Tíminn - 17.02.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 17.02.1990, Blaðsíða 7
Laugardagur 17. febrúar 1990 Jjnjinn, 7 kristinna verðmæta. Sjómaður- inn sótti afla í djúp hafsins og bóndinn erjaði jörðina. Sam- bandið við lífið sjálft, leyndar- dóma og auðlegð þess gerði það að verkum, að tröllatrú á alls- herjarlausnir og pólitísk töfra- brögð reyndust aldrei mikils metin. í þessu tafli nýttíst þjóð- inni líka tómlæti og kaldhæðni andspænis þeim sem blása sig út ög þykjast hafa óbrigðul ráð undir rifi hverju. Hin jákvæða hlið íslenskrar arfleifðar birtist í mörgum myndum á þeim áratugum, sem hér hafa verið gerðir að umtals- efni og bornir hafa verið saman við nútíðina. Nefna mætti ung- mennafélögin og þá um leið allar þær fjölmörgu hræringar, sem þau komu af stað í sveit og við sjó um land allt. Hvergi brann logi íslenskra verðmæta skærari ljóma en einmitt þar. Tengsl þessarar margþættu hreyfingar við þá alþýðlegu vakningu á Norðurlöndum, er birtist í lýðháskólunum, sem einnig hafa borist hingað til Skálholts, er augljós. Þótt hin alþýðlega vakning hafi birst með mismunandi hætti er einsýnt að um sameiginlegan norrænan arf er að ræða, þar sem hlutur íslendinga er engu minni en annarra. Almenningur hér á landi og í grannlöndum okkar þjappaði sér saman um þau merki, sem bestu menn höfðu reist í miðdepli menningar, fél- agsþroska, framfaravilja, ætt- jarðarástar og trú á skaparann. Ávinningur þess liðssafnaðar var allt í senn aukin mannleg reisn á íslandi og efling þeirra atvinnuvega, sem byggja á gæð- um lands og sjávar. Atvinnu- vega sem eru grundvöllur vel- ferðarþjóðfélags nútímans. Samvinna spratt upp { stað sam- keppni og baráttu allra gegn öllum. Strjálbýli landsins tók á móti straumunum og reyndist þess umkomið að veita ungu og óráðnu þéttbýli innihald og menningarlegt vegarnesti. Síð- ast en ekki síst lifði ávallt með þjóðinni hollusta við kristið sið- gæði og kristna trú. Það ísland, sem við nú leit- umst við að efla, býr að þessari brú, sem byggð var milli fortíðar og framtíðar. Hún stóð af sér hringiðu þeirra áratuga, sem einkenndust af upphlaupum og hugmyndalegum ofsa. Hendur nýrrar kynslóðar hafa sópað burtu mosanum. Burðarviðir og brúargólf blasa við, og brúin gamla er styrkasta mannvirki samtíðar okkar. Kirkjan sameiningarafl Við þessar aðstæður hlýtur það að vera hlutverk kirkjunnar að beita áhrifum sínum til að sameina þjóðina um þau verð- mæti sem landsmenn liafa fengið í arf frá forfeðrunum. Eftir hrun þeirra hugmyndakerfa, sem áður riðu húsum stendur kristin trú og siðferði sterkar en nokkru sinni áður og er burðarás allra sem vilja rækta með sér heil- steypta og samræmda lífsskoð- un. Lífsskoðun sem leiðir þjóð- ina á réttar brautir og hefur áhrif höfnuðu þeir þeim leyndardómi og djúpu vitund sem búið hafði um sig með átrúnaði aldanna. Kristin trú var að þeirra mati hégómi, ósamboðin þeim miklu vitsmunum, er höfundar hinna ýmsu kennisetninga höfðu teflt fram. Kristnum mönnum hætti til að bregðast hart við ofangreind- um árásum. Slíkt var reyndar eðlilegt, miðað við aðstæður. Hins vegar