Tíminn - 22.06.1990, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Föstudagur 22. júní 1990
Föstudagur 22. júní 1990
Tíminn 9
:
E
Sextíu ár liðin frá stofnun Sólheima í Grímsnesi og þar með fyrstu skipulögðu starfseminnf fyrir þroskaheft fólk á Islandi
Hinn 5.júlí n.k. eru 60 ár liðin frá því að
skipulagt starf fyrir fatlaða hófst á Islandi,
með stofnun Sólheima í Grímsnesi. I tilefni
afmælis heimilisins verður gestum boðið til
sérstakrar hátíðardagskrár á afmælisdaginn
og helgina 7. og 8.júlí verður opið hús á
Sólheimum.
Þessa daga verður ýmislegt á döfinni til
hátíðabrigða og m.a. mun Leikfélag Sól-
heima sýna Ævintýrið um stígvélaða kött-
inn. Þá verður einnig opnuð ljósmyndasýn-
ing og sýning á myndverkum heimilisfólks,
auk þess sem boðið verður upp á veitingar.
Ævintýralegt þrekvirki
Bygging Sólheima á sínum tíma var gríð-
arlega mikið brautryðjandastarf og voru
Sólheimar fyrsta heimilið fyrir þroskahefta
einstaklinga. Upphaflega voru þó Sólheim-
ar ætlaðir sem bamaheimili og í þeim til-
gangi keypti bamaheimilisnefnd þjóðkirkj-
unnar jörðina Hverakot í Grímsnesi, þar
sem Sólheimar standa nú. Þetta gerðist árið
1930, en þá var ætlun þjóðkirkjunnar að
byggja slíkt bamaheimili í hverjum lands-
fjórðungi, en aðeins var byggt heimili á
Suðurlandi.
Það má segja að upphafið hafi verið ævin-
týralegt. I marsmánuði 1930 kom til lands-
ins Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir, sem
hafði verið að nema uppeldisfræði í útlönd-
um. Þáverandi formaður bamheimilis-
nefndar þjóðkirkjunnar, Guðmundur Ein-
arsson, fyrrv. prestur á Mosfelli, bað Sess-
elju í seinni hluta marsmánaðar að hafa um-
sjón með byggingu Sólheima. Hinn 10. maí
1930 var Sesselja kominn upp eftir með
tjald ásamt bróðursyni sínum og hóf að
leggja drög að byggingu heimilisins. Fyrstu
bömin komu síðan 5. júlí, sem er afmælis-
dagur Sólheima og jafnframt afmælisdagur
Sesselju. Sesselja, bróðursonur hennar og
bömin bjuggu í tjöldum fram í miðjan nóv-
ember, en þá var kjallari fyrsta hússins til-
búinn og bjuggu þau þar við erfið skilyrði
fyrsta veturinn. Engir vegir voru á staðnum
og því þurfti að fara með byggingarefnið 10
km leið yfir vegleysur og mýrlendi.
Fyrst um sinn voru Sólheimar bamaheim-
ili en þróaðist strax á fyrsta ári í heimili fyr-
ir þroskahefta. Einnig ólust böm, sem
bjuggu við erfiðar félagslegar aðstæður,
upp á staðnum fyrstu árin.
Þess má geta að Jónína Mikaelsdóttir, rit-
höfundur, vinnur nú að gerð bókar um Sess-
elju og það þrekvirki sem hún vann.
Aðalsmerki Sólheima
Eins og áður segir var Sesselja menntuð í
uppeldisfræðum, svokallaðri antroposop-
hie, og áhrif þessara fræða á starfsemi Sól-
heima voru og eru enn afgerandi. Sem
dæmi má nefna að Sólheimar eru ekki
stofnun heldur heimili, þar sem starfsfólk á
heimiliseiningum vinnur eftir vinnulotu-
kerfl í samfellt ljóra sólarhringa á móti
hverju íjögurra sólarhringa fríi, í stað hefð-
bundins vaktkerfis í sambærilegri starf-
semi. Með þessu næst ákveðinn stöðugleiki
milli starfsfólks og vistmanna. Heimilislíf
mótast einnig af því að starfsfólk býr með
vistfólki á sex heimiliseiningum og skapar
þannig mikilvæga festu og öryggi í lífi
þess.
Að sögn Olafs Mogenssen, forstöðumanns
Sólheima, er hér um að ræða eitt aðals-
merki Sólheima ásamt þeirri áherslu sem
lögð er á að vistmenn gangi til fastrar vinnu
milli níu og fimm á daginn. Sú vinna er
mjög margvísleg og reynt er að sníða vinn-
una eftir getu hvers og eins. Unnið er á
verkstofu, smíðastofu, við kertagerð, skó-
rækt, garðyrkju eða eldhússtörf svo eitt-
hvað sé nefnt og á sumrin vinna allir úti.
Allt hráefni er úr lífrænum efnum og vör-
Eftir
Guðmund
Steingríms- Ék 1
son
umar frá vinnustofunum eru eftirsóknar-
verðar og hafa skapað sér orðstír fyrir gæði.
Lifandi menningarstarfsemi
Sesselja átti sér draum um lifandi menn-
ingarstarfsemi innan vébanda heimilisins.
