Tíminn - 29.11.1990, Side 9

Tíminn - 29.11.1990, Side 9
Fimmtudagur 29. nóvember 1990 Tíminn 9 Franskir menntaskólanemar vonsviknir og efna til mótmæla Að undanförnu hafa borist fregnir af mótmælaaðgerðum skólanema í Frakklandi sem gjarna hafa snúist upp í algerar götuóeirðir. Hugmynd nemend- anna mun þó hafa verið sú að hafa í frammi friðsamleg mótmæli en óaldarseggir hafa notað tækifærið. Kvörtunarefni nemendanna eru hins vegar vel þess virði að hlustað sé á þau, eins og eftirfarandi grein úr Der Spiegel ber með sér. Franskir menntaskóianemendur hafa staðið í mótmælaaðgerðum að undanfömu og hafa óaldarseggir bæst í leikinn. Nemendumir kreflast meira öryggis í skólunum, fleiri kennara og betrí framtíðarhorfa. Lionel Jospin menntamálaráðherra er hér í heimsókn í Frönsku Guayana. Þaðan hefur ekki frést af mótmælum skólanema. Kennaramir gefast upp „Enn ein. Smám saman venst ég þessu sjálfsagt," segir Emest Cheni- ere skólastjóri, 45 ára gamall. Ein kennslukonan hafði lagt fram skrif- lega beiðni um að þurfa ekki að taka að sér nema örfárra klukkustunda kennslu á viku, þar sem hún væri „farin á taugum" eins og hún sagði í bréfinu. Cheniere stýrir College Gabriel Ha- vez í Creil, borgarhverfi í um 50 km fjarlægð frá París þar sem mörg þús- und manns frá Alsír og Marokkó, auk blökkumanna frá Afríku, búa. Nemendumir 840 sem stunda eiga nám í skólanum eru á aldrinum 11- 15 ára og óvenju „ofbeldishneigðir" að mati skólastjórans. Hann segir starf sitt stundum helst líkjast því að berjast á vígvelli. U.þ.b. 33% kennar- anna gefast upp á ári hverju. Þeir segja upp, þar sem þeir geta ekki staðið undir álaginu. Vinnustaður þeirra er í miðju hverfi félagslegra bygginga, risastórra steinsteypuhúsa sem byggð hafa ver- ið umhverfis stórborgimar, 14 til 16 hæða, og á því sem næst hverri hæð ríkir ofbeldi, áfengi og eiturlyf, brotnar rúður og innsparkaðar hurð- ir. 51% nemendanna í menntaskóla Nemendur bera lífið utan skóla- veggjanna með sér inn í kennslustof- urnar. Samt sem áður fá 51% nem- endanna inngöngu í „lycée", menntaskóla. Hinir, og sé landið tek- ið í heild eru það um 100.000 á ári, yfirgefa skólann 16 ára, án prófskír- teinis og framtíðarvona. 27,2 prósent allra franskra atvinnu- leysingja eru yngri en 25 ára, og dæmdir til að eyða lífinu innan „gráu múranna" eins og Francois Mitterr- and forseti orðar það, „í gráu lands- lagi og gráu lífi, til hliðar við samfé- lag sem kýs heldur að líta í aðra átt og grípa ekki í taumana nema til að banna eða sýna reiði síná'. Unga fólkið, sem þessar vikumar hefur farið í mótmælagöngur í París og Marseille, Strassborg, Lyon og Bordeaux í tugþúsundatali, kemur ekki úr úrvalsskólum Frakklands, heldur að stærstum hluta frá ömur- legum úthverfum eins og Creil. Ekki sambæríleg mót- mæli og 1968 Mótmælendumir, sem að lang- mestum hluta em menntaskóla- nemendur, leita ekki eftir því sama og forverar þeirra 1968, þ.e. að svipta franska smáborgara sæluríki 200 ára gömlu byltingarinnar og leggja í rúst kapítalismann ásamt tilheyrandi valdastiga. Núna gera nemendumir kröfúr um meira öryggi í skólunum, fleiri kennara og betri framtíðarhorf- ur. Þeir vita sem er að þeir eiga sitt líf í útjaðri þjóðfélagsins og vilja ekki lengur sætta sig við það. Jafhvel kennaramir þeirra lýsa oft yfir sam- stöðu með þeim og taka þátt í mót- mælagöngunum. Jafnframt virðast franskir sósíalist- ar, rétt eins og fyrir um áratug þegar þeir komust til valda, betur til þess fallnir en nokkur annar stjómmála- flokkur að gera endurbætur á skóla- kerfinu í landinu, en af þeim 285 sósíalistum sem kosnir vom á þjóð- þingið 1981 vom 138 kennarar. Þá höfðu þeir stór orð um það að þeir vildu færa „bac“ (stúdentsprófið) í lýðræðislegri átt. Hið eftirsótta stúdentspróf Þá hétu ráðherrar Mitterrands því að þegar árið 2000 rynni upp gætu 80% ungra Frakka fengið stúdents- prófsskírteini eða samsvarandi próf- skírteini annað; sem sagt: nokkurs konar menningarbylting væri í vændum. Samt sem áður var stúd- entsprófið enn að Iangmestum hluta forréttindi borgarastéttarinnar