Tíminn - 15.02.1990, Síða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 14. febrúar 1990
FRÉTTAYFIRLIT
tsjof forseti Sovétríkjanna varö
fyrir nokkru áfalli þegarfulltrúa-
þing Sovétríkjanna hætti við
atkvæðagreiðslu sem nauð-
synleg var til að hæat væri að
breyta stjórnarskrárakvæðum.
Fyrir lá að breyta stjórnar-
skránni í samræmi vio þær
umbótahugmyndir Gorbatsjofs
sem samþykktar voru á mið-
stjórnarfundi kommúnista-
flokksins á dögunum, þar á
meðal hugmyndir sem auka
vald forsetans.
BONN - Viðræður um jþýskt
peningabandalag enduðu í
fússi þeaar Hans Modrow for-
sætisráðherra Austur-Þýska-
lands lýsti sig óánægðan með
niðurstöður fundar efnahags-
ráðherranna og frammistöðu
síns eigin efnahagsráðherra.
Sakaði Modrow Vestur-Þjóð-
verja um að reyna að stöðva
efnahagsaðstoo þá sem þeir
hafa heitið Austur-Þjóðverjum.
Ástæðan er að Helmut Kohl
kanslari Vestur-Þýskalands
hefur ekki enn reitt af hendi 15
milljarða marka aðstoð sem
heitið var.
OTTAWA - Eduard Sévard-
nadze utanríkisráðherra
Sovétríkjanna sagðist geta
séð fyrir sér hlutverk bæði ■
NATO og Varsjárbandalagsins
í sameinuðu Þýskalandi. Sagði
Sévardnadze að ákjósanleg-
ast væri að sameinað Þýska-
land yrði hlutlaust.
WASHINGTON - Tals-
maður Hvíta hússins sagði að
George Bush forseti myndi
ekki þrýsta á leiðtoga þeirra
ríkja sem liggja að Andesfjöll-
um að taka við bándarískri
hernaðaraðstoð í baráttunni
við eiturlyfjasmyglara.
PARÍS - Franska fyrirtækið
Source Perrier hefur ákveðið
að afturkalla allt það vatn sem
til sölu er í búðum heimsins
eftir að í Ijós kom að vatnið
inniheldur eiturefni langt um-
fram leyfileg mörk.
BÚKAREST - Fjölmennir
mótmælafundir gegn rúm-
ensku ríkisstjórninni voru
haldnir víðsvegar um Búkar-
est. Þá er órói innan hersins að
aukast og lögðu hundruð
óbreyttra hermanna niður störf
veana óánægju með ríkis-
stjorn Þjóðfrelsisfylkingarinn-
ar.
JERUSALEM - Einn hæst
setti herforinqi Israela varaði
þingmenn við að reyna að
beita hernum af fullum krafti til
að brjóta á bak aftur uppreisn
Palestínumanna og sagði að
slíkt myndi kljúfa herinn.
Illlllllllllllllll útlönd ..................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................
Árangur loftferðaráðstefnu NATO og Varsjárbandalagsins í Ottawa ótrúlegur:
Mikil fækkun í herjum
stórveldanna í Evrópu
George Bush Bandaríkjafor-
seti er talinn hafa unnið mikinn
sigur á fundi NATO og Varsjár-
bandalagsríkja í Ottawa, en þar
var samþykkt veruleg fækkun í
herlíði hernaðarbandalaganna í
Evrópu. Samþykkt var að
Bandaríkjamenn fengju að hafa
30 þúsund fleirí hermenn stað-
setta í Evrópu en Sovétmenn.
Þrátt fyrir það verður gífurleg
fækkun í herliði beggja aðila í
Evrópu.
Þá var samþykkt á fundinum í
Ottawa að komið verði á fót sér-
stakri nefnd fjórveldanna, Sovét-
ríkjanna, Bandaríkjanna, Breta og
Frakka, og þýsku ríkjanna tveggja
til að ræða og undirbúa sameiningu
Þýskalands. En í þeim efnum er
strax komið babb í bátinn þar sem
Pólverjar krefjast þess að fá að taka
þátt í störfum nefndarinnar, enda
hafa þeir í gegnum aldirnar haft
slæma reynslu af þýskum herjum.
