman í Listasafni Sigurjóns á laugardag.
Tónleikar í Listasafni
Sigurjóns um helgina
Laugard. 6. janúar kl. 17:00 veröa
tónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafsson-
ar. Oar leika þau HKf Sigurjónsdóttir
fiðluleikari, David Tutt píanóleikari og
Christian Giger sellóleikari. Þau flytja
píanótríó nr. 1 ópus 49 í d-moll eftir
Mendelssohn og píanótríó nr. 1 ópus 8 í
H-dúr eftir Johannes Brahms.
Hlíf, David og Christian hafa leikið
saman undanfarin ár og m.a. haldið
fjölda tónleika í Sviss. Haustið 1988
komu þau einnig fram sem tríó hér á landi
við vígslu Listasafns Sigurjóns.
Frá Listasafni íslands
í Listasafni íslands stendur nú yfir
sýning á verkum í eigu safnsins. Verkin
eru unnin á árunum 1945-1989.
Listasafnið vill minna á breyttan opn-
unartíma. Safnið er nú opið alla daga,
nema mánudaga, frá kl. 12:00 til 18:00.
Veitingastofa safnsins er opin á sama
tíma.
Almenn leiðsögn um sýninguna sem
stendur í safninu fer fram á sunnudögum
kl. 15:00 í fylgd sérfræðings. Leiðsögnin
„Mynd mánaðarins" er á fimmtudögum
kl. 13:30.
Frá Félagi eldri borgara
Göngu-Hrólfur. Félagar hittast eftir
jólafrí laugardaginn 6. jan. kl. 11:00 að
Nóatúni 17.
Opið hús verður í Goðheimum, Sigtúni
3, sunnudaginn 7. janúar. Kl. 14:00 -
frjálst spil og tafl og kl. 20:00 verður
dansað.
Sönghópurinn Emil og Anna
Sigga í Norræna húsinu í kvöld
í Norræna húsinu mun í kvöld, fimmtu-
daginn 4. janúar kl. 20:30 koma fram
Sönghópurinn Emil ásamt Önnu Siggu og
nokkrum hljóðfæraleikurum. Þau munu
túlka þar tónlist eftir einn af meðlimum
Bach-fjölskyldunnar, P.D.Q. Bach, sem
var einn af sonum J.S. Bachs.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Safnaðarfélag Ásprestakalls verður
með kaffisölu í safnaðarheimilinu sunnu-
daginn 7. janúar eftir messu, sem hefst kl.
14:00. Allir velkomnir.
Toyota Corolla 1600 Gti 1988
ekinn 32.000 km
□ Rafmagn í rúðum □ Raflæsingar □ Sóllúga □
□ Vökvastýri □ Vetrar- og sumardekk. □
Skipti möguleg. Verðhugmynd 1.050.000.-
Upplýsingar í síma 686300 frá kl. 9.00 til 14.30
og 675603 eftir kl. 18.00.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur
félagsvist laugardaginn 6. janúar í Húna-
búð, Skeifunni 17. Félagsvistin hefst kl.
14:00. Allir velkomnir.
Þrettándafagnaður
Héraðsmanna í Reykjavík
Félagsmenn Átthagasamtaka Héraðs-
manna, svo og aðrir Héraðsmenn, vinir
og kunningjar, ætla að hittast í „Bláa
salnum“ að Hótel Sögu laugardaginn 6.
janúar kl. 20:30.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
Minningarkort Styrktarsjóðs
barnadeildar Landakotsspítala
Styrktarsjóður barnadeildar Landa-
kotsspítala hefur látið hanna minninga-
kort fyrir sjóðinn. Sigríður Bjömsdóttir
myndlistarmaður og kennari teiknaði
fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir
selja minningakortin:
Apótek Seltjarnarness, Vesturbæjarapót-
ek, Hafnarfjarðarapótek, Garðsapótek,
Holtsapótek, Mosfellsapótek, Árbæjar-
apótek, Lyfjabúð Breiðholts, Reykjavík-
urapótek, Háaleitisapótek, Kópavogsap-
ótek, Lyfjabúðin IÐunn. Blómaverslan-
irnar; Burkni, Borgarblóm, Melanóra
Seltjarnarnesi og Blómavali Kringlunni.
Einnig eru þau seld á skrifstofu og
barnadeild Landakotsspítala.
Ættbók og
saga íslenska
hestsins
5. bindi
í þessu bindi er lýsing
stóðhesta frá nr. 964 til 1140 og
lýsing á hryssum frá nr. 3500 til nr.
4716. Þá er í bókinni starfssaga
höfundarins Gunnars
Bjarnasonar sem ráðunautar til
ársins 1973. Segir þar m.a. frá
kynningu á íslenska hestinum í
Evrópu og Ameríku og stofnun
hestaklúbba erlendis. Bókina
prýða myndir af flestöllum
stóðhestum sem lýsing er af.
Forseta
bruggað
banaráð
Frjálst framtak hefur gefið út
skáldsöguna Banaráð eftir breska
rithöfundinn Jeffrey Archer. Er
þetta þriðja bókin eftir hann sem
kemur út á íslensku. Áður hafa
verið gefnar út bækurnar Heiður í
húsi og Hvorki meira né minna.
Banaráð fjallar um samsæri
semm gert er gegn Flórentínu
Kane, fyrstu konunni sem gegnir
embætti forseta Bandarikjanna.
Leyniþjónustan fær veður af
áformum samsærismanna en þeir
sem vitneskju hafa um málið týna
brátt tölunni. FBI-maðurinn Mark
Andrew er lykilmaður í því að
leysa gátuna. Hann veit í fyrstu
fátt annað en að
öldungadeildarþingmaður er
viðriðinn málið og að tíminn til
stefnu er skammur. Kapphlaupið
við að ná samsærismönnunum er
mikið og spennandi.
