Tíminn - 16.03.1990, Blaðsíða 16
RlKlSSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnorhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
SAMVINNUBANKINN
BYGGDUM LANDSINS
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
ÞRðSTUR
685060
VANIR MENN
Tíniiim
FÖSTUDAGUR 16. MARS 1990
Forsvarsmenn skemmtistaðarins Tunglsins við Lækjargötu setja upp óvenjulega veggskreytingu
Forseti 1 0 O O vel o d ■ 1 n s|
með bílan iei kit in o cD 11 í á </)
í skemmtistaönum Tunglinu gefur að iíta mynd af forseta
íslaiuls, sem uppi eru mjög skiptar skoðanir um. Tímanum
er ekki kunnugt um að forsetinn hafi áður verið notaður á
þennan hátt, sem veggskreyting á öldurhúsum landsins.
Myndin sem var máluð sl. miðvikudagskvöld, á án efa eftir
að vekja mikla umræðu, enda hér um fordæmi að ræða,
sem snertir beint virðingu fólks fyrir forsetaembættinu.
Vilhjálmur Svan hjá skemmti-
staðnum Tunglinu sagðist í samtali
við Tímann í gær, ekki hafa á
reiðum höndum nöfn þeirra manna
sem máluðu myndina. Hann stað-
festi að myndin af Vigdísi Finn-
bogadóttur hefði verið máluð á
miðvikudagskvöldið. Aðspurður
um hvort honum sjálfum þætti það
ekki óvirðing við forsetaembættið
að hafa forsetann málaðan upp á
vegg, í vængjuðum ramma og með
Mercerdes Bens merki í borða um
hálsinn, sagði Vilhjálmur Svan að
e.t.v. mætti líta svo á. Hins vegar
væri Mercedes Benz gæða bílar og
öðru máli myndi gegna ef merkið
um háls forseta væri merki ein-
hverrar ódýrrar bílategundar s.s.
Trabants.
Hann sagði að líta mætti á þetta
sem framlag til hátíðarhalda vegna
sextugsafmælis Vigdísar Finnboga-
dóttur.
- Á myndin að prýða vegginn
eitthvað áfram?
„Já, ég reikna með því,“ sagði
Vilhjálmur Svan.
Kornelíus Sigmundsson forseta-
ritari sagðist, er Tíminn hafði sam-
band við hann í gærkvöldi, ekkert
geta tjáð sig um þessa mynd að svo
stöddu.
Þess má geta að ýmsir lögfróðir
menn telja að sú hefð sem skapast
hafi um virðingu forsetaembættis-
ins sé að mörgu leyti áþekk þeirri
virðingu sem lögbundin er fyrir
þjóðfánanum. í sérstökum lögum
eru ákvæði sem banna notkun
þjóðfánans sem auðkennismerki á
aðgöngumiðum, samskotamerkj-
um eða slíku, áróðursskyni eða að
hann sé notaður í firmamerki, á
umbúðir eða í auglýsingu á vörum.
ÁG
Tímamynd: P|etur
Helgi Laxdal hjá FFSÍ:
Ekki samkeppni í
siglingum hingað
„Því er við að bæta við mál
þessara ágætu manna hjá Eimskip
og Skipadeild Sambandsins raunar
líka að þeir sigla hingað til íslands
á algerlega lokuðum markaði. Þeir
eru ekki í samkeppni við einn eða
neinn þannig að þeir ráða nokkuð
sjálfir farmgjöldunum hingað,“
sagði Helgi Laxdal hjá Farmanna-
og fiskimannasambandsins í gær.
Tíminn bar undir hann ummæli
Halldórs H. Jónssonar stjórnarfor-
manns Eimskip þar sem hann sagði
að samkeppnisstaða Eimskips í
siglingum væri slæm vegna þess að
félagið mætti ekki ráða erlenda
sjómenn á íslandsskip sín og lækk-
að þannig launakostnaðinn. Hall-
dór sagði í ræðu sinni á aðalfundi
Eimskip að ekki væri viðunandi
fyrir íslendinga að búa í þessu efni
við annað og dýrara fyrirkomulag
en ýmsar grannþjóðirnar.
