Tíminn - 26.05.1990, Blaðsíða 4

Tíminn - 26.05.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn FRÉTTAYFIRLIT MOSKVA - Forsætisráð- herra Sovétríkjanna Ryzhkov hótaði að segja af sér, ef almenningur og þing- , menn styddu ekki tillögur hans um róttækar efnahags- umbætur. Kolanámumenn í stærstu námum Sovétríkjanna hót- uðu að efna til mótmæla gegn efnahagsumbótunum sem munu hækka matar- verð verulega. GENF - Arafat, leiötogi RLO, ávarpaði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og bað um að sendir yrðu gæsluliðar til hernumdu svæða ísraels og beittu ísra- el efnahagsþvingunum. JERÚSALEM - Palest- ínskir verkamenn stungu og særðu alvarlega ísraelskan bónda á Vesturbakkanum. Hermenn settu meir en millj- ón menn í útgöngubann á Vesturbakkanum og í Gaza til að koma í veg fyrir uppþot. JÓHANNESARBORG - Dómstóll komst að þeirri nið- urstöðu, að lífvörður Winnie Mandela væri sekur um að hafa myrt 14 ára dreng. Nel- son Mandela eiginmaður hennar sagði að réttarhöldin hefðu verið ósanngjörn. MONROVIA - Forseti Lí- beríu, Samúel Doe, sagði að her hans hefði náð aftur á sitt vald næststærstu höfn landsins. Hann bauðst til að halda kosningar ef það kynni að stöðva uppreisnina í landinu og koma á friði. Hann sagðist líka myndi segja af sér ef hann tapaöi kosningunum. BONN - Helmút Kohl kansl- ari sagði að hershöfðingjar frá NATÓ og Varsjárbanda- laginu ættu að hittast reglu- lega og væri það í anda bættrar sambúðar banda- laganna. VARSJÁ - Lech Walesa sagði að óánægð stjórn- málaöfl stæðu að baki verk- falls járnbrautarstarfsmanna sem stöðvað hefur alla skipaumferð til Póllands. Hann sagði að verkfallið gæti komið af stað borgara- styrjöld. BÚKAREST - Jón lliescu vann stórsigur í rúmensku forsetakosningunum og fékk 85.97% atkvæða. Opinberir talningamenn staðfestu einnig að flokkur hans, Þjóð- arráðið, hefði fengið meira en tvo þriðju hluta þingsæta. BEIRÚT - Andstæðar fylk- ingar Shíta Múslima börðust í suðurúthverfum Beirút. Þrír menn dóu og 25 særðust. Laugardagur 26. maí 1990 Gorbatsjof bauð sjálfstæði innan þriggja ára: LITHAUGAR SKRUFA FYRIR HEITT VATN Ríkisstjóm Lithaugalands lét skrúfa fýrír heitt vatn til flestra iðnvera landsins á föstudag og sagði að 100.000 menn yrðu án vinnu eftir helgina vegna efnahagsþvingana Sovétstjómar. Alexandríus Ambryazavicius er í stjómamefnd sem stýrir vamarað- gerðum Lithauga vegna refsiaðgerða Sovétstjómar. Hann sagði fréttamanni Reuters í gær að vatni og gufu yrði áfiram veitt til nauðsynlegrar starf- semi, svo sem matvælavinnslu. Hann sagði líka að helsta orkuveri Lithauga, „Elektrene“, yrði lokað þótt enn væru til vikubirgðir af olíu þar sem Lit- haugar vildu geta gripið til þeirra i neyð. Ambryazavicius sagði að mörg fyrirtæki yrðu að hætta starfsemi eftir helgi. Þá munu um 100.000 Lithaugar hafa misst vinnuna vegna efnahags- þvingananna en íbúafjóldi Lithauga- lands er um 3,5 milljónir. „Meðan Gorbatsjof verður í Bandaríkjunum munu Sovétmenn úthluta okkur næga orku til að bæta upp ffamleiðslu El- ektrenu- orkuversins en um leið og Gorbatsjof kemur aftur, þarf hann ekki að brosa lengur og lætur hætta birgðaflutningum“, sagði Ambryaz- avicius. A fimmtudag er talið að Gorbatsjof hafi boðið Lithaugum sjálfstæði innan þriggja ára ef þeir frestuðu sjálfstæð- isyfirlýsingu sinni en þeir hafa enn ekki svarað