Tíminn - 02.10.1990, Page 13
Þriðjudagur 2. október 1990
Tíminn 13
Aðalfundur Launþegaráðs
á Vesturlandi
Aðalfundur Launþegaráðs framsóknarmanna á Vesturlandi verður
haldinn miðvikudaginn 10. október nk. kl. 20.30 í Félagsbæ,
Borgarnesi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3. Er þjóðarsáttin f hættu?
Frummælendur verða:
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra.
Jón Agnar Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgarness.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar.
Stuðningsmenn Framsóknarflokksins velkomnir.
Launþegaráð Framsóknarflokksins á Vesturlandi
Hafnarfjörður
Fundur i Fulltrúaráði framsóknarfélaganna í Hafnarfirði fimmtudaginn
4. október kl. 20.30 að Hverfisgötu 25, Hafnarfirði. Boðaðir eru allir
fulltrúaráðsmenn, aðalmenn og varamenn, ennfremur þeir er listann
skipuðu í vor. Allir stuðningsmenn velkomnir.
Dagskrá:
1. Rætt um úrslit bæjarstjórnarkosninganna í vor og hvaða
lærdóma má af þeim draga.
2. Bæjarmálin. Skipað í nefndir um einstaka þætti bæjarmála.
3. Vetrarstarfið. Aðalfundir félaganna um miðjan október. Þar verða
m.a. kosnir fulltrúar á kjördæmisþing fyrirhugað 4. nóvember (að
líkindum verða þar valdir frambjóðendur á listann við alþingis-
kosningarnar í vor) og kosnir fulltrúar á flokksþing er haldið verður
dagana 16.-18. nóvember. Ráðning framkvæmdastjóra o.s.frv.
4. Álmálið. Baldur Óskarsson viðskiptafræðingur, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra bankamanna, sem er ásamt Guðmundi
G. Þórarinssyni og fleirum í „nefnd iðnaðarráðuneytisins um
álviðræður", mætir á fundinn í kaffihléinu milli hálftíu og tiu. Hann
flytur erindi og svarar fyrirspurnum um gang álviðræðna og
hvaðeina er þeim tengist.
Stjórnin.
Aðalfundur F.U.F. í Reykjavík
verður haldinn mánudaginn 1. október 1990 kl. 20.30, að Höfðabakka
9, 2. hæð.
Dagskrá: 1. Setning.
2. Kosning fundarstjóra og ritara.
3. Skýrsla stjórnar A. formanns B. gjaldkera. Umræður.
4. Kosningar.
5. Ávarp, Egill Heiðar Gíslason, framkv.stj. flokksins.
6. Önnur mál.
Stjórnin.
Selfoss
Framsóknarfélag Selfoss boðar til aðalfundar 17. október kl. 20.30
að Eyrarvegi 15.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á Kjördæmaþingið, sem verður á Hvols-
velli.
önnur mál.
Félagar, fjölmennið.
Stjórnin.
Konur Suðurlandi
Aðalfundur Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu verður haldinn
þriðjudaginn 9. október nk. að Eyrarvegi 15, Selfossi, og hefst kl.
21.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Nýir félagar velkomnir. Fjölmennum.
Stjórnin.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
hefur opnað aftur að Höfðabakka 9, 2. hæð (Jötunshúsinu)
Sími 91-674580.
Opið virka daga kl. 8.00-16.00.
Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn.
Selfoss - Nágrenni
Félagsvist verður spiluð að Eyrarvegi 15 kl. 20.30 2. október, 9.
októberog 16. október. Þriggjakvöldakeppni. Kvöldverðlaun. Heildar-
verðlaun.
Allir velkomnir.
Stjórn Framsóknarfélags Selfoss.
SPEGILL
Woody Allen leikstýrír eiginkonu sinni, Miu Farrow, sem leikið hefur í flölmörgum myndum hans.
Woody Allen er enn að
Woody Allen hefur ekki fyrr lokið
einni mynd en hann byrjar á þeirri
næstu.
Nú standa yfir í New York tökur á
nýjustu mynd hans, sem ber heitið
Alice. Eiginkona Allens, Mia
Farrow, leikur aðalhlutverkið í
myndinni en hún hefur áður Ieikið
í tíu kvikmyndum eiginmannsins.
Að þessu sinni verða fleiri fjöl-
skyldumeðlimir í hlutverkum. Tvö
börn þeirra hjóna, Dylan og Satc-
hel, verða þar líka. Dylan er eitt af
þeim fimm börnum sem Mia ætt-
leiddi, en Satchel, sem er tveggja
ára, er eina barnið sem þau hjón
eiga saman.
Woody Allen hefur verið mjög
önnum kafinn þetta ár. Áður en
tökur á Alice hófust lék hann í
kvikmyndinni Scenes from a Mall,
undir leikstjórn Pauls Mazursky.
Þar leikur hann lögfræðing og eig-
inkonu hans leikur gamanleikkon-
an Bette Midler.
Ekki hefur enn verið ákveðið hve-
nær þessar myndir koma fyrir
augu áhorfenda. En eitt má telja
víst, að þegar Woody Allen er ann-
ars vegar, hvort heldur er fyrir
framan myndavélarnar eða aftan
þær, er góður árangur og góð
skemmtun svo gott sem gull-
tryggð.
Mia Farrow með böm sín, Dylan
og Satchel, en þau leika bæði í
myndinni um Alice.
Eru Rómeó og Júlía með hundaæði?
Tveimur rísandi kvikmynda-
stjörnum frá Hollywood var nýlega
bannað að vera við frumsýningu
kvikmyndar sinnar í Bretlandi af
ótta við að þær væru haldnar
hundaæði.
Rómeó og Júlía, sem leika aðal-
hlutverkin í samnefndri kvik-
mynd, eru kettir og þar er komin
skýringin á útskúfun þeirra frá
Bretaveldi, en varúðarráðstafanir
gegn hundaæði eru þar mjög
strangar.
Kisurnar eru aðalstjörnurnar í
söngvamynd sem nýlega var frum-
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum og eru nefndar eftir persón-
unum sem þær leika í myndinni.
Leikstjóri kvikmyndarinnar er
Armando Acosta og segir hann
þetta vera í fyrsta skipti sem bann
sé lagt við komu samstarfsmanna
hans vegna ótta um að þeir séu
haldnir hundaæði. Hann segir að
Leikarinn John Hurt og Armando Acosta leikstjórí kanna hvort ein-
hver merki hundaæðis sé að finna hjá Rómeó og Júlíu.
það séu sér mikil vonbrigði að geta
ekki haft aðalleikarana með sér til
Bretlands, því þeir myndu áreiðan-
lega sjarmera frumsýningargesti
upp úr skónum og vera kvikmynd-
inni til framdráttar.
En Rómeó og Júlía kippa sér ekk-
ert upp við þetta og eru líklega
guðsfegin að þurfa ekki að baða sig
í sviðsljósinu í London. Þau sitja
hin rólegustu í Hollywood og
narta í ýsusporðinn sinn.