Tíminn - 07.02.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 7. febrúar 1990
Amnesty International:
Samviskufangar
SÝRLAND: Ahmad ’Abd al-Ra’uf
Roummo, liðlega fimmtugur kenn-
ari hefur verið í haldi án ákæru eða
réttarhalda frá 1975 grunaður um að
styðja þá deild Ba’th flokksins, sem
nýtur stuðnings íraka.
Ahmad Roummo var handtekinn
um mitt árið 1975 ásamt fjölda
manns, og sakaður um samvinnu við
íraksdeild Ba’th flokksins. Fréttir
hafa borist um að fyrstu sex mánuð-
ina í fangelsi hafi hann verið pyntað-
ur og ekki hafi verið viðurkennt, að
hann væri í haldi. Ba'th flokkurinn
hefur verið við völd í Sýrlandi frá
1983, og ýmsar fylkingar innan hans
farið með völdin til skiptis. Sambúð
Sýrlands og fraks hrakaði stórlega
árið 1975, og voru fjölmargir hand-
teknir af þeim flokksmönnum, sem
grunaðir voru um aðild að íraks-
deildinni. Margir þeirra, sem þá
lentu í fangelsum, hafa verið í haldi
án ákæru eða réttarhaída. Afnnesty ,
tekið á sína arma mál margra þeirra,
þar sem þeir teljast samviskufangar.
Þeim er haldið í fangelsi samkvæmt
ákvæðum neyðarlaga frá 1963, en
með þeim voru réttindaákvæði
stjórnarskrár Sýrlands numin úr
gildi, og víðtækar handtökur heimil-
aðar og varðhald. Ahmad Roummo
gekk í Ba’th flokkinn árið 1954.
Árið 1966 tók hópur innan hans
völdin, rak úr valdastólum marga af
stofnendum flokksins. Margir voru
reknir úr flokknum aðrir handtekn-
ir, þar á meðal Ahmad Roummo.
Hann sat inni í ár. Hann er núna í
al-Mezze herfangelsinu í Damaskus.
Honum leyfist að fá nána ættingja í
heimsókn einu sinni í mánuði.
Vinsamlegast skrifið kurteislegt
bréf til:
H.E. President Hafez al-Assad
Presidential Palace
Damascus
Syrian Arab Republic
Búlgaría:
Ismail Mehmedov Hyuseyinov er
34 ára gamall Búlgari af tyrknesku
bergi brotinn. Hann var handtekinn
í maí 1985 en hefur verið dæmdur til
útlegðar í þorpi nokkru í norð-vestur
hluta Búlgaría þar eð hann neitar að
breyta nafni sínu til búlgarskrar vísu.
Amnesty International álítur
hann fórnarlamb aðlögunarherferð-
ar, sem efnt var til í desember 1984
og beindist að tyrkneska minni-
hlutanum í Búlgaríu. Herferðin
hafði það markmið að þvinga tyrk-
nesku innflytjendurna til að taka
upp búlgörsk nöfn.
Ismail Mehmedov Hyuseyinov var
handtekinn 7. maí 1985 sakaður um
að hafna sínu nýja nafni, Samuil
Demirev Dyulgerov, og fyrir að
beiðast leyfis til að flytja til
Tyrklands. Hann var sendur í Bel-
ene fangabúðirnar, þar sem hann er
sagður hafa verið barinn illiiega.
1987 svelti hann sig í mótmæla-
skyni ásamt öðrum Tyrkjum í búð-
unum og léttist um 40 kíló. Eftir
sveltið var hann látinn laus og sendur
í útlegð til þorps nokkurs nálægt
Vidin í norð-vestur Búlgaríu.
Útlegðin jafngildir fangelsisvist,
sem sést á því að honum er bannað
að yfirgefa þorpið og verður að gefa
sig fram við lögregluna tvisvar á dag.
Honum var sagt að hann fengi að
hverfa til konu sinnar og fjölskyldu,
ef hann tæki upp sitt nýja nafn og
dragi til baka beiðnina um að flytjast
til Tyrklands, en hann hafnaði boð-
inu.