Jeffrey Archer er einn af
kunnustu
spennusagnahöfundum í heimi
og bækur hans hafa verið á
metsölulistum bæði í
Bandaríkjunum og Bretlandi.
Gerðar hafa verið kvikmyndir og
sjónvarpsmyndaflokkar byggðir á
sögum hans og m.a. sýndir
hérlendis. Má þar nefna Fremstir
meðal jafningja og Kain og Abel.
Björn Jónsson þýddi bókina
sem er 256 blaðsíður. Bókin er
prentunnin í Prentsmiðjunni
Odda en auglýsingadeild Frjáls
framtaks hf. hannaði kápuna.
Þessu trúir
enginn
Iðunn hefur gefið út bókina
Þessu trúir enginn, en hún er
gefin út í tilefni af 50 ára afmæli
Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
í bókinni er að finna
ógleymanlegar frásagnir af
þrautreyndum
stangaveiðimönnum, bæði þeim
sem voru frumherjar í íslenskri
stangaveiði og lögðu á sig ómælt
erfiði til að komast í kallfæri við
veiðigyðjuna og hinum sem
fetuðu í fótspor þeirra og margir
eru sjálfir orðnir goðsagnir í
lifanda lifi. Hér er saga
stangaveiðinnar sögð með orðum
veiðimannanna sjálfra og
veiðiævintýrið og gleðin af
samvistum við náttúruna sitja í
fyrirrúmi.
Hér segir frá veiðum
Jóhannesar á Borg, Hermanns
Jónassonar og Thors Jensen, frá
fyrstu íslensku
stangveiðikonunni, frá hertogum,
bændum og trillukörlum og frá
fjölmörgum ólíkum
einstaklingum. Bókin er prýdd
fjölda ljósmynda.
Viðtöl í bókinni tóku Guðrún
Guðjónsdóttir og Guðni
Kolbeinsson.
Rímaðargátur
Gátuvísur eftir Sigurkarl
Stefánsson eru komnar út hjá
Skákprenti. Þar eru 76 gátuvísur
að glíma við fyrir þá sem þjálfa
vilja hugann.
Höfundurinn, Sigurkarl
Stefánsson, er kunnur sem
kennari við menntaskóla og
háskóla og hefur áður komið út
safn af gátuvísum eftir hann.
Mynd mánaðarins í
Listasafni íslands
Mynd janúarmánaðar í Listasafni ís-
lands er eftir Gunnar Öm Gunnarsson
myndlistarmann. Verkið, sem ber heitið
„Mynd“, er unnið með olíulitum árið
1976. Stærð þess er 145X130.5 og var það
keypt til safnsins árið 1976.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins“ fer
fram í fylgd sérfræðings, fimmtudag kl.
13:30-13:45 og er safnast saman í anddyri.
Listasafn Islands er opið alla daga,
nema mánudaga, kl. 12:00-18:00. Veit-
ingastofa safnsins er opin á sama tíma.
Aðgangur er ókeypis, svo og auglýstar
leiðsagnir.
Tónleikar í Gerðubergi
Mánudaginn 8. janúar kl. 20:30 verða
Ljóðatónleikar í Gerðubergi í Breiðholti.
Þar syngur John Speight baritonsöngvari
og Jónas Ingimundarson leikur á píanó.
Flutt verða lög eftir Purcell, Ives, Britten,
Wolf, Schubert og Schumann.
m
Jón Viðar Sígurðsson
FRÁ GOQORÐUM
TIL RIKJA
ÞRÓUN GODAVALDS Á12. OG 13. ÖLD
Stjórnmála-
þróun Sturl-
ungaaldar
Frá goðorðum til ríkja — þróun
goðavctlds á 12. og 13. öld eftir Jón
Viðar Sigurðsson er komin út á
vegum Sagnfræðistofnunar
Háskólans.
Um verkið segir svo á
bókarkápu:
Um nokkurt skeið hefur verið
Íiví likast sem gróinn áhugi
slendinga á fólki og atburðum
fyrstu aldanna í sögu þeirra hafi
heldur sjatnað. Nú virðist hann
vera að sækja í sig veðrið á ný. Til
marks um það er meðal annars rit
það sem hér kemur fyrir
almennings sjónir. Það fjallar um
„valdasamruna 12. og 13. aldar"
hér á landi og er að stofni til
kandidatsritgerð höfundarins við
Björgvinjarháskóla frá 1987. Það
leiðir hugann að því, að saga
íslands á miðöldum vekur áhuga
langt út fyrir raðir landsmanna
sjálfra, þó að Norðmenn snúi
líkast til þynnra móðureyra að
slikri umræðu en aðrir.
Ungur fræðimaður dregur
saman í einn stað heimafengna
þekkingu og skoðar hana síðan í
ljósi erlendra sem innlendra
athugana á fyrirbærum, atvikum
og aðstæðum. Kemur þá meðal
annars á daginn, að ófáir
fræðimenn annarra þjóða hafa
kannað og brotið heilann um sögu
íslands og þjóðfélagsþróunina þar
fyrir daga Gamla sáttmála.
Samantekt Jóns Viðars
Sigurðssonar um
stjórnmálaþróun Sturlungaaldar,
þegar Noregskonungur var sem
óðast að flækja islenzku
höfðingjana í neti sínu, vekur ótal
spurningar og er til þess fallin að
varpa ljósi á gang mála frá ýmsum
sjónarhornum sem íslendingar
hafa naumast gefið gaum til
þessa.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
sér um útgáfu og dreifingu.
Vél Chevrolet 350«Sjálfskiptur -
Vökvastýri - Dekk: 40” Mudder«
Namco hásingar - (sama og 14 bolta
Chevrolet)«Blæja.