Tíminn - 14.02.1990, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 14. febrúar 1990
ÚTLÖND
Sovéskar öryggissveitir ráða ekki neitt við neitt í höfuðborg Tajikistan þar
sem lýst hefur verið yfir neyðarástandi:
Fjörutíu falínir í
átökum í Dushanbe
Sovéskar öryggissveitir ráða ckkcrt við æsta íbúa Dushanbe. Tæplega 40 manns hafa fallið í borginni undanfarna
tvo daga.
4 Tíminn
FRÉTTAYFIRLIT
BONN - Vestur-Þjóðverjar
og Austur-Þjóðverjar hafa
komið sér saman um að hefja
viðræður háttsettra nefnda
sérfræðinga um gjaldeyris-
bandalag. Munu nefndirnar
hefja viðræður strax í næstu
viku. Frá þessu var skýrt á
sameiginlegum blaðamanna-
fundi Helmut Kohls kanslara
Vestur-Þýskalands og Hans
Modrow forsætisráðherra
Austur-Þýskalands eftir við-
ræður þeirra í Bonn.
BEIRÚT - Michel Aoun
hershöfðingi hét því að mala
vopnaðar sveitir Líbönsku her-
sveitanna mélinu smærra ef
þær gefist ekki upp í innbyrðis
stríði kristinna manna í Líban-
on. Nú þegar hafa 500 manns
fallið í átökunum sem staðið
hafa í tvær vikur.
BOGÓTA - Kólumbískir
skæruliðar rændu tveimur
Bandaríkjamönnum til að mót-
mæla áætlunum George Bush
Bandaríkjaforseta sem leggja
áfyrirleiðtogafund í Cartagena
þar sem fjallað verður um leiðir
til að berjast gegn eiturlyfja-
smygli. Bush hyggst leggja
áherslu á að herlið verði í
auknum mæli notað við að
stöðva eiturlyfjasmygl frá Suð-
ur-Afríku.
JERÚSALEM - Háttsettur
embættismaður í ísrael sagði
að Yitzhak Shamir forsætis-
ráðherra hafi tekið skýrt fram
að Israelar myndu ekki ganga
lengra til móts við Palestínu-
menn í friðarviðræðum í Mið-
austurlöndum. Sagði Yossi
Ben-Aharon ráðuneytisstjóri í
forsætisráðuneytinu að ísrael-
ar útiloki fund utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Egypta-
lands og ísraels nema að
Bandaríkjamenn heiti Israel-
um neitunarvaldi yfir fulltrúum
Palestínumanna I framtíðar-
viðræðum.
GENF - Dumitru Mazilu fyrr-
um varaforseti Rúmeníu hvatti
alla stjórnarandstöðuflokkana
( landinu til að bjóða saman
fram gegn Þjóðfrelsisfylking-
unni í kosningunum í Rúmeníu
í maí.
Nú hafa tæplega fjörutíu manns
fallið ■ átökum almennings og
sovéskra öryggissveita í Dushanbe
höfuðborg sovétlýðveldisins Tajik-
istan. Hafa óeirðir breiðst út í út-
hverfi borgarinnar, en þær hófust í
miðborginni á mánudag og var þá
lýst yfir neyðarástandi. Þá munu
óeirðir einnig hafa hrotist út í ná-
grannalýðveldinu Kirgiziu.
Æstur múgurinn réðst að skrið-
drekum og brynvörðum bifreiðum
sovéskra hermanna sem gættu bygg-
ingar miðstjórnar kommúnista-
flokksins í bænum, en á mánudags-
kvöld setti múgurinn eld í bygging-
una. Vélbyssuskothríð heyrðist á
götum borgarinnar þegar hermenn
hröktu múginn frá byggingunni.
Reiði fólksins bcinist fyrst og
fremst að armenskum flóttamönnum
sem flúið hafa ofsóknir Azera í
Bakú og öðrum svæðum Azerbæd-
zhan. Um sextíuþúsund Armcnar
flúðu Bakú í síðasta mánuði og var
hluti þeirra sendur til Dushanbe
höfuðborgar Tajikistan og til Frunze
höfuðborgar Kirgiziu.
Ástæða reiði fólks í þessum lýð-
veldum er af tvennum toga spunnin.
f fyrsta lagi er fólkið flest múslímar
eins og Azerar, en Armenar eru
kristnir. í annan stað þá ríkir gífur-
legt atvinnuleysi í báðum þessum
sovétlýðveldum, sérstaklega í höf-
uðborgunum. Orðrómur var á kreiki
Nelson Mandela leiðtogi Afríska
þjóðarráðsins fékk konunglegar
móttökur þegar hann kom til
blökkumannaborgarinnar Soweto.
Hundrað þúsund manns biðu hans á
knattspyrnuvelli í borginni og hlýddi
fagnandi mannfjöldinn á Mandela
þegar hann hvatti til þess að endi
yrði bundinn á „svart helvíti aðskiln-
aðarstefnunnar".
f ræðu sinni hvatti Mandela fólk
til að halda aga og fordæmdi hann
um að Armenarnir hefðu strax feng-
ið atvinnu og einnig íbúðir, en að
jafnaði er löng bið eftir húsnæði.