voru viðbrögðin ekki alltaf jafnheppileg sem skyldi, þegar til lengri tíma var litið. Kristnir menn áttu það til að fallast viljandi eða óviljandi á grundvallarsjónarmið andstæð- inganna. Kristin trú og mannleg skynsemi gátu birst sem and- stæður í predikun þeirra. Þeir voru í reynd ráðvilltir vegna mikils hljómgrunns og áhrifa öfganna. Islendingar voru ekki á miðju þessarar hringiðu. En sprekun- um skolaði einnig á land hér. Kirkjan var tiltölulega áhrifalít- il. Hún átti einungis að takmörk- uðu leyti samleið með félags- og menningarlegri þróun, sem að öðru leyti gætti í landinu. Trúin og skynsemin voru oft og tíðum álitnar andstæður. Gagnkvæmr- ar fordæmingar gætti milli kirkjufólks og annarra. í dag er mannlífsmyndin á marga vegu allt önnur. Þó að sárin eftir umbrotin fyrr á öld- inni séu enn djúp hafa öfgastefn- urnar gengið sér til húðar. Fáir binda lengur tryggð eða vonir við þær. Það á bæði við um stjórnmál og almenn lífsviðhorf. í stað ofstækis og hörku sækja menn nú í vaxandi mæli fram á tiltölulega breiðri víglínu raun- sæis og hófsemi. Stefnt er að batnandi kjörum og lífvænlegri háttum án þess að menn óri fyrir því að þeir hafi framvinduna í hendi sér að fullu og öllu. Draumurinn um „fyrirmyndar- ríkið“ - sem gat reyndar verið ámóta fagur og hann var óraun- sær - hefur þokað fyrir skynsam- legri viðleitni til að miðla málum og sættast á þær lausnir, sem Hér á landi hafa þessi lífsvið- Dr. Þórir Kr. Þórðarson. horf náð að festa djúpar rætur. Það birtist í stjórnmálum og menningarmálum, en einnig og ekki síður í trúarefnum. Kirkjan hefur aðra stöðu en fyrr. Þar með hefur ábyrgð hennar vaxið - hlutverk hennar tekið á sig fjölþættari myndir. Þetta er reyndar ekkert undr- unarefni. Saga íslands á 20. öld býr yfir ótvíræðum dæmum um það, að sá hugsunarháttur, sem um þessar mundir telst nýlunda víða um Vesturlönd, átti sér reyndar ætíð griðland meðal okkar þjóðar - einnig á fyrri áratugum öfgastefna og stór- átaka. Fulltrúar mannúðar og hófsemi hörfuðu aldrei af hólmi á íslandi. Þeir báru fram sína bjartsýnu trú á land og lýð og á „Guð vors lands“ meðan aðrir fóru hamförum í nafni framandi sjónarmiða. í þessu efni nutu íslendingar sérstöðu sinnar varðandi menn- ingararfleifð, einangrun og sam- býli við náttúruna. Saga þjóðar- innar og bókmenntahefð voru nægilega sterkar til þess, að engin annarleg hönd fékk höggvið á þau tengsl, sem m.a. héldu íslendingum föstum á rót íslensk arfleifð framkvæmanlegar eru hverju sinni. Samræður um vandkvæð- in hafa leyst hrópyrði og for- mælingar af hólmi. Málamiðlun er í öndvegi og þeir sem að því standa ekki lengur fordæmdir. Þar með er ekki sagt, að öllu sé haldið til skila og sérhver vandi leystur - enda vita menn nú, að það stendur ekki til og er ekki á mannlegu valdi. Með þessari breytingu hafa hefðbundin lífsgildi aftur öðlast þá viðurkenningu, sem þeim ber. Mannúðarstefnan, meðal- hófið og viðtekið siðferði þokast inn á sviðið af vaxandi þunga. Lotningin eða a.m.k. varfærni andspænis hinu óræða í hinstu rökum lífs og mannlegrar veru, er ofar á baugi en áður var. Trúin er