Tíminn - 06.06.1990, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —
1 ^3 PÓSTFAX
RÍKISSKIP UERÐBRÉFAVWSKIPTI SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568 TÍMANS
NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvogötu, S 28822 687691
LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM
Kringlunni 8-12 Sími 689888
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNf 1990
Fyrrum varaforseti Bandaríkjanna skipar þrjátíu manna sendinefnd
til að fylgjast með komandi kosningum í Búlgaríu:
Steingrímur verður í
forsvari nefndarinnar
Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra mun fara utan til
Búlgaríu hinn 7. þessa mánaðar. Þar mun hann ásamt fylkis-
stjóra Vemioths-fylki í Bandaríkjunum, veita 30 manna sendi-
nefhd forstöðu, en hlutverk hennar er að fylgjast með fýrstu
frjálsu kosningunum í landinu síðan fýrir stríð. Þetta er í fýrsta
skipti sem íslenskum forsætisráðherra erfalin slík trúnaðarstaða.
„Walter Mondale skrifaði mér bréf
þar sem ég var beðinn að vera í for-
svari fyrir þcssum 30 manna hópi
ásamt ríkisstjóranum í Vennonth
sagði forsætisráðherra í samtali við
Tímann í gær. „Þeir hafa áður leitað
til manna, sem eru í áhrifastöðum
innan lýðræðisríkja, til þess að fara
fyrir svona sendinefndum og það
hafa ýmsir tekið slíkt að sér,“ sagði
Steingrímur aðspurður um hvers
vegna forsætisráðherra íslands væri
beðinn að taka að sér slík trúnaðar-
störf á alþjóða vettvangi. „Mondale
fór sjálfur fyrir sendinefnd, sem
fylgdist með fijálsum kosningum í
Ungveijalandi og Jimmy Carter var
formaður sendinefiidar sem fylgdist
með kosningunum í Nicaragua.
Venjulega fara tveir fyrir slíkum
scndinefndum og oft kemur annar
þeirra frá landi utan Bandarikjanna."
Sendinefndin kemur til Búlgaríu að
kvöldi 7. júní og mun ljúka sínum
störfúm að kvöldi 11. júní. Dagana 8.
og 9. mun sendinefndin eiga viðræð-
ur við forystumenn stjómmálaflokka
og fulltrúa ríkisstjómarinnar um
framkvæmd kosninganna. Síðan
mun hópurinn skipta sér niður á hin
ýmsu kjördæmi landsins. Steingrím-
ur og fylkisstjóri Vermonth-fylkis
munu verða í höfúðborginni, Soflu,
en þar verður miðstöð kosninganna
sem safnar til sín upplýsingum úr
kjördæmunum. Á mánudeginum 11.
kemur allur hópurinn saman og held-
ur blaðamannafúnd, þar sem farið
verður yfir framkvæmd kosning-
anna. Áðspurður um stjómmála-
ástandið í landinu sagði Steingrímur
að því væri ekki að neita að þrátt fyr-
Steingrímur Hermannson.
ir að harðlínumönnum úman Komm-
únistaflokksins hefði verið vikið frá
væru þeir enn mjög valdamiklir.
Fyrrverandi utanrikisráðherra lands-
ins, Mladinov, væri nú t.d. forsætis-
ráðherra. Þess má geta að umræddur
Mladinov kom hingað í opinbera
heúnsókn í utanrikisráðherratið
Stemgrúns.
Forsætisráðherra fer síðan beint frá
Búlgaríu til Gautaborgar, þar sem
hann mun sitja fúnd forsvarsmanna
EFTA-ríkjanna og í íramhaldi af
þeún fundi koma forsætisráðherrar
Norðurlandanna saman til fúndar,
sem einnig verður haldinn í Gauta-
borg. Steingrimur Hermannsson
mun síðan halda aftur til íslands hinn
15. þessa mánaðar. - ÁG
Ungur maður hrapar í gljúfri og kona keyrir fram af hengju um helgina:
Þyrla Gæslunnar
á ferð og flugi
Annasamt var hjá Landhelgis-
gæslunni um þessa fýrstu ferða-
helgi ársins. Þyria hennar var á
ferð alla helgina við að flytja slas-
að fólk á sjúkrahús. Alls var hún
kölluð útfimm sinnum.
Á fostudagskvöldið sótti þyrlan
slasaðan sjómann um borð í togarann
Jón á Hofi. Hann hafði klemmst á
hendi í lestinni og var hann fluttur á
Borgarspítalann. Jón á Hofi var
staddur undan Skaftárósi og gekk
greiðlega að sækja manninn.
Um hádegisbilið á laugardag kom
beiðni frá lögreglunni í Borgamesi
vegna manns scm hafði hrapað í
Hvalijarðarbotni. Fyrst var talið að
hann væri undir fossinum Glym, en
síðar kom i ljós að hann var við
Hvalsskarðsá. Þrír ungir piltar voru á
leið frá Hvalfirði til Þingvalla, vom á
ferð í bröttu gili og hafði sá slasaði
orðið fyrir gijóthmni, en hann gekk
síðastur. Þyrla Gæslunnar var komin
á slysstað um tvö leytið. Erfitt reynd-
ist að ná þeim slasaða því hann lá á
lítilli syllu niður undir á. Lækni var
slakað úr þyrlunni til sjúklingsins
sem hlúði að honum við erfið skil-
yrði. Það tók um 30 mínútur að búa
hann undir flutning og var farið með
hann gjörgæsludeild Borgarspítalans.
