Tíminn - 12.05.1990, Side 4

Tíminn - 12.05.1990, Side 4
4 Tíminn noo Laugardagur 12. maí 1990 r *pm Q í* iiinoh'ipriic I Játningar þriggja aðila liggja fyrir í morðmálinu í Stóragerði: Hugsanlegt morðvopn fannst í höfninni Rannsóknarlögreglan hefur mögulegt morðvopn undir höndum, sem notað var til að bana starfsmanni bensínstöðvarinnar við Stóragerði 25. apríl sl. Hér er um að ræða svokallaða melspíru, sem notuð er til að splæsa með vír og fannst hún samkvæmt ábendingu þess, er játað hefur að hafa veríð á morðstaðnum umræddan morgun. Rannsóknarlögreglan er nú að undirbúa málið til ákæru og dómsmeðferðar. Helgi Daníelsson, yfirlögregluþjónn hjá RLR. Tímamynd: Ami Bjama. Rannsóknarlögreglan greindi í gær í grófum dráttum ífá stöðu rannsókn- arinnar. Tveir menn, þeir Snorri Snorrason 34 ára og Guðmundur Helgi Svavarsson 28 ára, sitja í gæslu- varðhaldi til 23. maí. Sambýliskona Guðmundar, sem er 20 ára, er einnig gert að sitja í gæsluvarðhaldi til 23. maí og sambýliskona Snorra var úr- skurðuð í gæslu í síðustu viku til 18. maí á heimili foreldra sinna, sökum sjúkleika. Snorri Snorrason og stúlkumar tvær hafa tjáð sig um málið, en Guðmundur Helgi Svavarsson hefur ekki viljað tjá sig enn sem komið er. Snorri segir Guðmund hafa verið með sér og stúlk- umar segja, að samkvæmt ífásögn þeirra beggja hafi þeir báðir verið á staðnum. Ekki var óskað eftir framlengingu gæsluvarðhalds yfir þrítugum manni, sem einnig var hnepptur í varðhald, sem rann út 9. maí. Hann afplánar nú refsingu fyrir óskyld brot. Hann teng- ist málinu þannig, að hann var með skiptimynt og fleira, sem talið er að tengist ránsmorðinu, en honum var í sjálfu sér kannski ókunnugt um hvað- an skiptimyntin var komin. I fóram hans fimdust hins vegar munir úr inn- broti, sem teknir vora í innbroti á smurstöð hjá Olíufélaginu fyrir nokkra. Helgi Daníelsson yfírlögregluþjónn gerði grein fyrir atburðarásinni í gróf- um dráttum, að svo miklu leyti sem rannsóknarlögreglan telur sig geta greint ffá. Um klukkan hálf sjö að morgni 25. apríl fóra Snorri og Guðmundur ffá húsi við Smiðjustíg að Hlemmtoigi, þar sem þeir fóra með strætisvagni og úr honum við Grensásveg. Þaðan ganga þeir að bensínstöðinni um Álm- gerði. Þeir koma að bensínstöðinni á svipuðum tíma og starfsmaðurinn, Þorsteinn Guðnason heitinn, kom til vinnu. Helgi sagði, að þeir Snorri og Guðmundur hafi trúlega farið inn með Þorsteini, enda þekktust Snorri og Þor- steinn ffá fyrri tíð, en Snorri var áður starfsmaður Olíufélagsins. Ekki er ljóst, með hvaða strætisvagni þeir fóru að Grensásvegi. Helgi segir, að af skýrslum megi ráða, að þeir hafi báðir verið á staðnum, þegar Þorsteinn lét lífið, en að sögn Helga, er ekki ná- kvæmlega ljóst, hvemig dauða starfs- mannsins bar að höndum. Þegar Snorri og Guðmundur höfðu náð peningum úr peningaskáp í kjall- ara bensínstöðvarinnar fóra þeir á bif- reið hins látna, sem lagt var norðan megin við stöðina og óku á honum niður á Smiðjustíg, þar sem Guð- mundur fór úr bílnum, en hann býr þar og síðan ók Snorri áffam að bílastæð- inu við Vesturgötu 