Tíminn - 03.08.1990, Síða 13
Föstudagur 3. ágúst 1990
Tíminn 13
rbvi\i\gg i Mnr
Þing Sambands ungra
framsóknarmanna
verður haldið að Núpi í Dýrafirði dagana 31. ágúst til 2. september.
Hannes Karlsson hefur verið ráðinn starfsmaður SUF vegna þingsins
og er hægt að ná í hann hér á Tímanum í síma 686300 frá kl.
9.00-13.00.
REYKJAVIK,
SUMARFERÐ
Hin árlega sumarferð Framsóknarfélaganna í
Reykjavík verður farin laugardaginn 11. ágúst.
Að þessu sinni verður farið á Snæfellsnes.
Ferðatilhögun verður nánar auglýst síðar.
Fulltrúaráðið.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
Skrifstofa Framsóknarflokksins opnar aftur að afloknum sumarleyfum
miðvikudaginn 8. ágúst að Höfðabakka 9, 2. hæð.
Héraðsmót framsóknarmanna
í Skagafirði
verður í Miðgarði laugardaginn 25. ágúst.
Meðal dagskráratriða: Ræða, Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.
Nánar auglýst síðar.
Nefndin.
r
BLAÐBERA VANTAR
í HOLTAHVERFI,
MOSFELLSBÆ
Madonna
Olivia Newton-John
sem best er þekkt úr myndinni Gre-
ase þykir afar falleg og viðkunnan-
leg stúlka. Hún hefúr barist mikið
fyrir náttúruvemd og segir náttúr-
una í mikilli hættu. Hún er gift leik-
aranum Matt Lattanzi en hann er
nokkuð yngri en hún sjálf.
er óhress með þá litlu athygli sem
hún hefúr fengið á Ítalíu. Hún er
ítölsk að uppruna og kaþólsk.
Italska þjóðin, sem er mjög trúuð,
hefúr einungis hneykslast á henni
og kallað hana guðlastara, Mad-
onnu til mikillar gremju.
Argentínska forseta-
dóttirin les lög og
rekur barnafatabúð
Mariska
heitir þessi unga stúlka. Hún er
dóttir kynbombunnar fyrrver-
andi, Jayne Mansfield. Hún er
ekki sögð lík móður sinni en
hefúr fallegt útlit samt sem áður.
T
Það er ekki auðvelt að eiga argent-
ínska forsetann Carlos Menem og
konu hans Zulemu að foreldmm.
Þau hjónin eru bæði skapmikil og
blóðheit og er nú svo komið að for-
setinn hefur hent konu sinni, dóttur-
inni Zulemitu og syninum Carlitos
á dyr og vill hvorki heyra þau né
sjá. Svo mikill var asinn, að þau
fengu ekki einu sinni að taka fötin
sín með sér úr forsetahöllinni.
Þau voru ekki fyrr flutt inn í Pos-
asa hverfið í Buenos Aires en ein-
hverjir náungar réðust á Zulemitu,
að því er virtist í þeim tilgangi að
ræna hana. Lífverðir hennar náðu
tveim af átta árásarmönnunum.
En þrátt fyrir allt þetta mótlæti er
Zulemita ekki á því að gefast upp
og hennar stærsti draumur er að sjá
mömmu sína og pabba ná saman
aftur og Ijölskylduna sameinast.
Zulemita er bara 19 ára og stundar
nám á öðru ári í lögfræði. En hún
hefúr líka sett á stofn bamavörubúð
sem hún greiddi fyrir með sparifé
sínu og réði öllu um innréttingar á.
Hún lýsir sjálffi sér þannig að hún
sé róleg og stundum feimin, en fúll
sjálfstrausts og ákaflega sjálfstæð.
Aðspurð segist hún ekki eiga neinn
kærasta.
En þama er greinilega dugnaðar-
stúlka á ferðinni og veitir ekki af, éf
henni á að takast að hafa taumhald á
foreldrum sínum. Það er áreiðan-
lega auðveldara að reka búð og lesa
lögffæði samtímis en að tjónka við
þau hjónin.
Æðsti draumur Zulemitu er að sjá tjölskylduna sameinaða á ný, en ný-
lega rak pabbi hennar hana, bróður hennar og móður úr forsetahöllinni.
Zulemita hefur
hafnað tilboðum
umað gerastfyrir-
sæta, en eins og
sjá má hefur hún
allt til að bera í
það.