Tíminn - 14.02.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 14. febrúar 1990
Tíminn 3
Verðlagsráð setur hámarksverð á ráðgjafarverkfræðinga o.fl.:
Hækkun gjaldskrár
á þjónustu óheimil
Yerðlagsráð ákvað í gær að setja hámarksverð á þjónustu
gjaldskrár ráðgjafarverkfræðinga frá og með 13. febrúar
1990. Jafnframt var sett hámarksverð á gjaldskrár sjálfstætt
starfandi sérfræðinga sem byggja á kjarasamningum milli
Stéttarfélags verkfræðinga og Félags ráðgjafarverkfræðinga
eða gjaldskrám Félags ráðgjafarverkfræðinga. Launalið þess
kjarasamnings var sagt upp af hálfu Félags ráðgjafarverk-
fræðinga í gær.
Þessi samþykkt Verðlagsráðsfelur þá voru í gildi sem hámarksgjald-
það í sér að ofangreindum aðilum er skrár fyrir þjónustu þessara aðila.
óheimilt að hækka gjaldskrár sínar Mál þetta kom til umræðu á
fyrir hvers kyns útselda vinnu og ríkisstjórnarfundi í gærmorgun og í
þjónustu frá því sem var 31. desem- fréttatilkynningu frá ríkisstjórninni
ber sl. og gilda þær gjaldskrár sem segir að hún telji óhjákvæmilegt að
leita allra leiða til að koma í veg fyrir
að samningur sá sem stéttarfélög
verkfræðinga, tæknifræðinga og
tækniteiknara hafa gert við Félag
ráðgjafarverkfræðinga stefni í hættu
þeim árangri í efnahagsmálum sem
stefnt er að með hinum almennu
kj arasamningum.
í þessu skyni ræddi Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra við
formann Félags ráðgjafarverkfræð-
inga og lagði áherslu á að fallið yrði
frá þessari hækkun og samningurinn
yrði endurskoðaður til samræmis við
hina almennu samninga. Þá leitaði
ríkisstjórnin álits Verðlagsráðs sem
samþykkti ofangreint hámarksverð
á þjónustu viðkomandi aðila.
Launalið í nýgerðum kjarasamn-
ingi Stéttarfélags verkfræðinga,
Stéttarfélags tæknifræðinga og Stétt-
arfélags tækniteiknara við Félag ráð-
gjafarverkfræðinga var síðan rift í
gær af hálfu ráðgjafarverkfræðinga í
samræmi við ósk forsætisráðherra.
Uppsögnin er gerð með tilskildum
eins mánaðar fyrirvara.
-ABÓ
Engin
lukka
ennpá
Ennþá hefur enginn hreppt 15
milljóna króna einbýlishúsið sem
er stærsti vinningurinn í Lukku-
tríóinu, . skafmiðahappdrætti
björgunarsveitanna. Hjá Lukku-
tríóinu fengust þær upplýsingar
að um 60-70% miðanna væru
seldir.
Salan mun hafa verið frekar
treg seinm hluta desember og í
janúar en hefur nú tekið kipp
eftir að auglýsingar tóku að birt-
ast að nýju. Framkvæmdastjóri
Lukkutríós sagðist vonast til þess
að vinningsmiðinn færi að skila
sér því annars fengi fólk bara leið
á leiknum og mikilvægt væri að
einhver hreppti húsið, ef ekki
myndi það væntanlega hafa slæn\
áhrif á álit almennings á Lukku-
tríóinu. SSH
Fjárhagsáætlun Kópavogs lögð fram:
Sérstök hátíðarsýning verður í Þjóðleikhúsinu á Endurbyggingunni en þar verður höfundurinn, Václav Havel
forseti Tékkóslóvakíu, viðstaddur. Myndin er tekin á lokaæfingu verksins fyrir skömmu. Frá vinstri; Helga
Jónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Þór Tulinius, Jón Símon Gunnarsson og Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Nýir ráðamenn úr austurvegi í heimsókn um helgina:
Havel sér eigið verk á íslandi
Václav Havel rithöfundur og
forseti Tékkóslóvakíu kemur til
landsins á laugardag ásamt 80
manna fylgdarliði. í fylgdarliðinu
eru Olga kona hans, Marián Calfa
forsætisráðherra, Václav Klaus
fjármálaráðherra og Andrej Bar-
cák ráðherra utanríkisviðskipta.
