Tíminn - 22.06.1990, Qupperneq 4
4 Tíminn
Föstudagur 22. júní 1990
FRÉTTAYFIRLIT
TEHERAN - Öflugur jarð-
skjálfti reiö yfir landsvæði í
(ran við Kaspíahaf. Meira en
10.000 menn slösuðust eða
dóu. ( skjálftanum hrundu öll
hús í mörgum þorpum. í að-
alstöðvum neyðarhjálpar
Sameinuðu þjóðanna í Brus-
sel var haft eftir (rönum að
3710 menn hefðu dáið. Út-
varpið í Teheran sagði að
þúsundir hefðu dáið í norð-
vesturhéraðinu Zanjan.
Björgunarmenn komust ekki
til neyðarsvæðanna vegna
þess að heilar fjallshlíðar
höfðu hrunið yfir vegi. Jarð-
skjálftinn mældist 7.3 stig á
Richter-kvarða.
MOSKVA - Forseti Rúss-
lands, Bóris Jeltsín, sagðist
hafa hvatt Míkael Gorbat-
sjov til að segja af sér emb-
ætti flokksleiðtoga. Hann
sagði að forsetaembættið
sem Gorbatsjov gegnir líka
væri fullt starf fyrir einn
mann. Sjálfur hefur Jeltsín
sagst hugleiða að segja sig
úr kommúnistaflokknum en
gegna áfram embætti for-
seta Rússlands. Aöalritari
NATÓ sagðist vera viss um
að Gorbatsjov myndi halda
völdum þrátt fyrir ákafa
gagnrýni sem hann hefur
sætt.
AMSTERDAM - Maður
grunaður um að vera í IRA,
var kærður fyrir að hafa
drepið tvo ástralska lögfræð-
inga i síðasta mánuði. Þeir
voru drepnir í misgripum fyr-
ir breska hermenn.
BÚKAREST - Bróðir Niku-
lásar Ceausescus, einræð-
isherrans sem var tekinn af
lífi siðasta jóladag, var
dæmdur í 15 ára fangelsi
sakaður um þjóðarmorð.
NEW-YORK - Nelson
Mandela deildi hart við Suð-
ur-Afríkustjórn á öðrum degi
heimsóknar sinnar í New-
York. Deilt var um hvor aðil-
inn kæmi í veg fyrir viðræður
um endalok hvítrar stjórnar í
S-Afríku.
BÚDAPEST - Ungverjar
opnuðu að nýju hlutabréfa-
markað sinn sem kommún-
istar lokuðu fyrir 42 árum
KOLOMBÓ - Öryggissveit-
ir á Srí Lanka náðu aftur á
sitt vald héraði í austurhluta
landsins eftir harða bardaga
í 11 daga að sögn ríkisstjórn-
arinnar. Aðskilnaðarsinnaðir
Tamílar höfðu áður héraðið
á valdi sinu.
PORT-AU-PRINCE - Að
minnsta kosti fjórir byssu-
menn hófu skothríð á fundi
verkalýðsleiðtoga og ríkis-
stjórnar á Haítí. Einn maður
dó og að minnsta kosti tveir
særðust að sögn útvarps-
stöðvar.
Trabant og Benz. (hugum margra tákn Austur- og Vestur-Þýskalands.
Austur-þýska þingið samþykkir landamæri og efnahagssamning:
Hindrunum rutt úr
vegi sameiningar
Austur-þýska þingið ruddi úr vegi tveimur mikilvægum hindr-
unum fýrir sameiningu Vestur- og Austur- Þýskalands í gær
með því að viðurkenna að landamæri Póllands væru endan-
leg og með því að samþykkja samning um efnahags- og
gjaldeyrissamruna sem ríkisstjómir landanna hafa undirrítað.
