Tíminn - 31.10.1990, Blaðsíða 9
8 Tíminn
Miðvikudagur 31. október 1990
Miðvikudagur 31. október 1990
Tíminn 9
. ■ .
i i
Viðbragða
við yfirlýsingu
Helgadóttur um að íslendingar skuii sækja um aðild að EB:
SAGÐI RAGNHILDUR ÞAÐ SEM AÐRIR
HUGSUÐU, EÐA HLJOP HUN
í umræöum á sameinuðu þingi í fyrrakvöld um skýrslu Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráðherra um samningaviðræður EB og
EPTA, gerðust þau tímamót að alþingismaður lagði til í fyrsta skipti
að íslendingar sæktu um aðild að EB. Ragnhildur Helgadóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, sagði að íslendingar ættu að notfæra sér
þann skilning, sem þjóðirnar sýni málefnum íslendinga, og sækja um
aðild að Evrópubandalaginu. Ragnhildur lagði til að taka ætti upp
samninga um sérhagsmuni íslendinga um leið og hún taldi að þeim
væri betur borgið í viðræðum um aðild en í samflotsviðræðum með
öðrum. Hreggviður Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók
undir þetta sjónarmið.
SIG?
Þó svo að hér sé um tímamótayfirlýsingu
alþingismanns að ræða, töldu margir að
slík yfírlýsing lægi í loftinu. Sjálfstæðis-
menn hafa opinberlega velt þessari hug-
mynd fyrir sér og nægir þar að benda á yf-
irlýsingu Þorsteins Pálssonar, formanns
flokksins, á aðalfundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva, þar sem hann sagði að
tímabært væri að velta þeirri spurningu
upp, hvort íslendingar ættu að sækja um
aðild að bandalaginu.
í stefnuræðu forsætisráðherra, sem flutt
var 22. október sl., kemur fram að hug-
myndir manna um fulla aðild að Evrópu-
bandalaginu lýsi fyrst og fremst uppgjöf á
því að ráða eigin málum. Tvöhundruð og
fimmtíu þúsund manna þjóð hyrfi fljót-
lega í mannhafið og fslendingar yrðu lítið
annað en áhrifalaus útkjálki, einskonar
hráefnismiðstöð. í ræðunni segir að það
sé mikill misskilningur að sem fullgildur
meðlimur EB fengi ísland til lengdar
undanþágur, t.d. hvað varðar fjárfestingu
í fiskveiðum eða kaup á landi o.s.frv., og
það sé ekki um að ræða nema tímabund-
ið.
Tíminn bar ummæli Ragnhildar Helga-
dóttur undir formenn og varaformenn
þingflokkanna, ásamt aðilum vinnumark-
aðarins og spurði hvort þeir gætu tekið
undir þetta sjónarmið þingmannsins. Þá
voru sömu aðilar spurðir hvort þeir teidu
að aðild að EB yrði kosningamál.
Þingflokkur Alþýðuflokks
Eiður Guðnason,
formaður þingflokks
Alþýðuflokksins, sagði
að hann héldi að það
væri ekki tímabært að
sækja um aðild. „Það
er ekki tímabært,
vegna þess að ísland
ásamt öðrum EFTA-
ríkjum stendur í samningum um evr-
ópskt efnahagssvæði og það mál þurfum
við að leiða til lykta, áður en við íhugum
næstu skref í málinu. Sú sjávarútvegs-
stefna, sem EB nú fylgir af býsna mikilli
hörku, er auðvitað fullkomlega óaðgengi-
leg fyrir okkur.“ Aðspurður um það hvort
aðild að EB yrði kosningamál, sagði Eiður
að það væri nokkuð snemmt að spá um
það hvort sú spurning yrði kosningamál.
„Ef að Sjálfstæðisflokkurinn kýs að setja
það mál á oddinn í sinni kosningabaráttu,
sem ég á nú heldur erfitt með að trúa,
vegna þess að í þeim flokki er engin sam-
staða um það mál frekar en svo margt
annað, þá getur það orðið kosningamál.
