Tíminn - 12.05.1990, Blaðsíða 2
2£TÍ»^ ^gaWáguí-
Einn listfræðingur ræður hvers konar myndlist er sýnd á Kjarvalsstöðum:
Viðurkenndum listamönnum
úthýst á Kjarvalsstöðum
Sigurvegarínn í keppninni. Hann hertir Markku Pohjolainen.
Tfmamynd Ami Bjama
Stætisvagnabflstjórar
keppa í aksturshæfni
í gær fór fram keppni á milli stæt-
isvagnabílstjóra í aksturshæfni
stætisvagna. Þetta er keppni sem fer
fram árlega á milli bílstjóra frá höf-
uðborgum Norðurlandanna og í
fyrsta skipti sem hún er haldin hér á
landi. Að þessu sinni voru það
Finnar sem báru sigur úr bítum, en
íslendingar höfnuöu í öðru sæti.
Það var Kristján Jónasson sem
efstur af íslendingunum, en nr. ‘
þeim 30 sem kepptu. Kristján
að vonum ánægður með áranj
inn. Hann sagði að brautin hafí \
ið crfiðari í ár, en annars var þ
mjög spennandi og skemmti
keppni.
Mikill kurr er meöal margra lista-
manna vegna gerræðislegra
vinnubragða s^ómenda Kjarvals-
staða. Nokkrír listamenn, sem oft
hafa sýnt á Kjarvalsstöðum, fá
ekki að sýna þar lengur. Lista-
menn eru margir hverjir mjög reið-
ir vegna þessa og segja að örfáir
menn stjómi því, hvers konar
málverk fái að koma fýrír almenn-
ings sjónir í opinberum listsölum.
Pétur Friðrik Sigurðsson listmálari
er í hópi þeirra myndlistarmanna sem
hefur verið úthýst frá Kjarvalsstöð-
um. Pétur hefur tvisvar sinnum sýnt á
Kjarvalsstöðum en fær nú neitun.
Pétur sagði í samtali við Tímann, að
þegar hann sótti um að fá að halda
sýningu á Kjarvalsstöðum, hefði
hann sótt um tíma sem hann hefði
vitað að væri laus. Engu að síður
fékk hann bréf frá Gunnari Kvaran
forstöðumanni Kjarvalsstaða um að
Eftir að Gunnar Kvaran „náði völd-
um á Kjarvalsstöðum", eins og Vet-
urliði orðar það, hefur hann ítrekað
fengið neitun við umsókn um að sýna
þar. Veturliði á nú fjögur bréf frá
Gunnari þar sem segir, að enginn tími
sé laus, en honum bent á að sækja um
að ári liðnu. Veturliði sagðist líta á
bréfin sem kurteisislega neitun.
„Þegar maður er búinn að fá sama
svarið ár eftir ár, fer maður að átta sig
á, að maður er ekki æskilegur.“
Veturliði sagði, að svona einræðis-
leg vinnubrögð ættu ekki að fá að
þrifast hjá opinberri stofhun. Hann
sagði vald menningarmálanefhdar
borgarinnar vera meira í orði en á
borði. Gunnar réði algerlega ferðinni
varðandi kaup á listaverkum og út-
hlutun sýningartíma í sölum Kjar-
valsstaða.
Listmálarafélagið, sem er fjölmenn-
ur hópur listamanna, fékk einnig
neitun frá forstöðumanni Kjarvals-
staða. Félagið sætti sig ekki við neit-
unina og kvartaði við sjálfan borgar-
stjórann í Reykjavík. Það bar þann
árangur, að Listmálarafélaginu var
þegar boðið að sýna, en reyndar á
tíma sem hentaði félagsmönnum þess
mjög illa, svo að ekkert varð af sýn-
ingu.
Pétur Friðrik og Veturliði eru sam-
mála um, að listfræðingar séu orðnir
mjög ráðandi í öllu Iistalífi Iands-
manna. Örfáir menn ráði, hvað sé
sýnt og hvað sé ekki sýnt. Ef listin
fellur ekki að þeirra smekk er henni
úthýst.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í allan
gærdag náðist ekki í Gunnar Kvaran
eða aðra af forsvarsmönnum Kjar-
valsstaða.
-EÓ
ryrir
grænfóður hey og vothey
CLAAS býður meðal annars eftirtalinn búnað:
1. Stillanlegt dráttarbeisli.
2. Tvöfalda hjöruliði og öryggistengsli á drifskaft.
3. Rafbúin stjórntæki til að stjórna úr ekilssæti
bindingu með garni, eða neti. Gefur til kynna
með Ijósi eða hljóði þegar bagginn er tilbúinn.
4. Óflugan og opinn mötunarbúnað ásamt þjapp-
ara (sjá mynd 4 og 5).
6. Stálvaisar tryggja að pökkun hefst um leið og
heyið kemur inn og tryggir jafna bagga.
7. öfluga drifkeðju, hannaða til að endast lengi án
viðhalds.
8. Sjálfvirka smurningu.
9. Tvöfaldan bindibúnað, sem sparar tíma og
dregur úr bindigarnskostnaði.
10. Rollatex netbindibúnaður fáanlegur.
11. Öryggisventill á vökvakerfi.
12. Sleppibúnaður með rafbúnaði, sem gefur til
kynna að vélin sé laus við baggann.
13. Auðvelt að komast að aukabindigarni og til að
skipta um netrúllur.
14. Þrýstimælir til að fylgjast með þéttleika
baggans.
15. Öryggisbúnaður vegna læsingar og opnunar
afturhlera.
Hafið samband við sölumenn okkar sem gefa nánari upplýsingar
— mm SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
JKoMKJNJ
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
WldsorffM
Veturíiði Gunnarsson á Kjarvals-
stöðum þar sem oft hékk uppi
sýning á verkum hans. Nú er það
liðin tíð og Veturíiði ekki lengur
talinn æskilegur í því húsi.
þegar væri búið að úthluta tímanum.
I bréfinu var Pétri bent á að sækja um
að ári liðnu. Það ætlar hann hins veg-
ar ekki að gera vegna þess að hann
telur sig vita, hvert svarið verður.
Pétur sagðist telja, að stjómendur
Kjarvalsstaða væru að hafna þeirri
tegund af myndlist sem hann og fleiri
listamenn legðu stund á. „Ég geri ráð
fyrir að við séum ekki nógu mó-
dem,“ sagði Pétur.
Veturliði Gunnarsson hefiir sýnt
þrisvar eða fjórum sinnum á Kjar-
valsstöðum og alltaf við metaðsókn.