Tíminn - 15.06.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 15. júní 1990
Tíminn 3
VATNSSKORTUR
í KÓPAVOGI
ISLENSKU FYRIRTÆKI
SENT HÓTUNARBRÉF
íbúar við Engihjalla í Kópavogi hafa
búið við skort á neysluvatni um nokkra
hríð vegna þrýstingsskorts á vatnsdæl-
um, að sögn Einars I. Sigurðssonar, heil-
brigðisfúlltrúa Kópavogs.
Einar sagði að heilbrigðisneíhd Kópa-
vogs hefði borist kvartanir vegna þessa,
en vatnsskorturinn vasri misjafh og ekki
væri um neina neyð að ræða.
,d>að er ekkd hægt að segja að skortur-
inn sé mikill, en það hefur borið dálítið á
þessu,“ sagði Einar.
Sigurður Bjömsson, bæjarverkfræð-
ingur í Kópavogi, sagði að búið væri að
ráða bót á þessu til bráðabiigða og að
endanleg lausn fengist svo með haust-
inu með þvi að byggja nýja dælustöð
einungis fyrir þetta hverfi.
Sigurður sagði að aukin notkun í hverf-
inu eftir því sem það byggðist meira
væri aðalorsök þrýstingsskortsins, en nú
ættu engir Kópavogsbúar við vatnsskort
að striða.
„Dælur voru ekki nógu afkastamiklar,"
sagði Sigurður. „Það fór einnig eftir því
hve húsin eru há, því skorturinn var bara
á efstu hæðunum."
Heilbrigðisnefiid Kópavogs hefur
einnig farið fram á það við bæjaryfir-
völd að kannað verði hvort leki sé í
pípukerfi neysluvatns. Einar sagði að
Vatnsveita Reykjavíkur hefði gert kann-
anir sem leiddu í ljós mikinn leka og
með viðgerðum verulega minnkað
vatnsneyslu hjá sér.
„Svona þrýstingsleysi getur m.a. stafað
af leku kerfi,“ sagði Einar.
Ekki var um leka í pípukerfinu að ræða
í Engihjalla að sögn Sigurðar.
íslensku fýrirtæki barst hótunarbréf
frá erlendu fyrirtæki eftir að það fyrr-
nefhda neitaði að setja auglýsingu í
sérrit hins, að því greint er frá í nýj-
asta tölublaði fréttaritsins Viðskipti.
Erlendi aðilinn, sem hefur aðsetur í
Brussel, leitaði eftir auglýsingu frá
fyrirtækinu, og átti hún að birtast í
sérriti þess og egypsks dagblaðs, að
því segir f Viðskiptum, fréttariti Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna og
Verslunarráðs Islands.
íslenska fyrirtækið mun hafa af-
þakkað boðið, en þá barst því bréf
með hótun um að illa yrði skrifað um
fyrirtækið ef það keypti ekki eina til
tvær síður af auglýsingum.
Sigmar Þormar, efnisstjóri Við-
skipta, sagði þetta eina dæmið af
þessu tagi sem borist hefði Skrifstofú
viðskiptalífsins, en hann gat ekki gef-
ið upp nafn íslenska aðilans.
Sigmar sagði hins vegar að fjöldi
mála lægi fyrir um erlend skráningar-
fyrirtæki sem byðu upp á þátttöku í
viðskiptaskrám gegn háu ársgjaldi,
en ekki er tekið gjald fyrir að fá að
vera í stærstu fyrirtækjaskrám Evr-
ópu. Sigmar sagði að ástæða væri
fýrir fyrirtæki að vera á varðbergi
gegn bréfum sem þessum,- SO.
Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar
Aiuiað kvöld frumsýnir Þjóðleikhús-
ið á Kjarvalsstöðum leikgerð Hall-
dórs Laxness á sögum og kvæðum
Jónasar Hallgrímssonar við tónlist
eftir Pál ísólfsson. Leiksýningin „Úr
myndabók Jónasar Hallgrimssonar“
var fiumflutt í leikstjóm Lámsar
Pálssonar á Listamannaþingi í
Tripolíbíói árið 1945 á hundrað ára
ártið Jónasar Hallgrimssonar. Sú
leiksýning þótti takast einkar vel og
er eftirminnileg þeim sem hana sáu
þó böm væm að aldri, eins og Guð-
rúnu Þ. Stephensen, leikstjóra sýn-
ingarinnar í dag, og Þuriði Pálsdóttur
söngkonu sem þá söng sína fyrstu
tóna opmberlega í Kossavísum en er
nú tónlistarstjóri sýnúigarinnar.
Handritið að þessari sýningu var
komið í glatkistuna en í tilefhi Jónas-
arþings fóm þær listakonumar, Guð-
rún og Þuríður, á stúfana og tókst að
finna handritið og bættu síðan við
það nokkrum atriðum í samráði við
Halldór Laxness. Leiksýningin er
einkum byggð upp á leikgerð af æv-
intýrum Jónasar en í sýnmguna
tvinnast ljóð, söngur, ballettar og lát-
bragðsleikur. Þjóðleikhúsið tók að
sér að setja sýninguna á svið en frum-
sýnmgin verður á vegum Jónasar-
þrngs sem er Félag áhugamanna um
bókmenntir.
NÚ ER HANN ÞREFALDUR!
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Lottó
er fyrir alla...
.. .líka þig!