Tíminn - 16.03.1990, Síða 13

Tíminn - 16.03.1990, Síða 13
Föstudagur 16. mars 1990 Tíminn 13 Sigrún Magnúsd. Áslaug Brynjolfsd. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík heldur aöalfund laugardaginn 17. mars kl. 15.00 að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Borgarstjórnarkosningarnar 3. Önnur mál. Mætið vel. Stjórnin Kópavogur - Opið hús Opið hús alla miðvikudaga að Hamraborg 5, ki. 17-19. Alltaf heitt á könnunni. Framsóknarfélögin. Framsóknarvist verður haldin sunnudaginn 18. mars n.k. í Dans- höllinni (Þórscafé) kl. 14.00. Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna. Hallur Magnússon blaðamaður flytur stutt ávarp í kaffihléi. Framsóknarfélag Reykjavíkur Hallur Magnusson Námskeið fyrir ungt fólk á erlendri grund Samband ungra framsóknarmanna stendur til boða að tilnefna ungt fólk á aldrinum 18 til 30 ára á námskeið sem haldin eru víðs vegar í Evrópu. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þennan möguleika eru beðnir að hafa samband við Egil Heiðar á skrifstofu Framsóknar- flokksins í síma 91-24480. Framkvæmdastjórn SUF. Opinn stjórnarfundur SUF Samband ungra framsóknarmanna heldur stjórnarfund laugardaginn 17. mars n.k. í húsakynnum Framsóknarflokksins Nóatúni 21 í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 10.00 og er opinn öllum ungum framsóknarmönnum. Framkvæmdastjórn SUF Rangæingar - Spilavist Komum saman og spilum félagsvist í Hvolnum sunnudagskvöldið 18. mars kl. 21.00 Góð kvöldverðlaun. Framsóknarfélag Rangæinga. Borgarnes - Félagsvist Félagsvistinni sem vera átti 9. mars hefur verið frestað. Þriggja kvölda keppni hefst 23. mars kl. 20.30 í Félagsbæ. Framsóknarfélag Borgarness Framsóknarfólk Norðurlandi vestra Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár- króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757. Norðurland eystra Skrifstofa Framsóknarflokksins Hafnarstræti 90, Akureyri er opin alla virkadagafrá kl. 16-19, sími 96-21180. Keflvíkingar - Suðurnesjamenn Hádegisverðarfundur um stóriðju verður hald- inn laugardaginn 17. mars á Glóðinni og hefst kl. 12.00. Frummælandi verður Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður. Mætið stundvíslega og takið með ykkur gesti. Allir velkomnir. Guðmundur G. Björk, félag framsóknarkvenna í Keflavík Þórarinsson og nágrenni Bo Derek er mikil hestakona og saknar hestanna sinna þegar hún er langdvölum í burtu frá heimili sínu í Kalífomíu, — en hér fær hún að fara á bak einum fegursta gæðing í heimi í Spænska reiðskólanum í Vín Bo Derek skrapp á bak í „Spænska reiðskólanum" í Spænska reiðskólanum í Vín er það ekki venja að leyfa gestum að fara á bak sýningarhestunum, en undantekning var þó gerð þegar hin fagra leikkona Bo Derek kom þang- að í heimsókn. Dr. Jaromir Olella er forstöðumað- ur Spænska reiðskólans. Hann sagði blaðamönnum við þetta tækifæri, að það væri mjög óvenjulegt að gestum væri boðið að skreppa á hestbak, en þeir hefðu með gleði brotið allar reglur til að leyfa Bo Derek að prófa einn gæðinginn. Bo sagði: „Við hjónin eigum 10 hesta heima í Kalifomíu og ég hef alltaf verið hrifin af hestum og stundað mikið hestamennsku. Það hefur verið draumur minn frá því ég var lítil stelpa að koma á þennan fræga stað, Spænska reiðskólann í Vín, og nú hefúr sá draumur ræst, — og meira en það ég fékk að fara á bak snjóhvítum gæðingi!" Hún sagði reyndar, að það hefði verið langt frá því að vera nokkurt sýningaratriði hjá sér þegar hún reið um sviðið, því að hún hefði greini- lega haft vitlaust taumhald á hestin- um. Reiðmennska sín væri í „kú- rekastíl“, en þessir hestar væm van- ir allt öðm. Bo Derek er í Vín til að kynna nýju kvikmyndina „Ghosts Can’t Do It“, en þar leikur hún aðalhlutverkið og leikstjóri er John Derek, maður hennar. Bo leikur ekkju, en eigin- maður hennar birtist henni sem vofa og vill taka upp fyrra samband þeirra. Myndin er tekin í Hong Kong og í Karabíska hafinu. Bo var spurð hvemig hcnni hefði líkað að leika á móti hinum þekkta leikara Anthony Quinn. Hún svar- aði: „Það var vissulega erfitt. Hann er sérvitur og hefúr sínar ákveðnu skoðanir á hlutunum. Hann hefúr líka mikla reynslu og mér fannst ég geta lært mikið af honum.“ Þá var það gert að umtalsefni, að auðkýfingurinn Donald Tmmp kemur fram í myndinni. Blaðamað- ur spurði hvort ekki hefði verið erf- itt að fá milljarðamæringinn til þess. „Nei,“ sagði Bo. Hún sagði að hann væri góður vinur þeirra hjónanna og hefði þótt gaman að taka þátt í þessu með þeim. — En hvers vegna fmmsýning myndarinnar í Evrópu en ekki í Am- eríku, spurði blaðamaður. Var myndin of „djörf‘ fyrir ameríska áhorfendur. Það fengust lítil svör við því, nema að þau John hefðu betri reynslu af evrópskum gagn- rýnendum. Þegar Bo Derek lék í myndinni „10“ var hún kölluð „hin fúllkomna kona“ (með einkunina 10 í öllul). Þegar hún var spurð, hvaða karl- maður — að hennar mati — væri „hinn fnllkomnir karlmaður" var hún fljót til svars: „Fyrir mér er að- eins einn „hinn fúllkomni karlmað- ur“ og það er eiginmaður minn, John Derek." Anthony Quinn leikur hinn framliðna eiginmann, sem kemur aftur til konu sinnar, en „Ghosts Can’t Do It" (Draugar geta ekki sofið hjá) heitir myndin, svo að iíklega verður lítið spennandi hjónalífið hjá þeim

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.