Tíminn - 08.02.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 08.02.1990, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 8. febrúar 1990 Tíminn 7 VETTVANGUR ........................................................................ ' ........................................III ;llllllllllllllll!: 'I ...................................................Tli ................................................................................................ ....................................... Guðmundur P. Valgeirsson: „Og hélt hann mjög fram konungsbréfunum" Svo segir Sturlunga frá erindrekstri eins af höfðingjum Sturlunga sem setið hafði við hirð Noregskonungs og gert honum handgenginn. Heim kominn rak hann stíft erindi konungs og sýndi löndum sínum fram á að þeir gætu ekki ráðið sér sjálfir heldur yrði þeir að gangast undir vald Noregskonungs og afsala sér sjálfsforræði sínu. - Þetta tókst. Framhald og afleiðingar þess erindreksturs þarf ekki aö rekja, Þá sögu þekkja allir Islendingar eða ættu að gera það. íslendingar afsöluðu sér sjálfsstjórn sinni, meðal annar fyrir fortölu höfðingja sinna sem sáu sjálfum sér búnar vegtyllur í skjóli hins erlenda valds. Við tók aldalöng yfirdrottnun og kúgun erlends valds. Samfelld hörmungarsaga sem gekk svo nærri þjóðinni að við lá að hún liði undir lok og leifar hennar yrðu fluttar fátækraflutningi af landi burt. Það er ekki fyrr en kemur fram á síðustu öld að nokkuð fer að rofa til í þeim efnum. Fyrir þrautseiga baráttu bestu sona þjóðarinnar fór þá að rakna úr ijötrunum. Hafa þeir menn til þessa verið rómaðir sem merkisberat og frelsishetjur þjóðarinnar og það með réttu. Þeirri frelsisbaráttu lauk með Sambandslagasáttmálanum 1. desember 1918 og stofnun lýðveldisins 1944. Engum dylst hver driffjöður og aflvaki allra framfara í landinu frelsið og sjálfstæði þjóðarinnar hefur orðið landsmönnum á öllum sviðum þjóðlífsins. Þeir sem börð- ust fyrir því frelsi mundu snúa sér í gröfum sínum ef því fjöreggi þjóðarinnar, sem frelsið er, yrði á glæ kastað af vanhyggju stjórn- málamanna og hagsmunapoti fé- gráðugra fésýslumanna. Því er þetta rifjað upp að ýmis- legt er að gerast í þessum málum sem almenningur á erfitt með að átta sig á og stendur næstum á öndinni yfir því sem er að gerast í makki við erlendar þjóðir og þjóðasamsteypur og er sveipað þeirri dulúð að enginn veit hvað er að gerast. Þeim mönnum virðist fara fjölg- andi sem gerast talsmenn þess að íslenska þjóðin gangi til takmarka- lítils samstarfs við ríkjasamsteypu EB landanna svonefndu og telja málum lands og þjóðar best borgið með því. Þessar raddir gerast líka æ háværari og gefa lítið fyrir fengið frelsi sem við höfum búið við. Það sé orðið úrelt og svari ekki kröfum tímans. Hér er gamla „Gylfaginn- ingin“ að endurfæðast. Hún var sett fram fyrir nokkrum árum af nokkrum valdamiklum mönnum í ríkisstjórn og utan og sett upp í líkingunni um doríuna og móður- skipið. Þá sluppum við með skrekkinn. Hvað nú? Hér er um það að ræða hvort þjóðin eigi að afsala sér sinni dýrmætustu eign, sjálfsákvörðunarréttinum, og leggja sig undir yfirdrottnun er- lendrar ríkjasamsteypu sem nú er í uppsiglingu og með hverjum hætti það eigi að gerast. Skýtur sú hugsun nokkuð skökku við það sem er að gerast á sama tíma, þegar aðrar hliðstæðar ríkjasam- steypur eru að hrynja í rúst og enginn sér fyrir afleiðingar þess. Öll eru þessi veður válynd og enginn veit hvar hann hittir annan fyrir í fleti og enginn veit hverjum má treysta í því sefiunarkasti sem nú ríður yfir. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra hefur mikinn hluta sl. árs setið við hirðir erlendra þjóðhöfðingja, líkt og höfðingjar Sturlungaaldarinnar gerðu á sinni tíð. Líkt og þeir hefur hann hlustað á rök þeirra höfðingja um hver flónska það sé jafnfámennri þjóð og íslendingar eru að ætla sér að ráða sínum málum sjálf og halda uppi atvinnulífi byggði á gæðum landsins. Heimkominn eftir setu sína í hinum erlendu hirðsölum hefur hann hafið fundaferð um landið til að kynna landsmönnum þær viðræður sem hann hefur tekið þátt í og hlustað á. Með áberandi auglýsingu í blöðum og öðrum fjölmiðlum hefur verið vakin sér- stök athygli á þeim boðskap sem utanríkisráðherrann hefði að flytja þjóðinni um á kosti sem hún ætti völ á í samskiptum sínum við þessar þjóðir og framtíðargrund- völl. Og menn biðu með eftirvænt- ingu. En hvað gerðist? Fyrsti fund- ur hans þessa eðlis var haldinn í Vestmannaeyjum. En annað varð ofan á. í þess stað hafði málflutn- ingur ráðherrans snúist upp í að gera áheyrendum ljóst hverjir ómagar bændur væru á „þjóðinni". Ríkið greiddi ráðherralaun í styrki og útflutningsbætur á hvern bónda o.fl. Og ekki stóð á fjölmiðlum þjóðarinnar að kynna þjóðinni hvern boðskap hann hafði að flytja. Nær samstundis og orðin flugu af vörum hans var þeim sjónvarpað beint svo ekkert færi milli mála. Og hver var boðskapur- inn? Hann var skýr og afdráttar- laus. Erlendar landbúnaðarvörur yrði skilyrðislaust að flytja inn og hætta að styrkja bændur með út- flutningsbótum og á annan hátt. Með því einu gæti þjóðin sparað sér tugi milljarða og orðið rík á skömmum tíma. Bændur væru þeir ómagar sem þyrfti að losna við sem fyrst. Minna mátti nú heyra! Það var eins og allt ætlaði um koll að keyra. Slíkur var ofsinn og ákafinn í málflutningi þessa manns. Og hann hélt hnefa hátt á lofti, reiðubúinn að refsa þeim ölmusulýð sem bændu væru. í raun og veru var hann engum líkari en „karlinum á kassanum" sem boðar áheyrendum sínum um eilífa kvöl og fordæminu ef ekki væri farið að orðum hans. Allt var þetta borið fram af þeim fítonskrafti að lítið vantaði á að Og hver var boö- skapurinn? Hann var skýr og afdráttarlaus. Erlendar landbúnaðar- vöruryröi skilyröislaust aö flytja inn og hætta aö styrkja bændur meö útflutningsbótum og á annan hátt. Meö því einu gæti þjóöin spar- að sér tugi milljarða og oröiö rík á skömmum tíma. Bændur væru þeirómagarsem þyrfti aö losna viö sem fyrst. eldur stæði frant úr munni hans og nösum. Ogóneitanlega kom manni í hug samlíkingin við höfðingja Sturlunga þegar þeir gengu skarp- ast fram í því að telja landsmenn á að þjóna hagsmunum erlendra ráðamanna. Allir vita að það sem hann boðaði getur ekki gerst án þess að landbúnaður sé um leið lagður í rúst á íslandi. Það er að vísu ekki í fyrsta skipti sem Jón Baldvin boðar þess hag- speki sína og flokks síns. En vafa- samt er að hann hafi nokkru sinni fylgt henni eftir af jafnmiklum eldmóði og að þessu sinni. Því læðist sá grunur að manni að seta Jóns Baldvins við hinar erlendu hirðir hafi skerpt báráttu hans fyrir því að bændur landsins skyldu nú að velli lagði og það sem þeir til þessa hafa lagt á matborð þjóðar- innar skyldi þurrkast út í eitt skipti fyrir öll og í stað þess fluttar inn afgangs og úrgangs landbúnaðar- vörur frá þeim þjóðum sem Jón Baldvin hafði setið að samningum við. Að vísu var ekki sérstaklega nefnt af hvað gæðaflokki þær inn- fluttu vörur yrðu, en því meiri áhersla lögð á ódýr innkaup sem gætu lækkað fæðiskostnað þjóðar- innar sem mest. Með því gæti þjóðin auðveldlega komist út úr því ráðleysisfári sem hún væri flækt í sem sumpart er sprottið af ráð- leysisaðgerðum stjórnvalda, harð- svíraðra kaupsýslumanna og fjármálaspekúlanta. Það fyrirbæri hefur Jón Baldvin kallað „fjárfest- ingarfyllirí" og hefur margt vit- lausara sagt. Enginn þarf að efast um að gistivinum Jóns Baldvins komi ekki vel ef hægt verður að koma þessum málum í kring með þeim hætti scm hann boðar. Þótt hér sé ekki um ýkja stóran markað að ræða munar samt um liann til að losna við hluta af þeim offramleiðsluvanda sem þessar þjóðir búa. Þegar þeim áfanga væri náð gæti annar komið á eftir, því fleira er dýrt á íslandi en landbúnaðarvörur, þótt minna sé um það rætt. Menn tala með vandlætingu unt að landbúnaðarvörur séu dýrar hér á landi og víst er það satt. Þar eiga þjóðfélagslegar aðstæður og stjórnvöld sinn þátt í þótt sökinni sé í heild skellt á bændur þótt sannað sé með óyggjandi rökum að hlutur bænda í verði búvara hafi hækkað minnst í verðlagsþróun þeirra á síðustu árum. En í þeint verðhækkunum síðustu ára