Vinsamlegast sendið kurteislegt
bréf og krefjist þess að hann fái að
hverfa heim úr útlegðinni þegar í
stað:
Chairman of the State Council
Todor Zhivkov
Blvd. Dondukov 2
Sofia Bulgaria
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Simi
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur LindaJónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði IngviJón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut 3 93-41447
Isafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavik ElisabetPálsdóttir Borgarbraut5 95-3132
Hvammstangi Friðbjörn Níelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311
Siglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hlíðarveig46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg 18 96-24275
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Sveinbjörn Lund Brúargerði 14 96-41037
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Raufarhöfn Sandra ösp Gylfadóttir Aðalbraut 60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egllsstaðir Páll Pétursson Árskógar13 97-1350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður BirkirStefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlið 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Djúpivogur Jón Björnsson Borgarlandi21 97-88962
Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut 16 A 97-81796
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lvnqbero 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Jón Ólafur Kjartansson Eyjaseli 2 98-31293
Laugarvatn Halldór Benjamlnsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jón ína og Árný Jóna Króktún 17 98-78335
Vfk Ingi Már Björnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
Góóar veislur
enda vel!
Eftir einn -ei aki neinn
«1
UMFEROAR
RÁO
lllllllllllllllllllllllllll DAGBÓK
Frá Félagi eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Félagsfundur veröur haldinn í Goð-
heimum, Sigtúni 3 miðvikudaginn 14.
febrúar nk. kl. 20.
1. Kynnt ný reglugerð um stofnunar-
þjónustu aldraðra og vistunarmat.
2. Fimm ára áætlun félagsmálaráðherra
um úrlausn í húsnæðismálum aldraðra.
3. Kynntar tillögur að lagabrey tingum.
4. Önnur mál.
Margrét Thoroddsen verður til viðtals
annan hvern fimmtudag á skrifstofu Fé-
lags eldri borgara. Byrjað verður fimmtu-
daginn 15. febrúar kl. 14-16 og mun hún
veita upplýsingar um réttindi aldraðra til
almannatrygginga.
Samtókin Hjálpum
bömum stofnuð
Samtökin Hjálpum börnum héldu
stofnfund sinn á degi Sameinuðu þjóð-
anna 24. október síðastliðinn. Tilgangur
samtakanna er að stuðla að bættum hag
barna og fjölskyldna þeirra og hafa áhrif
á viðhorf til barna í samfélaginu.
Á stofnfundinum voru kynnt ýmis þau
vandamál, sem blasa við félagsmönnum,
svo sem ófullnægjandi sjúkrahúsmál,
slysatíðni meiri en í öðrum löndum,
sundurslitinn skóladagur sem veldur því
að fjöldi ungra barna gengur forsjárlaus
á degi hverjum, ofbeldi meðal barna,
alvarlegur skortur á aðstoð til skilnaðar-
fjölskyldna o.m.fl.
Framhaldsstofnfundur samtakanna
verður haldinn fimmtudaginn 8. febrúar
kl. 20.30 að Borgartúni 6.
Fundurinn er opinn öllum sem bera
velferð barna fyrir brjósti.
Ferðafélag íslands
Miðvikudaginn 7. febrúar kl. 20: Viðey
að vetri - Vetrarkvöldganga - blysför.
Brottför frá Viðeyjarbryggju - Sunda-
höfn. Viðeyjarkirkja skoðuð og Viðeyjar-
stofa ef aðstæður leyfa. Létt gönguferð og
blysför austur á Sundbakka (minjar um
þorp). Verð 500 kr., frítt f. börn 12 ára
og yngri. Blys kr. 100 (meðan birgðir
endast). Kynnist Viðey að vetri. Ferðafé-
lagsferðir eru fyrir alla.
Helgarferð í Tindfjöll 9.-11. febrúar.
Gist í góðum skála. Tilvalin ferð fyrir
gönguskíði. Nægur snjór. Gengið á Tind-
fjallajökul. Farmiðar og upplýsingar á
skrifst. Pantið tímanlega.
Fljótshlíð í vetrarbúningi. Dagsferð á
sunnudaginn kl. 10. M.a. farið að Selja-
landsfossi og Breiðabólsstaðarkirkju.
Ferðafélag Islands
Félag íslcnskra náttúrufræðinga:
Umhverfi, gróðurvemd
og landnýting
Félag íslenskra náttúrufræðinga gengst
fyrir ráðstefnu um umhverfi, gróðurvernd
og landnýtingu föstudaginn 23. febrúar
1990 á Holiday Inn frá kl. 9.00-17:00.
Sérfræðingar á sviði gróðurverndar og
landnýtingar munu flytja erindi. Einnig
verður fagleg kynning á starfsemi og
viðfangsefnum helstu stofnana og ráðu-
neyta er vinna að gróðurverndar- og
landnýtingarmálum.
Ráðstefnan er öllum opin.
