Tíminn - 06.06.1990, Síða 13
Miðvikudagur 6. júní 1990
Tíminn 13
REYKJAVÍK
Þökkum stuðninginn í kosningunum.
Fulltrúaráö Framsóknarfélaganna í Reykjavík þakkar Reykvíkingum
stuðninginn í kosningunum 26. maí sl. Sérstakar þakkir færum viö
öllum þeim fjölda, sem lagði á sig mikla vinnu við að tryggja kjör
fulltrúa Framsóknarflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur.
Fulltrúaráðið.
m
Lokað vegna sumarleyfa
Skrifstofur Framsóknarflokksins að Nóatúni 21 verða lokaðar frá og
með 2. júní 1990, vegna sumarleyfis starfsfólks.
Framsóknarflokkurinn.
Kópavogur - Hluthafafundur
Hluthafafundur verður haldinn í Framnesi hf. miðvikudaginn 6. júní
nk. á Hamraborg 5, kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Húsnæðismál.
2. Hlutafjáraukning.
Önnur mál.
Stjórnin.
Landsstjórn og
framkvæmdastjórn L.F.K.
Sameiginlegur fundur verður haldinn mánudaginn 11. júni kl. 18.00.
Umræðuefnið er: Úrslit sveitarstjórnarkosninganna og verkefni næstu
mánaða.
Stjórn L.F.K.
Ifi Borgarskipulag
Reykjavíkur
vill minna á sýningu á hverfaskipulagi borgarhluta
1, Gamla bænum, sem stendur yfir í Byggingar-
þjónustunni við Hallveigarstíg. Sýningunni lýkur þ.
16. júní nk. Hægterað fá kortaf hverfaskipulaginu
afhent á Borgarskipulagi, Borgartúni 3, 3ju hæð.
Verðlaunatillögur úr skipulagssamkeppni á Geld-
inganesi eru einnig til sýnis á sama stað.
FLUGMÁLASTJÓRN
Bóklegt
atvinnuflugnám
Flugmálastjórn mun standa fyrir bóklegri kennslu
fyrir væntanlega atvinnuflugmenn í samstarfi við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja skólaárið 1990-1991,
ef næg þátttaka verður.
Kennt verður í kennsluhúsnæði Flugmálastjórnar
á Reykjavíkurflugvelli.
Inntökuskilyrði eru einkaflugmannsskírteini og
stúdentspróf (þar af a.m.k. 3 einingar í eðlisfræði).
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Flugmála-
stjórnar í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Um-
sóknir þurfa að hafa borist þangað fyrir 1. júlí nk.
Umsóknum skal fylgja:
Staðfest Ijósrit af stúdentsprófi,
Ijósrit af einkaflugmannsskírteini og
I. flokks heilbrigðisvottorð frá trúnaðarlækni
flugmálastjórnar.
Flugmálastjórn
I faömi fjölskyldunnar unir hann sér best
Gibson á göngu með eitt bama
sinna.
FJÖLSKYLDUMAÐUR-
INN MEL GIBS0N
Hann hefur fengið viðumefnið
kynþokkafyllsti maður í heimi og
konur dá hann. En í raun er Mel
Gibson harðgiftur maður og hefur
verið það síðastliðin níu ár. Hin
heppna heitir Robyn og flutti inn til
Gibson’s aðeins sem herbergisfé-
lagi til að byija með. Eithvað þró-
uðust málin því sex árum síðar giftu
þau sig.
Gibson og Robyn eru bæði kaþ-
ólsk og hafa ekki mikið álit á notk-
un getnaðarvama. Sjálf eiga þau nú
sex böm og ætla enn að stækka við
hópinn.
Gibson kemur úr stórri fjölskyldu
svo ekki sé meira sagt því þau era
11 systkynin.
„Eg elska böm“, segir Gibson,
„Þau era það yndislegasta sem til er
og þau veita manni svo mikla gleði
og hamingju".
„Faðir minn gaf mér heilræði og
það var það að ég átti að ná mér í
gáfaða eiginkonu", segir kappinn.
Gibson hefur mikið álit á konum
og segist alls ekki geta sætt sig við
þá skoðun að konur séu jafnokar
karla. „Flestar konur myndu ekki
sætta sig við að vera settar svo lágt“
segir hann
Þessi vinsæli leikari átti við tíma-
bundið áfengisvandamál að stríða
en segist nú neita sopanum.
„Eg er hamingjusamur maður í
dag og kann að meta það sem ég
hef. „Fjölskyldan er það mikilvæg-
asta í lífi mínu og ekkert annað gæti
komið í stað hennar“, segir Gibson.
Hvert er síðan álit Gibson’s á viður-
nefninu kynþokkafyllsti maður
heims? „Mat fólks á því hvað sé
kynþokki og hvað ekki er svo mis-
jafnt og því er út í hött að staðhæfa
eitthvað í þeim efhum”, segir hann.
„En ég veit svo sem að ég er ekkert
ljótur", segir Gibson og setur upp
svip sem segir allt sem segja þarf
um þau efni.