Einnig náðist víðtækt samkomu-
lag um „himnaopnun“, en ráðstefn-
an í Ottawa var einmitt haldin til
þess að ná samkomulagi um eftirlits-
ferðir óvopnaðra herflugvéla beggja
hernaðarbandalaganna yfir ríki
Bandarískur hermaður vísar skriðdreka heim. Hið sama munu þeir sovésku
gera.
þeirra. Gert er ráð fyrir að embættis-
menn gangi frá loftferðasamningum
á næstu tveimur vikum.
Eins og áður sagði er samkomu-
lagið um fækkun hermanna í Evrópu
talinn mikill sigur fyrir Bush. Fyrir
hálfum mánuði lagði hann fram
tilboð um að Bandaríkjamenn og
Sovétmenn myndu fækka í herliði
sínu þannig að í Mið-Evrópu mættu
bæði stórveldin hafa 195 þúsund
hermenn, en að auki mættu Banda-
ríkjamenn hafa 30 þúsund hermenn
staðsetta annars staðar í Evrópu.
Þessu tilboði hafnaði Mikhaíl Gor-
batsjof nú síðast á föstudaginn og
vildi að tala hermanna Bandaríkja-
manna og Sovétríkjanna yrði sú
sama, annað hvort 195 þúsund eða
225 þúsund. f þessu gáfu Sovétmenn
eftir, en rök Bandaríkjamanna voru
þau að ef spennuástand skapaðist
hefðu Sovétríkin mun betri aðstöðu
til að koma liðsauka frá Sovétríkjun-
um til annarra hluta Evrópu, þar
sem Atlantshafið skilji að Bandarík-
in og Evrópu.
Sovétmenn þurfa því að fækka í
herliði sínu í Evrópu um allt að 405
þúsund hermenn, en Bandaríkja-
menn þurfa að kalla heim 90 þúsund
hermenn.
Stjómvöld í Suður-Afríku:
EFNAHAGSSTEFNA
AFRÍSKA ÞJÓÐAR-
RÁDSINS VONLAUS
Ríkisstjórn hvítra í Suður-Afríku réðst harkalega að
efnahagsstefnu þeirri sem Afríska þjóðarráðið segist ætla
að koma á í Suður-Afríku takist að brjóta stjórn hvítra
manna á bak aftur og segir ríkisstjórnin að efnahagsstefnan
sé algerlega úrelt. Þróun mála í Austur-Evrópu sanni það.
Á sama tíma sagði Nelson Mand-
ela leiðtogi Afríska þjóðarráðsins
sem losnaði úr fangelsi á sunnudag-
inn eftir 27 ára innilokun, að stofn-
anir ríkisins væru réttmæt skotmörk
skæruliða samtakanna á meðan hvít-
ir menn fara með völd. Nelson
Mandela hefur lagt blessun sína yfir
efnahagsáætlanir Afríska þjóðar-
ráðsins.
Það er greinilegt að stjórn hvítra
manna ætlar að hamra á öllum þeim
veikleikum sem stefna Afríska þjóð-
arráðsins hugsanlega hefur, eftir að
starfsemi samtakanna hefur verið
lögleidd. Hófst áróðursherferðin í
fjölmiðlum í gær, en þar er bent á að
Afríska þjóðarráðið hyggist þjóð-
nýta allar námur landsins, alla banka
og öll helstu iðnfyrirtæki. Benda
stjórnvöld á að Afríska þjóðarráðið
sæki fyrirmyndina að þessari þjóð-
nýtingu til kommúnistaríkjanna í
Austur-Evrópu, sem nú rambi á
barmi gjaldþrots og hafi snúið sér frá
þjóðnýtingu og áætlanabúskap yfir í
blandað hagkerfi.