3. Trúlegt er, að það hafi verið á tímabilinu 7.37 til 7.45. Guðmundur hafði með sér ránsfeng- inn, þegar hann yfirgaf bílinn á Smiðjustíg. Eftir að Snorri hafði lagt bílnum á stæði, gengur hann niður að Reykja- víkurhöfn, milli Verbúðarbryggju og Grófarbryggju, þar sem hann kastar í sjóinn verkfæri, sem talið er, að hafi verið notað við verknaðinn. Áhaldið, sem er svokölluð melspíra og er notað til að splæsa saman vira, fannst með aðstoð kafara í höfninni á tilgreindum stað 8. maí sl. Melspíruna höfðu þeir meðferðis, þegar þeir fóra á staðinn. Viðurkenning liggur fyrir því, að fatn- aði, sem þeir vora í, þegar verknaður- inn var framinn, var hent í gám eða raslatunnu, en ekkert af því hefur fundist. Við húsleitir, sem fram fóra í kjölfar handtakanna á nokkrum stöðum í Reykjavík og á heimilum þeirra, sem era í gæsluvarðhaldi, komu ýmis gögn í leitimar, sem rannsóknarlögreglan vill ekki greina ffá hver era. Þau era í skoðun hjá tæknideild RLR og er stefht að því, að þau verði send erlend- is til ffekari rannsóknar. Hvað þátt kvennanna varðar, þá er ljóst, að þær fengu vitneskju um morð- ið, þegar Snorri og Guðmundur komu heim að verknaðinum loknum. Einnig er það víst, að þær tóku þátt í að eyða ránsfengnum. Talið er, að önnur stúlk- an, sambýliskona Guðmundar, hafi vitað fyrirffam um fyrirhugaða ferð. „Þannig stendur málið í dag, að það er áffam unnið að rannsókn þess og verið er að undirbúa það fyrir ákæra og dómsmeðferð. Það era margir þættir atburðarrásarinnar, sem liggja ekki ljósir fyrir og enn þarf að leita sam- ræmingar á ýmsum atriðum, þannig að ljóst má vera, að það taki einhvem tíma til viðbótar," sagði Helgi. Hvort þetta hafi verið skipulagt með nokkrum fyrirvara, sagðist Helgi geta svarað því þannig, að samkvæmt ffamburði Snorra hafi verið rætt um að gera þetta með áþekkum hætti og í raun gerðist. Hins vegar væri ýmislegt í sambandi við það mjög óljóst, m.a. hvort þeir hafi rætt þann möguleika að bana starfsmanninum. Aðspurður sagði Helgi, að ekki væri talið að Guðmundur og Snorri hafi fært Þorstein heitinn með valdi inn á bensínstöðina og að ekki hafi komið til átaka þar fyrir utan. Vitni sá tvo menn við bílinn umrædd- an morgun við bensínstöðina. Að sögn Helga hefur sakbending ekki farið ffam. „Það liggur ekki Ijóst fyrir, að það séu þeir tveir menn, sem tengjast þessu máli,“ sagði Helgi. Aðspurður sagði hann, að RLR tjái sig ckki um það, hvort fingraför, eða einhver önnur gögn hafi fundist. Hvað varð til þess að þessir menn vora handteknir? „Ég get ekki svarað því öðra vísi til, en að rannsókn máls- ins leiddi til handtöku þessara manna, en ég get ekki skýrt ffá því, hvað varð til þess,“ sagði Helgi. Hann sagði að- cpurður, hvort flkniefhalögreglan hafi komið þeim á sporið, að eðli allra i'annsókna væri að allt lögreglulið vinni saman, nvort sem það væri fikni- efhadeild almenn lögregla eða rann- sóknarlögreglan og beitti öllum ráð- um, sem tiltæk væra. Aðspurður sagðist Helgi ekki getað svarað því, hvort það hafi verið ásetn- ingur mannanna að ætla að myrða starfsmanninn og ræna