því tilboði opinberlega. Landbergis forseti Lithauga greiðir atkvæði í upphafi baráttunnar. Miðjumaður dregur sig í hlé: Rússar verða að taka ákvörðun Sigurstranglegur frambjóðandi til rússneska forsetaembættisins dró í gær til baka framboð sitt. Alexander Vlasov naut stuðnings Gorbatsjof og var álitinn líklegur sig- urvegari. Helstu keppinautar hans vom hinn róttæki umbótasinni Jeltsin, sem harðlega hefur gagnrýnt Gorbat- sjof fyrir litlar lýðræðisumbætur og Ivan Polozkov sem talinn er harðlínu- maður af gamla skólanum. Vlasov kom þingfulltrúum verulega á óvart þegar hann sagði: „Astand mála krefst þess að við tökum afstöðu. Ég dreg mig í hlé“. Nú verður þingið að taka afstöðu til þess hvort það vill fýlgja Jeltsin, sem hefur sagt að sósíalismi sé ekki nauð- synlegur valkostur fyrir Rússland, eða Polozkov, sem sagði í gær að Rúss- land mætti ekki víkja af vegi sósíal- ismans. Niðurstöður úr leynilegum kosningum þingmanna verða birtar í dag. Rússland er langfjölmennasta sovétlýðveldið með 147 milljón af 286 milljón íbúum Sovétríkjanna. Gorbtsjof gagnrýndi harðlega Jeltsin á miðvikudag og sagði að hann vildi afhema sósíalisma í Rússlandi. Hugs- anlegt er að Sovétstjóm hafi viljað fá afdráttarlausan stuðning við sósíalis- mann og hafi þess vegna beðið miðju- manninn Vlasov um að draga sig í hlé. Stuðningsmenn Jeltsin telja þó, að sigurlíkur hans séu miklar og segjast hafa tryggt sér 400 af þeim 531 at- kvæðum sem þurfi til sigurs. Jeltsin sagði í gær að hann myndi starfa með Gorbatsjof ef hann ynni sigur og sagð- ist vera reiðubúinn til málamiðlanna. „Ég styð ekki sósíalisma, sósíalism- ans vegna. Ég styð rikisstjóm sem þjóðin virðir og sem virðir þjóðina". Fundur Öryggisráðsins í Genf: íraelsstjórn full andúðar ísraelsstjórn er á móti því að sendir verði eftirlitsmenn frá Sameinuðu þjóðunum til Israels og fylgist vandlega en full andúð- ar með fundi Öryggisráðsins í Genf. Ekki er ljóst hvaða ályktun fundurinn samþykkir eða hvort hann samþykkir nokkra ályktun um eftirlitsmenn á hernumdu svæðunum. ísraelar hafa þó þeg- ar tilkynnt að þeir muni ekki hleypa neinum eftirlitsmönnum inn í landið og segja að það myndi Stuðla að frekari óróa meðal Ar- aba, ísraelar segja að Palestínu- menn njóti nú þegar nægrar verndar Israelskra öryggissveita. fsak Shamir sagði í gær að ekki yrði hægt að framfylgja ályktun um eftirlitsmenn og henni yrði ekki framfylgt fremur en mörg- um öðrum samþykktum Samein- uðu þjóðanna um ísrael. fsraelar hafa hvatt Bandarikja- menn til að beita neitunarvaldi sínu gegn öllum tillögum um eftir- litssveitir, en þeir hafa haft þung- ar áhyggjur af nýlegum yfirlýs- ingum Bandarikjastjórnar um þörf á slíkum eftirlitssveitum. Herzog, forseti ísraels, er nú í heimsókn í Finnlandi. Hann sagði um fund Öryggisráðsins að ekk- ert jákvætt kæmi út úr fundum Sameinuðu þjóðanna og að fund- urinn væri „sígilt dæmi um hræsnina i veröldinni sem væri mjðg kviðavænlegt í Ijósi vaxandi gyðingaandúðar í heiminum". Irskt tungumál brátt útdautt Breskur tungumálaprófessor, Reg Hindley, hcfur birt niðurstöður úr könnun á útbreiðslu gelísku á írlandi. Þar kemur fram að gelíska verður brátt útdautt tungumál. Miklir fólks- flutningar frá svæðum þar sem gel- íska er töluð og enskt sjónvarpsefni eni ástæðumar fyrir þessari þróun. Irar eru stoltir af uppruna sínum og