Ég hygg að Evrópumálin og tengsl okkar
við EB- og EFTA-markaðinn hljóti að bera
á góma í kosningabaráttunni og það er
auðvitað lífshagsmuna- og þjóðhags-
munamál fyrir okkur, hvernig þessum
tengslum okkar við þennan langstærsta
markað okkar verður háttað í framtíð-
inni,“ sagði Eiður.
Þingflokkur Kvennalista
Málmfríður Sigurð-
ardóttir, formaður
þingflokks Kvennalist-
ans, sagði að Kvennal-
istakonur tækju ekki
undir þetta sjónarmið
og þær hefðu frekar
verið á því að reyna
tvíhliða samninga við
EB. „Við höfum einnig viljað sjá hver
framvindan yrði á þessum viðræðum sem
nú eru í gangi og reyna þá leið til þrautar
áður en farið yrði að huga að öðru,“ sagði
Málmfríður. Hún sagði að það færi fyrst
og fremst eftir því hvernig þessar viðræð-
ur þróuðust, hvort aðild að EB yrði kosn-
ingamál, og þá á hvaða stigi þær væru
þegar liði að kosningum. Hún sagði að ef
það drægi til úrslita í þessum viðræðum
fyrir kosningar, þá yrðu þessi mál jafnvel
kosningamál.
Þingflokkur
Alþýðu-bandalags
Hjörleifur Gutt-
ormsson, varaformað-
ur þingflokks Alþýðu-
bandalagsins, sagði að
hann gæti svo sannar-
lega ekki tekið undir
þetta sjónarmið. „Ég
harma það að þessi
sjónarmið skuli fram
komin hjá alþingismönnum, en
Ragn-
hildur er raunar ekki fyrst manna til að
koma fram með þetta. Karl Steinar
Guðnason varpaði þessu einnig fram í
umræðum í marsmánuði. Ég harma það
að þessi sjónarmið skuli komin inn á al-
þingi íslendinga og tel að aðild að EB nú
og í framtíðinni, eins og menn þekkja það
bandalag og sjá þróun þess, eigi alls ekki
að koma til greina,“ sagði Hjörleifur.
„Helsta ástæðan er sú að ég tel að ísland
eigi ekki að vera hluti af evrópsku stórríki,
heldur halda sjálfstæði sínu sem við
áunnum okkur á síðustu öld og þessari og
eigum að nýta þá miklu möguleika sem
felast í því að vera sjálfstæð þjóð. Nota
okkar ágætu möguleika til að halda hér
uppi góðum lífskjörum, ef við höfum vit
til að halda stjórntækjunum í okkar eigin
höndum, í staðinn fyrir að afhenda þau
meira og minna úr landi.“ Hjörleifur
sagði að það væri alveg ljóst að aðild að
EB yrði kosningamál ásamt spurning-
unni um þetta svokallaða evrópska efna-
hagssvæði, sem sé vasaútgáfa af aðild að
Evrópubandalaginu og fyrsta skrefið að
slíku. „Ég er andvígur því að við förum að
tengjast þeim innri markaði EB, eins og
þar er gert ráð fyrir. Ég tel það jafn óvæn-
legt og aðild að EB, að tengja okkur við
þennan innri markað með því afsali á full-
veldi sem því <ylgir,“ sagði Hjörleifur.
