Tíminn - 26.05.1990, Side 10
10 Tíminn
Laugardagur 26. maí 1990
Garðsláttur
Tökum aö okkur að slá garöa.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoöum og gerum verötilboð.
Afsláttur ef samið er fyrir sumariö.
Upplýsingar í síma 41224 eftir kl. 18.
Geymið auglýsinguna.
Útboð
Styrking Djúpvegar 1990
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Lengd vegarkafla 4,5 km, fyllingar 5,300
rúmmetrar og burðarlag 11,000 rúmmetrar.
Verki skal lokið 1. ágúst 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
28. maí 1990. Skila skal tilboðum á sömu stöðum
fyrir kl. 14:00 mánudaginn 11.júní 1990.
Vegamálastjóri.
Utboð
Klæðingar á Vesturlandi 1990
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Helstu magntölur: Yfirlagnir 40.000 fermetr-
ar, tvöföld klæðing 130.000 fermetrar, efra burðar-
lag 12.000 rúmmetrar og neðra burðarlag 10.000
rúmmetrar.
Verki skal lokið 1. september 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 29. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 5. júní 1990.
Vegamálastjóri.
Útboð Yfirlagnir 1990 - Malbikun Reykjanesbraut
w<m 9 Vegagerö ríkisins óskar eftirtilboðum í ofangreint " verk. Helstu magntölur: Útlögn 105.000 fermetrar, mal- bik 6.300 tonn. Verki skal lokið 1. september 1990. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 28. þ.m. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þann 11. júní 1990.
Vegamálastjóri.
III
Útsýnishús á
Öskjuhlíð verður
til sýnis almenningi
sunnudaginn 27. maí kl. 14-17.
Lokað
Vegna jarðarfarar Magnúsar E. Guðjónsson-
ar framkvæmdastjóra verða skrifstofur okkar
að Háaleitisbraut 11 lokaðar eftir hádegi
mánudaginn 28. maí nk.
Samband íslenzkra sveitarfélaga
Lánasjóður sveitarfélaga
Innheimtustofnun sveitarfélaga
Bjargráðasjóður
Dr. Þór Jakobsson: w
X-Sigrún: X-lsland
Miðvikudaginn nú í vikunni átti
ég því láni að fagna að sjá foður-
landið okkar skarta sínu fegursta.
Eg vildi að fleiri hefðu verið með
mér að njóta fegurðarinnar sem við
mér blasti, ekki síst Reykvíkingar
sem ég hugsaði til syðra, á hlaup-
um eða þeysireið um götur og torg
höfuðborgarinnar. Mér hafði gefist
tími til að bregða mér austur í
Landsveit í Rangárvallasýslu til að
huga að girðingu eftir veturinn.
Ekki var seinna vænna að gera við
girðingar, sauðburður kominn vel á
veg í sveitinni og kindumar að
nálgast forboðin lönd með nýfædd
lömb sín.
Það var skínandi bjart, sól skein í
heiði. Fjöllin í sýslunni mynduðu
hállhring, Skarðsfjall, Búrfell,
Hekla, Torfajökull, Reynifell og
Eyjafjallajökull, en í suðurátt
þandist sléttlendið út uns það rann
út í hafið. Vestmannaeyjar vörðu
sjóndeildarhringinn handan við
sundið. Hekla gamla gnæfði við
himin í austri og bar af öllu í heið-
ríkjunni. Endurskin sólargeislanna
í bröltum snævi þöktum hlíðunum
var svo sterkt að engu var líkara en
eldfjallið lýsti af sjálfu sér.
Er ég hafði lokið verkinu í sam-
vinnu við Kristján bónda í Stóra-
Klofa, heilsað öðru heimafólki og
þegið góðgerðir hjá Hrefnu Krist-
jánsdóttur í Stóra-Klofa, þurfti ég
því miður að kveðja og hraða mér
til Reykjavíkur. En á heimleiðinni
varð mér sem oftar hugsað til þess
hve brýnt það er að ígrunda
skipulag ísíands í heild sinni.
Hve vesöl yrði ekki Reykjavík án
landsins, nánast eins og skoppandi
afhöggvinn haus. Af þessum sök-
um er öflugur stjómmálaflokkur
úti á landi sem ber gæfú til að
skynja timanna tákn og ný not fyr-
ir landið — óbyggðir, sveitir,
strendur og hafið úti fyrir — nauð-
synlegur í höfuðborginni einnig.
Ætla má að Framsóknarflokkur-
inn geti allra flokka helst gegnt
þessu víðtæka hlutverki. Það er
því vissulega átæða til að vinna að
ömggri fótfestu Framsóknar-
flokksins hér í Reykjavík.
Önnur ástæða er til að styðja
framboðslista Framsóknarflokks-
ins í þessum kosningum. Sigrún
Magnúsdóttir er í fremstu röð
stjómmálamanna og einn hæfasti
umsækjandi um traust borgarbúa
sem völ er á. Það er okkur hinum
sem emm á listanum mikið kapps-
mál að kjósendur átti sig á þessu.
Það mætti lengi þylja afrek hennar
I „mjúku“ málunum svonefndu, en
það er mér hins vegar sérstakt
ánægjuefni að hugsa til þess hve
djarflega hún hefur undanfamar
vikur hamrað á nauðsyn þess að
kannaðir yrðu möguleikar á
byggingu alþjóðlegrar umskip-
unar- og fríverslunarhafnar í
Reykjavík.
Höfúðborg Islands gæti í framtíð-
inni orðið miðstöð siglinga og um-
svifa við Norður-Atlantshaf, Norð-
ur-íshaf og norðurhluta Kyrrahafs.
í stað þess að dragast inn í óvissu
róstusamrar Evrópu næstu áratuga
ætti Island að stefna að því að
verða í miðju ffamtíðarviðskipta
Ameríku og Asíu. Sigrún Magnús-
dóttir hefúr nú þegar komið þessari
stórkostlegu hugmynd áleiðis í
borgarstjóm við hrósverðar undir-
tektir þar og undanfarið kynnt hana
almenningi af einurð ogbjartsýni á
ffamtíð Reykjavíkur.
Þannig vísar B-Iistinn í Reykja-
vík, með Sigrúnu Magnúsdóttur
í fararbroddi, veginn í tvöföld-
um skilningi. Hann minnir
Reykvíkinga á hlutverk þeirra á
íslandi öllu og íslendinga á hlut-
verk íslands og stöðu í hinum
stóra heimi.
BÆNDUR:
Nú eru síöustu forvöð á að staðfesta pantanir
í NEW HOLLAND bindivélar og rúllubindivélar
á tilboðsverði.
Tilboðsverð Rétt verð
NEW HOLLAND 570 heybindivél kr. 600,000 kr. 6^000
NEW HOLLAND 575 heybindivél kr. 640,000 kr. 7/^000
NEW HOLLAND 835 rúllubindivél kr. 740,000 kr. 8^,000
Frestur til að staðfesta pantanir á þessu hagstæða
tilboösverði rennur út 31. maí. k. Vinsamlegast staðfestið
pantanir hið fyrsta þar sem um takmarkað magn véla er að
ræða.