Tíminn - 19.12.1990, Page 5
Mlðvikudagur 19. desember 1990
Tíminn 5
Skjólstæðingum áfengismáladeildar Félagsmálastofnunar fjölgaði úr 190 upp í 490 á síðustu 4 árum:
„Byttum“ á besta aldri
fjölgaði um 50% milli ára
Skjólstæðingum áfengismála-
deildar Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar fjölgaði um
meira en fjórðung í fyrra upp í
tæplega 500 manns. Meira en 6.
hver þeirra sem nýtur fjárhagsað-
stoðar stofnunarinnar kemur úr
þessum hópi. Alkar á aldrinum
27-36 ára, í yfirgnæfandi meiri-
hluta karlmenn, er langstærsti
hluti þessa hóps, eða vel yfir þriðj-
ungurinn. „Þessi hópur af „bytt-
um á besta aldri" er sömuleiðis sá
sem hvað hraðast hefur vaxið síð-
ustu árin. Fjölgunin var tæp 50%
á síðasta ári (úr 117 í 174) og alls
er um fjórföldun að ræða (300%)
á síðustu fjórum árum.
Mikla og vaxandi fjölgun á skjól-
stæðingum áfengismáladeildar
stofnunarinnar má glöggt sjá af
þessum tölum (sem sléttaðar eru í
heila tugi):
Ár: AIls: Þ.a.konur:
1980 100 (9)
1985 180 (7)
1986 260 (15)
1987 330 (16)
1988 380 (31)
1989 490 (42)
Fjölgun: 368% 366%
Þessi mikla fjölgun er fyrst og
fremst í hópi ungs og fremur ungs
fólks. Árið 1980 var aðeins 31 þess-
ara skjólstæðinga undir fertugu.
Nú eru um 300 þeirra á þeim aldri,
eða um tíu sinnum fleiri. Mikil
fjölgun kvenna síðustu tvö árin er
áberandi.
Af skýrslunum má sömuleiðis
ráða að mikill meirihluti þessara
skjólstæðinga verður „eilífðarmál"
hjá Félagsmálastofnun. Um 100
nýir bættust í hópinn á síðasta ári,
eða álíka og stækkun hópsins. Mál
um 170 manns hafa verið til með-
ferðar í 1-2 ár, eða alls um 270 mál
á sl. þrem árum. Á annað hundrað
manns hafa verið skjólstæðingar
stofnunarinnar í meira en 5 ár.
Það vekur t.d. athygli að á sama
tíma og skjólstæðingum áfengis-
máladeildar fjölgar úr um 180 í
nær 490, þ.e. síðustu fjögur árin,
hefur einstæðum foreldrum í hópi
skjólstæðinga fjölskyldudeildar Fé-
lagsmálastofnunar fjölgað sáralít-
ið, en þeir töldu um 870 á síðasta
ári.
Mál hjá áfengismáladeild voru
„aðeins" um 6% heildarmálafjölda
Félagsmálastofnunar árið 1980, í
kringum 8% um miðjan áratuginn
en voru komin í 15% af heildar-
málafjölda í fyrra, þ.e. meira en 7.
hvert mál á borðum Félagsmála-
stofnunar.
í raun eiga áfengi og önnur vímu-
efni þó enn stærri hlut í vamda-
málum þeirra sem leita á náðir Fé-
lagsmálastofnunar. í yfirliti um
skráningu starfsmanna stofnunar-
innar fyrir komu skjólstæðinga
hafa þeir í 960 tilvikum merkt við
„áfengis- og vímuefnavandi", sem
er um 27% hlutfal! af heildarmála-
fjölda. En starfsmenn telja oft fleiri
en eina ástæðu fyrir beiðni um að-
stoð. Ákveðin borgarhverfi skera
sig mjög úr þegar litið er á búsetu
skjólstæðinga áfengismáladeildar.