Þingflokkur
Framsóknarflokksins
Valgerður Sverris-
dóttir, varaformaður
þingflokks Framsókn-
arflokksins, sagði að
hún gæti ekki tekið
undir þessi orð Ragn-
hildar. „Mér finnst að
þessi mál séu í
ákveðnum farvegi í
þessum samningaviðræðum EFTA og EB
og það sé leið sem eigi að reyna til þraut-
ar. Mér fmnst þetta tal um að sækja um
aðild núna alveg út í hött og sama get ég
sagt um það, sem heyrist frá nágranna-
þjóðum okkar. Þar virðist þetta vera upp á
teningnum og mér finnst það veikja mik-
ið samningsstöðu okkar í viðræðum
EFTA við EB. Það stendur ekki til að fara
að fjölga þjóðum í EB, þannig að þetta er
aðeins til bölvunar.“ Valgerður sagði að
eftir því sem fleiri EFTA-þjóðir fari að láta
þennan tón heyrast, þeim mun erfiðara
verði að ná samningum. „Samt heyrist
mér nú að þeir sem þarna eru í forsvari
séu ekkert vonlausir um það að samning-
ar náist,“ sagði Valgerður. Hún sagði að
menn vissu, eða ættu að vita, hvað það
þýddi að sækja um aðild að EB. Þjóðin
þyrfti að skrifa undir Rómarsáttmálann
og þar með að afsala yfirráðunum yfir
okkar auðlindum. Aðspurð um hvort að-
ild að EB yrði kosningamál, sagði Val-
gerður að menn byggjust við að þegar
dragi að kosningum, verði komið í ljós
hvað út úr viðræðum EB og EFTA komi.
„Ef það tekst ekki að koma á evrópsku
efnahagssvæði, má búast við að þetta
verði kosningamál," sagði Valgerður.
Hún sagði að það gæti vel verið að þetta
evrópska efnahagssvæði væri stökkpallur
inn í EB, en það sé samt mjög gott að geta
þá farið á þennan pall og séð svo aðeins til
hvernig málin þróist. Þar að auki sé þetta
ekki bara spurning um aðild að EB eða
evrópskt efnahagssvæði, heldur sé þarna
þriðji kosturinn sem sé tvíhliða samning-
ur og hann sé líka inni í myndinni, ef við-
ræður EFTA og EB ganga ekki upp.
Þingflokkur
Sjálfstæðisflokks
Ólafur G. Einarsson,
formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins,
sagði að hann tæki
ekki beint undir það að
tímabært sé að sækja
um aðild. „Hins vegar
er ég þeirrar skoðunar
að við eigum ekki á
nokkurn hátt að einangra okkur í þessu
máli og ég tek undir þá skoðun að það sé
tímabært að setja það inn í þjóðmálaum-
ræðuna og skoða það sérstaklega í ljósi
þess, hverjar horfur eru í viðræðunum
um evrópskt efnahagssvæði milli EFTA og
EB. Mér finnst það hafa komið upp núna á
síðustu dögum, að við þurfum að taka af-
stöðu til þessarar spurningar, vegna þess
að EFTA-ríkin virðast núna hvert af öðru
vera komin á þá skoðun að þau verði að
sækja um aðild. Ég vísa þar til, fyrir utan
Austurríki sem þegar hefur sent inn um-
sókn, stefnubreytingar sænskra jafnaðar-
manna og einnig til þess að norska stjórn-
in er fallin á þessu máli og til þess að fylgi
með aðild fer þar vaxandi. Þetta segir okk-
ur einfaldlega að það styttist í það að við
verðum að taka afstöðu til spurningarinn-
ar um það hvort við eigum að sækja um
aðild að EB. Ég geng ekki eins langt á
þessu stigi og Ragnhildur Helgadóttir, en
ég vil hins vegar ræða það,“ sagði Ólafur.
Aðspurður sagði Ólafur að hann héldi
ekki að aðild að EB yrði kosningamál.
,Auðvitað verður það mál rætt í kosninga-
baráttunni, en ég hef það ekki á tilfinn-
ingunni að það verði kosningamál. Ég
geri ekki ráð fyrir því að neinn flokkur
verði kominn með það í sína stefnuskrá
að það skuli sótt um aðild. Það sé hins
vegar komið upp bæði hjá Alþýðuflokki
og Sjálfstæðisflokki, að þetta þurfi að
ræða og þar skilur á milli þessara tveggja
flokka annars vegar og hinna flokkanna
hins vegar, því hinir eru ekki til viðtals
um það,“ sagði Ólafur. Hann sagði að það
væri alveg ljóst að það styttist í það að
menn verði að taka skýra og klára afstöðu
í þessu máli, hvort sem það verði í kosn-
ingunum í vor eða síðar. Ólafur sagði að
flokkar þyrftu að taka afstöðu til þessa
máls ekki síðar en úrslit í viðræðum EFTA
og EB verði kunn. „Það kann að verða fyrr
en margur ætlar, sérstaklega ef EFTA riðl-
ast svona eins og við blasir. Ef viðræður
um evrópskt efnahagssvæði leiða til
ásættanlegrar niðurstöðu, þá sýnist
manni allt benda til þess að það sé út af
fyrir sig bara skref að aðild, þannig að við
komumst ekkert undan því að taka af-
stöðu,“ sagði Ólafúr.
