Tíminn - 14.02.1990, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 14. febrúar Í990
Tíminn 15
ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Gunnar Beinteinsson lék vel í vörninni í fyrri hálfleik í leiknum í gærkvöld og skoraði eitt mark af línu eins og sést
á myndinni hér að ofan. Timamynd Pjetur.
Handknattleikur-Ísland-Rúmenía:
Eins marks tap í
leik mistakanna
- Rúmenum færöur 23-24 sigur á silfurfati
Það var ekki glæsilegur hand-
knattleikur sem íslenska landsliðið
sýndi í þriðja leiknum gegn Rúmen-
um í Laugardalshöll í gærkvöld.
Mistök á mistök ofan kostuðu sigur-
inn og vamarleikurinn var á köflum
mjög gloppóttur. Það reyndist því
ekki erfitt fyrir Rúmena að sigra
23-24, síðustu mínúturnar hefði
reyndar allt getað gerst.
Rúmenar komust í 1-3, en íslend-
ingar jöfnuðu 4-4. Jafnt var á öllum
tölum uppí 11-11 en þá Rúmenar
gerðu 2 mörk í röð og komust f
11-13. Þrjú síðustu mörkin í fyrri
hálfleik voru rúmensk og þeir leiddu
því með 4 mörkum í leikhléi 12-16.
Reyndar var síðasta mark þeirra úr
aukakasti eftir að leiktíma lauk
kolólöglegt, Vasile Stinga tók skref
sem ekki má, en slakir tékkneskir
dómarar leiksins voru á öðru máli.
1 upphafi síðari hálfleiks náðu
Rúmenar 6 marka forystu 14-20 og
úrslit virtust ráðin. Ljósi punkturinn
fyrir íslenska liðið í þessum leik er
sá að liðið náði að komast á ný inní
leikinn, minnka muninn í 2 mörk
20-22. Rúmenar náðu á ný 4 marka
forystu 20-24, en þeir Þorgils Óttar,
Héðinn og Guðmundur skoruðu
þrjú mörk í röð og minnkuðu mun-
inn í 1 mark 23-24. íslenska liðið
hafði knöttinn síðustu mínútuna en
náði ekki að jafna leikinn. Rúmenar
unnu því sigur í þessum leik, en fara
með 2 töp á bakinu heim.
Guðmundur Hrafnkelsson varði
16 skot og var sem fyrr mjög traust-
ur. Héðinn stóð sig vel, en var
nokkuð ákafur á lokamínútunni.
Þegar varnarleikurinn small saman í
síðari hálfleik komst liðið á ný inní
leikinn og sýnir það nokkuð styrk
liðsins. Islenska liðið mætir Sviss-
lendingum annað kvöld og á föstu-
dagskvöld.
Mörkin Island: Héðinn 7, Júlíus
4/2, Kristján 3, Þorgils Óttar 2,
Guðmundur2, Sigurður 1, Valdimar
1, Óskar 1 og Gunnar 1. Hjá Rúmen-
um skoruðu flest mörk: Licu 6 og
Berbec 4/3. BL
Körfuknattleikur:
Reykianes sigraði Landið
Lið Suöurnesja sigraði lið Lands-
ins 132-129 í íslenska stjörnuleiknum
sl. föstudagskvöld í Keflavík.
Landið hafði yfir hvern af fyrstu
þremur fjórðungunum 43-26, 77-52
og 105-92. í síðasta fjórðungi fóru
þeir Friðrik Ragnarsson, Hjálmar
Hallgrímsson og Bandaríkja-
mennirnir Sandy Anderson og Patr-
ick Releford á kostum og tryggðu
Suðurnesjaliðinu sigur.
Teitur Örlygsson var valinn
leikmaður stjörnuleiksins.
I troðkeppni sem fram fór í tengsl-
um við leikinn sigraði- Ron Davis
UMFG og Valur Ingimundarson
UMFT varð hlut í þriggja stiga
skotkeppni.
Fjölmargir áhorfendur fylgdust
með þessari körfuknattleikshátíð
sem KKÍ og Samtök Iþróttafrétta-
manna stóðu að. BL
íslenskar getraunir:
Ein röð með
tólf réttum
-Útisigrar í meirihluta á getraunaseðlinum
um síðustu helgi
Aðeins ein röð kom fram með 12
leikjum réttum um síðustu helgi í
6. Icikviku íslenskra Getrauna.
Vinningshafinn keypti seðilinn í
Söluturninum Snæðingi íTryggva-
götu í Reykjavík. Um var að ræða
opinn seðill fyrir 160 kr. Fjórar
raðir með 11 réttum fylgja með og
fær því þessi lánsami aðili í sinn
767.703 kr. Þessi tipnari studdi
knattspyrnufélagið Arvakur í
Reykjavík.
