Tíminn - 12.10.1990, Síða 8
8 Tíminn
Föstudagur 12. október 1990
Föstudagur 12. október 1990
Tíminn 9
„Þ>eir sem spáðu óábyrgu kosningafrumvarpi verða fyrir vonbrigðum“, sagði fjármálaráðherra:
Markmiöiö
þann
„Þeir, sem spáðu því að ég mundi leggja
fram óábyrgt fjárlagafrumvarp vegna al-
þingiskosninga, verða fyrir vonbrigðum
þegar þeir fletta þessu frumvarpi. Þeir sem
hins vegar vonuðu að ríkisstjórnin mundi
leggja fyrir Alþingi frumvarp, sem hefði það
meginmarkmið að festa hinn efnahagslega
árangur í sessi, þeir geta fagnað því frum-
varpi sem hér er lagt fram. í fyrsta sinn í
áratugi er það ekki markmið nýs fjárlaga-
frumvarps að breyta efnahagsstærðum
heldur að halda þeim óbreyttum og treysta
þann stöðugleika sem náðst hefur. Að þessu
leyti er þetta fjárlagafrumvarp einstakt í
sinni röð“, sagði Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra, er hann kynnti fjárlaga-
frumvarp fyrir árið 1991, sem hann telur að
mörgu leyti marka tímamót.
Efnahagsaðgerðir
úr sögunni?
Ólafur sagði lengi hafa tíðkast í fjármála-
umræðunni að menn hafi litið á fjárlaga-
frumvarpið eins og hvert annað þingskjal
útgjalda og tekna en síðan kæmi eitthvað
annað sem héti efnahagsaðgerðir. Á þessu
sé, sem betur fari, að verða grundvallar-
breyting.
„Fjárlagafrumvarpið og fjárlögin eru í
reynd meginþáttur efnahagsaðgerðanna á
hverju ári. í stöðugu efnahagslífi, í Iágri
verðbólgu, í jafnvægi á peningamarkaðn-
um eru fjárlögin þess vegna ekki bara horn-
steinn, heldur samnefnari og kjarni efna-
hagsaðgerða hvers árs. Þess vegna þarf nú
ekki að spyrja: „Hvenær koma svo efna-
hagsagerðirnar?" Því svarið er; þær verða
ekki fleiri. Fjárlögin eru efnahagsaðgerð-
irnar. Björgunaraðgerðir í þágu útflutn-
ingsgreina, skyndilegar gengisfellingar,
kollsteypur í vaxtamálum eða annað af því
tagi, sem einkennt hefur íslenska hagstjórn
um áratugi, því tímabili er lokið. Og það er
mikilvægt að það komi aldrei aftur. Þess
vegna þurfum við að geta viðhaldið þeim
breytingum, sem nú eru orðnar, að fjárlög-
in séu í senn meginþátturinn og kjarni
efnahagsaðgerða hvers árs“.
Erlendum hallalánum hætt
Grundvallareinkenni fjárlagafrumvarpsins
að mati Ólafs eru:
Minni halli á ríkissjóði. Aðhaldi í útgjöld-
um rfkissjóðs haldið áfram, þannig að ríkis-
útgjöld standi í stað miðað við fyrra ár.
Skattar verði ekki hækkaðir. Heildarskatt-
heimta verði óbreytt á næsta ári. Áfram
verði hins vegar haldið á braut skattkerfis-
breytinga; nú alþjóðlegri aðlögun skatt-
greiðslna atvinnulífsins.
Lánsfjárþörf ríkissjóðs á að minnka. Er-
lendum lántökum vegna halla á ríkisjóði
verði hætt og alls lánsfjár aflað innanlands,
eins og ljóst sé að takast muni á þessu ári, í
fyrsta sinn í mörg ár ef ekki áratugi.
Tekin verði fyrstu skrefin á nýrri braut til
aukins sjálfstæðis ríkisstofnana á þann veg
að þær fái ákveðnar heildarupphæðir í fjár-
lögum og um leið vald til þess að skipta
þeim upphæðum sjálfar.
byrjar í Háskólanum.
Þessi nýbreytni vegar aðeins rúmlega 3% milli ára.
Fjárlögin um 400.000 kr.
á mann
Heildartekjur ríkissjóðs eru áætlaðar 99,6
milljarðar á næsta ári. Það er 12% hækkun
frá fjárlögum þessa árs en 7,5% hækkun
miðað við áætlaða niðurstöðu ársins.