Þingflokkur Borgaraflokks
Guðmundur Ágústs-
son, formaður þing-
flokks Borgaraflokks-
ins, sagði að hann gæti
ekki tekið undir um-
mæli Ragnhildar. „Ég
held að það sé ekki
tímabært að sækja um
aðild, en hins vegar er
tímabært að vekja máls á þessu og hefja
umræður og lýsa kostum og göllum
þess.“ Guðmundur sagði að fyrst þyrfti að
kanna hvort viðræður um evrópskt efna-
hagssvæði bæru árangur, áður en farið
væri að skoða aðra kosti. „Þó að við sækj-
um um aðild, myndi það aldrei koma til
framkvæmda fyrr en undir aldamótin og
EB er búið að lýsa því yfir að þeir taki ekki
inn nýja félaga fyrr en í fyrsta lagi eftir
1993. Að mínu viti er hagsmunum okkar
best borgið með því að ná samningum um
evrópskt efnahagssvæði," sagði Guð-
mundur. Hann sagði að sér þætti það
mjög skrítið ef Sjálfstæðisflokkurinn setti
aðild að EB á oddinn í kosningabarátt-
unni í vor, því það væri ekki í samræmi
við nafn flokksins að afsala sér sjálfstæð-
inu. „Menn eru að reyna að vekja athygli á
sjálfúm sér. Það eru ekki hagsmunir þjóð-
arinnar, sem liggja þarna á bak við. Þar að
auki eru íslendingar á engan hátt undir
það búnir að ganga í EB. Við eigum langt
í land með það að samræma reglur og lög;
það myndi taka okkur mörg ár. ísland er
aðeins útkjálki og við höfum ekki sömu
hagsmuna að gæta og aðrar þjóðir, sem
lifa í þéttbýli með iandamæri hvort að
öðru, í umræðunni um aðild að EB,“
sagði Guðmundur.
Samtök um jafnrétti
og félagshyggju
Stefán Valgeirsson,
þingmaður Samtaka
um jafnrétti og félags-
hyggju, sagði að sú
stund rynni aldrei upp
að það væri tímabært
að sækja um aðild að
EB. „Aðalástæðan er
að samkvæmt
utanríkisráðherra og fleiri, að þeir teldu
það líklegt að það myndi þokast í þá átt-
ina. Hins vegar eru þeir með svardaga um
það að það komi aldrei til greina að sækja
um aðild öðruvísi en við losnum við að
hleypa EB-þjóðunum inn í landhelgina.
Þeir hinir sömu virðast hins vegar ekki
átta sig á því að það er alveg skilyrði fyrir
því að jafti réttur ríkja til veiða í lögsögum
annarra ríkja er í gildi í bandalaginu."
Stefán sagði að jafnvel þó svo við fengjum
full yfirráð yfir fiskimiðunum, þá kæmi
aðild ekki til greina, þar sem alltaf væru
einhverjir af okkar stjórnendum, sem
væru það linir af sér að hann treysti þeim
ekki til að standa það fast á móti að ekki
væri mikil hætta. „Enda sé ég ekki, miðað
við þessi lög EB, að það komi til greina að
íslendingar fái aðild án þess að láta miðin
af hendi. Sumir, eins og t.d. Frakklands-
forseti, hafa sagt að fiskurinn væri íslend-
ingum mjög mikilvægur og það þýðingar-
mikil atvinnugrein að veita beri íslend-
ingum forræði yfir miðunum, en því
treysti ég ekki,“ sagði Stefán.
