Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 28. desember 1990 / Tíminn 7 / '/ . VETTVANGUR Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra: Ný löggjöf um samvinnu- Jón Sigurösson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, mælti fyrir frum- varpi til laga um samvinnufélög á fundi neðri deildar hinn 18. þessa mánaðar. Núgildandi lög um samvinnufé- lög eru að stofni til frá árinu 1921, en á þeim hafa þó verið gerðar nokkrar breytingar í áranna rás. Að gerðum breytingum á þeim ár- ið 1937 voru þau gefin út sem lög nr. 46/1937. Arið 1980 ályktaði Al- þingi að fela ríkisstjórninni að hefja undirbúning að setningu nýrrar löggjafar um samvinnufé- lög og samvinnusambönd í sam- ráði við samvinnuhreyfinguna. Skipaði þáverandi viðskiptaráð- herra fimm manna nefnd til þessa verkefnis haustið 1980. Nefndin skilaði drögum að frumvarpi tij laga um samvinnufélög árið 1983. Skömmu síðar urðu stjórnarskipti og var þá horfið að því ráði að skipa nefnd með víðtækara verksviði, þar eð hún skyldi endurskoða helstu löggjöf um stofnanir í at- vinnurekstri eða níeð önnur íjár- hagsleg markmið. Núverandi viðskiptaráðherra ákvað að láta breytingar á hlutafé- lagalöggjöfinni hafa forgang, en lýsti því jafnframt yfir að eftir að þær væru samþykktar myndi lög- gjöf um samvinnufélög tekin til umfjöllunar. í aprflmánuði s.l. var skipuð nefnd til þess að endur- skoða lögin um samvinnufélög og til að semj^ frumvarp til nýrra laga um það efni. Nefndin hafði þau frumvarps- drög, sem áður er getið, til hlið- sjónar, en hún ákvað fljótlega í starfi sínu, að ganga miklu lengra í samræmingu á ákvæðum laga um samvinnufélög og ákvæðum laga um hlutafélög, en áður hefur verið lagt til. í því sambandi kynnti nefndin sér sérstaklega ákvæði ný- legra breytinga á finnsku sam- vinnulögunum, en þau ganga ein- mitt í sömu átt. Nefndina sem frumvarpið samdi skipuðu Björn Friðfmnsson ráðu- neytisstjóri, formaður; Erlendur Einarssori f.v. forstjóri Sambands ísl. samvinnufélaga, Hörður Zóp- haníasson skólastjóri, Ólafur Sverrisson f.v. kaupfélagsstjóri og Stefán Már Stefánsson prófessor. Frumvarpið er aljmikill bálkur. Það skiptist í lþ kafla og samtals 106 greinar. Fer hér á eftir megin- efni framsöguræðu ráðherra með frumvarpinu. Frumvarp til nýrra laga um sam- vinnufélög getur markað tímamót í atvinnusögu þjóðarinnar og þær breytingar sem í því eru lagðar til munu bæta stöðu samvinnufélag- anna í atvinnulífinu og gefa þeim kost á að styrkja eiginfjárstöðu sína. Samvinnuhlutabréf Frumvarpið gerir ráð fyrir því að samvinnufélög geti starfað áfram í sama formi og nú er, en það leggur jafnframt til að veitt verði heimild til þess að færa reksturinn í form sem er mjög nærri hlutafélags- forminu. Því er gert ráð fyrir að samvinnufélög geti haft tvískiptan stofnsjóð, þar sem A- deild hans samsvarar venjulegum stofnsjóði eins og nú tíðkast, en B- deildin sé mynduð með sölu hluta og til stað- festu á eignarhaldi að þeim séu gefin út svokölluð „samvinnu- hlutabréf', sem lúta almennum reglum um viðskiptabréf og geta gengið kaupum og sölum á mark- aði. Atkvæðisréttur fylgir ekki eignarhaldi á hlut í B-deiId stofn- sjóðs, en hins vegar fylgir honum forgangur til arðgreiðslna. Með sölu hluta í B-deild stofnsjóðs geta samvinnufélög aflað sér eigin fjár á sama hátt og hlutafélög geta það með sölu nýrra hiuta og nefndin sem frumvarpið samdi gerir ráð fyrir því að einstaklingar fái sam- bærilega skattalega meðferð í til- efni af kaupum á hlut í B-deild stofnsjóðs samvinnufélags og á kaupum á hlut í hlutafélagi. Ákvæðin sem heimila myndun B- deiidar stofnsjóðs í samvinnufélagi eru þýðingarmesta