Tíminn - 09.10.1990, Blaðsíða 13

Tíminn - 09.10.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 9. október 1990 Tíminn 13 Jóhann Haukur Aðalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu verður haldinn að Hlégarði sunnudaginn 14. október 1990 kl. 17.00. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf og þar meö talið kjör fulltrúa á kjördæmisþing framsóknarmanna á Reykjanesi, sem haldið verður í Keflavík sunnudaginn 4. nóvember nk. og flokksþing í nóvember. Alþingiskosningar og önnur mál. Að aðalfundi loknum verður gert hlé til skrafs og viðræðna til kl. 19.15, en þá hefst kvöldverður. Gestir fundarins verða: Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og frú Edda Guðmundsdóttir, Jóhann Einvarðsson aiþingismaður og frú Guðný Gunnarsdóttir, Haukur Níelsson fv. hreppsnefndarmaður og frú Anna Steingrímsdóttir. Fólki sem ekki hefur tök á að mæta til aðalfundar er bent á, að það er velkomið með gesti sína í hlé eftir aðalfund og siðan til kvöldverðarins. Vinsamlegast hafið samband vegna kvöldverðarins við Gylfa vinnusími 985-20042, heimasími 666442 og við Helga í vinnusima 82811, 985-21719, heimasími 666911, hið fýrsta. Stjómin. Almennir stjómmálafundir dagana 11.-14. október. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Jón Kristjánsson alþingismaður boða til almennra stjómmálafunda dagana 11.-14. október, sem hér segir: Fimmtudaginn 11. okt. á Hótel Bláfelli, Breiðdalsvík kl. 20.30. Föstudaginn 12. okt. í Félagsmiðstöðinni, Djúpavogi kl. 20.30. Laugardaginn 13. okt. á Hrollaugsstöðum, Suðursveit kl. 16.00. Sunnudaginn 14. okt. í Hamraborg, Beruljarðarströnd kl. 16.00. Sunnudaginn 14. okt. i grunnskólanum Geithellnahreppi kl. 20.30. Umræðuefnið; stjórnmálaviðhorfið í upphafi þings. Halldór Ásgrímsson Jón Kristjánsson. iui Guðmundur JónAgnar GuðmundurJ. Aðalfundur Launþegaráðs á Vesturlandi Aðalfundur Launþegaráðs framsóknarmanna á Vesturlandi verður haldinn miðvikudaginn 10. október nk. kl. 20.30 I Félagsbæ, Borgarnesi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 3. Er þjóðarsáttin í hættu? Frummælendur verða: Guðmundur Bjamason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra Jón Agnar Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgar- ness. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélags- ins Dagsbrúnar. Stuðningsmenn Framsóknarflokksins velkomnir. Launþegaráð Framsóknarflokksins á Vesturíandi Suðurland Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547. Félagar eru hvattir til að líta inn. K.S.F.S. SPEGILL Cybill Shepherd með yngstu bömunum sínum, tvíburunum Aríel og Zach. Cybill Shepherd á fullum dampi Uppáhaldsiðja leikkonunnar Cy- bill Shepherd er að geta eytt tíma með börnunum sínum. Hún á þrjú börn, tíu ára dóttur af fyrra hjóna- bandi og tvíburana Ariel og Zach frá því síðara. Hún og seinni maður hennar skildu, skömmu eftir að tvíburarn- ir fæddust, og eiga nú í harðri deilu um forræði barnanna. Cybill, sem stendur nú á fertugu, hefur nýlokið við að leika í kvik- mynd sem mun verða frumsýnd næsta vor í Bandaríkjunum. Þetta er kvikmyndin Texasville, en hún er framhald fyrstu kvikmyndar- innar sem Cybill lék f, The Last Picture Show. Það var Peter Bogd- anovich sem uppgötvaði Cybill og leikstýrði þeirri kvikmynd, sem hlaut sjö útnefningar til óskars- verðlauna og hreppti tvenn. í Texasville eru sömu persónurn- ar, en hún á að gerast 30 árum síð- Kenndi Tom Cruise aðkyssa Tom Cruise var einu sinni feim- inn og fimmtán ára, með brotna framtönn og minnimáttarkennd. Þá var það að hann og Laurie Hobbs kynntust og urðu skotin hvort í öðru.-Laurie leist strax vel á strákinn, en það var erfiðleikum bundið að ná sambandi við hann, því hann hafði svo mikla minni- máttarkennd út af framtönninni og út af því hversu smávaxinn hann er. Laurie tók þó af skarið og spurði hvernig þetta væri með hann, hvort hann ætlaði að bjóða sér á útskriftarballið eða ekki. Tom Cru- ise tók þessu frumkvæði fegins hendi og þau fóru saman á ballið. Fyrst fóru þau þó í teiti hjá skóla- félaga. Þar sátu þau á sófa eins og dauðadæmd og þorðu varla að líta hvort á annað. Enn herti Laurie upp hugann og tók í spaðann á honum. Tom Cruise tók þá allur við sér og sýndi þá takta sem hann varð seinna frægur fyrir. Ungling- arnir féllust í faðma og kysstust sínum fyrsta kossi. Upp úr þessu varð hinn besti „róluvallarróm- ans“, sem stóð í nokkra mánuði. Endirinn á ævintýrinu varð þegar Tom flutti ásamt fjölskyldu sinni í burtu úr bænum. Hann lét síðan gera við framtönnina og varð film- stjarna, en Laurie varð móðir og ar og sýna þær breytingar sem orðið hafa á persónunum en einn- ig hversu margt er þó óbreytt. Cybill er byrjuð að leika í enn einni kvikmyndinni, Married to It, en mótleikari hennar þar er Stock- ard Channing. Cybill er ennfremur komin með nýjan mann upp á arminn, fertug- an lögfræðing sem heitir Frank Smith. Hann eyðir miklum tíma með Cybill og börnum hennar, enda segir Cybill að þeir sem um- gangist hana verði að vera hrifnir af börnum. Hún kveðst ekki úti- loka þriðja hjónabandið, en vill fyrst sjá fyrir endann á forsjárdeil- unni. Leikkonan leikur nú í hverrí myndinni á fætur annarrí og eyð- ir öllum sínum frítíma með böm- um sínum. Lauríe og Tom á leið á dansleikinn örlagaríka. Svona var Tom Cruise þegar hann varfimmtán ára með bann- setta tönnina sem fór svo f taug- amar á honum... húsmóðir í heimabænum. Laurie segist stundum velta því fyrir sér, hvað orðið hefði ef Tom tákninu að kyssa. ... og svona lítur hann út í dag. hefði ekki flutt burt. En hún segist jafnframt hafa lúmskt gaman af þeirri tilhugsun að hafa kennt kyn-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.