Nær þriðjungur þeirra býr í gamla
austurbænum og hlutfallið hækkar
upp í nærri helming hópsins (48%)
ef Vesturbænum norðan Hring-
brautar er bætt við. En í þessum
borgarhverfum búa aðeins um 13%
Reykvíkinga í heild. f hverfum inn-
an Elliðaáa búa líka um 13% Reyk-
víkinga en aftur á mótiaðeins rúm
2% skjólstæðinga áfengismála-
deildar. - HEI
Guðmundur Ólafsson, sem fer með hlutverk Manfreðs Jónssonar, sést hér í fangi Haralds G. Haralds og
Eggert Þorleifssonar við æfingar á söngleiknum Á köldum klaka. Timamynd: Pjetur
Borgarleikhúsið sýnir nýjan íslenskan söngleik:
Á KÖLDUM KLAKA
,Á köldum klaka“ nefnist nýr ís-
lenskur söngleikur eftir þá Gunnar
Þórðarson og Ólaf Hauk Símonar-
son sem Borgarleikhúsið frumsýn-
ir í stóra salnum þann 29. desem-
ber nk.
Söngleikurinn fjallar um Manfreð
Jónsson, athafnamann í íslensku
þjóðlífi, sem tekist hefur á hendur
að skulda og reka Hótel Land-
námu. Að sögn Ólafs Hauks getur
Manfreð átt sér margar hliðstæður
í nútímasamfélagi okkar íslend-
inga. „Verkið er fyrst og fremst
gamanverk og er dæmisaga at-
hafnamanns sem er að brjótast
áfram," sagði Ólafur Haukur í sam-
tali við Tímann í gær.
Á Hótel Landnámu hans Manfreðs
er flest hálfklárað, en horfir þó til
betri vegar. Manfreð dreymir stóra
drauma um umsvifamikinn og
stóran rekstur í þágu lands og lýðs,
drauma um að eiga og stjórna
stærsta hóteli og skemmtistað á ís-
landi. En oft vill brenna við að
draumar athafnamanna stranda á
fjármagnsskorti. Manni og félagar
hans leita ýmissa Ieiða til að koma
Landnámu í blómlegan rekstur og
svífast á tímabili einskis. En þegar
í ógöngur stefnir rofar stundum til
og lausnin blasir við, kannski þar
sem menn áttu hennar síst von.
Æfingar á Á köldum klaka hafa
staðið yfir síðan í byrjun nóvem-
ber, en höfundar hafa setið við og
samið tónlist og texta frá því í
fyrravetur. Fjöldi fólks hefur lagt
hönd á plóginn svo að úr afkvæmi
þeirra Gunnars og Ólafs Hauks
megi verða fjörmikil og mnihalds-
rík sýning sem stytt geti mönnum
stundir með hækkandi sól, segir í
fréttatilkynningu frá Leikfélagi
Reykjavíkur.
Pétur Einarsson leikstýrir söng-
leiknum. Jón Þórisson hannar
leikmynd, Helga Stefánsdóttir sér
um búninga, Lára Stefánsdóttir
samdi dansa og Lárus Björnsson
sér um lýsingu, auk fjölda annarra
sem leggja hönd á plóginn við sýn-
ingu þessa. —GEÓ
Erindi Lands-
bergis kynnt
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra kynnti í gærmorgun ut-
anríkismálanefnd erindi Vytautas
Landsbergis, forseta Lithaugalands,
en hann hafði, eins og Tíminn
greindi frá, samband við Steingrím í
síðustu viku og lýsti yfir þungum
áhyggjum vegna viðræðna við Sov-
étmenn um sjálfstæði landsins.
Landsbergis fór fram á það við
Steingrím að íslendingar ítrekuðu
fyrri yfirlýsingar sínar um málefni
Lithaugalands. Erindi Landsbergis
hefur einnig verið kynnt í ríkis-
stjórninni. Steingrímur sagði í sam-
tali við Tímann að enginn ákvörðun
hefði verið tekin um það hvað verði
gert í þessu máli. / —SE
Hlutafé Jötuns hf
aukið í 140 millj.
