Tíminn - 06.06.1990, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 6. júní 1990
Sovétmenn tilkynna niðurskurð kjarnorkuvopna:
Ráðstefna hefst
um mannréttindi
Utanríkisráðherrar Evropu og Norður-Ameríku hófu í gær ráð-
stefnu um mannréttindi í Kaupmannahöfn. í opnunarræðu sinni
sagði utanríkisráðherra Dana að ráðstefnan myndi njóta ávaxta
byltingarínnar 1989 sem batt endi á gamaldags kommúnisma í
Austur-Evrópu. Heiti ráðstefnunnar er skammstafað á ensku
CSCE og er hún framhald af Helsinkiráðstefnunni 1975 sem setti
fram sáttmála um samvinnu Austur- og Vestur-Evrópuþjóða í
vamar-, efnahags- og mannréttindamálum.
Lithaugar féngu ekki að sækja ráðstefnuna.
Þjóðernisátök
í Sovétríkjum
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA - Leiðtogar Var-
sjárbandalagsins hittast í
Moskvu á fimmtudag. Siðast
hittust þeir í júlí fyrir tæpu ári
en nú hafa nýir leiðtogar tek-
ið við í flestum aðildarlönd-
um bandalagsins.
„Þetta verður jarðarför Var-
sjárbandalagsins í sinni
gömlu hernaðar- og hug-
myndafræðilegu mynd“,
sagði einn stjórnarerindreki
bandalagsins. Næsti fundur
bandalagsins á að verða í
Prag en óvíst er hvort Tékk-
ar og Ungverjar verða í
bandalaginu eða hvort það
verður enn til þegar kemur
að þeim fundi.
PRAG - Kosningabarátt-
unni í Tékkósiólvakíu lauk í
gær með sjónvarpsávörpum
flokkanna. Kosningar verða
um helgina.
SOFFÍA - Stjórnarand-
stæðingar i Búlgaríu sögð-
ust óttast að gallharðir
kommúnistar myndu grípa til
ofbeldisverka til að spilla fyr-
ir fyrstu frjálsu kosningum í
landinu sem hefjast á
sunnudag.
BRUSSEL - Landbúnaðar-
ráðherrar Efnahagsbanda-
lagsins hittast í dag til að
ræða „kúaæði" og hvort
óhætt sé að borða breskt
nautakjöt.
TEHERAN - (ranir kröfðust
þess að breski rithöfundur-
inn Salman Rushdie yrði
komið í hendur breskum
múslimum og að hann yrði
drepinn fyrir guðlast. Á Vest-
urlöndum hafa menn vonast
til að (ranir afturkölluðu
dauðadóm yfir Rushdie en
þessar kröfur trúarleiðtog-
ans Ayatollah Ali Khamenei
gerðu þær vonir að engu.
JERÚSALEM - Háttsettur
innflytjendastjóri í (srael
sagði að stjórn (sraels ætti
að taka mark á þeirri hótun
Míkaels Gorbatsjofs leiðtoga
Sovétríkjanna að stöðva
flutning sovéskra Gyðinga til
landsins ef innflytjendurnir
væru látnir setjast að á um-
deildum landsvæðum.
LONDON - Verð fer nú
hraðlækkandi vegna þess
að kaupendur telja að OPEC
takist ekki að hemja fram-
leiðslu sína eftir offram-
leiðslu að undanförnu.
MONRÓVÍA - Líberískir
stjórnarhermenn börðust við
uppreisnarmenn á stærstu
gúmmíplantekru landsins.
Forseti landsins, Samúel
Doe, tók á móti trúarleiðtog-
um og vill semja við þá um
frið.
AMRITSAR - Að minnsta
kosti 30 menn voru drepnir í
átökum aðskilnaðarsinnaðra
Síkha. ( dag eru sex ár liðin
frá því Indlandsher náði
Gullna hofinu á sitt vald en
það er mesti helgidómur
Síkha.
