Tíminn - 16.03.1990, Side 5
Föstudaaur 16. mars 1990
Bifreið skoðuð hjá Bifreiðaskoðun íslands. Tímamynd: Aml Bjama
Nýja skoðunarmiðstöð Bifreiðaskoðunar íslands finnur ýmislegt að rútum og vörubílum:
Um 50% fjölgun í öðrum söfnuðum en þjóð-
kirkju og fríkirkju á áratug:
Um 600 kvatt
Fríkirkjuna
Um 600 manna fækkun hefur
orðið í söfnuði Fríkirkjunnar í
Reykjavík á s.l. tveim árum. Það
svarar til þess að 10. hver félagi
hafi kvatt söfnuðinn þessi tvö ár.
Fjöldi safnaðarmanna breyttist llt-
ið árin 1980-1987, en síðan fækk-
aði um 200 manns árið 1988 og
nær 400 til viðbótar árið 1989.
Söfhuðurinn taldi um 5.200 félaga
þann 1. des s.l. samkv. tölum Hag-
stofunnar. Félögum i söfnuði Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði Qölgaði um
18% síðasta áratuginn. Frá 1980-89
Qölgaði Islendingum um 11%, en
fólki innan þjóðkirkjunnar heldur
minna. Fólki í öðrum söfnuðum en
áðumefndum hefur fjölgað alls um
50% á síðustu tíu árum.
Um 93% landsmanna (235.600)
teljast til þjóðkirkjunnar og rúmlega
3% (tæplega 8.300) til þriggja frí-
kirkjusafnaða. Þá hefur fólki utan
trúfélaga fjölgað um tæpan fjórðung
á áratug og taldist sá hópur nær
3.400 manns um síðustu áramót.
Alls um 6.300 manns eru í öðmm
trúfélögum og hefúr fjölgað úr 4.200
í byrjun áratugarins. Þótt fremur fáir
tilheyri hverjum þessara safnaða hef-
ur hlutfallsleg fjölgun safnaðarfélaga
verið mikil á undanfomum ámm.
Kaþólska kirkjan er hinn eini þess-
ara safnaða sem telur yfir þúsund
manns. Kaþólskir vom rúmlega
1.600 i byijun áratugarins og sú tala
hækkaði fremur hægt þar til árið
1988 að þeim fjölgaði um nær 400 á
einu ári. í lok síðasta árs töldust um
2.360 manns til kaþólsku kirkjunnar,
sem þýðir 47% fjölgun á áratug.
Hlutfallslega hefur félögum fjölgað
mest í Baháísamfélaginu, úr um 230
í rúmlega 380, eða um 69% á tíu ár-
um. Vottum Jehóva fjölgaði um 51%
á sama tíma, úr um 320 í 480. Ása-
trúarmenn nálgast hundraðið og hef-
ur fjölgað um 42% á áratugnum.
Hvítasunnumenn voru um 870 um
síðustu áramót og fjölgaði um rúm-
lega fjórðung á áratug. Aðventistar
eru um 750 og fjölgaði um 14% á
áratugnum. Félagar Krossins eru 210
og Kirkja Jesú Krists telur rúmlega
140 félaga, en þessir tveir söfnuðir
voru ekki skráðir sérstaklega í tölum
Hagstofunnar í byrjun áratugarins.
- HEI
Gengið frá málamiðlunartillögu um
ábyrgðardeild fiskeldislána í neðri deild:
Samkomulag um
Helmingi fleiri stórir
bflar fá grænan miða
Mjög áberandi er að stórir bílar fá oftar grænan miða eftir að
Bifreiðaskoðun íslands tók í notkun nýja skoðunarstöð í Reykja-
vík. Næstum helmingi fleiri rútur og vörubílar fá nú grænan miða.
Óveruleg aukning hefur hins vegar orðið í grænum miðum hjá
fólksbílum.
Karl Ragnars, framkvæmdastjóri Bifreiðaskoðunar íslands,
segir að eftir að skoðunarstöðin var tekin í notkun hafi í fyrsta
skipti skapast möguleiki á því að skoða stóru bílana almennilega.
