Tíminn - 01.09.1990, Side 11

Tíminn - 01.09.1990, Side 11
Bækur án virðisaukaskatts frá 1. september * Frá og með 1. september 1990 verða bækur á íslensku undanþegnar virðisaukaskatti. Við íslendingar köllum okkur „bókaþjóð" vegna þess að bóklestur og bókmenntir eru frá fornu fari einn helsti þáttur íslensks menningarlífs. Þessi skattbreyting eflir bókagerð og bóksölu í landinu, jafnar aðstöðu við útgáfu prentaðs máls og léttir framfærslubyrði heimilanna, einkum þar sem skólanemar eru margir. Afnám virðisaukaskatts af bókum hefur í för með sér verulega verðlækkun. Verð allra íslenskra ritverka á að verða tæplega tuttugu prósentum (19,68%) lægra eftir breytinguna. Bókaútgefendur og bóksalar hafa tekið höndum saman um að láta skattbreytinguna takast sem best. Nú er mikilvægt að bókaunnendur veiti aðhald og tryggi að afnám skattsins skili sér alstaðar í fimmtungs verðlækkun á íslenskum bókum. - -v-V' " I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.