Búist var við því að v-þýska þingið
myndi gera slíkt hið sama seinna um
daginn. Helmut Kohl kanslari sagði á
v-þýska þinginu að Þjóðverjar í báð-
um löndunum ættu að grípa þetta
sögulega tækifæri til sameiningar og
sætta sig við landamissinn til Pól-
lands sem væri það verð sem greiða
þyrfti fyrir sameininguna. „í dag
stöndum við frammi fýrir einföldu
vali. Annað hvort staðfestum við nú-
verandi landamæri eða missum af
tækifæri á þýskri sameiningu", sagði
hann. Hann hvatti líka V-Þjóðverja til
að sætta sig við efnahagslegar fómir
við að hjálpa bágbomum efhahagi
Bandaríkin:
Aðstoða ekki
Sovétstjórn
Austur- Þjóðveija til að rétta úr kútn-
um. Ein aðalhindrunin í vegi alþjóð-
legrar viðurkenningar á sameinuðu
Þýskalandi hefúr verið tregða margra
Þjóðverja viðað viðurkenna landa-
mærin við Oder og Neisse-fljótin
sem nú skilja að Pólland og A-Þýska-
land.
Tákn kaldastríðsins, landamæra-
stöðin „Checkpoint Charlie“ verður
rifin í dag, föstudag að viðstöddu
flölmenni. Við þá athöfn verða við-
staddir utanríkisráðherrar fyrrver-
andi Bandamanna úr stríðinu frá
Bandaríkjamenn, Sovétmenn, Bretar
og Frakkar auk utanríkisráðherra
þýsku ríkjanna. Öll landamæragæsla
um Berlín mun enda 2. júlí þegar v-
þýska markið verður gjaldmiðill
Austur- Þjóðverja.
Fyrrverandi félagar
um Lech Walesa:
Ognvið
Fyrrverandi fétagar Lech Walesas
réðust að honum í gær vegna lát-
lausrar gagnrýni hans á ríkisstjórn
Samstöðu. Þeir sögðu að Walesa
væri farinn að ógna veikburða iýð-
ræði í landinu. Bronislaw Geremek,
sem cr áhrifanukill talsrnaður Sam-
stöðu á þingi iandsins, andmæiti
Walesa vegna orða, sem hann lét
hafa cftir sér i viðtaii á miðvikudag,
um að hann lýsti yfir striði við ráða-
menn og kreiðist þess að hann yrði
kjörinn forseti og gæti stjórnað með
tilskipunum. „Ég held að herra Wa-
iesa geri sér ekki grein fyrir því að
með hngsunum sínum, orðum og
yfirlýsingum er hann að skapa ógn-
un við hið viðkvæma iýðræði sem
komist hefur á I Póllandi“, sagði
Gcremek í útvarpi Póiverja.
Hann sagði að kröfur Walesas um
örari breytingar, endurspegluðu
aðeins ósk hans um að verða sem
fyrst kosinn forseti iandsins. Walesa
sagði á miðvikudag að hann myndi
neyðast til að gerast forseti og beita
cxi til að hraða umbótum og koma í
veg fyrir að Samstaða einokaði öll
völd. Geremik sagðl um þessi orð að
það ætti betur við að skógarhöggs-
maður talaði um að halda á exi
heldur en sljómmálamaður. Orð
hans eru harðasta gagnrýni sem
gamlir samstöðufélagar Walesa
hafa látið hafa eftir sér en margir
hafa í einkaviðræðum lagst gegn
því að hann yrði forseti og sagt að
hann skorti bæðí mcnntun og rétt
uppeldi tU að gegna slikri stöðu.
Dagblaö ríkistjórnarinnar Rzecz-
popolita varaði við þvi að Waiesa
græfi undan lýðræðinu. „Öðru
hverju heyrist sagt að þörf sé á að
Stjómað sé mcð sfyrkri hendi,“
sagði blaðið. „Þetta er auðveldasta
leiðin til að grafa undan lýðræði.
Þreytt þjóð á auðvelt með að sam-
þykkja sterka stjórn“.
Bandaríkjastjóm hefur gefið sterk-
lega í skyn að hún muni ekki taka
undir tillögu Frakka og V- Þjóðverja
um efnahagsaðstoð við Sovétríkin.
