Tíminn - 07.02.1990, Qupperneq 15
Tíminn 15
Miðvikudagur 7. febrúar 1990
ÍÞRÓTTI
Páll Kolbeinsson KR-ingur og Chris Behrends no. 14 hjá Val, verða báðir í úrvalssliði Landsins, sem mætir
Suðumesjaurvalinu á fÖStudag. Tímamynd Pjetur.
Körfuknattleikshátíð í Keflavík:
Bíll í verðlaun
fyrir að hitta
tvisvar frá miðju
-Landið mætir liði Suðurnesja á föstudagskvöld
Körfuknattleikssamband íslands,
í samvinnu við Samtök íþróttafrétta-
manna, stendur fyrir körfuknatt-
leikshátíð í íþróttahúsi Keflavíkur
föstudagskvöldið9. febrúar. Hátíðin
hefst kl. 19:00 með undankeppni í
troðslu og þriggja stiga skotum.
Sfðan hefst leikur á milli Suðurnesja-
úrvals og úrvalsliðs landsins.
Úrvalsliðin eru valin af íþrótta-
fréttamönnum. Leikurinn verður 4
leikhlutar, 12 mínútur hver leikhluti.
f leikhléum verður ýmislegt til
skemmtunar. f fyrsta leikhléi leikur
stjórn KKÍ gegn íþróttafréttamönn-
um. Þess má geta að stjórnarmenn
KKÍ hafa samanlagt 193 A-lands-
leiki.
í öðru leikhléi verða úrslit í
troðslukeppni og þriggja stiga skotk-
eppni.
f þriðja leikhléi fá tveir heppnir
áhorfendur tækifæri til að vinna
Nissan Micra bíl frá Ingvari Helga-
syni hf. að verðmæti kr. 700.000 ef
þeir hitta tveimur skotum af þremur
í körfuna frá miðju vallarins.
Eftirfarandi eru lið landsins og
Suðurnesja sem íþróttafréttamenn
hafa valið:
Landið:
Chris Behrens, Valur
Axel Nikulásson, KR
James Bow, Haukar
Anatoli Kouwtoun, KR
Valur Ingimundarson, UMFT
Guðni Guðnason, KR
Dan Kennard, Þór
Pálmar Sigurðsson, Haukar
Páll Kolbeinsson, KR
Bjöm Stefensen, ÍR
Stjórnandi: Torfi Magnússon
Suðurnes:
Guðmundur Bragason, UMFG
Magnús Guðfinnsson, ÍBK
David Grissom, Reynir, Sandgerði
Sandy Anderson, ÍBK
Teitur Örlygsson, UMFN
Patrick Releford, UMFN
Guðjón Skúlason, ÍBK
Friðrik Ragnarsson, UMFN
ísak Tómasson, UMFN
Hjálmar Hallgrímsson, UMFG
Stjórnandi: Dennis Matika
Leikmenn sem taka þátt í þriggja
stiga skotkeppninni:
Guðjón Skúlason, ÍBK
Pálmar Sigurðsson, Haukar
Steinþór Helgason, UMFG
Valur Ingimundarson, UMFT
David Grissom, UMFG
Teitur Örlygsson, UMFN
Chris Behrends, Valur
Anatoli Kovtoun, KR
Leikmenn sem valdir hafa verið til
þátttöku í troðslukeppni:
Teitur Örlygsson, UMFN
Guðmundur Bragason, UMFG
Sandi Andcrson, ÍBK
Patrick Releford, UMFN
James Bow, Haukar
Björn Bollason, ÍR
Páll Kolbeinsson, KR
Falur Harðarson, ÍBK
BL
Körfuknattleikur
Birtir upp
hjá Haukum
Haukar stálu stigunum tveimur
af Grindvíkingum í Grindavík í
gærkvöldi. Haukar sigruðu með
einu stigi 64-65(32-29). begar níu
sekúndur voru til leiksloka voru
Grindvíkingar einu stigi yfir og
með boltann, en tókst að klúðra
honum í Haukahendur sem þökk-
uðu fyrir sig og skoruðu sigur-
körfuna. Að Hlíðarenda báru
Þórsarar sigurorð af Valsmönnum
90-92 (43-47). í Njarðvík voru
ÍR-ingar heldur betur kjöldregnir
af heimamönnum, sem sigruðu
með 43 stiga mun, 124-81. Pað var
10 mín kafli sem gerði gæfumun-
inn, þar sem Njarðvík gerði 20 stig
gegn engu ÍR- inga og breytti
stöðunni úr 28-16 í 48-16. Eftir
þessi ósköp áttu ÍR-ingar aldrei
möguleika. Patrick Releford var
stigahæstur leikmanna og gerði
hann 40 stig fyrir Njarðvík.
