Tíminn - 11.01.1990, Side 9

Tíminn - 11.01.1990, Side 9
Tíminn 9 Fimmtudagur 11. janúar 1990 AÐ UTAN Nýbygging Kínabanka í Hong Kong átti að vera eitt helsta stolt Peis. Eftir atburðina á Torgi hins himneska friðar er hann ekki leng- ur stoltur. gott orð, en Jackie valdi engan þeirra. Þess í stað valdi hún hinn þá óþekkta Ieoh Ming Pei, e.t.v. vegna þess að hann er nákvæmlega jafngamall John F. og henni virtust þeir hafa líkar hugsjónir. Val Jackies vakti feiknaathygli. En verkefnið dróst á langinn. Há- skólamir vildu ekki fá bygginguna á lóðir sínar, þeir óttuðust tmflandi ferðamannastraum. Auk þess urðu Bandaríkin að jafna sig, fyrst eftir Víetnamstríðið og síðan einnig Watergate-hneykslið, áður en þau v gátu aftur farið að snúa sér að menningarstöðum^ Þegar loks var kominn tími til að vígja minnismerkið á Columbia Point við Boston 1979, skúlptúr- listaverk úr hvítum steinsteypu- og svörtum glerflötum í einföldum geómetriskum formum - tóku stjómmálamenn til við að leita að brjóstmynd af John F. Kennedy, án árangurs. Pei hafði vottað myrta forsetanum virðingu sína á sinn hátt. Með víðáttu hafsins í baksýn og óendanlegan himininn yfir hafði hann skapað tómt rými - 35 metra háan tening úr dökklituðu gleri, með aðeins tveim minjagripum. Úr loftinu hangir, eins og stirðnað- ur, risastór stjömuborði. í vegginn er greyptur útdráttur úr innsetning- arræðu Kennedys í forsetaembætt- ið: „Öllu þessu verður ekki komið í verk fyrstu 100 dagana, ekki heldur meðan þessi ríkisstjórn situr, jafn- vel kannski ekki meðan við dvelj- umst á þessari plánetu. En - við skulum hefjast handa.“ Draumar rættust - )x og martraðir líka Meðan Pei hafði þetta tilfinn- ingaþrungna verkefni á borðinu hjá sér, í meira en 15 ár, upplifði hann og félagar hans allar hæðir og lægðir sem einn arkitekt getur séð fyrir hugskotssjónum sínum. Hvað Pei varðar rættist draumur, hann byggði meistaraverk sitt, National Sérstætt minnismerki um John F. Kennedy á Columbia Point við Boston. Gallery í Washington. Martröð rættist hins vegar hjá félaga hans, Henry Cobb. A einhvern dularfull- an hátt missti skýjakljúfurinn sem var helsta stolt hans allá glerglugg- ana. Cobb hafði teiknað 240 metra háan glerturn fyrir John Hancock Life Insurance sem reistur var við sögufrægt Copley torg í Boston. Hann átti að vera einn af bauta- steinum módernismans, en varð því miður að minnismerki ósigurs og aðhlátursefni þjóðarinnar árum saman. Hancock turninn var klæddur bláleitum endurkastandi rúðum allt um kring. Hann átti að endur- spegla samspil við nærliggjandi byggingar og skýin á himninum og renna saman við umhverfið - „af- efnast“. Og það var einmitt það sem turninn gerði eftir hvöss haustveð- ur, án aðstoðar. Hundruðum sam- an brustu rúðurnar, 1,37 m x 3,35 metra stórar og brotin hrundu niður á götuna. Við og við varð að negla sperrur við allt að 3000 glugga. Turninn leit út eins og risastór mynd eftir Piet Mondrian og hlaut uppnefnið „Krossviðar- turninn". Aldrei fékkst eindregin niður- staða um hver væri ábyrgur fyrir þessum ósköpum. Glerið sem not- að hafði verið hvarf af markaðn- um, Hancock turninn var klædur að nýju, 50.000 ferkílómetra yfir- borðsflötur úr 10.348 einingum. Síðan þær endurbætur fóru fram, fyrir 14 árum, stenst hann veður