ekki lengur skoðuð sem andstæða skynseminnar. Menn líta fremur á trú og skynsemi sem systur, er fléttast saman í ævarandi viðleitni mannsins til að fóta sig í lífinu - og frammi fyrir því sem enginn skilur að fullu, en allir eiga nokkra hlut- deild í. á þau stjórnmálalegu öfl sem eru í forystu á hverjum tíma. Bein og óbein áhrif kirkjunnar á stjómmál hljóta því ávallt að vera fyrir hendi. Það skiptir þó mestu að kirkjan gleymi því aldrei, að hún er þjónn þess almennings, sem skírður hefur vérið til kristinnar trúar. Kirkj- unni ber að tala þá tungu, sem alþýða manna skilur. Henni er einnig og ekki síður skylt að beita sér fyrir þeim menningar- og félagslegu verkefnum, sem samræmast boðskap hennar. Kirkjan þarf ekki að óttast að ganga fram og sýna andlit sitt og leggja orð í belg í umræðum um þjóðfélagsmál. Endurskipulagning starfs- hátta kirkjunnar er liður í síðast- greindu verkefni. Um það efni vísast til margra ágætra tillagna, er litið hafa dagsins ljós meðal kirkjunnar manna síðustu árin, þótt ekki verði þær gerðar að umtalsefni í einstökum atriðum. Efling biskupsdæmisins íslands er þar sérstakt verkefni. Renna þarf fleiri og styrkari stoðum undir embætti biskups íslands, en forðast allt sem sundrar því einingarafli, er þar má finna. Nú liggur fyrir frumvarp til laga um skipan prestakalla og prófastsdæma og starfsmenn þjóðkirkju íslands. Þar er gert ráð fyrir því að hér á landi verði tveir vígslubiskupar. Annar hafi aðsetur hér í Skálholti, hinn á Hólum í Hjaltadal. Verkefni þeirra eru vel skilgreind og óhætt er að segja að samkvæmt frumvarpinu verði verkefni þeirra umfangsmeiri en nú er. Það er mikilvægt að hinn forni biskupsréttur verði með þessum hætti aftur ríkjandi í kirkjusögu landsins og trúarlífi. Staðir sem geyma trú og sögu hafa gildi fyrir fólk hverrar tíðar, vekja til vitundar um tilurð og tilvist, upphaf og endi. Með því að vígslubiskup setjist í Skálholt er betur tryggt að staðurinn verði áfram Iifandi í sögu þjóðarinnar. Þessi skipan er einnig vottur um trú þeirra sem að henni standa að strjálbýlið hafi ekki síður nú fremur en áður miklu hlutverki að gegr.a." Hér lýkur tilvitnunum í ræðu Halldórs Ásgrímssonar á Skál- holtshátíð. Þótt orð hans verði ekki útlistuð með neinum mála- lengingum er vert að benda á skýrt svipmót með ályktunum stjórnmálamannsins um sið- ferðilega og andlega afstöðu manna til heims- og samfélags- mála og þess sem guðfræðipróf- essorinn Þórir Kr. Þórðarson segir um siðfræði hinna hagnýtu viðfangsefna, sjálfrar vinnunn- ar, þess að bera sig eftir björg- inni í víðtækum skilningi. Próf- essorinn viðhefur þau athygl- isverðu orð að vandi íslensku þjóðarinnar sé miklu fremur andlegur en tæknilegur og fjár- hagslegur. Undir þau orð skal tekið um leið og bent er á að stjórnmálamaðurinn, sem hér hefur lagt til lestrarefni, er sama sinnis. Boðskapur beggja ræðumanna er sá, að það sé hinn andlegi og siðferðilegi styrkur sem gerir „manninn“ sterkan og færan um að stjórna landsmálum og fjárhags- og tæknimálum svo að til farsældar verði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.