Fyrsti sigur
Zurbriggens
á þessu ári
Svissneski skíðagarpurinn Pirmin
Zurbriggen bætti við forystu sína í
stigakeppni heimsbikarkeppninnar
er hann sigraði í risastórsvigi í Co-
urmayer á Italíu í gær. Þar með vann
kappinn sinn fyrsta sigur á nýja
árinu.
Guenter Mader frá Austurríki
varð í öðru sæti í gær og Peter
Runggaldier frá Ítalíu varð þriðji.
Helsti keppinautur Zurbriggens í
heildarstigakeppni heimsbikarkepp-
ninnar, Norðmaðurinn Ole Christi-
an Furuseth, varö að sættasig við 16.
sætið í gær, en honum urðu á slæm
mistök í keppninni. Zurbriggen hef-
ur nú 83 stiga forystu í stigakeppn-
inni.
í fyrradag sigraði Mateja Svet í
stórsvigi kvenna í Veysonnaz í Sviss.
Anita Wachter frá Austurríki varð
önnur og Diann Roffe frá Banda-
ríkjunum varð þriðja. BL
Meistaramót íslands í frjálsíþróttum innanhúss:
Keppt verður á fjórum
stöðum um næstu helgi
Meistaramót Islands í frjálsum
íþróttum innanhúss mun fara fram í
Rcykjavík helgina 10.-11. febrúar
nk. og mun frjálsíþróttadeild KR sjá
um framkvæmd mótsins. Keppnis-
greinar, hlaup, stökk og köst bæði
karla og kvenna, verða samkvæmt
reglugcrð F'RÍ um mótið.
Keppnin hefst í Baldurshaga kl.
10 f.h. báða dagana en verður síðan
fram haldið í Laugardalshöllinni kl.
15 báða dagana. Keppni í stangar-
stökki mun fara fram í KR-húsinu
sunnudaginn 11. febrúar og hefst kl.
14.30 en keppni í kúluvarpi fer fram
í Reiðhöllinni í Víðidal sunnudaginn
11. febrúar og hefst kl. 12.00.
Það er von frjálsíþróttadeildar
KR að vel takist til um framkvæmd
mótsins og þátttaka verði bæði mikil
og glæsileg. BL
Islenskar getraunir: ~
Einn var með
tólf rétta
Getraunateningurinn var í aðal-
hlutverki á getraunaseðlinum um
síðustu helgi. Vegna vatnsveðurs
varð að fresta 5 leikjum sem á
seðlinum voru og hent var uppá
hvaða merki ætti við hvern leik.
Þessi örlagaríki getraunatening-
ur er með 12 hliðum og er skipting
táknanna 5-4-3.
Einn tippari náði 12 réttum þrátt
fyrir teningaköst og hann varð
rúmlega 800 þúsund kr. ríkari. Sá
var með opinn seðil sem keyptur
var á skrifstofu Getrauna í laugar-
dal. Seðilinn tilheyrir hópnuin
GRM, sem styður Breiðablik.
29 raðir komu fram með 11
réttum og koma 11.586 kr. í hlut
livers og eins.
Úrslit leikjanna urðu þcssi:
Charlton-Arsenal ........fr. 1
Coventry-Chelsea .......3-2 1
Liverpool-Everton.......2-1 1
Man. United-Man. City . . 1-1 x
Nottingham Forest...........3-1 1
QPR-Aston Villa .........fr. x
Sheffield Wed.-Millwall . . 1-1 x
Southampton-Derby .... fr. 1
Wimbledon-Luton.........fr. x
Plymouth-Wolves .........0-1 2
Watford-West Ham........fr. x
WBA-Oldham ..............2-2 x
BL