arfleifð. Þeir hafa reynt að auka notk- un gelísku en enska var tungumál flestra Ira þegar landið fékk sjálf- stæði frá Bretum. Gelíska er skyldu- námsefni í skólum og þeir sem vilja fá starf í lögreglu eða embætti hjá ríkinu verða að sanna kunnáttu sína í málinu. Samkvæmt nýlegum opin- berum könnunum segist nærri þriðji hver Iri tala gelísku eða um ein millj- ón manna. Það segir Hindley að sé fjarri öllu lagi. Þeir sem raunverulega nota tungumálið séu nálægt því að vera 8000 en til samburðar má geta þess að íbúar Garðabæjar eru um 7000. I bók sinni „Dauði írskrar tungu“ segir Hindley að tungumálið verði útdautt um leið og mæður hætti að tala það við böm sín. Sjónvarpið segir hann að sé mikið notað sem bamfóstra og eigi dijúgan þátt í því að kenna ungabömum ensku. Miklir fólksflutningar hafa verið frá svæð- um þar sem gelíska er töluð. Efna- hagur er þar báborinn og stjómvöld hafa reynt að efla þar atvinnulíf en Hindley segir að eini iðnaðurinn, sem beri sig þar, sé framleiðsla á ferðatöskum. Á írlandi hefur verið nokkur um- ræða um niðurstöður tungumálapró- fessorsins. Þingmaðurinn Dinny McGinley sagðist telja að það væri rétt að fjölmiðlar ættu hlut í því að útrýma gelísku og bætti við að það væri skelfilegt að á sama tima og Austur-Evrópuþjóðir berðust við að endurheimta sjálfsvitund sína skyldu írar vera að glata þjóðarvitund sinni. FW.de KtefkíLondon Fékk lof, engan fjárstuóning F.W. de KJerk forseti Suður- Affíku hefúr lokið ferðalagi sínu um níu lönd í Evrópu. Hann fékk víðast hvar lof fýr- ir umbætur sínar í kynþáttamálum en honum mistókst að afla landi sínu nýrra lána. „Við ráðum við viðskiptahömlur, en við þörfhumst nýrra lána“, sagði heim- ildarmaður Reuters sem ferðaðist með forsetanum. Stjómmálaskýrendur segja að jafnvel þótt ríkisstjóm Klerks hafi enn ekki áunnið sér traust vest- rænna banka, sé ljóst að honum varð ýmislegt ágengt. Honum tókst að ijúfa pólitíska einangrun S-Afríku, „og það var í raun erfiðasta þvingunin sem S- Afrika hefúr mátt þola“, sagði háttsett- ur ráðgjafi forsetans. Móttökumar sem Klerk fekk vom langtum betri en leið- togar S-Afríku hafa áður fengið. Til mestra mótmæla kom í Aþenu þar sem lögregla skaut táragasi að stúdentum sem fleygðu bensínsprengjum. De Klerk lauk ferð sinni í Róm í gær og sagði í London, þar sem hann kom við á leið til Suður-Afríku, að umbætur hans myndu halda áfram og að .Jiéðan af veiður ekki aftur snúið“. F.W. de Klerk reyndi í ferð sinni að fá bankamenn til að heita S- Afríku bankafýrirgreiðslu en engum lögum þarf að breyta í Evrópu til að bankar taki að fjárfesta að nýju í efnahag landsins. Bankamenn drógu úr lánafýr- irgreiðslu til Suður-Afríku vegna mót- mæla og óróaástands í landinu, en nú óttast þeir stjómmmálaóreiðu sem gæti skapast við það að hvíti minnihlutinn losi um tök sín á landinu. Annað markmið Klerks var að fá tíki EB til að létta af viðskiptahömlum á S- Afríku. Fundur um það mál verður í enda júnímánaðar og hefúr Margrét Thatcher þegar lýst yfir áhuga á þvi, en sjómmálaskýrendur segja að viðbrögð Frakka hafi þó skipt meira máli. Mitt- erand Frakklandsforseti er sagður hafa sagt, að EB myndi endurskoða afstöðu sína ef stjóm S- Afríku gengi nokkrum skrefúm lengra í afnámi Apartheid og þau skref sé Klerk þegar farinn að stiga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.