Fullyrða sovéskir fjölmiðlar að Az-
erar hafi haldið til Dushanbe og
mjög þá öldu ofbeldis sem flætt
hefur yfir Suður-Afríku frá því F.W.
de Klerk forseti tók þá pólitísku
áhættu að sleppa Mandela úr fang-
elsi á sunnudaginn. „í dag fyllist
hjarta mitt gleöi yfir því að vera
aftur kominn til Soweto,“ sagði
Mandela, en Mandela fór fyrst til
heimilis síns í fátækari hluta Soweto,
áður en hann hélt til íþróttaleik-
vangsins þar sem um 100 þúsund
manns biðu hans með óþreyju.
Frunze til að koma orðrómnum af
stað og skipuleggja andóf gegn Arm-
enum.
Einungis 39 Armenar voru fluttir
til Dushanbe frá Bakú og dvöldu
Skæruliðar virðast nú hafa náð
hafnarbænum Masawa í Erítreu á
sitt vald, en stjórnarhermenn börð-
ust ennþá í hluta bæjarins í gær.
Ráðist var á danskt flutningaskip í
nokkurra sjómílna fjarlægð frá bæn-
um á mánudag. Ekki er vitað hvort
mannfall varð, en skipið náði til
hafnar í bænum Assab í suðurhluta
Eþíópíu í gærkvöldi.
Skæruliðar Þjóðfrelsisfylkingar
Erítreu sögðust hafa náð Masawa á
sitt vald á laugardag, en starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna skýrðu frá því
í gær að stjórnarhermenn héldu enn
eyju sem tengist öðrum hluta bæjar-
ins með mjóu rifi, en á þessari eyju
er helsta markaðssvæði Masawa.
Eduard Shévardnadze utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna hafnaði al-
farið hugmyndum um að sameinað
Þýskaland yrði aðili að NATO, en
ekki hlutlaust. Bandarískir emb-
ættismenn höfðu gefið í skyn að
Shévardnadze hefði ekki útilokað
þann möguleika, en hugmyndir voru
á lofti um að sameinað Þýskaland
yrði innan vébanda NAT0, en ekki
yrði þó leyft að hafa hersveitir á því
svæði sem nú er Austur-Þýskaland.
Sovétmenn og Austur-Þjóðverjar
þeir hjá ættingjum. Flóttamennirnir
voru á mánudaginn fluttir til Jerevan
höfuðborgar Arnteníu ásamt hundr-
að Armenum er ’bjuggu fyrir í borg-
inni.
Hins vegar hrundu skæruliðar árás
stjórnarhersins sem gerð var á Mas-
awa af sjó á mánudaginn. Sökktu
skæruliðar sex skipum stjórnarhers-
ins, en ekki er vitað hvort það voru
skæruliðar eða stjórnarhermenn sem
gerðu árás á danska skipið.
Þá var hart barist meðfram þjóð-
veginum frá Masawi til Asmara
höfuðstaðar Eritreu.
Ef skæruliðar ná að halda Masawi
þá geta þeir lokað síðustu leiðinni
sem stjórnin hefur til að koma
matvælum og vistum til þeirra bæja
sem stjórnarherinn heldur enn í
Eritreu. Má þá ætla að skammt sé til
endaloka yfirráða Eþíópíustjórnar
yfir Eritreu.
segja að slíkt ríki verði að vera
hlutlaust.
Shévardnadze átti tveggja klukku-
stunda fund með Hans-Dietrich
Genscher utanríkisráðherra Vestur-
Þýskalands, en þeir eru nú í Ottawa
þar sem fram fer ráðstefna NATO
og Varsjárbandalagsins um opnun
lofthelgi. Að fundinum loknum tók
hann skýrt fram að sameinað Þýska-
land innan NATO kæmi ekki til
greina.
Hong Kong:
Táragasi beitt
gegn bátafólki
Táragasi var beitt gegn víet-
nömsku bátafólki í Hong Kong í
gær, en hópum frá tvennum flótta-
mannabúðum Víetnama laust sam-
an og börðust í þrjár klukkustund-
ir. Sjö manns slösuðust alvarlega í
átökunum.
Vandræðin hófust þegar hópur
flóttamanna frá Quang Ninh hér-
aði reif niður girðingar og réðst að
fólki frá nágrannahéraðinu Hai-
phong. Hafa deilur og átök flótta-
manna frá þessum héruðum oft-
sinnis brotist út í flóttamannabúð-
unum í bænum Shatin sem tilheyrir
Hong Kong.
Lögreglan varð að beita táragasi
þar sem átökin urðu æ magnaðri og
óeirðaseggirnir notuðu heimatil-
búin vopn í bardaganum. Réðust
um 150, sérþjálfaðir öryggislög-
reglumenn að óeirðaseggjunum.
Um það bil 20 þúsund Víetnam-
ar dveljast í flóttamannabúðunum
þar sem átökin urðu. Hafa starfs-
menn flóttamannabúðanna varað
stjórnvöld við þvt' undanfarna
mánuði að eitthvað þessu lt'kt hlyti
að gerast, því spenna hefur farið
vaxandi í búðunum, vegna þeirrar
ákvörðunar yfirvalda í Hong Kong
að senda þá heim sem þeir telja
ekki pólipska flóttamenn heldur
ólöglega innflytjendur.
Suður-Afríka:
Mandela kominn
heim til Soweto
Skæruliðar í
Eritreu ná
bænum Masawa
Hafnar sameinuðu
Þýskalandi í NAT0