peningunum, í ljósi þess að vera með þetta verkfæri á sér. Einnig sagði hann aðspurður, þótt hann vissi það ekki nákvæmlega, að svo kynni að vera, að annað vopn hafi einnig verið notað. Ekki er ljóst, hver bar melspíruna á sér. Helgi sagðist ekki geta greint ffá ffamburði Snorra um hans þátt inni á bensínstöðinni, að öðra leyti en því, að hann hafi viðurkennt að hafa verið á staðnum, þegar verknaðurinn var ffaminn. Um það hvort þeir hafi verið undir áhrifum fikniefna umræddan morgun, sagði Helgi það ekki hafa komið ffam. Hins vegar hefur fólkið komið við sögu lögreglu áður, þá að minnsta kosti sum þeirra einnig við sögu hjá fikniefhalögreglu. Ránsfengurinn var um 500 þúsund krónur, þar af um 200 þúsund í ávísun- um og vora þær í bílnum, þegar hann fannst við Vesturgötu. Ljóst er, að ein- hveiju af peningunum, 300 þúsund krónum, hefur verið eytt. Samkvæmt vitnisburði Snorra opnuðu þeir sjálfir peningaskápinn. Að sögn Helga hafa Snorri og stúlk- umar ekki orðið missaga í vitnisburði sínum, sem gæfi tilefni til að efast um að atburðarrásin hafi verið, eins og lyrr ffá greinir. Ekki hefur verið ákveðið, hvenær málinu verður vísað til ríkis- saksóknara, sem tekur ákvörðun um ákærar í málinu. —ABÓ Frambjóðendur B-listans heimsækja vinnustaði: „Lykillinn að betri borg“ Frambjóðendur Framsóknar- flokksins í Reykjavík hafa í vik- unni heimsótt vinnustaöi í borg- inni og kynnt stefnu sína og svarað fyrirspumum. Frambjóð- endunum hefur hvarvetna verið vel tekið. Víða hafa skapast flör- ugar umræður um málefrii borg- arinnar og stefriu Framsóknar- flokksins. Tillaga flokksins, um að settar verði siðareglur fyrir borgarfulltrúa og embættismenn borgarinnar, hef- ur verið ofarlega á baugi á fundun- um. Einnig gagnrýni ffambjóðenda flokksins á dýrar íbúðir fyrir aldr- aða. Fleiri mál hafa borið á góma, s.s. launakjör borgarstarfsmanna, atvinnumál, íþrótta- og æskulýðs- mál og samgöngur í borginni. Fram- bjóðendur hafa afhent starfsfólki lyklakippu með grænum lykli á undir kjörorðunum, „Framsóknar- flokkurinn - Lykillinn að betri borg.“ Þá hefur sorpböggunarstöðin í Grafarvogi verið ofarlega í hugum Sigrún Magnúsdóttlr og Áslaug Brynjólfsdóttir gáfu starfsmönnum Mjólkur- samsölunnar græna lykla til að minna þá á, að kjósendur hafa lykilaðstöðu til að opna nýjum sjónarmiðum leið f Reykjavík 26. maí næstkomandi undir kjör- orðunum Framsóknarflokkurinn - Lykillinn að betri borg." Timamynd Ami Bjama manna. Svo virðist, sem Sjálfstæð- halda niðri óánægju borgarbúa með ismönnum ætli ekki að takast að staðsetningu stöðvarinnar. Mjög Alfreð Þorsteinsson ræddi málin við starfsmenn Osta- og smjörsölunnar. Þeim fannst ekki vanþörf á að setja borgarfulltrúum og starfsmönnum borgar- innar starfsreglur. Nýverið var Alfreð á fundi með starfsfólki í prentsmiðjunni Odda og bar þá sorpböggunarstöðina mjög á góma og kom fram veruleg and- staða við hana. Timamynd Ami Bjama viðamikil undirskriftasöfhun er nú í setningu stöðvarinnar er mótmælt. gangi í Grafarvogi, þar sem stað- -EÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.