Forsetinn og fylgdarlið hans hef-
ur hér tæps sólarhrings viðdvöl á
leið sinni vestur um haf og verður
viðstatt sérstaka hátíðarsýningu á
leikriti Havels, Endurbyggingunni,
í Þjóðleikhúsinu.
Flugvél Havels lendir á Kefla-
víkurflugvelli kl. 12.30 og tekur
forseti Islands á móti hinum tékk-
neska starfsfélaga sínum. Síðan
verður ekið í ráðherrabústaðinn
við Tjarnargötu til hádegisverðar í
boði ríkisstjórnarinnar. Að hádeg-
isverði loknum verður ekið í skoð-
unarferð um borgina en þeirri ferð
lýkur í Höfða þar sem borgarstjóri
heilsar upp á Havel.
Kl. 17 hefst hátíðarsýning á
Endurbyggingunni en að henni
lokinni verður kvöldverður að
Hótel Sögu í boði forseta fslands.
Havel og fylgdarlið hans heldur
áfram vestur um haf á sunnudags-
morgni. -sá
Heildarútgjöldin
rúmar 1.324 millj.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun
Kópavogs fyrir árið 1990 fór fram á
bæjarstjórnarfundiádögunum. Gert
er ráð fyrir að heildarútgjöld verði
rúmlega 1.324 milljónir króna.
Helstu tekjur eru: útsvör 843 millj-
ónir, aðstöðugjöld 186 milljónir og
fasteignaskattar 210 milljónir.
Helstu útgjaldaliðir eru félagsmál en
til þeirra fara tæplega 354 milljónir
og fræðslumál en til þeirra fara um
223 milljónir.
Gert er ráð fyrir að til stjórnar
kaupstaðarins fari 75 milljónir, til
félagsmála 354 milljónir, en þar
koma á móti 104 milljón króna
tekjur vegna félagsmála. Til fræðslu-
mála fara 223 milljónir, til menning-
armála 34 milljónir og til æskulýðs-
og íþróttamála 63 milljónir. Til
gatnagerðar fara tæplega 84 milljón-
ir, en þar koma á móti 233 miiljóna
tekjur vegna þessa málaflokks og til
umhverfismála fara 33 milljónir.
Kópavogskaupstaður þarf að
leggja fram rúmlega 38 milljónir til
Strætisvagna Kópavogs, en gert er
ráð fyrir að heildarútgjöld fyrirtækis-
ins verði 75 milljónir.
Vaxtagjöld bæjarins verða sam-
kvæmt fjárhagsáætluninni um 90
milljónir, en vaxtatekjur eiga hins
vegar að verða tæplega 42 milljónir.
-EÓ
Tekjur Garðabæjar
vfir 500 milljónir
Drukknaði í
Eskifjarðará
54 ára gamall maður, Ragnar
Þorsteinsson, fannst látinn í Eski-
fjarðará að kvöldi sl. föstudags.
Ragnar hugðist fara ríðandi frá Eski-
firði inn að hesthúsum sem eru
innan við býlið Eskifjörð. Þegar
hesturinn skilaði sér mannlaus að
hesthúsunum var farið að svipast um
eftir Ragnari og fannst hann þá
látinn. Hann lætur eftir sig eiginkonu
og þrjú uppkomin börn.
-ABÓ
Alþjóðasamningur S.Þ.
um réttindi barna:
ísland aðili
Á dögunum undirritaði varafasta-
fulltrúi Islands hjá Sameinuðu þjóð-
unum alþjóðasamning um réttindi
barna, sem unnið hefur verið að á
vettvangi S.Þ. síðast liðin tíu ár.
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir
yfirstandandi ár var samþykkt á
fundi bæjarstjórnar 1. febrúar sl.