nýmæli frum- varpsins, en af öðrum nýmælum, sem þýðingu geta haft fyrir at- vinnulífið, má nefna að ákvæði þess falla betur að starfsemi fram- leiðslusamvinnufélaga, sem hér hafa einungis tíðkast í smáum stfl, en er algengara félagsform í öðr- um ríkjum eins og t.d. í Frakk- landi. Þá er nú gert ráð fyrir að lögaðilar geti gerst aðilar að sam- vinnufélagi, t.d. hlutafélög eða sameignarfélög. Helstu atríði frumvatpsins í II. kafla laganna er gert ráð fyrir að lágmarksfjöldi stofnenda sam- vinnufélags sé 15 og getur þar bæði verið um einstaklinga og Iög- aðila að ræða. Þó getur ráðherra heimilað frávik frá lágmarksfjölda stofnenda og eru þar einkum fram- leiðslusamvinnufélög höfð í huga, sem hentað geta fáum mönnum í sömu starfsgrein. Þar kemur einn- ig fram sú meginstefna frumvarps- ins að gefa félagsmönnum kost á að aðlaga samþykktir samvinnufé- lags að margbreytilegum aðstæð- um og markmiðum. í III. kafla frumvarpsins er gert ráð fyrir samvinnufélagaskrá sem verði landsskrá á sama hátt og hlutafélagaskrá. Er ráðherra falið að annast skráningu samvinnufé- laga og má gera ráð fyrir að verkið verði í höndum sömu starfsmanna og nú færa hlutafélagaskrá, en unnið er nú að breytingum sem leiða kunna til aukinnar þátttöku sýslumannsembætta í því. Lagt er til að aðgangur að samvinnufé- lagaskrá sé öllum heimill. IV. kafli frumvarpsins fjallar um réttindi og skyldur félagsmanna. Það er almennt einkenni sam- vinnufélaga að þau eru opin öllum þeim sem starfa vilja í slíku félagi og hlíta vilja samþykktum þess. Félagsréttindi eru ekki framseljan- leg og erfast ekki og hlutdeild fé- lagsmanns í óskiptum stofnsjóði eða í A-deild stofnsjóðs stendur ekki til fullnustu fjárkröfum skuldheimtumanna hans. Félags- aðilar bera ekki ábyrgð á heildar- skuldbindingum samvinnuféiags umfram greiðslu aðildargjalds og eignaraðild að sjóðum félagsins. I V. kafla eru ítarleg ákvæði um félagsfundi í samvinnufélagi. Þar kemur m.a. fram að meginreglan er sú að í samvinnufélögum eiga allir félagsaðilar jafnan atkvæðis- rétt. Hins vegar er opnaður mögu- leiki á því að ákveða í samþykktum félags, sem sinnir verkefnum fyrir framleiðendur vöru og þjónustu, I að félagsaðilar fái viðbótaratkvæði á félagsfundum í hlutfalli við við- I skipti þeirra við félagið á næst- liðnu almanaksári og einnig er heimilt að veita lögaðilum sem að- ild eiga að félaginu viðbótarat- kvæði. Hér væri um undantekn- ingar frá hinni almennu reglu að ræða, en gefið er færi á þeim í því skyni að tengja áhrif í félagi við viðskipti framleiðenda og lögaðila, sem eftirsóknarvert og eðlilegt kann að vera að hafa í félaginu. í VI. kafla er fjallað um stjórn og framkvæmdastjóra samvinnufé- lags og er þar um ítarlegri ákvæði að ræða, en í núgildandi lögum. Heimilað er að ákveða stjórnar- skipan með ýmsu móti í samþykkt- um félags, en hún skal þó skipuð þremur mönnum hið fæsta og þremur til vara. Heimilt er að veita starfsmönnum, hagsmunasamtök- um eða stjórnvöldum rétt til til- nefningar stjórnarmanns eða stjórnarmanna, en meirihluti stjórnar skal þó ávallt kjörinn af aðalfundi. Það nýmæli er í kaflan- um að lagt er tií að heimilt sé að hafa fulltrúanefnd í samvinnufé- lögum. Kostir við slíka nefnd eru þeir helstir, að félagsmenn geta oft verið margir í samvinnufélagi og því verið heppilegt að hafa sérstaka fulltrúanefnd, sem starfi sem fasta- nefnd félagsmanna og komi á framfæri óskum og hagsmunamál- um þeirra. B-deild stofnsjóðs — samvinnu- hlutabréf í VII. kafla er að finna hið þýðing- armikla nýmæli um B-deild stofn- sjóðs, sem áður er getið um. Mun það tvímælalaust geta orðið til þess að efla samvinnufélögin á komandi