vsí
su
þeirra iögum verðum við að hleypa þeim
inn í okkar fiskveiðilögsögu, ásamt
mörgu öðru,“ sagði Stefán. Hann sagði að
aðild að EB yrði m.a. eitt af kosningamál-
unum í vor. „f umræðunni í fyrradag voru
tveir sjálfstæðismenn, sem lýstu því yfir
að það væri tímabært að sækja um aðild,
og það lá í orðum fleiri þingmanna, bæði
Einar Oddur Krist-
jánsson, formaður
Vinnuveitendasam-
bands íslands, sagði að
það væri ekki tíma-
bært á nokkurn hátt
að sækja um aðild að
EB. Einar sagði að sér
þætti það ákaflega
heimskulegt af íslendingum ef þeir gerðu
aðild að EB að kosningamáli. Einar sagði
að það væri alls ekki rétt að formaður
Sjálfstæðisflokksins væri meðmæltur að-
ild, heldur hafi hann sagt að það ætti að
spyrja þeirrar spurningar hvort sækja
ætti um aðild. „Við hjá VSÍ tókum það
mjög vendilega fram í vor á okkar aðal-
fundi, að það sem lægi fyrir hjá íslending-
um núna væri númer eitt, tvö og þrjú að
vinna heimavinnuna sína, undirbúa lög-
gjöfina og viðskiptalífið undir það að ís-
land í framtíðinni verði miklu opnara
land heldur en við höfum vanist á síðustu
öld, hver svo sem samningur okkar verði
við EB. Við höfum lagt áherslu á það að
það sé heimavinnan hér heima á íslandi
sem við þurfum að vinna mjög vel og
leggja okkur fram á næstu árum og það er
það sem skiptir máli,“ sagði Einar.
BSRB
Ögmundur Jónas-
son, formaður Banda-
lags starfsmanna ríkis
og bæja, sagði að hann
gæti ekki tekið undir
þetta sjónarmið. „Sú
stefna, sem hefur verið
mörkuð innan BSRB,
er að við höfum talið
að þær viðræður, sem fram hafa farið
fram í gegnum EFTA við EB, séu rökrétt-
ar. Við höfum verið fylgjandi þessum við-
ræðum. Síðan er að sjá hvað kemur út úr
þeim og þá er jafnvel tímabært að athuga
aðra kosti. Hins vegar held ég að íslend-
ingar þurfi að stíga afar varlega til jarðar á
þessum hála ís, sem við stöndum á í við-
ræðum við Evrópu. Við þurfum að ganga
fram af staðfestu og við megum ekki loka
okkur inni í einhverri hræðsluskel. Hitt
er annað mál að við þurfum að gæta okk-
ar hagsmuna mjög rækilega. Fiskimiðin
eru það mikilvægasta sem við eigum og
endanlega snýst þetta dæmi um það,
hvernig þeirri eign reiðir af.“ Ögmundur
sagðist ekki geta spáð um það hvort aðild
að EB yrði að kosningamáli. „Þetta er mál
sem íslendingar þurfa að standa mjög
sameinaðir um. Hins vegar er nauðsyn-
legt að ræða þessi mál mjög ítarlega og
opinskátt, því að í umræðunni koma upp
ýmsir fletir á málum.“ Ögmundur sagði
að mjög brýnt væri að örva fólk til um-
ræðu um þessi mál og það væri mjög
skaðlegt, hvað þessi umræða hafi verið
þröng í raun. Hann sagði að það væri tími
til kominn að flestir létu þessi mál til sín
taka, því hér væri verið að takast á og
fjalla um framtíð þjóðarinnar. „Þetta
snýst um annað og meira en afstöðu
Ragnhildar Helgadóttur. Þetta er mál sem
snertir okkur öll og við eigum öll að
blanda okkur inn í þessa umræðu," sagði
Ögmundur.
Samtök bænda
Haukur Halldórs-
son, formaður Stétt-
arsambands bænda,
sagði að hann teldi alls
ekki tímabært að
sækja um aðild að EB.