„Við verðum að hafa það í huga að stóru bílarnir fara nú í gegnum
mjög nákvæma skoðun og það er því ekkert óeðlilegt að aðfinnsl-
urnar séu fleiri en þær hafa áður verið.“
fiskeldislánin
Fólksbílum með græna miða hefúr
fjölgað lítillega eftir að Biffeiðaskoð-
unin tók í notkun nýju skoðunarstöð-
ina í Reykjavík. Vart hefúr orðið við
svipaða aukningu úti á landsbyggð-
inni. Karl Ragnars telur að þetta
bendi til þess að verið sé að skoða
eftirlegu bíla ffá því í fyrra, á þessum
fyrstu mánuðum ársins. Hann telur
hins vegar að betri skoðunartæki hafi
ekki þýtt fleiri græna miða á fólks-
bíla.
Karl sagði engan vafa leika á að með
betri skoðunarbúnaði gangi betur að
ná hættulegu bílunum. Hann sagðist
Ljósapera
kveikti í
Eldur kom upp í íbúðarhúsi að
Ásabyggð 16 á Akureyri um
klukkan sex í gærmorgun. Þegar
slökkvilið kom á staðinn var
heimilisfólkið komið út. Eldurinn
var í kjallara hússins og tókst
fljótt að ráða niðurlögum hans.
Skemmdir urðu litlar. Eldurinn
kviknaði vegna þess að fatnaður
lá upp að logandi ljósaperu.
—ABÓ
telja að ástand bílaflota landsmanna
sé svipað og í öðrum löndum. Karl
sagði þó hugsanlegt að ástand stórra
bíla sé verra hér á landi. Hann tók þó
ffam að allur samanburður milli
landa væri erfiður.
Biffeiðaeigendur hafa ekki verið
nægilega duglegir að koma með bíla
sína í skoðun það sem af er árinu. Nú
er einungis búið að skoða u.þ.b.
helming þeirra bila sem ættu að vera
komnir til skoðunar ef skoðunin
dreifist jafnt yfir allt árið eins og
stefht er að. Enginn frestur er þó út-
runninn enn sem komið er, en um
næstu mánaðamót hækkar skoðunar-
gjald þeirra sem áttu að koma með
bíla sína til skoðunar í janúar um
20%.
Eftir að nýja skoðunarstöðin var tek-
in í notkun skapaðist aðstaða til að
mæla mengun frá bílum. Niðurstöður
af 459 bíla úrtaki, bíla sem komu til
skoðunar í fyrstu viku marsmánaðar,
voru þessar (co. þýðir colmonoxíð):
0 - 3,5% co.........68%
3,6-4,5% co...........12%
4.6 - 5,5% co..........7%
5.6 - 7,0% co..........7%
meira en 7% co..........6%
Núgildandi reglur eru þannig að bíl-
ar fá ábendingu ef mengunin er 5,6-
7% co. Ábending þýðir að bifreiða-
eigandi er beðinn að gera eitthvað í
málinu en hann þarf ekki að koma
aftur í skoðun. Ef colmonoxíið fer
hins vegar yfir 7% verður bíllinn að
fara í endurskoðun. Um næstu ára-
mót verða reglumar hertar til sam-
ræmis við erlendar mengunarreglu-
gerðir. Samkvæmt þeim hefðu
einungis 68% bílanna sem úrtakið
náði til komist í gegnum skoðunina.
Karl Ragnars sagði að niðurstöður
könnunarinnar hefðu ekki komið sér
á óvart. Hann sagði að í flestum til-
fellum væri hægt að minnka mengun-
ina með því að stilla bílana, en erfitt
væri hins vegar að eiga við suma
gamla bíla. Með því að stilla bílana
dregur ekki aðeins úr mengun heldur
dregur einnig úr eldsneytisnotkun.
