Tíminn - 12.05.1990, Page 17
Laugardagur 12. maí 1990
bvr\r\\io i Mnr
Létt spjall
á laugardegi
Leikskólinn - Grunnskólinn
Laugardaginn 12. maí n.k. kl. 10.30 verður létt spjall að Grensásvegi
44. Umræðuefni er: Leikskólinn - Grunnskólinn.
Sigrún
Magnúsdóttir
Aslaug Selma Oóra
Brynjólfsdóttir Þorsteinsdóttir
Áslau^ Brynjólfsdóttir fræðslustjóri, Selma Dóra Þorsteinsdóttir, for-
maður Fóstrufélags íslands, og Kristinn Halldórsson foreldri ræða
málin. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi stjórnar umræðunni. Allir
velkomnir.
B-listinn í Reykjavík
Hafnarfjörður - Kosningaskrifstofa
Skrifstofa Framsóknarflokksins að Hverfisgötu 25 er opin alla virka
daga frá kl. 15.00-19.00, laugardaga kl. 10.00-13.00. Auk þess er
opið hús öll kvöld frá mánudegi til föstudags.
Símar: 51819 - 653193 - 653194.
Lítið inn og takið með ykkur gesti. Alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögin
Selfoss - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið í fullum gangi.
Opið hús að Eyravegi 15, alla virka daga kl. 16.00-22.00, laugardaga
kl. 10.00-13.00. Sími 22547 og 22955
Allir velkomnir. - Heitt á könnunni.
Framsóknarfélag Selfoss
Dalvík - Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa Framsóknar- og Vinstri manna er í Jónínubúð.
Opið alla virka daga kl. 20-22 og laugardaga kl. 17-19. Sími 96-61850.
H-listinn
Garðabær - Kosningaskrifstofa
Skrifstofa Framsóknarflokksins að Goðatúni 2 er opin alla virka daga
frá kl. 17-19 og laugardaga frá kl. 13-15. Sími 46000.
Sandgerði - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið í fullum gangi. Opið hús að Strandgötu 14 alla virka
daga kl. 20.00-22.30, um helgar kl. 14.00-19.00. Allir velkomnir. Alltaf
heitt á könnunni. Sími 92-37850.
B-listinn.
Hafnarfjörður
Fundur verður haldinn í fulltrúaráði framsóknarfélaganna í Hafnarfirði
fimmtudaginn 10. maí kl. 20.30 að Hverfisgötu 25.
Boðaðir eru aðal- og varamenn ásamt frambjóðendum flokksins.
Umræðuefni: Kosningabaráttan.
Stjórnin.
Keflavík
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins að Hafnargötu 62 er opin
daglega kl. 15.00-22.00. Sími 11070.
REYKJANES
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17-19, sími 43222.
KFR.
Vestmannaeyjar
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins í Vestmannaeyjum er að
Kirkjuvegi 19 og er opin frá kl. 16-19. Sími 98-11004.
Akureyri
Skrifstofa Framsóknarflokksins er að Hafnarstræti 90, Akureyri. Opin
alla virka daga frá kl. 13.00-19.00.
Kosningastjóri er Sigfríður Þorsteinsdóttir. Síminn er 96-21180.
Kvikmyndastjörnur framtíðar?
Hér má sjá nokkrar myndir af
fallegum og skemmtilegum
krökkum, en þau tóku öll þátt í
módel-keppni hjá tímaritinu
GLOBE og voru í efstu sætunum.
Það er sameiginlegt hjá þeim
öllum að þau hafa áður reynt fyrir
sér í fyrirsætustörfum og jafnvel
auglýsingamyndum og kvikmynd-
um. Það er alveg eins líklegt að hér
séum við að kynnast einhverri af
stórstjörnum framtíðarinnar.
Verðlaunin voru ekki há í
keppninni hjá Globe, aðeins 50
dollarar til hvers barns sem birt var
mynd af, - en það voru birtar 10
myndir, þó við sjáum þær ekki
allar. En engu að síður er þetta
áfangi á leið þeirra að takmarkinu
að verða eftirsótt sem módel eða
kvikmyndir.
Bradley Suntich er aðeins
fjögurra ára. Hann á heima í
Holly Hill í Florida. Hann hefur
meðfæddar leikgáfur og er
óþreytandi í að sitja fyrir hjá
Ijósmyndara. Hann er duglegur
að synda og fer með afa sínum
í sund og golf, og á m.a.s. sínar
eigin barna-golfkylfusett!
Tera Beth Varney
er orðin heimsvön
dama. Hún er 8 ára
og á heima í Chatta-
roy í Vestur-Virginíu.
Hún heillar dómara á
keppnum sem hún
hefur tekið þátt í og
syngur og dansar
svo hún kemst alltaf
á verðlaunapall. Tera
Beth hefur unnið
ferðir til Hawaii, Ba-
hamaeyja og til Flor-
ída, og auðvitað fyrir
mömmu sína líka
Stacey Mracek er bara 5 ára,
en hún er dömuleg með stráhatt
og hanska. Henni þykir mjög
spennandi að punta sig fyrir
myndatökur, en annars er mest
gaman að hjóla og að hjálpa
pabba sínum að gefa kúnum, en
hann er bóndi nálægt Hay
Springs í Nebraska í Bandaríkj-
unum.
Toni Lynn Walsh, 5 ára, í Delta
í Colorado, finnst gaman að
þykjast vera fullorðin og leika
leikrit. Hún hefur fengið módel-
verðlaun og ætlar að leggja það
starf fyrir sig „þegar hún er
orðin stór“.
Alison Koytek er 7 ára og á
heima í Dupont, Pennsylvania í
Bandaríkjunum. Hún er ákveðin
í að verða leikkona og dansari
þegar hún verður stór. Alison
hefur þegar hlotið nokkur verð-
laun í fegurðarsamkeppnum
barna og á tískusýningum.