Tíminn - 26.05.1990, Blaðsíða 14
26 Tíminn
Laugardagur 26. maí 1990
íhalds- og Vettvangsstefnan falla saman eins og flís við rass:
Hverja geta bíllausir
kosið í borgarstjórn?
„Á leið í Laugardalslaugina í hádeginu sé ég oftar en
ekki stressaða menn undir stýri, neytandi allra bragða
og brjótandi allar reglur til þess að komast á bílnum
upp að dyrum, þótt nóg sé af bílastæðum í 50 til 100
metra fjariægð. Erindi þeirra í Laugardalinn? Jú, til
þess að skokka“. Þennan ágæta brandara heyrði
undirrituð nýlega.
Vafasamt er hins vegar að skipulagssmiðir Reykja-
víkurborgar komi auga á grínið. Á teikniborðum þeirra
miðast allt við það að hver maður reki öll sín erindi á
einkabfl—en fari í gönguferðir eftir „programmi“ á úti-
vistarsvæðum.
Tveir ólíkir hópar
„göngumanna“
Ráðamenn Reykjavíkur virðast
aldrei hafa áttað sig á þeim grund-
vallarmun sem skiptir borgarbúum í
tvo ólíka hópa „göngumanna".
I fyrri flokkum er fólk sem gengur
daglega, hvemig sem viðrar, til
vinnu, í skóla, búðir, banka og bíó,
skemmstu leið — og úr og í strætó, ef
langt er að fara. Þennan flokk fylla
m.a. öll böm og unglingar undir 17
ára og meginhluti kvenna yfir miðj-
um aldri (samanber könnun í Félags-
vísindastofnunar sem leiddi í ljós að
aðeins 10% kvenna yfir 67 ára ekur
bíl. Fjöldi annarra er bíllaus af ýms-
um ástæðum, tilneyddir og/eða af
fijálsu vali.
Síðari flokkinn fyllir fólk sem aldr-
ei notar fætur sínar ótilneytt utandyra
— nema kannski eftir „programmi“
eða I skipulagðri „heilsurækt". Sá
hópur ærist, geti hann ekki lagt bílum
sínum upp við - - helst upp á —
tröppur húsa þeirra sem hann fer á
milli. Sá hópur leggur t.d. þvers og
kruss jafnt á gangstéttir og götur í
Miðbænum fremur en að ganga úr
Kolaporti. Þörfin fyrir alla stöðu-
mælana er vegna þessa hóps, því ella
léti hann bíla sína standa frá morgni
til kvölds framan við hveija búð og
banka. Þessi hópur hímir frekar í
bílalestum tímunum saman heldur en
að ganga í nokkrar mínútur, jafnvel á
Ieið í útivist í Bláfjöll. Þeir koma líka
úr þessum hópi sem aka á Öskjuhlíð
eða í Elliðaárdal í heilsubótargöngu
með hundinn, til að láta hann skíta í
skjólsælli laut.
Við þennan hóp miðast allt skipulag
Reykjavíkur: Fleiri bílastæði — og
útivistarsvæði með enn fleiri bíla-
stæðum. Er ekki eitt síðasta kosn-
ingaloforð Davíðs um fjölda bíla-
stæða á Öskjuhlíð — umkringd
skiltaskógi: „Hundum bannað að
skíta?“ Svo undrast menn hvað varð
af „lífmu“ í Gamla bænum.
„Gamaldags“ hagfræði
I hinstu kveðju Jónasar Haralz
bankastjóra til gamals vinar og
granna mátti lesa að hvað bestar
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimlli Sfmi
Hatnarfjörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur Linda Jónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavfk GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Ingvi Jón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvfk Krístinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata26 93-71740
Stykkishólmur ErlaLámsdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvfk LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
Isafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvfk Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavfk Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi Friðbjörn Nielsson F(fusundi12 95-1485
Blönduós Snorri Bjamason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð13 95-35311
Slglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hliðarveig 46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg 18 96-24275
skrifstofa Skipagata 13 (austan) 96-27890
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavik Sveinbjörn Lund Brúargerði 14 96-41037
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aöalbraut60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu44 97-31289
Egilsstaðlr Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi7 97-21136
Neskaupstaður BirkirStefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður ÓlöfPálsdóttir Mánagötu31 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Ojúplvogur Jón Biörnsson Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut 16 A 97-81796
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyri Jón Ólafur Kjartansson Eyjaseli 2 98-31293
Laugarvatn Halldór Benjam í nsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur JónínaogÁrnýJóna Króktún 17 98-78335
Vfk Ingi Már Björnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut29 98-12192
1 » \ W mk
Mi WUí \
minningar átti hann frá gönguferðum
þeirra lengst sunnan úr Kópavogi til
vinnu í Miðbæ Reykjavíkur. Þessar
uppbyggjandi gönguferðir, andlega
jaftit og líkamlega, áttu hagfræðingar
þessir daglega um árabil. Fremur
fúndið hagfræði í því að labba leiðar
sinnar en að aka á milljónabílastæði í
Miðbænum og aftur þaðan í göngu-
ferðir á útivistarsvæðum?