Sameiginlegar tekjur bæjarsjóðsins
eru áætlaðar 537,6 milljónir króna.
Þar af hljóða útsvörin upp á 413,7
milljónir króna, eða 77% af sameig-
inlegum tekjum.
Rekstrarafgangur nemur 162,1
milljón króna eða 30,2% af sameig-
inlegum tekjum. Áætlað er að verja
312,6 milljónum til framkvæmda á
þessu ári. Stærsta framkvæmd ársins
Innheimta bifreiðaskatta hefur víða áhrif,
m.a. á sunnlenska loðdýrabændur:
Hugsanlegt að engu
fóðri verði dreift
Svo gæti farið að loðdýrabændur
á Suðurlandi þurfi sjálfir að sækja
fóður til Fóðurstöðvarinnar á Sel-
fossi því við blasir að skráningar-
númerin verði klippt af flutninga-
bílum stöðvarinnar vegna vangold-
ins þungaskatts og bifreiðagjalda.
Skuld stöðvarinnar er um 700 þús-
und krónur en forsvarsmenn henn-
ar bíða svars frá Byggðastofnun
um að stöðinni verði veitt skamm-
tíma rekstrarlán. Ekki hafa fengist
upplýsingar um hversu hátt lán er
um að ræða.
Um fjörutíu bændur eru í við-
skiptum við Fóðurstöðina og er
ljóst að það getur valdið bændun-
um veruiegum óþægindum ef þeir
þurfa að sækja fóðrið sjálfir en um
allt að 80 kílómetra leið er að
ræða. Það er þó lán í óláni, ef svo
má segja, að öllum hvolpum hefur
þegar verið slátrað þannig að að-
eins lífdýrin eru á fóðrum.
Þessi vandræði eru bara einn
liður í þeim erfiðleikum sem loð-
dýraræktin stendur frammi fyrir.
Stöðvarnar bíða enn eftir fram-
kvæmdum sefn áttu að koma í
kjölfar þess aÓ Alþingi samþykkti
frumvarp rétt fyrir jólin um að
lausaskuldum bænda verði breytt í
langtímalán. Einnig var samþykkt
að ríkið ábyrgðist lán til greinar-
innar. Þangað til felst barátta
stöðvanna í því að bægja rukkurum
frá. SSH
er malbikun og nýbygging gatna,
annars vegar lagning malbiks á þær
húsagötur sem enn er ólokið við og
hins vegar nýbygging gatna vegna
fyrirhugaðrar úthlutunar lóða á
þessu ári. Önnur viðamesta fram-
kvæmd bæjarsjóðsins er bygging
leikskóla í nýju hverfi á austanverð-
um Arnarneshálsi. Fyrirhugað er að
taka leikskólann í notkun I. mars
1991. I ár er áætlað að verja 30
milljónum króna til þeirra fram-
kvæmda. Ennfremur er tíu milljón-
um veitt til viðbyggingar við Flata-
skóla.
Fræðslumál er sá málaflokkur sem
mestum hluta útgjalda er varið til,
94,9 milljónum króna eða 25% af
rekstrartekjum í heild en næst koma
framlög til almannatrygginga og fé-
lagshjálpar, 58,1 milljón króna, eða
16% af rekstargjöldum. SSH
Leiðrétting
Svo virðist sem misskilningur hafi
komið upp í samtali blaðamanns
Tfmans við Þorstein Geirsson ráðu-
neytisstjóra í dómsmálaráðuneyt-
inu, varðandi frétt er undirritaður
skrifaði um að dómsmálaráðherra
hafi hafnað skipun sérstaks setusak-
sóknara í máli fyrrum starfsmanns
Ríkisendurskoðunar, Inga B. Ár-
sælssonar. Hið rétta er að endanleg
ákvörðun hefur ekki verið tekin í
ráðuneytinu. Að sögn Þorsteins
Geirssonar má búast við að á næst-
unni berist svar frá ráðuneytinu,
hvort skipaður verði sérstakur setu-
saksóknari ímálinu eða ekki.
-ABÓ