Hann er nú á batavegi.
Um kvöldið var þyrlan aftur kölluð
út. Þá hafði kona slasast er hún hafði
ekið vélsleða Xram af hengju og slas-
ast illa. Slysið átti sér stað í Unaðsdal
á Snæfjallaströnd vestur við Djúp.
Hún var einnig flutt á gjörgæslu
Borgarspítalans og er nú á batavegi.
Á hvítasunnudag bámst Landhelgis-
gæslunni skeyti frá gervitungli um
neyðarsendi sem væri í gangi vestur
af landinu. Þetta var til að byija með
óljósar sendingar og staðsetningamar
vom dreifðar um sunnanverða Vest-
firði og hafið djúpt suðvestur af
Bjargtöngum. Því var ekki hægt að
hefja björgunaraðgerðir. Flugvél frá
vamarliðinu fór samt á svæðið en
fann ekkert. Seinni part dagsins var
búið að greina nokkra mögulega staði
sem vora nálægt hveijir öðram. Þyrla
Landhelgisgæslunnar fór þá af stað
og miðaði sendingamar um borð í bát
sem lá við bryggju á Sveinseyri við
Tálknafjörð. I ljós kom að neyðar-
sendir í innpökkuðum gúmmíbát
hafði farið í gang.
-hs.
Fíkniefnadómstóllinn:
Dæmt í stóra
kókaínmálinu
Fíkniefnadómstólinn dæmdi í
gær í stóra kókaínmálinu svo-
kaflaða.
í ákæru, sem gefin var út hinn
11. okt. síðaslliðinn á hendur
þrem mðnnum, var þeim gefið að
sök að hafa staðið fyrir stórfelld-
um innflutníngi og dreifíngu á
kókaíni. Allir þrír ákærðu hlutu
dóm fvrir dreifingu og sölu á um
einu kflói af kókafni sem þeir
fluttu inn með bifreið frá Banda-
ríkjunum. Dóminn kvað upp
Guðjón St. Marteinsson saka-
dómari og hljóðaði hann þannig:
Einn mannanna fékk 2 1/2 árs
fangelsi, annar 3 1/2 ár og sá
þriðji 4 1/2 ár.
Nýtt íslenskt fyrirtæki á Spáni,
Union Islandia S.A.:
Fyrsta dottur-
fyrirtæki SIF
Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda stofnaði fyrir
skömmu hlutaféiagið Union Is-
landia S.A., sem tekur við allri
sölu- og markaðsstarfsemi sölu-
skrifstofu SÍF í Barcelona á
Spáni. Tilgangurinn er að efla
enn frekar aUa sölustarfsemi á
Spánarmarkaði, sem er mjög
mikilvægur fyrir saltfiskfram-
leiðslu landsmanna.
Union lslandia S.A. er fyrsta
erlenda dótturfyrirtæki SÍF, en
söluskrifstofa hefur verið starf-
rækt í Genúa á ítaUu, auk skrif-
stofunnar í Barcelona.
Á síðastliðnu ári voru flutt út
til Spánar 10 þúsund tonn af
saltfiski á vegum SÍF, að verð-
mæti þriggja milljarða íslenskra
króna. Megnið af útflutningnum
fer um höfnina í Bilbao þar sem
starfrækt er stór kæli- og salt-
fiskskemma á vegum Sölusam-
bandsins.
- ÁG
Horfur á aóöum
9*
heimtum í nafbeit
Lax er farinn að skila sér í haf-
beitarstöðvar viða um land.
Hann er fyrr á ferðinni núna en i
fyrra sumar, en það sumar olli
forsvarsmönnum hafbeitar-
stöðvanna vonbrigðura. Sem
dæmi um beimtur má nefna að
yfir 200 laxar eru komnir á land
hjá Vogalaxi, um 50 laxar hjá
Silfurlaxi i Hraunsfirði og
nokkrir tugir hjá Lárósi. Megn-
ið af þeim fisld, sem borist liefu r
á land til þessa, eru vænar
tveggja ára hrygnur. Tveggja
ára laxinn skilar sér að jafnaði
fyrr, en þegar líður á sumarið fer
eins árs fiskurinn að kom líka.
Enn sem komið er er ekkert
hægt að fullyrða um hvernig
sumarið verður. Margt bendir
þó tíl að þetta sumar verði betra
en sumarið í fyrra, a.in.k. er lax-
inn fyrr á ferðinni núna. Haf-
beitarmenn vonast eftir að eins
árs laxinn, sem skilaði sér ekki i
fyrra í þeim mæli sem búist var
við, komi núna sem vænn
tveggja ára. -EÓ