Svona „furðufuglum" gerir enginn
ráð fyrir í Reykjavík. Við gatnagerð
er nú æ algengara að engar gangstétt-
ir séu meðfram götum — t.d. vel
þekkt fyrirbæri i nýju Hálsahverfi.
Gangandi vesalingar hafa þar um
tvennt að velja: Klofa snjóskafla eða
ösla aurinn utan akbrautanna. Ellegar
ganga á götunum og láta ökumenn
ausa yfir sig drullugusunum í vætutíð
og salt/tjörupækli á vetrum.
í gönguferö meö
„taxa“...?
Athygli vekur að stefna Nýs vett-
vangs fellur þama að Davíðsstefn-
unni eins og flís við rass, samkvæmt
grein Guðrúnar Jónsdóttur í Þjóðvilj-
anum s.l. þriðjudag. „Ganga er holl
og góð hreyfing, en þá skiptir miklu
máli ef hægt er að ganga um falleg
svæði á góðum göngustígum. Við
hyggjumst beita okkur fyrir gerð
„gönguleiða" um borgina og borgar-
landið á mörkum Reykjavíkur, eins
og í Heiðmörk og víðar".
Ekkert er hér minnst á að auðvelda
öldruðum að reka erindi sín gangandi
í búðir eða banka, án þess að hætta
lífi og limum. Gönguferðir á sérstök-
um göngustígum t.d. uppi í Heið-
mörk eru aðalatriðið. Bíllausir gætu
kannski tekið þangað „taxi“ í heilsu-
bótargöngumar.
Hvort t.d. starfsmenn Coca Cola,
ÁTVR, Stöðvar 2 og Tímans komast
gangandi heim til sín I Hraunbæinn
eftir vinnu, eða í strætó í Rofabæ, án
þess að vaða aur í ökla skiptir ekki
máii? Nei, nei, auðvitað aka allir í og
úr vinnu. Málið er að aka í gönguferð
á góðan stíg, t.d. niður í Elliðaárdal.
„Stofufangar“ án borgar-
fulltrúa
Þeir sem ganga til að komast leiðar
sinnar eiga lítið val um fúlltrúa f
borgarstjóm Reykjavíkur. Þeir mega
áffarn galla sig gúmístígvélum og
mannbroddum til að komast um þau
borgarhverfi sem bílamönnum einum
em ætluð. Margir úr eldri hluta þessa
hóps sitja í „stofufangelsi" dijúgan
hluta ársins ffemur en að hætta lífi og
limum á gangstéttum þöktum snjór-
uðningum af „kappakstursbrautun-
um“ sem bílistar einir „eiga“ og ráða.
Þeirra á meðal er gamla fólkið í
Þingholtunum, sem svipt hefúr verið
eina samgöngutæki sínu — Leið 1 —
sem nú ku ekki lengur komast um
hverfið? Nei, götumar hafa ekki
mjókkað. Vegna þess að bílum er lagt
þar þvers og kruss um allar götur
kemst gamla fólkið í Þingholtunum
ekki lengur með strætó í Domus
Medica og Tryggingastofnun. Bíll-
ausir í helmingi gömlu Reykjavíkur
— milli Skúlagötu og Hringbrautar,
ffá Lækjartorgi á Barónstíg — hafa
nú aðeins á „tvo jafn fljóta" að
treysta.
Hjóla maö s|énum —
dkfci í skáta
Nýr vettvangur hefúr líka hjólreiða-
stefnu: „Sumir vilja hjóla sér til
heilsubótar, og viljum við að þeim
verði auðveldaðar hjólreiðaferðimar
með sérstökum hjólastígum. Hug-
mynd okkar er að gera hjólastíga
með allri strandlengju höfúðborgar-
svæðisins".
Er hér verið að skipuleggja hjóla-
stíga fyrir fólk til að komast beinustu
leið í vinnu eða skóla, eins og víða
em við allar götur í útlöndum? Nei,
nei í skólann skulu nútíma nemendur
auðvitað allir aka. Þeir geta svo sett
hjólið í skottið og keyrt niður að sjó í
hjólreiðatúr. Við skólana vantar hins
vegar fleiri bílastæði.
Kolféllu á Pressu-prófinu
Próf Pressunnar á þekkingu ffam-
bjóðenda leiddi m.a. í ljós að enginn
þeirra vissi hvemig komast mætti
leiðar sinnar i strætó um borgina sem
þeir keppast um að fá að stjómá.
Skipulag almenningssamgangna
borgarinnar er þeim ókunnugt um og
enn ffekar hvemig það best gæti
þjónað bíllausum borgumm. Hins
vegar undrar þá oft hve fáir ferðast
með strætó, m.a.s. ffítt um Lauga-
veginn. Enginn skilur, að sá ætlaði að
skreppa niður á Laugaveg með strætó
í matartímanum, en þurft hefur að
bíða 2svar til 3var í 15-25 mínútur,
vegna þess að vagninn er án tíma-
áætlunar, hann skreppur frekar í
Kringluna næst. Eða var það kannski
alltaf ætlun þeirra sem umsmíðuðu
leiðakerfið? - HEI
Sumir ||
spara sér leigubíl
airir taka enga áhxttul
UMFERÐAR
RÁÐ
Eltir einn
-ei aki neinn