Sólustaðir minningarkorta
HJARTAVERNDAR
Reykjavík:
Skrifstofa Hjartavemdar, Lágmúla 9, 3.
hæð, sími 83755 (Gíró)
Reykjavíkur Apótek, Austurstr. 16
Dvalarheimili aldraðra, Lönguhlíð,
Garðs Apótek, Sogavegi 108
Bókabúðin Embla, Völvufelli 21
Árbæjar Apótek, Hraunbæ 102A
Bókabúð Glæsibæjar, Álfheimum 74
Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27
Vesturbæjar Apótek, Melhaga 20-22.
Kópavogur:
Kópavogs Apótek, Hamraborg 11
Hafnarfjörður:
Bókabúð Olivers Steins, Strandg. 31
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Keflavík:
Rammar og gler, Sólvallag. 11
Apótek Keflavíkur, Suðurg. 2
Akranes:
Bókabúð Andrésar Níelssonar, Skóla-
braut 2
Borgarnes:
Verslunin ísbjörninn
Stykkishólmur:
Hjá Sesselju Pálsdóttur, Silfurg. 36
ísafjörður:
Póstur og sími, Aðalstræti 18
Strandasýsla:
Hjá Ingibjörgu Karlsdóttur, Kolbeinsá,
Bæjarhreppi
Akureyri:
Bókabúðin Huld, Hafnarstræti 97
Bókaval, Kaupvangsstræti 4
Húsavfk:
Blómabúðin Björk, Héðinsbr. 1
Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ósk Pétursdóttur, Ásgötu 5
Egilsstaðir:
Hannyrðaverslunin Agla, Selási 13
Eskiljörður:
Póstur og sími, Strandgötu 55
Siglulyörður:
Verslunin Ögn, Aðalgötu 20
Vestmannaeyjar:
Hjá Arnari Ingólfssyni, Hrauntúni 16
Selfoss:
Selfoss Apótek, Austurvegi 44.
Osmo Vánská, hljómsveitarstjóri.
Martial Nardeau, flautuleikari.
Sinfóníuhljómsveit Lslands:
Nýtt íslenskt tónverk frumflutt
Á fyrstu áskriftartónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á síðara misseri í
Háskólabíói nk. fimmtudag, þ. 8. febrú-
ar, kl. 20.30, verða flutt þrjú verk:
Posthorn Serenade eftir Mozart, Til-
brigði um silfur eftir Þorkel Sigurbjörns-
son og Tapiola eftir Sibelius.
Einleikari verður franski flautuleikar-
inn Martial Nardeau og hljómsveitarstjóri
Finninn Osmo Vánska.
Tilbrigði um silfur er flautukonsert í
einum þætti eftir Þorkel og er þetta
frumflutningur verksins. Þorkell skrifaði
það á Spáni árið 1988 og gætir í því
spænskra áhrifa.
Martial Nardeau hóf flautunám korn-
ungur í heimaborg sinni, Boulogne sur
mer í Norður-Frakklandi og stundaði
síðan nám i París og Versölum. Að loknu
námi starfaði hann sem fastráðinn flautu-
leikari í Lamoureux sinfóníuhljómsveit-
inni í París í 3 ár. Hann kom víða fram
sem einlcikari í Frakklandi, auk þess sem
hann var yfirkennari flautudeilda tónlist-
arskólanna í Limoges og síðar Amiens.
Martial flutti til Islands 1982 og hefur
komið fram sem einleikari með Sinfóníu-
hljómsveitinni, fslensku hljómsveitinni,
Kammersveit Reykjavikur og starfað sem
flautuleikari í hljómsveit Islensku óper-
unnar.
Osma Vánská er einn þeirra ungu
hljómsveitarstjóra, sem hlutu kennslu
sína hjá Jorma Panula í Sibeliusaraka-
demíunni. Hann er einnig klarinettuleik-
ari og var m.a. fyrsti klarinettuleikari í
Sinfóníuhljómsveit Turku. Vegur hans
sem hljómsveitarstjóra hefur farið ört
vaxandi og auk þess að stjóma öllum
helstu sinfóníuhljómsveitum á Norður-
löndum hefur hann stjórnað Sinfóníu-
hljómsveit Parísarborgar, Fílharmóníu-
sveit Antwerpen og Hollensku útvarps-
hljómsveitinni. Auk þessa hefur hann
stjórnað þekktum hljómsveitum við
hljóðritun tónverka. Osmo Vánská var
sl. haust ráðinn aðalstjómandi Espoo
Kammersveitarinnar, sem er álitin ein
besta kammersveit Finnlands.
