Tíminn - 04.01.1990, Side 20

Tíminn - 04.01.1990, Side 20
AUOLÝSINGASÍMAR: 680001 — 686300 l RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvagölu, S 28822 SAMVINNUBANKINN l I BYGGDUM LANDSINS | PÓSTFAX TÍMANS 687691 ÞRÖSTUR 685060 VANIR MENN Tíniiim FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990 Herferð Ríkissjónvarpsins á hendur óskráðum sjónvarpstækjum hefur skilað verulegum árangri: „GENGIN 1“ HAFA FUNDIÐ HÁn Á Þl RIÐJA ÞÚS. TÆKI Frá því að Innheimtudeild Ríkissjónvarpsins hóf herferð gegn óskráðum sjónvarpstækjum í nóvember 1988, hafa starfsmenn stofnunarinnar leitað uppi hátt á þriðja þúsund ólögleg tæki. Að sögn Theodórs Georgssonar hjá inn- heimtudeildinni hafa menn í flestum tilfellum brugðist vel við þegar leitarmenn Sjónvarps banka upp á, en í einstaka tilfellum hafa húsráðendur neitað að veita nokkrar upplýs- ingar. Innan skamms mun þó ekki duga að hlcypa innheimtumönnum ekki inn fyrir þröskuldinn, því á næstu vikum verður tekinn í notkun geislamælir til þess að miða út ólögleg sjónvarpstæki. Tímanum barst til eyra frásögn sem kynnti sig sem starfsmann stúlku er fékk fyrir skemmstu upp- SKÁÍS og spurði á hvora sjón- hringingu, að kvöldlagi, frá manni, varpsstöðina hún væri að horfa. Stúlkan sem var með óskráð sjón- varpstæki, svaraði því til að hún væri að horfa á Stöð 2. Sá aðili sem hringdi kynnti sig nú upp á nýtt og tjáði henni að hann væri starfsmað- ur innheimtudeildar Sjónvarpsins og hún væri með ólöglegt tæki í notkun. Ekki hefur fengist staðfest hvort þarna var á ferðinni starfs- maður innheimtudeildarinnar, eða hvort hér var um gabb að ræða. Þær upplýsingar fengust hjá Sjón- varpinu að svona aðferðir tíðkuð- ust ekki þar á bæ, en leitarflokkar þeirra skiptast niður í nokkurgengi sem skipta með sér svæðum. Aðallega hefur verið leitað á höfuðborgarsvæðinu, en starfs- menn innheimtudeildar Sjónvarps- ins hafa jafnframt farið norður í land og til Eyja, í þeim tilgangi að finna óskráð sjónvarpstæki. Þá hef- ur einnig verið höfð samvinna við heimamenn í kauptúnum og kaup- stöðum á landsbyggðinni. Þeim aðferðum er alla jafna beitt, að Ríkissjónvarpið fær lista, yfir þau heimili sem ekki eru skráð fyrir sjónvarpi. Síðan mæta menn á snærum innheimtudeildarinnar á staðinn og spyrja viðkomandi hvort að hann sé með óskráð sjónvarp. Viðurkenni húsráðandi það, er hann látinn borga afnota- gjald af tæki sínu frá og með þeim tíma og skiptir þá engu máli hvað hann hefur haft tækið lengi óskráð. Aðsögn Theodórs Georgssonar neitar fólk í einstaka tilfellum að svara og þess vegna var ráðist í að kaupa sérstakt sjónvarpsleitartæki frá Svíþjóð, sem tekið verður í gagnið innan tíðar. Þetta tæki út- geislun bylgja frá sjónvörpum - og þá fyrst mega þeir vara sig, er neita að gjalda Ríkissjónvarpinu það sem Ríkissjónvarpinu ber, þegar þeir sjá grunsamlega menn, með framandi tækjabúnað, á vappi í kringum húsakynni sín á útsend- ingatíma. - ÁG Islandsbanki opnar með pompi og prakt Nýr íslandsbanki tók til starfa í gær með mikilli viðhöfn. Skotið var upp flugeldum, blysum brugðið á loft og blásið í lúðra. Nýjum við- skiptavinum fslandsbanka var boðið upp á veitingar í öllum afgreiðslu- stöðum bankans. Samanlagður fjöldi afgreiðslu- staða þeirra fiögurra banka sem sameinuðust í Islandsbanka eru 38, þar af 18 í Reykjavík, 7 annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og 13 utan þess. í fjórum bæjum utan Reykjavíkur hefur fslandsbanki nú fleiri en eina afgreiðslu; 3 á Akureyri og 2 í Hafnarfirði, Kópavogi og Keflavík. Hagræðingin af samein- Hér