og vinda og stendur eins og sverð upp í loftið. Nú horfa allir borgarbúar til hans með stolti. Þetta stórslys varð til þess að eftirspurn eftir vinnu stofu Peis féll niður úr öllu valdi. En orðstír Peis fleytti fyrirtækinu yfir þessa hættu- tíma. Þar að auki gat hann skömmu síðar sýnt umheiminum hið stór- kostlega meistarastykki sitt og tek- ið á móti fagnaðarhyllingu fyrir. Milljarðamæringurinn Paul Mellon hafði gefið Pei algerlega frjálsar hendur um viðbyggingu við National Gallery í Washington. Engin takmörk voru sett á kostnað- inn og aðeins sett tvö skilyrði: Notkun bleiks Tennessee-marm- ara og „mestu gæði“. Pei deildi trapisu-löguðu svæð- inu í grennd við þingbygginguna í tvo eins þríhyrninga og nýtti ósam- hverfuna til yfirþyrmandi afls. Hann slípaði minnstu smáatriði og hélt þó kostnaðinum, tæpum 100 milljónum dollara, innan gefinna marka. Þar sem hann notaði stein- steypu lét hann hræra bleikum marmara saman við og meðhöndla byggingarhlutana eins og hag- leikssmiðir væru að verki. . „Það á að vera skemmtilegt að skoða listaveik“ Pei er þeirrar skoðunar að það eigi að vera skemmtilegt að skoða listaverk, gestirnir eigi að vilja koma aftur. Þetta gekk eftir, Miklu lofsorði er lokið á hvernig Pei stóð að gerð pýramídans. „Hann stillti hann eins og píanó“ segir ævisöguritari Peis. Pýramíd- inn er gerður úr burðarverki úr sérstöku stáli, Austenit, og sér- þróuðu gleri sem hæfði í postulín, Pei vildi að „þessir demantar væru slípaðir á fíngerðasta hátt“. Hefur hlotið allar hugsanlegar heiðursviðurkenningar Hvers gæti þessi maður enn óskað sér? Hann hefur fengið allt sem einn arkitekt getur þráð, þétt- skipaðan verkefnalista, eftirsótt- ustu gullmedalíur og heiðursnafn- bætur um allan heim, Frelsisheið- ursmerkið fékk hann frá Reagan og í Frakklandi hefur hann hlotið riddaraorðu heiðursfylkingarinn- ar, auk Pritzker verðlaunanna. Þetta samsvarar öllum Óskars- og nóbelsverðlaunum sem arkitekt gæti fengið. „Þegar maður er kominn á minn aldur verður maður að velja verk- efnin vandlega," segir Pei. Hann hefur nú valið sér næsta stórverk- efni, næst á skránni er bygging salarkynna til heiðurs rokk og ról-tónlistinni í Cleveland. Ieoh Ming Pei er fæddur Kínverji en hefur verið bandarískur ríkis- borgarí síðustu 35 árin. bandarískar fjölskyldur hafa gert áhlaup á safnið og á fyrstu 50 dögunum sem það var opið kom ein milljón gesta. Byggingin, sem kalla má lista- verk, hlaut líka óvenjulegan sóma. Félagsskapur bandarískra arki- tekta stillti henni upp á úrvalslist- ann „One of America’s Ten Best Buildings". National Gallery er nútímaarki- tektúr á hæsta stigi. Samt sem áður lítur Pei svo á að umbyggingin á Louvre-safninu sé mikilvægasta verkefnið á 40 ára ferli hans og kallar pýramídann sitt mikilvæg- asta verk. Við byggingu pýramídans kom vel í ljós þrjóska þessa síbrosandi mannsvið að koma áformum sínum í framkvæmd. Ef rætt er um efnivið svarar hann einfaldlega: „Stein? Kemur ekki til mála.“ Sé rætt um stíl: „Napóleon III.? Módemismi? Hvort tveggja hlægilegt.“ Um form: „Innfellt ljós? Neðanjarðar- járnbrautarstöð ...“ Þannig komst hann að niðurstöðunni „stílhreint, sígilt náttúrulegt form alheimsins okkar, form eins og kristall“ - pýramídi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.