Annars komu fram 20 raðir með
11 réttum, fyrir hverja röð greiðast
15.151 kr. í vinning.
Útisigrar voru í meirihluta á
seðlinum um síðustu helgi, skipting
merkjanna var 4-3-5. Það voru
einmitt tveir útisigrar sem komu
hvað flestum tippurum í opna
skjöldu. Það var 0-1 sigur WBA á
Oxford og 0-1 sigur Blackburn á
Sunderland. Flestir reiknuðu með
útisigrum í þessum leikjum.
Um næstu helgi verða leikur úr
5. umferð FA bikarkeppninnar á
seðlinum, auk leikja úr 1. og 2.
deild ensku knattspyrnunnar.
Úrslitin urðu þessi:
Aston Villa-Sheff. Wed. . . 1-0 1
Chelsea-Tottenham........1-2 2
Everton-Charlton ........2-1 1
Man. City-Wimbledon ... 1-1 x
Millwall-Man. United .... 1-2 2
Norwich-Liverpool .......0-0 x
Barnsley-Swindon.........0-1 2
Oxford-WBA...............0-12
Portsmouth-Newcastle ... 1-1 x
Port Vale-Watford.......1-0 1
Sunderland-Blackburn . . . 0-1 2
Wolves-Ipswich............2-1 1
BL
Knattspyrna á Hofsósi:
Ingvar þjálfar
Neista
á Hofsósi
Ungmennafélagiö Neisti á Hofsúsi
og nágrenni hefur ráðið lngvar
Magnússon íþróttakennari á Sauðár-
króki til að annast þjálfun knatt-
spyrnuliðs Neista á komandi keppn-
istímabili.
Ingvar mun liefja störf hjá félag-
inu í byrjum mars. Ingvar lék áður
með Tindastóli á Sauðárkróki og var
einnig þjálfari hjá Hvöt á Blönduósi
fyrir nokkrum árum. Þá má geta
þess að á aðalfundi Neista sem
haldinn var fyrir skömmu var Gísli
Einarsson útibússtjóri kosinn for-
maður í stað Ólafs G. Halldórssonar
sem ekki gaf kost á sér til stjórnar-
starfa áfram. Þá kusu Ncistamenn
fyrir skömmu íþróttamann ársins
innan sinna vébanda og varð 14 ára
gömul stúlka, Ólöf Gerður Sigfús-
dóttir fyrir valinu. Ólöf Gerður legg-
ur stund á frjálsar íþróttir og náði
ágætum árangri á mótum á síðasta
ári. Ö Þ.
Knattspyma:
Reykjavík og Landið
leika um næstu helgi
KSÍ og KRR hafa ■ sameiningu
ákveðið að standa fyrir knattspyrnu-
leik í tilcfni af komu nýs landsliðs-
þjálfara, Bo Johansson til landsins.
Leikurinn veröur sunnudaginn 18.
nk. og þar munu lið Reykjavíkur og
Landsins eigast við. Þjálfari Reykja-
víkurliðsins verður Ásgeir Elíasson
þjálfari bikarmeistara Fram, en
Guðjón Þórðarson þjálfari Islands-
meistara KA mun stjórn liði
Landsins.
Þessi leikur er upphaf nýrrar
knattspyrnuvertíðar og nýja lands-
liðsþjálfaranum gefst tækifæri á að
skoða 32 af bestu knattspyrnumönn-
um landsins í leik. Leikurinn mun að
sjálfsögðu fara fram á gervigrasvell-
inum í Laugardal og hefst hann kl.
14.00. BL
S (+=$$/=
Laugardagur kl.14: 55
7. LEIKVIKA- 17. feb. 1990 1 X 2
Leikur 1 Bristol City - Cambridge*
Leikur 2 C. Palace - Rochdale*
Leikur 3 Liverpool - Southamton*
Leikur 4 Oldham - Everton*
Leikur 5 W.B.A. - Aston Villa* Teningur
Leikur 6 Coventry - Millwall**
Leikur 7 Nott. For. - Chelsea**
Leikur 8 Sheff. Wed. - Arsenal**
Leikur 9 Blackburn - PortVale***
Leikur 10 Hull - Portsmouth***
Leikur 11 Ipswich - Leeds***
Leikur 12 Watford - Sunderland***
LUKKULÍNAN s. 991002 * = leikir frá FA-bikarkeppninni - ekki framlengdir, ** = 1. deild, *** = 2. deild. LeikurW.B.A. - Aston Villa fer fram kl. 12:30 = Teningur.