Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 3

Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 29. nóvember 1990 Tíminn 3 Júlíus Sólnes segir Seðlabankann draga lappirnar við að aftengja lánskjaravísitöluna: Við miðum við 6 mánuði, en I WM Wí I IA 4P& Bókavarðafélag íslands: peif Vllja GO ari Bækur og upplestur Á ríkisstjórnarfundi á þríðjudag lagði Júlíus Sólnes umhverfisráð- herra fram óformlega tillögu um að ríkisstjómin skipaði sérstaka nefnd til þess að undirbúa afnám lánskjaravísitölunnar. Að sögn umhverfisráðherra er þessi tillaga fram komin m.a. vegna þess að hann er orðinn óþolinmóður að bíða eftir tillögum um þetta efni frá Seðlabankanum. Aðspurður um hvort þetta þýddi að hann teldi þá skýrslu, sem Seðia- bankastjórnin sendi frá sér á dögun- um og sagt var frá hér í blaðinu sl. laugardag, ekki fullnægjandi, sagði umhverfisráðherra að ekkert gagn hafi verið í þeirri greinargerð. í um- ræddri skýrslu Seðlabankastjórnar er m.a. lagt til að aftenging láns- kjaravísitölunnar verði ekki ákveðin með valdboði, heldur verði boðið val á milli verðtryggðra og óverð- tryggðra kjara á öllum fjárskuld- bindingum á meðan kostir óverð- tryggðra kjara séu að sanna sig. Júlí- us Sólnes sagði að Seðlabankinn vildi fara allt of varlega í hlutina. „Ég held að það megi e.t.v. lýsa þessu sem svo að þegar við höfum verið að tala um að miða við að af- tengja vísitöluna þegar verðbólgan hefur verið undir 10% á sex mánaða tímabili, vilji þeir að hún hafi verið undir 10% í 60 ár. Ég er einfaldlega orðinn óþolinmóður og tel að ríkis- stjórnin eigi að taka þetta í sínar hendur og skoða það með sínum sérfræðingum hvernig megi vinna að þessu," sagði Júlíus. Umhverfisráðherra sagði að nú þegar byðust mjög hagstæð sparn- aðarform, þar sem væru sparireikn- ingar í SDR og ECU með góðum vöxtum, og slík ávöxtun þætti mjög góð hvar sem væri í heiminum. „Ég tel að mönnum standi til boða að leggja sparifé inn á reikninga sem eru bundnir í ECU og SDR og fá á þeim reikningum mjög sanngjarna vexti. Telji menn það ekki nóg, þá eru þeir að biðja um okur og vilja nota lánskjaravísitöluna til okurs. Ég er sannfærður um það að al- menningur um allan hinn vestræna heim teldi það fullboðlegt að fá á opna sparireikninga í SDR eða ECU 6-7% vexti. Hér vilja menn hins veg- ar miklu meira. Menn vilja fá að moka inn fé út á lánskjaravísitöluna, en ég vil að því linni. Vísitalan er verðbólguhvetjandi í því ástandi sem nú er og það er hagsmunamál hjá fjármagnseigendum að verð- bóigan fari af stað til þess að þeir geti farið að moka inn á lánskjara- vísitölunni. Til að verja þá lágu verð- bólgu sem nú er í landinu er mikil- vægt að afnema lánskjaravísitöluna sem fyrst," sagði Júlíus. - BG í Þjóðarbókhlöðunni Bókavarðafélag íslands mun í sam- vinnu við ýmsa útgefendur og rit- höfunda standa fýrir kynningu á nýjum bókum í Þjóðarbókhlöðu laugardaginn 1. desember kl. 13.00. Alls verða 26 bókatitlar kynntir. Bókavarðafélag íslands var stofnað 4. desember 1960. Einn aðalhvata- maður að stofnun félagsins var Guðmundur G. Hagalín, rithöfund- ur og fyrsti bókafulltrúi ríkisins. Stofnfélagar voru 38. Fyrsti formað- ur félagsins var Herborg Gestsdótt- ir. í félaginu eru nú rúmlega 300 fé- lagsmenn. Núverandi formaður er Andrea Jóhanrisdóttir Háskólabóka- safni. Tilgangur Bókavarðafélagsins er m.a.: ,Að efla íslensk bókasöfn og auka skilning á hlutverki þeirra í þágu menningar og upplýsinga- starfsemi. Að marka stefnu í mál- um, sem varðar bókasafnsstarfsemi í landinu. Að efla upplýsingamiðlun meðal bókasafna og bókavarða og treysta samheldni þeirra félaga sem standa að sambandinu. Að koma fram fyrir hönd íslenskra bókasafna og bókavarða gagnvart innlendum og erlendum aðilum." khg RKÍ gerir könnun í tilefni alþjóðlega alnæmisdagsins 1. desember: Viðhorfskönnun á dansleikjum Seðlabankinn hefur fengið nýtt bankaráð Alþingi hefur kosið nýtt bankaráð Seðlabanka íslands. Kosningin hef- ur dregist nokkuð, en kjörtímabil síðasta ráðs rann út um síðustu mánaðamót. Bankaráðið var endur- kosið með þeirri breytingu að Geir Gunnarsson