Tíminn - 07.09.1990, Blaðsíða 9
Tíminn 8
ýýll
Föstudagur 7. september 1990
Föstudagur 7. september 1990
Tíminn 9
' :>•■••
Hönnun „Handboltahallarínnar“ í Kópavogi aftur á byrjunarreitinn:
Akvarðanir byggöust á óljósum
hugmyndum og röngum forsendum
Bygging íþróttahallar í tengslum við
heimsmeistarakeppnina í handknattleik,
sem haldið verður hér á landi 1995, hef-
ur valdið miklum deilum. A sínum tíma
lofaði ríkisstjóm íslands HSÍ að byggð
yrði íþróttahöll sem rúmaði 7 þúsund
áhorfendur, en í svo stórri höll verður úr-
slitaleikur keppninnar að fara fiam.
Borgarstjórinn í Reykjavík haíði ekki
áhuga á að láta byggja höllina í borg
sinni og því komu önnur bæjarfélög til
skjalanna. Kópavogur og Haíharíjörður
vildu fá höllina í sína bæi, en niðurstað-
an varð sú að gerður var samningur við
Kópavogsbæ um bygginga „handbolta-
hallar“. Síðan rikisstjómin gaf íyrirheit
um byggingu hallar, svo hægt væri að
halda keppnina hér á landi hefur ýmis-
legt breyst. Önnur ríkisstjóm er nú við
völd og ný bæjarstjóm hefur tekið við
völdum í Kópavogi. Bygging hallarinn-
ar varð að kosningamáli í Kópavogi fyr-
ir bæjarstjómarkosningamar í vor og
þeir flokkar sem lofuðu að samningur-
inn um byggingu hallarinnar yrði endur-
skoðaður, em komnir til valda.
í gær settust þeir niður Jón Hjaltalín
Magnússon, formaður HSÍ, og Erwin
Lanc, forseti Alþjóðahandknattleiks-
sambandsins, með Sigurði Geirdal bæj-
arstjóra í Kópavogi og Gunnari Birgis-
syni, forseta bæjarstjómar, og ræddi
framtíð ,handboltahallarinnari‘.
„Þær teikningar í íþróttahöll sem gerð-
ar hafa verið em óljósar hugmyndir út
frá röngum forsendum þar að auki. Það
sem allir vissu fýrir kosningar var end-
anlega staðfest á fundinum í gær. Heil-
mikið af þeim forsendum sem þurfa að
vera fyrir hendi af hálfu alþjóðahand-
knattleikssambandsins (IHF) varðandi
byggingu hallarinnar, hafa aldrei verið
sendar hingað. Það kom í ljós í samtöl-
um við forseta IHF að forsendur varð-
andi sætabreidd, heiðursstúku, aðstöðu
fyrir blaðamenn og fleira gera það að
verkum að sú höllin sem teiknuð hefur
verið, tekur ekki nema 5.500 manns.
Þeir gera kröfii um að höllin taka lág-
mark 7.000 manns, en upphaflega var
reyndar miðað við 8.000 manns. Það er
fiirðulegt hvemig hægt er að hanna heilt
hús án þess að hafa kröfumar hvemig
það á að vera. Það var kannski ekki von
á meiru af teikningu sem hróflað var upp
á hálfiim mánuði,“ sagði Sigurður Geir-
dal, bæjarstjóri í Kópavogi, í samtah við
Tímann í gær.
,hað verður að hanna höllina alveg
uppá nýtt. Við verðum að leita að leiðum
baeði til að lækka kostnað við bygging-
una og leiðum til að fá meira fé í hana.
Það er nefhd skipuð einum fiilltrúa úr
hveijum flokk sem hefiir með þetta mál
að gera. Nefiidin hefur fengið Verk-
fræðistofii Stefáns Ólafssonar til þess að
skoða málið nákvæmlega. Við munum
Eftir
Bjöm
Leósson
leita í hveijum krók og kima að leiðum
að leiðum til að geta gert þetta. Þetta er
allt í einu orðið miklu dýrara heldur en
ráð var fyrir gert. Þær kostnaðartölur
sem gefhar vom upp standast á engan
hátt. Höllin sem teiknuð var átti að kosta
um 600 milljónir og þá var búið að draga
ffá kostaað við skóla sem koma átti inn í
húsið. I dag er ljóst að byggingin mun
kosta að minnsta kosti 1 milljarð.“
„Við báðum forseta IHF um að senda
okkur nákvæman lista yfir þær kröfur
sem IHF gerir til hallarinnar og þá er
hægt að fara að hanna höll. Við munum
síðan senda þeim áætlanir byggðar á
þessum kröfiim. Ég geri ekki ráð fyrir
því að það verði fyrr en næsta vor. Það er
ekkert bakslag hlaupið í það að keppnin
verði haldin hér á landi. Við munum
beijast ffam í rauðan dauðann og koma
viti í málið svo hægt sé að taka á því.
