Tíminn - 22.06.1990, Síða 16
AUGL.YSINGASIMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu.
S 28822
UERÐBRÉFAVHðSKIPÍI
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568
3 NI55AN
1 r léttur bíll á éttum stað. Sœvamöfóa 2 simi 91-€74000
LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM
Kringlunni 8-12 Sími 689888
Tímiim
FÖSTUDAGUR 22. JÚN11990
Kröfuganga og fjölmennur fundur BHMR á Lækjartorgi til að mótmæla frestun á ákvæði kjarasamnings:
Launabót strax eða
úrskurð Félagsdóms
„Látum frumhlaup rikisstjómarinnar verða stjomvoldum lex-
íu í því að orð skuli standa. Sýnum samstöðu," sagði Páll
Halldórsson formaður BHMR á um eitt þúsund manna fundi
BHMR á Lækjartorgi í gær. Til fundarins var boðað til að mót-
mæla ákvörðun rikisstjómarinnar um að fresta ákvæði í
kjarasamningum bandaiagsins og ríkisins um nýtt launakerfi
háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna.
Páll Halldórsson sagði í ávarpi sínu
til íundarmanna að umræddri leið-
réttingu heíði nú þegar verið írestað í
heilt ár og um framkvæmd gerðra og
fullgildra kjarasamninga yrði ekki
samið nú. Skilaði leiðrétting sú sem
átti að gera á launakerfmu, sér ekki í
launaumslögin um næstu mánaða-
mót, þá yrði meintu samningsbroti
ríkisins skotið til Félagsdóms mánu-
daginn 2. júlí.
A fundinum héldu ræður auk Páls,
þau Broddi Broddason frá Félagi
fréttamanna, Júlíus K. Bjömsson frá
Sálfræðingafélagi íslands, Elna
Kristín Jónsdóttir frá HÍK, Óskar Sig-
urðsson frá Félagi íslenskra náttúru-
fraeðinga.
I máli ræðumanna kom fram að
helsta markmið kjarasamnings
BHMR og ríkisins hefði verið að færa
kjör háskólamanna í átt til jöfhunar
við kjör sambærilega menntaðs fólks
sem starfar á almenna vinnumarkaðn-
um. Með samningunum hefði verið
viðurkenndur réttur ríkisstarfsmann-
anna til sambærilegra kjara. Svoköll-
uð þjóðarsátt síðar - orð sem fúndið
hefði verið upp eftir samninga ASÍ,
VSÍ og BSRB - kæmi samningum
BHMR ekkert við. „Sátt okkar em
kjarasamningar BHMR og ríkisins
sem samþykktir vom samhljóða af21
aðildarfélagi sambandsins,“ sagði
Broddi Broddason í ræðu sinni.
í fúndarlok gengu fundarmenn upp á
Stjómarráðstún en á tröppum Stjóm-
arráðsins var Steingrími J. Sigfússyni
afhent yfirlýsing stjómar BHMR þar
sem frestun ríkisstjómarinnar á gild-
istöku nýja launakerfisins er mótmælt
og að ákvörðun ríkisstjómarinnar eigi
sér enga stoð í lögum og sé árás á
samningsrétt háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna og lýðræðið í landinu.
—sá
■
Sitjandi fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon tekur glaðhlakkalegur við mótmælum BHMR úr
hendi Elnu Kristínar JÓnsdÓttur. Timamynd; Ámi Bjama.
Akureyri:
Fjölmenn
MA-hátíð
Fjölmenn hátíð gamalla stúdenta
frá Menntaskólanum á Akureyrí
var haldin í íþróttahöllinni á Akur-
eyri að kvöldi 16. júní. Um 800
manns mættu í höllina og snæddu
kvöldverð. Að því búnu var boðið
uppá fjölbreytta skemmtidagskrá
og dansinn stiginn ffarn eftir nóttu.
Besta skemmtunin að mati við-
mælenda Tímans, var að hitta
gömlu skólafélagana og rifja upp
minningar skólaáranna. Hátíðin
þótti takast með afbrigðum vel, og
stefnt er að því að gera hana að ár-
vissum viðburði. Víst er að ekki
mun þátttakendur skorta, því mik-
ill fjöldi sækir skólann heim ár
hvert um skólaslit, og virðist sú
mikla rækt sem gamlir nemendur
leggja við skólann sinn stöðugt
fara vaxandi.
Það hefúr löngum verið sagt að
sterkar hefðir einkenndu starf
Menntaskólans á Akureyri, og
m.a. hafa afmælisárgangar haft
það fyrir sið að hittast við skólaslit.