Embættismaður í föruneyti Bakers ut-
anríkisráði.erra, sem nú er i Berlín,
sagði fréttamönnum að „það væri lík-
legur möguleiki að Bandaríkjamenn
myndi ekki leggja til fé í slíka að-
stoð“. Frakka og V-Þjóðverjar hafa
lagt til að Sovétmenn verði styrktir
með 20 milljónum dala og verði það
hluti af ráðstöfunum til að sætta þá við
aðild Þýskalands að NATÓ. Utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, James Bak-
er, sagði við fréttamenn: „Það þurfa
að gerast umtalsverðar umbætur í
Sovétríkjunum áður en slík aðstoð
gæti komið að gagni". Að auki sagði
hann að Bandaríkjastjóm myndi eiga
bágt með að fá slíka aðstoð sam-
þykkta í landi sínu á meðan Sovét-
menn héldu áfram íjárhagsstuðningi
við Kúbu, Norður- Kóreu og Víetnam
en Bush sagði að önnur Austur-Evr-
ópuríki, sem fengið hafa aðstoð, veiti
ekki fé til þessara landa.
Bush Bandaríkjaforseti og Gorbat-
sjov Sovétleiðtogi undirrituðu við-
skiptasamning á fundi sínum fyrr í
þessum mánuði en Bush hefúr sagt að
hann muni ekki biðja Bandaríkjaþing
um að staðfcsta samninginn fyrr en
Sovétmenn setji ný lög um frelsi til að
yfirgefa landið.
Utanríkisráðherra Austur- Þýska-
lands Markús Meckel sagði á þriðju-
dag að hann myndi leggja til að leið-
togar NATÓ og Varsjárbandalagsins
héldu fúnd til að ræða hemaðarstöðu
sameinaðs Þýskalands en embættis-
BNA frestar viðræðum við PLO:
Harmur og
fögnuður vegna
viðræðuslita
James A. Baker utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna.
maður Bandaríkjastjómar sagði það
vera afar ólíklegt að Bandaríkjastjóm
samþykkti slíka tillögu.
Ákvörðun Bandaríkjastjómar um
að slíta viðræðum við PLO a.m.k.
um tíma var fagnað af sumum en olli
reiði annarra á fimmtudag. Eins og
búast mátti við fagnaði Israelsstjóm
tilkynningu Bush á miðvikudag um
að slá á frest viðræðunum sem hafa
staðið í 18 mánuði. Hún lýsti líka
þeirri von að viðræðumar yrðu ekki
hafnar að nýju en Bush skaut ekki
loku fyrir það ef PLO fordæmdi mis-
heppnaða sjóárás í síðasta mánuði.
Bandaríkjaþing sem styður eindregið
Pentagon hættir
við framkvæmdir
Vamarmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna lagði í gær fram tillögur fýrir
þing Bandaríkjanna um að hætt yrði
við hemaðarframkvæmdir fyrir
327.4 milljónir bandaríkjadala.
Flestar þessar ffamkvæmdir áttu að
verða í V-Þýskalandi en að auki var
lagt til að áfram verði beðið með
framkvæmdir sem kosta mundu 6.7
milljarða dala víða um heim. Tals-
maður vamarmálaráðuneytisins
Pete Williams sagði að enn frekari
niðurskurðar væri að yænta í fjár-
lögum Bandaríkjahers.
ísraela og róttækir Palestínumenn,
sem em andvígir Arafat, fögnuðu yf-
irlýsingunni. Hins vegar hörmuðu
hófsamir leiðtogar PLO að viðræðum
væri slitið og kenndu Washington um
að hafa mistekist að fá ísrael til frið-
arviðræðna. Sjálfúr viðurkenndi
Bush að yfirlýsing sín gæti styrkt
stöðu harðlínumanna í Miðaustur-
löndum. Arababandalagið, samtök
tuttugu og eins arabaríkis, sagði að
ákvörðun Bush væri óréttlætanleg.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna Javi-
er Perez de Cuellar og leiðtogar Jórd-
aníu sögðust vona að viðræður hæf-
ust brátt að nýju. Mitterand Frakk-
landsforseti sagði r gær á blaða-
mannafundi að Bandaríkjamenn ættu
að vera jafn ákveðnir við ísraels-
menn og þeir væm við PLO. Tals-
maður utanríkisráðherra Frakka hafði
áður sagt að Frakkar myndu halda
áfram að ræða við alla aðila deilunn-
ar.
Talsmenn PLO sögðu að alþjóða-
þrýstingur myndi á endanum neyða
Bandaríkjamenn til að viðurkenna
PLO og sögðu að hingað til hefði
þeim þótt Bandaríkjamenn aðeins
ætlast til að PLO léti af kröfúm sín-
um en fengi ekkert í staðinn.