fram á miðjan níunda áratuginn. Stúdentsprófið er þráhyggjuum- ræðuefrii foreldranna og eilíft við- fangsefrii í sjónvarpinu vikum saman áður en prófin hefjast Það er nefni- lega, samkvæmt sannfæringu frönsku þjóðarinnar, ófrávíkjanleg forsenda fyrir því að njóta starfs- frama sem hlýtur viðurkenningu þjóðfélagsins. Á þessu ári hefúr þegar 60% nem- enda tekist að stíga stóra skrefið frá college til menntaskóla; sem sagt: lýðræðisþróunin er skv. áætlun, að því er halda mætti. Nú em 1,6 millj- ón menntaskólanema með þjóðinni. En engin er rós án þyma og meðal þymanna má telja að í hverjum bekk em nú 38 nemendur og æ fleiri nem- endur em nú a.m.k. fjögur ár að búa Mótmælaaðgerðir skólanemenda um allt Frakkland hafa vakið upp gamla martröð. Minningamar frá stúdentauppreisninni 1968 eru enn Ijóslifandi. sig undir stúdentsprófið, í stað þriggja áður. Uppeldisfræðingar ótt- ast að lýðræðisleg þróun stúdents- prófsins hljóti að leiða til útjöfnunar og halda aftur af þeim betur gefnu, með þeim afleiðingum að helsta stolt Frakklands, intellígensían, verði fyrir tjóni. Menntamálaráðu- neytið dýrt og „óstýranlegt bákn“ Stjórnarandstaðan krefst þess að miðstýring í skólakerfinu verði af- numin, og jaíhvel að menntamála- ráðuneytið verði lagt niður með öllu sínu risavaxna, miðstýrða skrifstofu- veldi. Undir það heyra 750.000 kennarar og 12,5 milljónir skólanemendur; „óstýranlegt bákn,“ segir þingmað- urinn Charles Millon. Nýju fjárlögin varðandi uppeldismálin, 248 millj- arðar franka, em hærri en fjárveit- ingar til vamarmála. Engu að síður færist óánægja og ör- yggisleysi í skólunum í aukana. Það er skortur á skólabyggingum, fé til viðhalds, kennumm og eftirlitsfólki. Þeim, sem ekki fá inngöngu í menntaskóla, finnst sér útskúfað. Útkoman er djúpstæð vonbrigði hjá mörgum. En jafnvel þeir sem hafa lokið stúdentsprófinu eiga sér ekkert frekar frama von, þar sem fleiri og fleiri stúdentar útskrifast með hverju árinu sem iíður og er þar með hleypt inn í háskólana. Nemendur úr úrvalsháskóla og venjulegum háskóla ekkí jafnir Menntaskólanemendunum sem mótmæla þessa dagana á götunum er orðið Ijóst að enn hafa ekki allir sömu tækifæri, heldur em til tvær tegundir háskóla. Sumir em svokall- aðir „grandes ecoles“, úrvalsskólam- ir eins og Ecole Normale supérieure, Ecole des hautes études commercia- les og Ecole polytechnique, þar sem „dekrað er við stúdentana og þeir vemdaðir eins og blóm í gróðurhúsi" eins og Le Monde orðar það. Þeir sem þaðan útskrifast eiga vísar ágæt- isstöður. Þessir lukkunnar pamfílar geta haldið áfram framabrautina í Ena (Ecole nationale d’administration), teknókratasmiðju þjóðarinnar þar sem Michel Rocard forsætisráðherra, Laurent Fabius þingforseti, Lionel Jospin menntamálaráðherra, svo og stjómarandstæðingamir Valéry Gis- card d’Estaing og Jacques Chirac hófu feril sinn. En aðrir nemendur verða að láta sér nægja venjulega háskóla þar sem stúdentamir verða að vinna í þrengslum og finna sér ekki einu sinni stæði á mörgum fyrirlestranna. Stjómmálamenn hafa vanrækt þá í áratugi. Kandídatamir þaðan hafa tæpast möguleika á því að fá starf sem virt er í þjóðfélaginu. Lítill áhugi á mennta- málum í þinginu Sama dag og svokallaðir „zonards", ungt fólk frá steinsteypuúthverfum Parísar eins og Sarcelles eða Montr- euil sem flest er þeldökkt eða norður- afrískt, lenti í átökum við lögregluna í borgarhverfinu Saint-Germain sem minntu marga Frakka á áfallið 1968, vom ekki nema 50 þingmenn af 577 viðstaddir umræður um mennta- málafjárhagsáætlunina í þinginu. Enn sem komið er lætur þessi kyn- slóð menntaskólanema, sem nú fyrst er farin að láta til sín taka, sér nægja friðsamleg mótmæli, en að sögn blaða þyrfti þar ekki nema einn neista til að kveikja í púðurtunn- unni. Þau ofbeldisfúllu mótmæli sem hér hafa sést í fréttum em sögð mennta- skólanemendunum óviðkomandi. Þar em hins vegar að verki óaldar- seggir sem nota tækifærið þegar mannsöfhuður er saman kominn og gera sitt besta til að hleypa öllu í bál og brand.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.