Heildarútgjöld frumvarpsins eru 103,2
milljarðar. Það er 10,4% hækkun frá fjár-
lögum 1990 en 5,8% hækkun frá áætlaðri
niðurstöðu þessa árs.
Hallinn er um 1% af landsframleiðslu, eða
um 3,6 milljarðar. Nettó lántökur eru áætl-
aðar 4,8 milljarðar í stað 6,2 milljarða á
þessu ári.
7% verðbólga
í forsendum fjárlagafrumvarpsins er mið-
að við 7% verðbólgu á næsta ári og 1%
aukningu kaupmáttar.
„í frumvarpinu fellst þannig að efnahags-
batinn fer að skila sér til launafólks með
hægum en öruggum skrefum", sagði ráð-
herra. Stöðu atvinnuveganna sagði hann
komna í það horf að ekki þurfi gengisbreyt-
ingar í þágu atvinnulífsins. Stöðugt gengi
geti því verið meginforsenda efnahags-
stefnu og fjárlagagerðar sem glímt verður
við á Alþingi næstu mánuði.
Skattar fyrirtækja
hækka mest
Þótt heildarskattheimta eigi ekki að breyt-
ast munar töluvert hve einstakir skattar
hækka milli ára. Glöggt kemur fram að rfk-
issjóður ætlar sér aukinn skerf í bættri af-
komu atvinnuveganna.
Fyrrnefnd skattkerfisbreyting fyrirtækja
fellst í því að sameina á fimm mismunandi
launatengd gjöld (iðgjöld til lífeyristrygg-
inga, slysatrygginga og atvinnuleysistrygg-
inga ásamt vinnueftirlitsgjaldi og Iauna-
skatti) í einn skatt (tryggingariðgjald).
Þessi eini skattur á jafnframt að skila 25%
hærri tekjum (9.130 m.kr.) en hinir fimm
gera á þessu ári. Skattprósentan er áætluð
3% hjá landbúnaði, sjávarútvegi og iðn-
greinum, sem eru undanþegin launaskatti,
en 6% hjá öðrum atvinnurekstri. Mest mun
hækkunin verða hjá einstaklingum í at-
vinnurekstri.
Þá er áætlað að tekjuskattar félaga hækki
um 18% frá þessu ári (60% miðað við fjár-
lög 1990). Hækkun á eignaskatti er hins
Húsaleigubætur
á kostnað bamabóta
Tekju- og eignaskattar einstaklinga er
áætlað að hækki um 10% milli ára. Fjár-
málaráðherra greindi frá hugmyndum um
frekari jöfnun á skattbyrði í gegnum tekju-
skattskerfið. Felast þær m.a. í því tekju-
tengingu barnabótanna. Hálaunafólk
mundi missa barnabætur en þær hins veg-
ar hækka til lágtekjufólks. Jafnframt er í at-
hugun að nota sparnað af lækkun barna-
bóta til þeirra betur settu til að taka upp
húsaleigubætur til láglaunaðra leigjenda.
Enn ein tilraun
til lyfjaspamaðar
Útgjaldaliðir frumvarpsins hækka mis-
munandi á milli ára, ekki síður en tekjulið-
irnir.
Bjartsýnin blundar greinilega enn í brjóst-
um manna um sparnað í heilbrigðisþjón-
ustunni. Þótt kostnaður vegna sjúkratrygg-
inga fari 11% fram úr „sparnaðarfjárlögum"
núna á þessu ári, er aðeins reiknað með 1%
hækkun á næsta ári. Og enn eru sparnaðar-
vonirnar fyrst og fremst bundnar við 500-
600 millj. kr. sparnað í lyfjakostnaði.
Tannlækningar 12.500 kr.
á bam
Á hinn bóginn hækkar tannlæknakostn-
aður ríkissjóðs stórlega. Hann er áætlaður
1.035 milljónir kr., eða nær því jafn mikill
og allur lækniskostnaður utan sjúkra-
stofnana. Þessi upphæð, sem eru niður-
greiðslur (25-100%) á tannlæknakostnaði
barna og gamalmenna svarar til nær 5
milljóna króna greiðslu á hvern tannlækni
landsins að meðaltali. Og miðað við að
80% upphæðarinnar séu vegna viðgerða á
tönnum hátt í 70 þúsund barna og ung-
linga á aldrinum 1-16 þá svarar upphæðin
til þess að um 12.500 krónur kosti að
halda við tönnum í hverjum þessara
munna að meðaltali.