De Klerk forseti Suður-Afríku
sagði einmitt í viðtali í fyrradag að
þróun mála í Austur-Evrópu hefði
óbeint gert Suður-Afrfkustjóm
kleift að leyfa starfsemi Afríska
þjóðarráðsins og leysa Mandela úr
haldi.
Mandela er hins vegar enn
herskár, þó hann hafi hvatt blökku-
menn að halda stillingu sinni og
reyna að koma aðskilnaðarstefnunni
fyrir kattarnef án valdbeitingar.
Hann sagði í viðtali við BBC að ef
með þyrfti ættu skæruliðar Afríska
þjóðarráðsins að beita vopnavaldi til
að koma ríkisstjórn hvítra frá og
sagði að ef til vopnaðra átaka kæmi,
þá myndi óneitanlega saklaust fólk
falla þegar skæruliðar og stjórnarher
hvítra skiptist á skotum.
90 farast
á Indlandi
Níutíu manns fómst þegar
tveggja mánaða gömul Airbus A-
320 farþegaþota í eigu Indian Air-
lines fórst í lendingu við flugvöllinn
í Bangalore á Indlandi í gærmorg-
un. Fimmtíu og sex manns, þar af
tveir hvítvoðungar, björguðust úr
brennandi flakinu.
„Efri hluti þotunnar rifnaði af og
limlest lík hmndu úr flakinu. Ég og
tveir aðrir náðum átta lifandi
mönnum úr brakinu," sagði Law-
maiah Reddy, sem var á ferð á
vélhjóli sínu á leið til flugvallarins
þegar þotan skall til jarðar skammt
frá honum.
Þeir sem komust lífs af úr flug-
slysinu voru fluttir á tvö nærliggj-
andi sjúkrahús.
Fréttir herma að eldur hafi kom-
ið upp í vélinni rétt áður en hún átti
að lenda og hún því skollið til
jarðar, en ekki er þó enn ljóst hver
orsök slyssins er.
Einn farþegi er komst lífs af
sagðist hafa fundið skjálfta í þot-
unni er hún hóf sig á loft í Bombay.
Svipaður titringur varð síðar í
ferðinni og bað flugstjórinn þá
farþegana að spenna beltin. Sami
titringur varð síðan rétt fyrir slysið.
Kynþattaatökin magnast i Tajik istan:
Herlið skýtur á fólk í Dushanbe
Sovéskir hermenn hófu skothríð
án aðvörunar á óeirðaseggi í Du-
shanbe höfuðborg Tajikistan í gær
og féllu að minnsta kosti átta manns.
Þá hafa hátt á fimmtíu manns fallið
í átökum í Tajikistan frá því mót-
mæli gegn Armenum hófust þar á
laugardag. Þau mótmæli hafa nú
beinst gegn yfirráðum Kremlverja
yfirleitt.
Mikhaíl Gorbatsjof forseti Sovét-
ríkjanna boðaði að óeirðir í sovét-
lýðveldunum yrðu brotnar á bak
aftur af fullri hörku. Sagði hann að
setja þyrfti ný lög svo hægt yrði að
berja óeirðir sem þessar niður. Lagði
hann áherslu á að lögum verði
komið yfir undirróðursmenn sem
koma óeirðum af stað.
„Við verðum að beita öllu afli
laganna gegn þessu fólki sem undir
fölsku flaggi þjóðemishyggju fær
almenning til að berjast fyrir þeirra
eigin markmiðum," sagði Gorba-
tsjof á fulltrúaþingi Sovétríkjanna í
gær.
í gærmorgun hafði útvarpið í Du-
shanbe skýrt frá því að hermenn á
brynvörðum vögnum og skriðdrek-
um myndu halda inn í borgina til að
fylgja eftir neyðarástandslögum og
var fólk beðið um að rýma götumar
til að koma í veg fyrir harmleik. Svar
óeirðaseggja var að ráðast á verslan-
ir, strætisvagna og bíla. Þá hafa
hópar ungmenna ráðist á fólk sem
ekki eru Tajikar, sérstaklega þó á
Rússa.