Á hluthafafundi Jötuns hf., sem hald-
inn var í gær, var ákveðið að auka
hlutafé félagsins úr 934 þúsundum í
140 milljónir. Það fé er nú allt inn-
borgað, en hluthafar í Jötni hf. eru
Sambandið og tvö samstarfsfyrirtæki
þess, Reginn hf. og Dráttarvélar hf.
Um leið og ákveðið var að auka hluta-
fé Jötuns hf. var ákveðið að breyta
samþykktum fyrirtækisins á þann veg
að félagið er nú opið öllum kaupfélög-
um og samstarfsfyrirtækjum Sam-
bandsins. Það á einnig við um aðra
viðskiptaaðila, eða eftir nánari ákvörð-
un stjómar, eins og segir í fréttatil-
kynningu frá Sambandinu.
í ársbyrjun 1990 voru Búnaðardeild
Sambandsins, Bflvangur sf. og Jötunn
sameinuð í eina rekstrareiningu undir
heitinu Jötunn sem rekin hefur verið
sem deild innan Sambandsins. Á
stjómarfundi SÍS þann 3. desember sl.
var svo ákveðið að frá og með 1. janúar
verði öll þessi starfsemi vistuð í hluta-
félaginu Jötni. Hlutafélagið tekur þá í
öllum aðalatriðum við þeirri starfsemi
sem fýrirrennarinn hafði og að starf-
semin greinist í fimm deildir; bíla-
deild, véladeild, fóðurvörudeild, raf-
taeknideild og þjónustudeild.
í stjóm Jötuns hf. vom kosnir þeir
Guðjón B. Ólafsson Reykjavík, formað-
ur, Sigurður Kristjánsson, Selfossi, og
Sigurður Gils Björgvinsson, Reykja-
vík. Til vara var kjörin Þórhalla Snæ-
þórsdóttir á Stöðvarfirði. Fram-
kvæmdastjóri Jötuns verður Sigurður
Á. Sigurðsson, en hann hefur verið
framkvæmdastjóri Jötuns undanfarið.
-hs.
Ferðamálanefnd
lýkur störfum
Nefnd, sem samgöngumálaráðherra
skipaði 1. júní 1989 til að fjalla um
ferðamál á breiðum gmndvelli og
Bílvelta á
Arnarneshæð
Bíll sem var á leið til Reykjavíkur
valt við Arnarneshæðina í Garða-
bæ síðdegis í gær. Tvær stúlkur
vom í bflnum og slösuðust þær
ekki aivarlega. Nokkur snjór var á
Hafnarfjarðarveginum þegar bfll-
inn valt og er talið líklegt að bfll-
inn hafi runnið til með fyrrgreind-
um afleiðingum. —SE
Ólöf Jóns-
dóttir látin
Ólöf Jónsdóttir, afgreiðslustjóri
Tímans, lést í Reykjavík sl. mánu-
dag.
Olöf starfaði um árabil hér á Tím-
anum og áður við afgreiðslu hjá DV.
Hún var 53ja ára er hún lést og læt-
ur eftir sig eiginmann og fimm upp-
komin börn. Tíminn vottar aðstand-
endum og vinum samúð sína.
Ólöf Jónsdóttir afgreiðslustjóri.
stefnumörkun í þeim efhum, hefur nú
lokið störfum. Nefndin hélt alls 73
bókaða fundi og hefur nú skilað viða-
miklu verki til ráðuneytisins. Þar er
m.a. um að ræða þingsályktunartil-
lögu um ferðamálastefnu er nú liggur
fyrir Alþingi svo og frumvarp til laga
um ferðaþjónustu, sem samgöngu-
málaráðherra hefur lagt fram í ríkis-
stjóm og er nú til athugunar hjá þing-
flokkum stjómarflokkanna. Þá hefur
nefridin skilað greinargerð um athug-
un á samkeppnisaðstöðu og rekstrar-
skilyrðum ferðaþjónustu og gert til-
lögur um úrbætur og framhaldsat-
huganir á því sviði. Auk þessa hefur
nefndin gert margvíslegar ábendingar
og erindi um einstaka þætti ferðaþjón-
ustu. GS.