Tíminn - 04.01.1990, Side 17
Fimmtudagur 4. janúar 1990
r»r
Halldór Jón
Almennur stjórnmálafundur
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra og Jón Kristjánsson
alþingismaður ræða stjórnmálaviðhorfið, atvinnu og byggðamál á
almennum stjórnmálafundi í Valaskjálf á Egilsstöðum mánudaginn 8.
janúar kl. 20.30.
Halldór Ásgrímsson,
Jón Kristjánsson.
Páll Pétursson Stefán Guðmundsson
Vestur Húnvetningar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals í Vertshúsinu, Hvammstanga mánudaginn 8. jan. kl. 18-20.
Skarðstrendingar - nærsveitamenn
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals á hótel Dagsbrún, þriðjudaginn 9. jan. kl. 14-17.
Hofsósbúar - nærsveitamenn
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals í Höfðaborg Hofsósi miðvikudaginn 10. jan. kl. 15-18.
Guðmundur Páll Stefán ElínR
Bjarnason Pétursson Guðmundsson Lindal
Austur Húnvetningar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Hótel Blönduósi þriðju-
daginn 9. jan. kl. 20.30.
Frummælendur: Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson og
Elín Líndal varaþingmaður.
Allir velkomnir.
Steingrímur
Páll
Stefán
Skagfirðingar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Safnahúsinu á Sauðár-
króki miðvikudaginn 10. jan. kl. 20.30.
Frummælendur: Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra og
alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson.
Allir velkomnir
Halldór
Siglfirðingar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Hótel Höfn sunnudaginn
14. jan. kl. 14.
Frummælendur: Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra og al-
þingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson.
Allir velkomnir.
Tíminn 17
lllllllllllllllllillllllll SPEGILL ............................................................................................................Illllll...........................Illlll........
„Þetta var gott ár,“
segir leikarinn Sam Neill, sem fékk í ár verðlaun fyrir
kvikmyndaleik - og kvæntist í fyrsta sinn, 41 árs
Sam Neill hefur verið eftirsóttur
kvikmyndaleikari í mörg ár, og er
enn sagður á uppleið í leiklistinni.
Til sannindamerkis má nefna, að
myndin „A Cry In The Dark“ sem
Sam Neill og Meryl Streep léku í,
fékk ótal verðlaun - Oscars-verð-
laun og IFA-verðlaunin í Ástralíu.
Þar fékk Sam m.a. verðlaun fyrir
bestan leik, og var það heiður sem
hann mat mjög mikils.
En aðallán hans í ár, segir leikar-
inn, var að kvænast Noriko, hinni
japönsku vinkonu sinni. Þau hafa
þekkst vel í þrjú ár. Noriko er
förðunarmeistari og vinnur við
kvikmyndir.
Sam Neill hefur aldrei áður
gengið í hjónaband, en hann á sjö
ára son með leikkonunni Lisu
Harrow, sem var vinkona hans um
árabil. Sú leikkona lék móður
Nonna og Manna í samnefndri
kvikmynd.
Annars hefur Sam Neill verið
þekktastur fyrir leik sinn í njósna-
eða spennumyndum, svo sem eins
og í sjónvarpsmyndinni Reilly, sem
gerist á keisaratímabilinu í Rúss-
landi. Þar leikur Neill enskan
njósnara sem lendir í ótal ævintýr-
um. Einnig þótti hann mjög góður
í myndinni „Dead Calm“ sem hef-
ur verið sýnd hér á landi.
Sam Neill er fæddur í Norður-ír-
landi, en í föðurætt er hann ættaður
frá Nýja-Sjálandi. Hann ólst þar
upp að mestu leyti og þar á hann
bústað, sem hann er oft í þegar
hann tekur sér frí. Einkum að vetri
til, því að þá er besta veðrið á
suðurhveli jarðar.
„London er mér nauðsynleg,"
segir hann, og bætir því við, að
þangað komi hann til að fara í
leikhús og fá andlega næringu.
Fara á sýningar og kynnast nýjum
menningarstraumum. Best sé að
koma á vorin til Bretlands og eftir
nokkrar leikhúsferðir, að ferðast
þá norður til Skotlands og yfir til
Irlands.
En Nýja Sjáland og Ástralíu
segist hann elska vegna útilífsins
þar, veðráttunnar og þar eigi hann
svo marga góða kunningja og vini.
Þau sópuðu að sér verðlaunun-
um, Meryl Streep og Sam Neill
eftir frumsýningu á myndinni „A
Cry In The Dark“
Sam Neill er hér í hlutverkum
sínum í spennumyndinni „Dead
Calm“ t.v. og sem Reilly í sam-
nefndri sjónvarpsmynd
Brúðhjónin Noriko Watambe og Sam Neill búa nú í Sydney, þar sem
Sam er að skrifa handrit að kvikmynd
Lisa Harrow, sem lék í myndinni Nonna og Manna (móður þeirra) og
Sam eiga saman 7 ára son