„Ég held ósköp ein-
faldlega að menn viti
ekkert hvað þeir séu
að tala um. Mér finnst að öll umræða,
sem hér hefur verið, hafi einkennst af sér-
stöku þekkingarleysi á því um hvað málið
snýst. Umfjöllun fjölmiðla á GATT-við-
ræðum og öðrum er ekki á því plani að al-
menningur geti tekið afstöðu til þess,“
sagði Haukur. Hann sagðist varla geta
ímyndað sér það að umræða um aðild að
EB yrði að kosningamáli í næstu kosning-
um.
ASI
Ásmundur Stefáns-
son, forseti Alþýðu-
sambands íslands,
sagði að hann héldi að
það væri mjög fráleitt
að rífa spurninguna
um aðild upp við þær
aðstæður, sem nú séu.
„Það standa yfir við-
ræður milli EFTA og EB um samninga
um eitt og annað og það sem aðgreinir
umfjöllunina um aðild EB nú frá því, sem
var fyrir tuttugu árum í t.d. Danmörku og
Noregi, er að það er ekki verið að gefa eitt
svar, já eða nei, heldur er verið að fara yf-
ir það hversu langt menn vilja ganga á
mörg hundruð sviðum. Við höfúm verið í
viðræðum um ýmislegt og ég held að það
sé fráleitt að rífa það mál upp, eins og
staðan er í dag. Það hlýtur að vera eðlilegt
að halda áfram á þeirri braut, sem við höf-
um verið með þá vinnu," sagði Ásmundur.
Hann sagði að við værum að heimta frjáls
viðskipti með fisk, samhliða því að helsta
umræðan á íslandi væri um það hvernig
við getum skipulagt útflutninginn. Inn-
lenda umræðan sé um það hvernig við
stýrum en samskiptaumræðan um það að
ekki megi stýra nokkrum sköpuðum hlut,
vegna þess að allt skuli vera frjálst. „Við
sjálf tölum því í kross, án þess að við setj-
umst niður og reynum að átta okkur á því
hvernig okkar hagsmunum er best borg-
ið,“ sagði Ásmundur. Hann sagði að við
værum með kröfur, sem gengju hver
gegn annarri. Krafan um frjáls viðskipti
með fisk og krafan um það að stýra eigin
útflutningi. í samskiptum við EFTA og EB
viljum við frjáls viðskipti með fisk, en
þegar við sjálf erum að fjalla um okkar
fiskútflutning, þá viljum við treysta að-
stöðu okkar til að stýra útflutningnum.
„Ég held að það sé okkur mikilvægast að
geta stýrt útflutningnum, til að geta ráð-
stafað honum til vinnslu á íslandi," sagði
Ásmundur. Hann sagði að útilokað væri
fyrir nokkurn mann að meta hvort væri
hagstæðara fyrir okkar sérhagsmuni að
ganga í EB eða standa að viðræðum EFTA
og EB, fyrr en útkoman úr núverandi við-
ræðum væri ljós. Ásmundur sagði að rök-
in á móti því að sérhagsmunum okkar
væri betur borgið í aðildarviðræðum
væru þau, að EB myndi tæplega gefa sér
tíma til þess að elta of mikið samskipti við
einstök ríki, á meðan þeir eru að fara í
gegnum sína eigin innri aðlögun. Ás-
mundur sagði að sér þætti það afar
ósennilegt að aðild að EB yrði að kosn-
ingamáli. Hann sagði að það vantaði inn í
þessa umræðu hvað það væri sem menn
teldu að vinnist með því, annað en það
sem vinnst með umræðum um samskipti
án aðildar. „Menn verða að svara þessum
spurningum áður en þeir fullyrða um að-
ild að EB. Mér finnst þetta vera axarskaft
að rjúka svona til og kannski mætti segja
að það væri kannski ekki óeðlilegt að
þingmenn, sem eru að hætta, geti talað í
meira mæli án ábyrgðar en aðrir, sem
ætla að halda áfram. Ég vil ekki ætla
Ragnhildi neitt slíkt, en mér finnst að
þetta sé ósköp einfaldlega ekki grundað,"
sagði Ásmundur Stefánsson.
Stefán Eiríksson.
:
.