Hafa þeir gjaman fært skólanum
einhveijar gjafir, og að þessu sinni
vom það veglegar bókagjafir, og fé
til tölvukaupa. hiá-akureyri.
Minnihlutaflokkarnir í borgarstjórn bíða lægri hlut í hlutkesti í kjöri í nefndir:
Huldumaðurinn hallar
sér að meirihlutanum
Fyrsti fundur nýkjörinnar borgar-
stjómar Reykjavíkur fór ffarn í gær.
Á fundinum var kjörið í nefndir og
ráð á vegum borgarinnar og þurfti að
varpa hlutkesti í allar fimm manna
nefndir. Minnihlutinn mátti sætta sig
við lægri hlut í fleiri nefndum.
Fyrir fundinn höfðu minnihluta-
flokkamir komið sér saman um sam-
eiginlegt ffamboð í nefndir. Það var
því ljóst að varpa þurfti hlutkesti í
allar fimm manna nefndir, er þær
voru 18 þar sem kosningu í ffæðslu-
málaráð og skólamálaráð var ffestað.
í þessum nefndum var kosið um 4.
mann Sjálfstæðisflokksins og 2.
mann minnihlutans.
Það er óhætt að segja að lánið hafi
ekki leikið við minnihlutann og
huldumaðurinn í húsnæði borgar-
urinn vann hlutkestið um fjórða
mann í borgarráð og hefúr því sína
fjóra fulltrúa þar. Fimmti maðurinn
er Sigurjón Pétursson frá Alþýðu-
bandalagi.
Einnig átti, samkvæmt auglýstri
dagskrá, að kjósa fimm menn í skóla-
málaráð og fræðsluráð í einni kosn-
ingu. Sigrún Magnúsdóttir lagði fram
svohljóðandi bókun fýrir hönd
minnihlutans:
„í átjándu grein grunnskólalaga seg-
ir: í Reykjavík fer ffæðsluráð með
hlutverk skólanefndar. Með tilvísun
til þessa lítum við svo á að borgar-
stjóm sé hér á eftir að kjósa fulltrúa í
fræðsluráð, sem fer með þetta hlut-
verk. Þá viljum við mótmæla þvi að
hér fari ffam formannskjör í fræðslu-
ráð, þar sem skýrt er kveðið á um það
í reglugerð um Fræðslugrein, 5.
grein, að formannskjör fari fram á
fyrsta fúndi ráðsins. Sama gildir
reyndar um skólanefndir, þar sem
þær eru starfandi, því i erindisbréfi
fýrir skólanefúdir, 4. grein, segir að
skólanefndir kjósi sér formann úr
sínum hópi.“ Síðan var samþykkt
samhljóða að ffesta kosningu í þessar
nefndir.
Magnús L. Sveinsson var kjörinn
forseti borgarstjómar, Páll S. Gisla-
son er fýrsti varaforseti og Katrín
Fjelsted annar varaforseti. Varla þarf
að taka fram að Davíð Oddson var
kosinn borgarstjóri. -hs.
Aðgerðanefnd BHMR hótar hörðu:
Olafur á von á góöu
stjómar var honum ekki hliðhollur.
Minnihlutinn mátti sætta sig við að
bíða lægri hlut í flestum hlutkestun-
um og fá því aðeins einn mann í flest-
ar þessara nefnda á móti fjómm
Sjálfstæðisflokksins.
Þá má bæta við að Sjálfstæðisflokk-
„Aðgerðir hafa hingað til verið frið-
samlegar en búast má við harðskeytt-
ari aðgerðum eftir því sem nær dreg-
ur 1. júlí og eftir þann tíma,“ segir í
tilkynningu ffá aðgerðanefnd
BHMR.
Aðgerðanefndin hefúr einnig mælst
til þess við BHMR félaga að þeir láti
andúð sína í ljósi á því að ffestað var
gildistöku ákvæðis í kjarasamningum
um nýtt launakerfi. Þetta verði gert
með því að fólk ffesti öllu st'arfi i
nefndum og ráðum á vegum ríkisins.
Jafnffamt er mælst til þess að fólk
drífi sig suður á Keflavíkurflugvöll
til að taka á móti Olafi Ragnari
Grímssyni fjármálaráðherra þegar
hann snýr heim frá því að skoða evr-
ópsk lýðræðisríki, eins og það var
orðað á fúndi BHMR á Lækjartorgi í
gær. —sá