alþingismaður tók sæti Þrastar Ólafssonar, en Þröstur hefur sagt sig úr Alþýðubandalag- inu. Ungmennahreyfing Rauða kross íslands mun standa fyrir könnun á viðhorfi ungs fólks til alnæmis, í tengslum við alþjóðlega alnæmis- daginn sem er 1. desember. Könn- unin fer fram á Háskólaballinu að kvöldi 30. nóvember og þremur al- mennum dansleikjum í höfuð- borginni daginn eftir. Þvotti stolið af snúrum: Þjófurinn í grænum jakka og gallabuxum? Þvotti hefur í þrígang sl. þrjár vik- ur verið stolið af snúrum í Víkurási og Vindási í Árbæ í Reykjavík. Þjóf- urinn hefur í öllum tilfellum komist inn í þvottahús og stolið þaðan m.a. grænum jakka, gallabuxum, æfinga- buxum og treyjum. Rannsóknarlög- regla ríkisins hvetur fólk á þessum slóðum til að hafa augun hjá sér og þvottinum sínum og ef það hefur einhverjar upplýsingar að snúa sér þá til RLR. —SE Lok síldar- vertíðar Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að síðasti veiðidagur yfir- standandi sfldarvertíðar verði 31. janúar 1991. (Fréttatilkynning) Þátttakendur f könnuninni verða spurðir nokkurra almennra spurn- inga um alnæmi, og hverjum og einum afhentur smokkur til að leggja áherslu á öruggt kynlíf. Vonast er til að svörin muni gefa einhverja vísbendingu um þekk- ingu og viðhorf þess fólks sem sækir almenna dansleiki til sjúk- dómsins, segir í fréttatilkynningu frá RKÍ. Álíka könnun var gerð á sama vettvangi í fyrra, í samráði við landlæknisembættið, og mun vera ætlunin að bera saman niðurstöð- ur kannananna tveggja. —GEÓ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipa: Davíð Aðalsteinsson bóndi, Ágúst Einarsson prófessor, Geir Gunnarsson alþingismaður, Ólafur B. Thors forstjóri og Guðmundur Magnússon prófessor. Til vara voru kosnir: Leó Löve lögfræðingur, Margrét Heinreksdóttir lögfræð- ingur, Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur, Davíð Scheving LEIT jr HALDIÐ AFRA Leit að mönnunum tvcimu M í DAG r úr inda þangað til. Jóhannesi SU 127 hélt áíram í I Tímanum í gær var sagt að gær án árangurs. Leitað var í (jör- annar mannanna sem leitað er, um á Vatnsnesi og norðan við Dagbjartur M. Jónsson, ætti tvö SkagastrÖnd. Leit mun halda böm. Það er ekki rétt, heldur mun alldlll 1 UOg Ulll UAiðlU I verður gerð viðamikil ieit í ívigi L/ðgujanui vuiö piiBsJa uaiiia fjör- ir. Tíminn biðst velvirðingar á um, ef ekkert hefur borið til tíð- þessum mistökum. khg. Thorsteinsson forstjóri og Halldór Ibsen framkvæmdastjóri. Líklegast er talið að Ágúst Einars- son verði kjörinn formaður banka- ráðsins. Hugsanlegt er þó talið að Geir Gunnarsson verði kosinn for- maður. Fráfarandi formaður er ÓI- afur B. Thors. Alþingi hefur einnig kosið sjö menn úr hópi þingmanna í Norður- landaráð. Þeir eru: Páll Pétursson, Sighvatur Björgvinsson, Hjörleifur Guttormsson, Jón Kristjánsson, Ól- afur G. Einarsson, Þorsteinn Páls- son og Hreggviður Jónsson. Til vara voru kosnir: Valgerður Sverr- isdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Guðni Ágústs- son, Friðrik Sophusson, Birgir ís- leifur Gunnarsson og Ingi Björn Al- bertsson. Kosnir voru þrír menn til að yfir- fara ríkisreikning 1990. Þeir eru: Lárus Finnbogason endurskoðandi, Magnús Benediktsson endurskoð- andi og Geir H. Haarde alþingis- maður. -EÓ Auglýsing frá utanríkisráðuneytinu: UNGA FÓLKIÐ OG EVRÓPA Athugasemd frá auglýsinga- stjóra Tímans, Steingrími Gísla- syni. í tilefni af því, sem haft er eftir Þorsteini Ingólfssyni ráðuneytis- stjóra í DV í gær, 28. nóvember, um auglýsingarnar „Unga fólkið og Evrópa" frá utanríkisráðu- neytinu, þar sem ráðuneytis- stjóri heldur fram, að áður- nefndar auglýsingar hafi birst oftar en beðið var um í Þjóðvilja, Alþýðublaði og Tímanum, vil ég taka fram að auglýsingin var pöntuð í upphafi í Tímann 10. nóvember og 13. nóvember og birtist þái daga. En 13. nóvember var auglýsingunni breytt og fengum við þá nýjar filmur, eins og sjá má af myndum af báðum auglýsingunum. Það þekkist ekki á Tímanum að birtar séu auglýsingar óumbeð- ið. Steingrímur Gíslason auglýsingastjóri. UNGA F0LKIÐ 0G MÓPA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.