Hins vegar viljum við ekki vaða í þoku í
málinu, þótt óþægilegt sé að fá háar töl-
ur og miklar kröfur, þá viljum við fá þær
á borðið og taka á þeim,“ sagði Sigurður
Geirdal bæjarstjóri.
,J»etta var mjög jákvæður fundur og
gagnlegur bæði fyrir okkur og Kópa-
' -.V/v ‘ .'V"|
Erwin Lanc, forseti alþjóðahandknattlelkssambandsins, og Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, vlnstra megln vlð borðlð, ræða við Sigurö Geirdal, bæjarstjóra (Kópavogi, Gunnar Birglsson, fbrseta bæjarstjómar, og fleiri (gær um framtíð „handbottahallar" (Kópavogl. Á
innfelldu myndinni sést Ifkanið af „Handbottahöllinni", sem nú er talið ónothæft nmamynd Ámi Bjama.
vogsmenn og ekki hvað síst fyrir al-
þjóðasambandið. Ég hef ekki heyrt neitt
sem bendir til þess að þeir vilji hætta við
býgginguna. Þeir em að spá í byggingar-
kostaaðinn og eins í hvað hægt væri að
nota húsið í ffamtíðinni. Ef byggt er fjöl-
nota hús fyrir popptónleika, sýningar og
ráðstefiiur, auk íþrótta, þá hefur það allt
áhrif á hönnun hússins. Fyrstu tiUögum-
ar sem komu á sínum tíma vom vel und-
irbúnar, en unnar á mjög skömmum
tíma. Því er eðlilegt að þær séu skoðaðar
aftur,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ, um fundinn.
,Jírwin Lanc, forseti IHF, mun láta sína
sérffæðinga senda þeim Kópavogs-
mönnum nákvæmlega þær kröfur sem
IHF gerir til þessa mannvirkis, þannig
að þeir geti tekið tillit til þeirra við hönn-
im á húsinu. Fyrstu drög að teikningum
verða líklega tilbúin í mars á næsta ári,
þannig að byggingarftamkvæmdir gætu
hafist í október næsta haust. Þegar teikn-
ingar liggja fyrir í vor óskaði Lanc eftir
því að IHF fengi að sjá þær til þess að
þeir gæta komið með athugasemdir eða
tillögur. í ffamhaldi af því bauð ég fuU-
trúa þeirra hingað lil þess að hægt væri
að ræða málin ffekar.“
,4>að kom ffam á fundinum að kröfur
IHF varðandi fjölda áhorfenda miðast
við lágmark 7.000 áhorfendur á úrslita-
leUcinn, með blaðamönnum og starfs-
fólki. Þessar kröfur vom lækkaðar úr
12.000 manns eftir að ljóst var að Island
mundi sækja um keppnina. Þá er mikU-
vægt að öll aðstaða varðandi sjónvarps-
sendingar ffá keppninni sé viðunandi.
Hingað kemur fjöldi blaðamanna til að
fylgjast með keppninni. Á HM í Tékkó-
slóvakíu í vetur vom um 500 blaða-
menn, en í Sviss fyrir fjórum árum vom
þeir 700. Ástæðan vom þessari fækkun
er sú að í Tékkóslóvakíu vantaði stórar
handboltaþjóðir eins og V-Þýskaland,
Danmörku og Sviss. Lanc reiknar með
að 400-600 blaðamenn komi hingað til
lands til að fylgjast með keppninni,“
sejgir Jón Hjaltalín.
Ut frá þessum viðtölum er ljóst að mál-
ið varðandi ,Jiandboltahöllina“ er engan
vegin útkljáð enn. Málið hefur valdið
miklum úlfaþyt í þjóðfélaginu og sitt
sýnist hveijum og svo mun sjálfsagt
verða enn um sinn. Öll sú hönnunar-
vinna sem var fiamkvæmd var út í blá-
inn og er fyrir bí. Hönnun hallarinnar er
því kominn á byijunarreitinn á ný. Von-
andi tekst að hanna höll sem boðleg er
fyrir heimsmeistarakeppni, án þess að
skattgreiðendur í Kópavogi þurfi að
opna pyngjur sínar upp á gátt, enda mun
slíkt ekki vera á dagskrá hjá nýkjömum
bæjarstjómarmeirihluta Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks.
BL