ber tvö útibú íslandsbanka fyrir augu í sömu andránni, enda aðeins með nokkurra metra millibili í mið- borg Reykjavíkur. Höfuðstöðvar ís- landsbanka eru í Húsi verslunarinn- ar í Kringlunni. Timamynd Árni Bjarna. Breytingar á rekstri Arnarflugs. Fyrrverandi framkvæmdastjóri aftur tekinn við stjórn: Staðan er erfið en ekki vonlaus Stjórn Arnarflugs hefur skipað nýja þriggja manna framkvæmda- stjóm sem annast mun daglegan rekstur félagsins fram til 1. apríl n.k. og tók nýskipanin gildi nú um ára- mótin. Gunnar Þorvaldsson flugstjóri er formaður framkvæmdastjórnarínn- ar en aðrír í henni era Magnús Oddsson svæðisstjóri og Magnús Bjarnason aðstoðarframkvæmda- stjóri. Gunnar Þorvaldsson var fram- kvæmdastjóri Arnarflugs um skeið fyrir sex árum síðan en flugstjóri hjá félaginu bæði fyrir þann tíma og eins á eftir. Hann hefur undanfarið verið flugstjóri hjá sænsku flugfélagi að nafni Transwed en er í launalausu leyfi frá störfum meðan hann gegnir stöðu formanns framkvæmdastjórn- ar Arnarflugs. Þess má geta -að meðan millilandaflugvél Arnarflugs er I skoðun, hefur félagið fengið leigða flugvél frá Transwed. Bæði Gunnar Þorvaldsson og Kristinn Sigtryggsson framkvæmda- stjóri Arnarflugs neituðu því að í þessari nýskipan fælist að verið væri að ýta Kristni út í kuldann. Um það væri að ræða að gefa Kristni andrúm frá daglegum rekstri til þess að sinna ýmsum sérverkefnum eins og endur- fjármögnun og gera framtíðaráætl- anir fyrir félagið og freista þess að skapa því betri rekstrarskilyrði í anda opinberrar flugmálastefnu. Gunnar Þorvaldsson sagði t' gær að staða Arnarflugs væri afar erfið en þó ekki vonlaus. Flutningar bæði farþega og farms hefðu vaxið stöðugt undanfarin ár og sömuleiðis tekjur. í flugmálastefnu stjórnvalda fælist m.a. það að tvö innlend flugfélög skuli annast flutninga til og frá landinu. Hins vegar vantaði nokkuð á að Arnarflugi hefði verið sköpuð jafnréttisaðstaða í anda hennar. Ástandinu nú mætti líkja við það að á íslandi rækju tvö fyrirtæki alla fiskiskipaútgerð á íslenskum fiski- miðum. Annað þeirra réði öllum fiskimiðunum allt frá Reykjavík og hringinn í kringum landið að Þor- lákshöfn. Hitt fyrirtækið hafði aðe- ins fiskimiðin sunnan Reykjanessað Þorlákshöfn. Kristinn Sigtryggsson myndi næstu þrjá mánuði vinna að því að á þessu ástandi verði breyting. - sá ingu; Útvegsbanka, Verslunar- banka, Iðnaðarbanka og Alþýðu- banka á að felast í því m.a. að fækka þessum afgreiðslum að hluta með sameiningu og þar með komast af með færra starfslið. Sjómenn á Austurlandi eru óánægöir með kjörsín: Boðið 10% á markaðsverði I gær héldu sjómenn á togurun- um Hólmanesi og Hólmatindi og forsvarsmenn Hraðfrystihúss Eskifjarðar fund þar sem rætt var um kröfu sjómanna um hærra fiskverð. Fulltrúar útgerðar lögðu fram tilboð sem fulltrúar sjómanna ræddu í sínum hópi í gærkvöldi. í tilboðinu felst að eftir að búið er að ákveða físk- verð í febrúar verði samningar teknir til endurskoðunar. Þangað til býður útgerðin sjómönnum að greiða 10% af afla skipanna á markaðsverði eða selja hann erl- endis. Sjómenn hafa farið fram á að 30% af afla skipanna verði greidd á meðalmarkaðsverði. Útgerðin hefur hafnað þessari kröfu en boðið að 10% afla verði greidd með þessum hætti. í fyrradag var öllu starfsfólki Hraðfrystihúsi Eskifjarðar sagt upp störfum en verkalýðsfélagið á staðnum hefur mótmælt upp- sögnunum og sagt að þær séu ólöglegar. Sjómenn á Fáskrúðsfirði og Vopnafirði hafa einnig átt í deil- um við útgerðarmenn út af fisk- verði. -EÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.