„Ef þeir ætla sér að setja þau
skip sem sigla alfarið fyrir íslend-
inga undir hagkvæmnisfána," sagði
Helgi ennfremur, þá hlýtur það að
verða okkar krafa sem þjóðar að
erlend skipafélög fái að keppa við
þá.“ - sá
Tveggja hreyfla flugvél í erfiðleikum suð vestur af landinu:
Flaug rafmagnslaus og
villt á einum hreyfli
Flugvél af gerðinni Cessna Sky-
master lenti í erfiðleikum á leiðinni
frá Goose Bay í Kanada til Reykja-
víkur í gærkvöldi. Um kl. korter yfir
sjö í gærkvöldi barst tilkynning frá
flugmanninum, sem var einn í vél-
inni um að hann drepist hefði á
öðrum af tveimur hreyflum vélarinn-
ar, þeim hreyfli sem drejf rafal
hennar og hafði vélin því ekkert
rafmagn annað en það sem var í
rafgeymum. Fór þá vél frá danska
flughernum til að staðsetja vélina.
Það tókst og reyndist Cessna vélin
þá komin um 100 mílur af leið
kominn miklu sunnar en hann átti að
vera. Þá var vélin stödd um 280
mílur suð-vestur af Keflavík. Flug-
vél Flugmálastjórnar, P-3 vél frá
varnarliðinu og þyrla frá landhelgis-
gæslunni fóru síðan til móts við
Cessna vélina og það var flugvél
Flugmálastjórnar sem fylgdi vélinni
inn til Reykjavíkur. Rétt upp úr kl.
22:30 lenti vélin á Reykjavíkurflug-
velli og heppnaðist lendingin vel.
Trilla sökk í gær
Tíu tonna trilla, Þórey, sem gerð
er út frá Njarðvík, sökk um klukk-
an hálf fimm í gærdag skammt út
af Garðsskaga. Tveir menn voru
um borð. Þeir komust báðir um
borð í bátinn Ýr áður en trillan
sökk. Ekki er Ijóst af hverju Þórey
sökk en sjópróf fara fram fljótlega.
Sovétmenn unnu
Síðasta umferð í stórvelda-
slagnum í skák var æsispennandi.
Lengi vel leit út fyrir að Sovét-
menn myndu missa forystuna sem
þeir hafa haft allt mótið. Niður-
staðan varð að Sovétmenn sigr-
uðu, fengu 31,5 vinning. Eng-
lendingar komu næstir með 31
vinning, þá komu Bandaríkja-
menn með 30 vinninga og sveit
Norðurlandanna rak lestina með
27,5 vinning.
Sveit Norðurlandanna náði
viðunandi árangri í síðustu um-
ferðinni í gær. Sveitin gerði jafn-
tefli við ensku sveitina 5-5. Á
sama veg fór í viðureign Banda-
ríkjamanna og Sovétmanna.
Bcstum árangri á mótinu náðu
Jóhann Hjartarson og Brown en
þeir fengu 4,5 vinning í 6 skákum.
- EÓ
Hinn mannlegi þáttur borgarlífsins má ekki veröa útundan
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarmanna:
HESTAMENNSKA FÁIRÚM
INNAN ADALSKIPULAGS
„Borgarstjórn samþykkir að fela
Borgarskipulagi og gatnamálastjóra
að gera áætlun í samráði við hesta-
mannafélagið Fák um hvernig um-
ferð á hestum verði haganlegast
skipulögð í borginni.“
Þetta er tillaga Sigrúnar Magnús-
dóttur borgarfulltrúa Framsóknar-
manna sem lögð var fram á fundi
borgarstjórnar í gærkvöld. í greinar-
gerð með tillögunni segir að þar sem
hestamennska sé aðal tómstunda-
gaman mikils fjölda fólks, þá hljóti
að verða að gera ráð fyrir umferð
ríðandi fólks í skipulagi borgarinnar
og að sú umferð verði sem öruggust
og blandist sem minnst saman við
bílaumferð.
Sigrún Magnúsdóttir sagði við
Tímann í gær að nú væri að hefjast
endurskoðun á aðalskipulagi
Reykjavíkur sem jafnan er gerð í
lok hvers kjörtímabils. „Það er því
rétti tíminn nú til að huga að þeim
þáttum sem vantar í aðalskipulagið.
Mér hefur fundist að það vantaði í
skipulag borgarinnar að taka tillit til
hinna mannlegu þátta í borgarlífinu.
Hestamennska er einn slíkur þáttur.
Hún er holl tómstundaiðja og fjöl-
skylduíþrótt sem hefur mikið gildi,
ekki síst fyrir börn og unglinga og
því ber Reykjavíkurborg að stuðla
að því að sem flestum gefist færi á
að stunda hana,“ sagði Sigrún.
Sigrún sagði ennfremur að nú við
endurskoðun aðalskipulags yrði að
sjá til þess að samgöngur milli hest-
húsahverfa í borginni og út úr henni
geti orðið sem greiðastar. Jafnframt
verði hugað að því að hægt verði að
rækta upp beitarhólf á hentugum
áningarstöðum. - sá