á eng- inn einn maður stærri þátt en Jón Baldvin Hannibalsson með matar- skattinum illræmda sem honum tókst að koma á. Það situr því síst á honum að skammast út í hátt verð þeirra neysluvara á matborði almennings. En kannski var það einn liður í stærra áformi þeirra Alþýðuflokksmanna, að því er bændur varðar. Mætti fleiri dæmi nefna því til staðfestingar þótt það verði ekki gert hér. Við þá umræðu og herferð sem Jón Baldvin hefur nú hleypt af stað með offorsi og rakalausum fullyrð- ingum gegn bændum og frant- leiðslu íslenskra landbúnaðarvara hlýtur sú spurning að vakna hvort sá maður sé því vaxinn að gegna jafnábyrgðarmiklu hlutverki í stjórnun lands og þjóðar og hann gerir nú. Hann hefur áður orðið að játa opinberlega á sig skort á dómgreind og skynsemi og beðist opinberlega afsökunar á afleiðing- um þess. Ef til vill gæti hann nú beðist afsökunar á þessu frurn- hlaupi sínu og bjargað með því eigin skinni. Það ætti hann að gera og láta af ofsóknarlátum sínum gegn bændum. FRÍMERKI llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Gjafamappa Út er komin hjá Póstmálastofnun þriðja gjafamappan með frímerkj- um sem stofnunin gefur út. Þetta er mappa með fuglamerkjunum fjórum, sem voru í útgáfum 267 og 271, árið 1988. Eru það frímerki með mynd iaðrakan, 5 krónur að verðgildi. Oðinshani er á næsta merki sem hefir verðgildið 19 krónur. Þá eru hávellur á 30 króna frímerki og loks sólskríkjan á 100 króna frímerki. Sólskríkjan í vetrar- ham nefnist snjótittlingur. Hönnun frímerkjanna annaðist Þröstur Magnússon, en þau eru prentuð hjá Courvoisier SA, í Sviss. Þetta er mjög snoturlega gerð mappa í sama stíl og gjafamappa númer tvö, en hún var einnig með fuglafrímerkjum, sem komu út árið 1987. Er skemmtilegt til þess að vita að svona útgáfum er haldið áfram og frímerkin gerð skemmtileg söluvara, sem nota má til tækifærisgjafa til kunningja erlendis og verðinu er stillt í hóf. Kostar þessi seinni fugla- frímerkjamappa aðeins 200 krónur, en sú fyrri 250 krónur. Fyrsta gjafamappan er hinsvegar löngu uppseld, en hún var með frímerkjunum sem gefin voru út 1986 af tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkur. Þarna er rólega farið af stað, með eina gjafamöppu á ári. Er það vel ef sérstaklega er tekið tillit til þess að þessi söluvara nýtist bæði ferðalöngum og heimamönn- um til minjagjafa. AFA frímerkjaverðlistinn Fyrsti nýi frímerkjaverðlistinn sem mér hefir borist fyrir 1989-1990 er danski frfmerkjaverðlistinn AFA fyrir Norðurlöndin. Þótt hann beri ennþá heitið „Skandinavien Fri- mærkekatalog" nær hann yfir ísland, Færeyjar, Grænland, Dönsku Vest- urindíur og Sameinuðu þjóðirnar, svo nokkuð sé nefnt. Það fyrsta sem gleður bæði auga og hönd er brot listans, sem er 12, 5x20 cm, en það er mjög handhægt vasabrot. Prentun og frágangur er eins og áður einstaklega vandað og öll fyrri tölvuvandkvæði úrsögunni. Lars Boes hjá Aarhus Frimærke- handel, sem gefur út listann, segir í formála að hinn norræni markaður hafi ekki enn orðið fyrir neinni sterkri aukningu á eftirspurn, en það megi lýsa honum sem stöðugum með greinilegum merkjum í átt til hækkunar. Eftir að hafa fengið í hendur þessa frímerkjaskrá, Ameríska Scott- listann, þ.e. Ijósrit af handriti, Michel, verðskrá eins frímerkja- kaupmanns hér heima og eigið verð fyrir íslensk frímerki 1990, sem nú er í prentun, gerði ég úrtak úr þessu öllu og þá kom ýmislegt skemmtilegt í ljós. Sé tekið saman Iverð hæstu listanna (Scott og Michel) og því gefið gildið 1000, þá er verð AFA 840 stig af því, verð íslensk frímerki 456 stig af því og verð kaupmannsins 368 stig. Tekið skal frani að hér er um póstverslun að ræða. Gangverð frímerkja, sé miðað við 1000 stig dýrustu listanna, hefir á undanförnum árutn verið 400 til 600 stig af þessu verði, allt eftir því hversu góð og sjaldgæf viðkomandi frímerki eru. Þessi nýja útgáfa AFA listans er sjálfri sérmjögsamkvæm í vesAtUp- ingu, og eins og áður segrr ‘víöfflúð og hentug í frágangi. JH Sigurður H. ÞrtwR|nilslfti'

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.