Hækkanir sem kunna að verða á búvör-
um á næsta ári verða landsmenn að borga
úr eigin vasa því niðurgreiðslur (5 millj-
arðar) hækka ekki milli ára. Hins vegar er
gert ráð fyrir 74% hækkun á útflutnings-
uppbótum, sem áætlaðar eru 1.430 m.kr. í
fjárlagafrumvarpiinu.
Um 31.670 milljónir í laun
Um 40% ríkisútgjaldanna (40.400 m.kr.)
eru rekstrarkostnaður. Þar af er launa-
kostnaðurinn um 70%. Launakostnaður-
inn er áætlaður um 31.660 m.kr. á næsta
ári, sem er rúmlega 10% hækkun frá
áætluðum launakostnaði á þessu ári. Um
700 m.kr. er viðbótarkostnaður sem hlýst
af: Skólaskyldu við 6 ára aldur, aukinnar
sérkennslu, reksturs þriggja nýrra stofn-
ana fyrir fatlaða, sem taka til starfa 1991,
og flutnings heilsugæslu frá sjóðum sveit-
stöðugleika sem náðst hefur
Frá blaöamannafundi í gær þar sem fláriagafrumvarpið var kynnt F.v.: Már Guðmundsson, efnahagsráðgjafi flármálaráðherra, Svanfríður Jónasdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson, flármálaráðherra.
arstjórna til ríkissjóðs.
Þá má nefna að frumvarpið gerir ráð fyrir
9.400 milljóna króna vaxtagreiðslum ríkis-
sjóðs á næsta ári (um 37.000 kr. á hvern fs-
lending).
Er nú svo komið að vaxtakostnaðurinn
einn er orðinn jafn há upphæð og ætluð er
til allra fjárfestinga á næsta ári.
Tugmilljarðavandamálum
áfram ýtt á undan sér
Þótt fjármálaráðherra færi fögrum orð-
um um stöðugleika á flestum sviðum ýtir
þetta fjárlagafrumvarp áfram á undan sér
gífurlegum óleystum vanda, sem ráðherra
nefnir „mistök fortíðarinnar".
„í rauninni er hér um að ræða nokkur af
þeim stórverkefnum sem íslensk stjórn-
mál snúast um að verulegu leyti fram til
aldamóta".
í fyrsta lagi nefndi Ólafur til sögunnar
Byggingarsjóð verkamanna (sem nú á að
fá 700 m.kr.framlag) og Byggingarsjóð
ríkisins sem ekki er ætlað neitt framlag í
nýju fjárlagafrumvarpi.
í öðru lagi hallar undan fæti hjá At-
vinnuleysistryggingasjóði, þar sem lög-
bundin framlög ríkisins og atvinnurek-
enda hafa ekki dugað fyrir greiðslum síð-
ustu þrjú árin.
í þriðja lagi eykst fjárþörf Lánasjóðs
námsmanna ár frá ári í núverandi formi.
Henni hefur á undanförnum árum verið
mætt með stórum lántökum, þannig að
við blasir „gjaldþrot" þessa sjóðs nema
gripið verði til stórfelldra aðgerða á næstu
árum. í nýju fjárlagafrumvarpi Ólafs er
eigi að síður gert ráð 240 m.kr. minni
framlögum til sjóðsins en í fjárlögum
þessa árs, sem hlýtur að þýða enn vaxandi
lántökur á næsta ári.
Síðastnefndi, en þó líklega stærsti vanda-
málasjóðurinn, er Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins. Greiðslur ríkissjóðs
vegna uppbóta á lífeyri sjóðsins eru áætl-
aðar 670 m.kr. á þessu ári og 788 m.kr. á
því næsta. Lausn á vanda þessa sjóðs sagði
ráðherra verða að ráðast af framtíðarfyrir-
komulagi lífeyrismála og stöðu Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins innan þess
kerfis.
Tímamynd: Pjetur
Óvissuþátturinn
Saddam Hussein
Stærstu óvissuþættina viðvfkjandi fjár-
lagafrumvarpinu sagði ráðherra óvissuna
um olíuverð á næsta ári og að ákvarðanir
um nýtt álver liggja ekki fyrir. í fjárlaga-
frumvarpinu er reiknað með 26 dala meðal-
verði á olíufatið, sem sagt er nokkru hærra
heldur en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggi
til grundvallar í síðustu efnahagsspá. í
frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir neins
konar niðurgreiðslu á olíuverði.
■
'