Árið 1931 hóf Leikfélag Sólheima starf-
semi sína með uppfærslu á leikritinu Ásu
eftir Margréti Jónsdóttur. Leikfélagið hefur
síðan verið mjög virkt og sett upp a.m.k.
eitt leikverk á ári. Félagið er aðili að banda-
lagi íslenskra leikfélaga og tekur þátt í
þeirri starfsemi. Þessi menningarstarfsemi
var mikil nýjung, þar sem þroskaheflir nutu
víðast hvar mjög skertra mannréttinda á
þessum tíma.
Nú er einnig starfrækt á staðnum mjög öfl-
ugt íþróttafélag, sem tekur virkan þátt í allri
íþróttastarfsemi fyrir fatlaða. Skátafélag
hefur einnig verið starfandi en er af ýmsum
ástæðum ekki í gangi í augnablikinu og
blandaður kór heimilisfólks og starfsmanna
er starfræktur á staðnum. Að sögn Olafs
hafa þessi atriði verið burðarásinn í félags-
lífi Sólheima.
Nýjungar á sínum tíma
Fjölmargar nýjungar á Islandi litu dagsins
Ijós með byggingu Sólheima. T.d. var með
sérstakri byggingarlist leitast við að gera
umhverfið aðlaðandi og hlýlegra. Þá var
fjölbreytt mataræði í hávegum haft með
áherslu á neyslu grænmetis og kommetis á
þeim tímum þegar umræða um heilbrigt
mataræði var nánast óþekkt fyrirbæri hér-
lendis.
I dag er áhersla lögð á varðveislu þeirra
hefða og sérkenna sem Sólheimar hafa til-
einkað sér frá fyrstu tíð, en stefna Sólheima
er ekki bundin í neinn hugmyndafræðilegan
klafa.
Bjarga sér með
fjárstyrkjum
Sólheimar eru sjálfseignarstofnun innan
þjóðkirkjunnar, en þjóðkirkjan rekur ekki
heimilið. Sólheimar em á föstum fjárlögum
og fá fé frá ríkinu í rekstrarkostnað og til
launagreiðslna, en á Sólheimum em 32
starfsmenn. Allt fé til uppbyggingar og
endurnýjunar hefur heimilið afiað sér að
mestu sjálft í gegnum árin og reitt sig á ljár-
hagsstuðning fyrirtækja, stofnanna og ein-
staklinga.
Að sögn Olafs hefur mikið uppbyggingar-
starf verið unnið á Sólheimum og staðurinn
hefur verið meira eða minna endumýjaður.
Samkomuhús hefur verið byggt, en fræg er
söfnun Reynis Péturs fyrir því á sínum
tíma. Þá er risið nýtt húsnæði fyrir vinnu-
stofur og unnið er að byggingu og endur-
nýjun heimiliseiningar fyrir vistmenn. Fyr-
i-: þeirri byggingu hafa safnast átta og hálf
milljón, en sú söfnun hefur að mestu farið
fram á bak við tjöldin með símhringingum í
fyrirtæki og samtök.
„Alveg frá upphafi hafa Sólheimar reitt sig
á styrki fyrirtækja og samtaka. Og vegna
þess að við höfum verið dugleg að bjarga
okkur á því sviði þá fáum við ekki eðlilega
fyrirgreiðslu frá þeim sjóðum sem eiga að
íjármagna svona framkvæmdir. Við höfum
verið látin sjá um okkur sjálf, og það er allt
HOFSTI EINU TJALDI
Fólk hrífst af staönum
Frá einni sýningu Leikfélags Sólheima, en þær hafa veríð margar um dagana.
í lagi. Við björgum okkur,“ segir Ólafur. fjölga vistmönnum. Vistmenn hafa verið í nýjum vistmönnum kemur á ári hverju. aldursflokk, þ.e. fýrir fólk sem er tilbúið til
kringum 40 manns síðustu áratugi og eru nú Fólkið sem nú dvelur á Sólheimum er allt þess að fara að vinna. Það er á öllum stigum
EkkÍ Stefna aö 39. Mjög hæg endumýjun á fólki er á Sól- komið af skólaskyldualdri og er því yfirleitt Fótlunar en flest fólkið er þó sjálfbjarga. Við Fjöldi fólks kemur í heimsókn á Sólheima
..... . .. heimum og visskjami, um fjórðungur fólks- á aldrinum 16-18 ára þegar það kemur á höfum lagt áherslu á að kenna þeim að daglega og finnst flestum þangað gaman að
TJOiga Vistmonnum ins, hefur verið þar í áratugi. Einn eða tveir staðinn. vinna og það vinna allir eitthvað. Við sníð- koma. Óhætt er að fullyrða að fólk hrífist af
Ólafur segir það ekki stefnu Sólheima að fara frá Sólheimum árlega og álíka fjöldi af „Staðurinn er byggður upp íyrir þennan um störfin að þeirra getu,“ segir Ólafúr. staðnum, þeim góða anda sem þar ríkir og
þeirri starfsemi sem þar er starfrækt og hef-
ur verið starfrækt við góðan orðstír í 60 ár.
GS.
• M
,