ISLAMABAD - Skæruliðar
skutu 25 eldflaugum að höf-
uðborg Afganistans. 10
menn dóu að sögn ríkisút-
varpsins í Kabúl.
35 þjóðir hafa undirritað Helsinkisátt-
málann. Allar Evrópuþjóðimar nema
Albanía eiga aðild að honum auk
Bandaríkjanna og Kanada. Utanríkis-
ráðherrar flestra þessara landa em á ráð-
stefnunni þar á meðal utanríkisráðherra
Islands, Jón Baldvin Hannibalsson. A
fundinum verða ýmis mál rædd meðal
annars aðild sameinaðs Þýskalands að
vamarbandalögum. Jón Baldvin sagði í
ræðu á fundinum að þjóðir ættu sjálfar
að ákveða stöðu sína í bandalögum við
aðrar þjóðir. Það gilti um Þjóðveija og
það sama gilti í sjálfstæðismálum
Eystrasaltsþjóða. Lithaugar sóttu um að
hafa áheymarfulltrúa á ráðstefhunni en
fengu ekki, vegria þess að ekki hefði
verið eining um það, að sögn utanríkis-
ráðherra Dana.
Þeirri hugmynd vex nú fylgi að efla
hlutvcrk CSCE-ráðstefnunnar og jafn-
vel hefur verið rætt um að hún komi í
stað NATÓ og Varsjárbandalagsins.
Jón Baldvin sagði það vera skoðun ís-
lensku rikisstjómarinnar að þótt rétt
væri að auka hlutverk CSCE-ráðstefn-
unnar ætti hún ekki að koma í stað
stofnana sem í mörg ár heíðu stuðlað að
samvinnu, öryggi og stöðugleika í Evr-
ópu.
Sjévardnadze utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna notaði ávarp sitt til að tilkynna
um aukinn niðurskurð sovéskra kjam-
orkuvopna í Evrópu. Hann sagði frétta-
mönnum að í lok ársins 1990 myndu
Sovétmenn aðeins hafa Iítinn hluta
skammdrægra kjamorkuvopna sinna í
Evrópu.
Fulltrúar NATÓ í Bmssel sögðu að
þessi niðurskurður væri minni en vest-
ræn ríki færu fram á. Þeir em ekki held-
ur ánægðir með niðurstöður nýafstað-
ins leiðtogafundar þar sem ekki náðist
samkomulag um vem Þýskalands í
NATÓ og fátt nýtt gerðist í afvopnunar-
málum NATÓ og Varsjárbandalagsins.
Að minnsta kosti 10 menn létust og
200 særðust í átökum Úzbeka og Kir-
gísa í borginni Osh sem er í Mið- As-
íulýðveldinu Kirgísíu í Sovétríkj-
anna.
I gær réðu lögreglumenn miðborg
Osh en átök héldu áfram í úthverfum
borgarinnar. A mánudag skutu lög-
reglumenn á þúsund manna hóp Úz-
beka sem brcnndi hús og reyndi að ná
lögreglustöð borgarinnar á sitt vald.
í gær vom undirritaður samningur um
vopnahlé milli skæruliða og stjómvalda í
Kambódíu. Samningurinn er þó talinn lít-
ils virði þar sem hann nýtur ekki stuðn-
ings Rauðu Kmeranna. Þijár skæraliða-
hreyfingar beijast gegn yfirráðum
Víetnama í Kambódíu. Síhanúk prins hef-
ur verið talsmaður hreyfinganna og undir-
ritaði hann samninginn ásamt forsætisráð-
herra leppstjómar Víetnama í landinu.
Friðarumleitanirhafa farið ffam í Japan í
boði japönsku ríkisstjómarinnar. Fulltrúi
kambódísku ríkisstjómarinnar krafðist
Neyðarástandi hefúr verið lýst yfir í
borginni og nágrannabyggðum henn-
ar.
Úzbekar eru í meirihluta i borginni.
