Tíminn - 04.01.1990, Side 19

Tíminn - 04.01.1990, Side 19
Flmrr'ifildácjur 4! járiuáf 1990 llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR Belgía: Boutsen kjörinn Ökuþórinn Thierry Boutsen, sem keppir í Formula 1 flokki, hefur verið kjörínn íþróttamaður ársins í Belgíu, en þarlendir íþróttafrétta- menn lýstu kjörínu í gær. Boutsen, sem ekur Williams bíl sigraði í kanadíska og ástralska Grand Prix kappakstrinum á síðasta ári. Hann hlaut 337 atkvæði á kjör- inu, en næstur kom markvörður belgíska knattspyrnulandsliðsins og liðs Mechelen, Michel Preud’- homme sem hlaut 204 atkvæði. Ingrid Berghmans Evrópu og heimsmeistari í júdó var kjörinn íþróttakona ársins með miklum yfir- burðum. BL Skoska knattspyrnan: Rangers á toppnum Glasgow Rangers trónir nú eitt í efsta sæti skosku úrvalsdeildarinnar í knattspymu eftir 2-0 sigur á erki- fjendunum Celtics á útivelli í fyrra- dag. Aberdeen er í öðra sæti, en liðið sigraði Dundee 5-0. Mother- well vann 2-0 sigur á Guðmundi Torfasyni og félögum í St. Mirren 2-0. Staðan í skosku úrvalsdeildinni: Rangers . 21 12 5 4 27-12 29 Aberdeen . 21 11 5 5 33-17 27 Hearts . 21 9 5 7 36-25 23 Celtic . 21 8 7 6 26-19 23 Dunfermline ... . 19 7 6 6 24-23 20 Motherwell .... . 20 5 9 6 25-27 19 Dundee United . . 20 5 9 6 22-24 19 Hibernian . 20 6 6 8 19-26 18 St. Mirren . 20 5 5 10 18-37 15 Dundee . 21 2 7 12 28-48 11 BL (slenskar getraunir: Tvær tólfur í árslok I 52. leikviku fslenskra getrauna sl. laugardag 30. desember gekk fyrsti vinningur út, en potturínn var sem kunnugt er tvöfaldur. Tvær raðir komu fram með 12 réttum og fyrír hvora greiða Getraunir út 329.478 kr. í vinning. Önnur tólfan kom á 100 kr. tölvu- val í versluninni Bárunni í Grindavík og hin kom á 3.680 kr. opinn seðil sem keyptur var í sölutuminum Ásnum á Eyrarbakka. 17 raðir komu fram með 11 réttum og fyrir hverja röð greiðast 16.612 kr. í vinning. Úrslitaröðin varð þessi: 111, 211, x2x, lxl. BL Gamlárshlaup (R: Jóhann vann Gamlárshlaup ÍR var haidið í 14. sinn sl. gamlársdag og var metþátt- taka í hlaupinu að þessu sinni, 86 luku keppni. Jóhann Ingibergsson úr FH kom fyrstur í mark 31,14 mín. Annar í hlaupinu varð Bragi Sigurðsson Ár- manni og Daníel Guðmundsson USAH varð þriðji. Fyrst kvenna varð Martha Emst- dóttir ÍR á 33,51 mín. BL Knattspyrna: Stórsigur á Lichtenstein íslenska unglingalandsliðið í knattspymu skipað leikmönnum 18 ára og yngrí vann lið Lichtenstein 9-0 í aukaleik í ísrael í fyrradag, en þar hefur íslenska liðið dvalið að undanförnu við keppni. Ríkharður Daðason gerði 4 mörk, Þórður Guðjónsson 3 og þeir Arnar Gunnlaugsson og Arnar Grétarsson gerði 1 mark hvor. BL n i i iV i' .’ Tíminn 19 íþróttamaöur ársins 1989: Kjörinu lýst í kvöld f hófi á Hótel Loftleiðum i kvöld verður lýst kjöri íþróttamanns árs- ins 1989. Mikil leynd hvflir jafnan yflr kjörínu sem Samtök íþrótta- fréttamanna standa að. í gær sendi Samúel Öm Erlingsson formaður samtakanna þó frá sér lista yfir þá 10 íþróttamenn sem efstir urðu í kjörínu. Listinn er ekki í endan- legrí röð heldur í stafrófsröð og því verður spennan í hámarki í kvöld þegar kjörinu verður lýst. Listinn yfir 10 efstu menn í kjörinu fer hér á eftir, í stafrófsröð: Alfreð Gíslason handknattleiks- maður með KR, Bidasoa á Spáni og íslenska landsliðinu. Amór Guðjohnsen knattspyrnu- maður með Anderlecht í Belgíu og íslenska landsliðinu. Ásgeir Sigurvinsson knattspyrnu- maður með Stuttgart í V-Þýska- landi og islenska iandsliðinu. Bjarni Fríðriksson júdómaður úr Ármanni. Einar Vilhjálmsson frjálsíþrótta- rnaður úr UÍA. Kristján Arason handknattleiks- maður með Teka á Spáni og ís- lenska landsliðinu. Ragnheiður Runólfsdóttir sund- kona frá Akranesi. Sigurður Einarsson frjálsíþrótta- maður úr Ármanni. Þorgils Óttar Mathiesen hand- knattleiksmaður úr FH og íslenska landsliðinu. Þorvaldur Örlygsson knattspyrnu- maður úr KA, Nottingham Forest og íslenska Iandsliðinu. Eins og áður segir verður kjörinu lýst í hófi á Hótel Loftleiðum í kvöld, en í Ríkissjónvarpinu verð- ur sýnt beint frá athöfninni í frétta- tíma. BL NBA-deildin: Portland vann eftir 3 framlengingar Leikir ■ NBA-deildinni í körfu- knattleik í Bandaríkjunum geta orð- ið mjög spennandi eins allir vita og oft þarf að framlengja leiki til þess að úrslit fáist. Sl. föstudag varð að þríframlengja leik Portland Trail Blazers og Dallas Maverícks áður en úrslit lágu fyrir. Það var Ioks lið Portland sem sigraði 144-140 eftir að leikið hafði veríð í 63 leikmínútur. Úrslitin á föstudag urðu þessi: Milwaukee Bucks-Detroit Pist. ... 