-EÓ
Samkomulag á milli meirihluta fjár-
hags- og viðskiptanefndar vegna
breytigartillögu við stjómarfrumvarp
um ábyrgðardeild fiskeldislána var
staðfest í atkvæðagreiðslu í neðri
deild Alþingis sl. miðvikudagskvöld.
I samkomulaginu er gert ráð fyrir að
ábyrgðardeild fiskeldislána geti veitt
sjálfskuldarábyrgð fyrir lánum að há-
marki 50% af verðmæti eldisstofns, í
stað 37,5% hámarks sjálfskuldar-
ábyrgð eins og gert var ráð fyrir í
frumvarpinu upphaflega. Málamiðl-
unartillagan felur í öðm lagi í sér að
gert er ráð fyrir aó slík sjálfsskuldar-
ábyrgð sé hægt að fá til allt að fjög-
urra ára, í stað hámark þriggja ára
eins og lagt var til í frumvarpinu. I
þriðja lagi er lagt til að ábyrgð fram-
kvæmdasjóðs falli niður um leið og
Tryggingasjóður fiskeldislána verði
lagður niður. Sá meirihluti sem
myndaðist 1 fjárhags- og viðskipta-
nefnd og samanstóð af fúlltrúum
stjómarandstæðinga og Guðmundi
G. Þórarinssyni féllst á þessa mála-
miðlun og dró aðrar tillögur sínar til
baka.
Þegar greidd vom atkvæði um mál-
ið á miðvikudagskvöld sátu hjá þing-
menn Alþýðubandalagsins og þing-
menn Alþýðuflokksins greiddu ekki
atkvæði. Þingmenn Sjálfstæðis-
flokks, Kvennalista og flestir þing-
menn Framsóknarflokksins greiddu
atkvæði með tillögunni, en þing-
menn Frjálslynda hægriflokksins
greiddu atkvæði gegn henni.
Áður en málamiðlunartillagan kom
fram stefndi i tvísýna atkvæða-
greiðslu um breytingartillögur meiri-
hlutans í Fjárhags- og viðskipta-
nefnd, en það lá fyrir að nokkrir
stjómarþingmenn studdu breyting-
amar. Það var Alexander Stefánsson
alþingismaður sem kom ffam með
þessar málamiðlunartillögur við um-
ræður um stjómarffumvarpið um
ábyrgðardeild fiskeldislána sl.
þriðjudagskvöld. Tíminn náði ekki
tali af Alexander Stefánssyni í gær.
-ÁG
Fjársvik?
Tveir starfsmenn við meirapróf öku-
réttinda eru grunaðir um að hafa náð
til sín umtalsverðum fjárhæðum á
nokkmm ámm og er talið að svikin
geti numið á annan tug milljóna. Dv
greinir frá þessu í gær.
Samkvæmt ffétt DV munu mennim-
ir hafa komist yfir peningana með
þeim hætti að þáttökugjöld vom lögð
inn á bankareikning á nafni annars
þeirra. Þar sem þátttökugjöldunum
var skilað til ríkisféhirðis tvisvar á
ári, söfhuðust vextir á upphæðina,
sem þeir tóku til sín.
Upp um svikin komst þegar nýr for-
stöðumaður var skipaður yfir öku-
prófúnum og lét hann Ríkisendur-
skoðun fara yfir reikninga. Málið
mun nú vera komið til dómsmála-
ráðuneytisins.
Bfll fór útaf og valt ofan í Héraðsvötn, við brú yfir vestari hvísl Héraðs-
vatna sl. miðvikudag. Ökumaðurinn sem var að koma ffá Sauðárkróki
á leið í Hegranes, missti stjóm á bifreið sinni í beygju rétt áður en
hann kom að brúnni, en mikil hálka var á veginum. Maðurinn slapp án
meiðsla, en bílinn er mjög mikið skemmdur. Á myndinni má sjá Birgi
Hreinsson lögreglumann á Sauðárkróki ásamt ökumanninum, eftirað
bíllinn hafði verið dreginn á þurrt land. Tímamynd: Öm Þórarinsson.