Miðar á tónleikana fást í Gimli við
Lækjargötu á skrifstofutíma og einnig við
innganginn við upphaf tónleikanna. For-
sölu áskriftarskírteina er lokið, en enn
em seld áskriftarskírteini fyrir síðara
misserið.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Kvenfélag Óháða safnaðarins heldui
félagsvist í Kirkjubæ annað kvöld,
fimmtudag kl. 20.30. Kaffiveitingar verða
á eftir.
Hjónanámskeið í
Laugarneskirkju
Á nokkrum undanförnum misserum
hafa sr. Þorvaldur Karl Helgason, sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson og sr. Birgir Ásgeirs-
son staðið fyrir hjónanámskeiðum. Hafa
þau verið vel sótt og hafa nú yfir tvö
hundmð manns tekið þátt í þeim.
Hér er um að ræða samvemstundir
með hjónum á öllum aldri, sem vilja fá
tækifæri til þess að ræða hjónaband og
sambúð, fræðast um eðli og tilgang hjú-
Minningarkort SJÁLFSBJARGAR
í Reykjavík og nágrenni
- fást á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík: Reykjavíkur apótek,
Garðsapótek, Vesturbæjarapótek,
Kirkjuhúsið við Klapparstíg, Bókabúð
Fossvogs, Grímsbæ við Bústaðaveg,
Bókabúðin Embla, Drafnarfelli lo’
Bókabúðin Úlfarsfell, Hagamel bl',
Verslunin Kjötborg, Búðargerði 10.
Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers
Steins, Strandgötu 31.
Köpavogur: Pósthúsið.
Minningarkort fást einnig á skrifstofu
Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Gíróþjónusta.
Minningarkort Styrktarsjóðs
bamadeildar Landakotsspítala
Styrktarsjóður barnadeildar Landa-
kotsspftala hefur látið hanna minninga-
kort fyrir sjóðinn. Sigríður Björnsdóttir
myndlistarmaður og kennari teiknaði
fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir
selja minningakortin:
Apótek Seltjarnarness, Vesturbæjarapót-
ek, Hafnarfjarðarapótek, Garðsapótek,
Holtsapótek, Mosfellsapótek, Árbæjar-
apótek, Lyfjabúð Breiðholts, Reykjavík-
urapótek, Háaleitisapótek, Kópavogsap-
ótek, Lyfjabúðin IÐunn. Blómaverslan-
irnar; Burkni, Borgarblóm, Melanóra
Seltjarnamesi og Blómavali Kringlunni.
Einnig eru þau seld á skrifstofu og
barnadeild Landakotsspítala.
Minningarkort Áskirkju
Eftirtaldir aðilar hafa minningarkort
Safnaðarfélags Áskirkju til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37,
sími 681742
Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími
82775
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27
Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1,
Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími
681984
Holtsapótek, Langholtsvegi 84
Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27
Verslunin Rangá, Skipasundi 56.
skapar og skoða ýmis dagleg viðfangsefni,
bæði gleðileg og sorgleg, sem fyrir kunna
að koma í svo nánu samfélagi karls og
konu, sem hjónaband er. Námskeiðið er
ætlað fólki, sem hyggst ganga í hjóna-
band, er í sambúð eða hefur verið gift í
skemmri eða lengri tíma. Með námskeið-
inu er stefnt að því að auðga samskiptin
í milli hinna tveggja einstaklinga, styrkja
sambandið milli þeirra og efla sjálfsvitund
og stöðu gagnvart makanum.
Nú hefur verið ákveðið að halda næsta
námskeið í Laugarneskirkju, nánar til
tekið í safnaðarheimili kirkjunnar og
verður það haldið laugardaginn 10. febr.
1990. Það hefst kl. 13:00 og því lýkur kl.
19:00. Upplýsingar og skráningu annast
sr. Jón Dalbú Hróbjartsson í síma 34516,
milli kl. 15 og 17 miðvikudag til föstudags.
Athygli skal vakin á því að fólki
hvaðanæva er heimil þátttaka.
Háskólatónleikar:
Slagverkhópurinn Snerta
1 dag, miðvikudaginn 7. febrúar, verða
haldnir Háskólatónleikar og hefjast þeir
kl. 12.30. Það er slagverkhópurinn Snerta
sem þar kemur fram en hann skipa
Maarten van der Valk, Árni Áskelsson,
Pétur Grétarsson og Eggert Pálsson.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
veirð ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
LITAÐ JÁRN Á
ÞÖK OG VEGGI
Galv. stál og stál
til klæðningar innanhúss
Gott verð
Söluaðilar:
Málmiðjan h.f.
Salan s.f.
Sími
91-680940
4