Deilur hófúst milli þeirra og Kirgísa
vegna lóðaúthlutanna. Deilur um
vatnsréttindi og jarðnæði eru algeng-
ar í Mið-Asíuríkjum Sovétríkjanna en
aukin harka hefúr færst í átök þjóða í
Sovétríkjunum eftir að slakað var á
miðstýringu kommúnistaflokksins.
þess að viðræðumar yrðu aðeins milli sín
og Síhanúks og létu Japanir undan þeirri
kröfú. Það varð til þess að fúlltníi Rauðu
Kmeranna neitaði að taka þátt í samninga-
viðræðunum og að undirrita samninginn.
Samkvæmt honum á vopnahlé að hefjast
um leið og þjóðstjóm verður mynduð en
það á að verða í lok næsta mánaðar.
Kínveijar, sem hafa stutt Rauðu Kmer-
anna, reyndu í gær ákaft að fá fúlltrúa
Kmera aftur að samningaborðinu en það
tókstekki.
Walesa reynir að reka gamian bandamann:
Samstaðan
að minnka
Lcch Walcsa rcyndi á mánudag
að reka einn áhrifamesta leiðtoga
Samstöðu úr röðum samtakanna.
Adam Michník cr ritstjóri víðlcs-
ins daguiaðs Samstöðu, „Gazeta
Wyborcsa". Wafesa skrifaði hon-
um brcf og sagðist draga tii baka
stuðning sinn við hann og sagði að
blaö hans skyldi hætta að nota
nafn Samstöðu i blaðhaus sfnum.
BÍaðið „Gazeta Wyborcza“ hefur
gagnrýnt kosningabaráttu Walesa
scm vifl vcrða forseti Póllands.
Michnik hcfur svarað Walesa og
segist njóta einróma stuðnings
starfsmanna blaðsins og að aðeins
þjóðarfundur Samstöðu geti
bannað sér að nota merki Sam-
stöðu i blaðhaus sinum. Frétta-
skýrendur segja að Walesa sé að
reyna að grafa undan forsætisráð-
herra Póllands Tadcusz Mazo-
wiecki en Walcsajýsti yfír „stjórn-
málalegu stríði“ á hendur ríkis-
stjórninni i siðasta mánuði. Hann
sakar ríkisstjórnina um að fara
ekki nógu hratt í umbótum og að
vera orsök að hættulegri pólitiskri
stöðnun.
Michnik hefur barist fyrir því að
leiðtogar Samstöðu stæðu saman
en ósætti er komið upp á milli
þeirra. Fyrir forseta- og þingkosn-
ingar næsta vors vilja bæði Mazo-
wiecki og Walesa safna saman
stuðningsmönnum sínum í ein-
hvers konar nýja flokka. Walesa
hcfur áður ráðist að vinstrisinnuð-
um stuðningsmönnum Samstöðu
og gert marga virtustu banda-
menn sina að pólitískum óvinum.
Þeir berjast nú gegn forsetafram-
boði hans og saka Walesa um að
hafa einræðistilhneigingar.
Þýskalandsmeistari í hraðskák:
V-þýsk tölva
vinnur sigur
í gær varð Peter Enders Þýskalands-
meistari í hraðskák en hann varð ekki
sigurvegari á hraðskáksmótinu sem
hann tók þátt í. Sigurvegarinn var
tölva sem kölluð er Mefistó. Þýska
skáksambandið leyfði tölvunni að
keppa í tilraunaskyni til að sjá hvem-
ig hún stæði sig. 35 skákmenn tóku
þátt í mótinu og var hámarkslengd
skákanna 10 mínútur. Mefistó fékk
521 stig en Enders, sem var næstur að
stigum, fékk aðeins 417.
Reglur þýska skáksambandsins
segja hins vegar að hraðskáksmeistar-
inn verði að vera mennskur og þess
vegna hlaut Enders titilinn.
Síhanúk prins á íslandi í okt 1984. Erfiðlega gengur að koma á friði í landi hans.
Kambódía:
Friðarsamningur
án Rauðra Kmera