99- 85 Phoenix Suns-Minnesota T.w. . . . 118-101 Chicago Bulls-S.A.Spurs.101- 97 Portland T.B.-Dallas Maver......144-140 Boston Celtics-Seattle Supers. ... 96-89 L.A.Lakers-Golden State Warr. . . 130-111 Sacramento Kings-Philadelphia . . 105- 95 Úrslitin í fyrrinótt urðu á þessa leið: Atlanta Hawks-Milwaukee Bucks . 113-107 Detroit Pistons-Orlando Magic . . . 115-113 Washington Bullets-N.J.Nets .... 110-96 L.A.Clippers-Minnesota Timberw. . . 87- 79 Phoenix Suns-New York Knicks . . 113- 99 Dallas Mavericks-Indiana Pac. . . . 110-106 Golden State Warr.-Utah Jazz . . . 133-120 Portland Trail Bl.-Miami Heat . .. 119- 95 BL Knattspyma: Stjóri Luton hættur störfum Ray Harford hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri enska 1. deildarliðið Luton. Luton berst nú harðri baráttu fyrir sæti sínu í 1. deild, en liðið hefur nú 20 stig í næst neðsta sæti deildarinn- ar. Fyrir aðeins 6 vikum skrifaði Har- ford undir nýjan tveggja ára samning við félagið, en nú hefur veður skipast í lofti. Óánægja vegna sölunnar á Roy Wegerle til QPR fyrir 1 milljón punda í síðasta mánuði mun vera ein af ástæðunum fyrir brottför Harford ásamt slæmu gengi liðsins að undan- förnu. Undir stjórn Harfords sigraði Luton í fyrsta skipti í stórmóti, þegar félagið sigraði Arsenal í úrslit- um deildarbikarkeppninnar 1988 og í fyrra lék liðið á ný í úrslitum keppninnar en tapaði þá fyrir Nott- ingham Forest. BL p ... LESTUNARÁÆTLUN '....■ Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Árhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla miðvikudaga Varberg: Alla fimmtudaga Moss: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Arnarfell .... 5/1 1990 Gloucester/Boston: Alla þriðjudaga New York: Alla föstudaga Portsmouth/Norfolk: Alla sunnudaga Lestunarhafnir innanlands: Reykjavík: Alla miðvikudaga Vestmannaeyjar: Alla föstudaga Húsavík: Alla sunnudaga Akureyri: Alla mánudaga ísafjörður: Alla þriðjudaga SK/MDE/LD SmmANDSJMS Sambandshúsinu, Kirkjusandi 105, Reykjavík, sími 698300 l Á Á. A A X 1 i a , ■'AKN IRAijsÍRÁ H.t')Íf9)Nr iA Frjálsar íþróttir: Lewis-Johnson einvígi í uppsiglingu á árinu Allt útlit er nú íyrir að í septem- ber á þessu árí muni þeir Carl Lewis og Ben Johnson á ný mætast á hlaupabrautinni. Þann 25. sept- ember rennur úr gildi 2 ára keppn- isbann það sem Johnson var dæmdur í eftir að hann varð uppvís að lyfjaneyslu á Ólympíuleikunum í Seoul 1988. Sem kunnugt er þá var Johnson sviptur gullverðlaunum sínum og heimsmeti á leikunum og í réttar- höldum sem haldin voru í Kanada á síðasta ári viðurkenndi hann að hafa um árabil notað hormónalyf. Síðar í þessum mánuði mun John- son missa heimsmet það sem hann setti á Heimsleikunum í Róm 1987 og þá mun Carl Lewis á ný verða heimsmethafi í 100 m hlaupi. Nokkrir aðilar hafa áhuga á að fjármagna keppni þeirra Lewis og Johnsons og miklir fjármunir er nefndir í því sambandi eða allt að 10 milljónir dala. Ekki er Ijóst hvar einvígi þeirra verður haldið en all margir staðir koma til greina svo sem Bandarík- in, Japan og Spánn. Áhugi manna á keppni milli þessara fótfráu manna er svo mikill að mest minnir á einvígi hnefa- leikakappa. Fjármálastjóri Lewis segir að hann vilji að keppni þeirra Lewis og Johnsons verði í rauninni ekkert einvígi, 5-6 hlauparar muni taka þátt í 100 m hlaupinu og einnig verði keppt í 200 m, 400 m og jafnvel 800 m hlaupi á mótinu og tveimur greinum kvenna. BL Carl Lewis og Ben Johnson á hlaupabrautinni í Róm 1987 þegar Johnson sigraði og setti heimsmet 9,83 sek. Lewis hljóþ á 9,93 sek. Þetta heimsmct Johnsons mun nú brátt heyra sögunni til og Lewis mun á ný verða skráður fyrir heimsmetinu í greininni. I september á þessu árí, þegar Johnson losnar úr keppnisbanni, er gert ráð fyrír að þessir kappar mætist á nýjan leik á hiaupabrautinni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.