árum. Stofnsjóður getur verið óskiptur eins og nú er. í hann skal leggja aðildargjald félagsaðila og í hann rennur hagnaður félags- ins eftir því sem nánar er ákveðið í greininni og í samþykktum félags- ins. Stofnsjóðinn skal árlega vaxta- reikna og verðbæta eftir því sem afkoma félagsins leyfir og bætast vextir og verðbætur við höfuðstól séreignahlutans. í greininni er einnig heimilað að stofna B-deild stofnsjóðsins með sölu hluta í henni. Njóta eigendur hluta í B- deild forgangs til arðs, en hlutun- um fylgir hins vegar ekki atkvæð- isréttur á félagsfundum. Ætla verður að stjórnendum samvinnu- félaga með B-deild stofnsjóðs verði umhugað um að greiða reglulega arð af hlutunum, þar eð af því ræðst gengi samvinnuhlutabréfa og möguleikar félaganna til að afla sér aukins eiginfjár með sölu nýrra hluta. Meginreglan er sú að séreignar- hluta félagsaðila í stofnsjóði sam- vinnufélags skal greiða út við and- lát félagsmanns. Sama gildir við slit félags, sem aðild á að sam- vinnufélagi. Jafnframt skal greiða út séreignarhlut í stofnsjóði ef hann flyst af félagssvæði, sem af- markað er í samþykktum félagsins eða flyst af landi brott, enda gangi hann úr félaginu. Jafnframt skal að ósk félagsmanns greiða honum stofnsjóðseign, ef hann hefur náð 70 ára aldri, enda þótt hann haldi áfram þátttöku í félaginu. í kaflanum eru ítarleg ákvæði um B-deild stofnsjóðs og um alla með- ferð á sölu hluta og útgáfu sam- vinnuhlutabréfa, en nauðsynlegt er að ganga tryggilega frá öllum atriðum í því sambandi. Hér er að sjálfsögðu höfð hliðsjón af hlutafé- lagalögunum, enda ætlunin að tryggja að staða eigenda sam- vinnuhlutabréfa sé eigi lakari en eigenda hlutabréfa, þótt eignar- haldinu fylgi ekki atkvæðisréttur. Samkvæmt VIII. kafla er heimilt að ákveða í samþykktum sam- vinnufélaga að tekjuafgangi sé út- hlutað til félagsmanna í hlutfalli við viðskipti þeirra hvers og eins, en þó skal jafnan tekið tillit til sanngjarnra greiðslna í stofnsjóð félagsins. Á sama hátt má í fram- ieiðslusamvinnufélagi ráðstafa tekjuafgangi til félagsmanna í samræmi við vinnuframlag hvers og eins. í kaflanum eru einnig ákvæði um varasjóð samvinnufé- laga. 1 næstu köflum frumvarpsins er fjallað um ársreikninga og árs- skýrslu stjórnar, um endurskoðun reikninga, um samruna sam- vinnufélaga, um samvinnusam- bönd, um slit samvinnufélags, um breytingar á félagssamþykktum og um skaðabóta- og refsiákvæði. í XVI. kafla er gildistökuákvæði, þar sem lagt er til að lögin taki gildi 1. janúar 1992 og falla þá lög- in frá 1937 úr gildi að undanskil- inni 29. grein þeirra sem fjallar um innlánsdeildir samvinnufélaga. Bankaeftirlit Seðlabanka íslands hefur um nokkurt skeið bent á, að innlánsdeildir samvinnufélaga fullnægi ekki sambærilegum ör- yggisákvæðum fyrir innstæðueig- endur og aðrar innlánsstofnanir og hafa farið fram viðræður milli bankaeftirlitsins og forsvarsmanna samvinnufélaga um leiðir til þess að leggja þær niður eða sameina þær starfsemi banka og sparisjóða. Hefur innlánsdeildum og fækkað á síðustu árum. í fylgifrumvarpi með þessu frumvarpi er lagt til að lögum um sparisjóði verði bréytt á þann veg, að samvinnufélög geti verið meðal stofnenda sparisjóða og jafnframt er bráðabirgðaákvæði í sparisjóðalögunum aðlagað til- viki, sem upp getur komið við breytingu á innlánsdeild sam- vinnufélags í sparisjóð. Sparisjóð- ur, sem stofnaður er af samvinnu- félagi, myndi að sjálfsögðu þurfa að fullnægja öllum reglum spari- sjóðalaganna, en hann hefur jafn- framt mun víðtækara starfssvið en innlánsdeild. Lagt er til í frumvarpinu að frest- ur til að leggja niður innlánsdeild- ir sé til ársloka 1995, en engu að síður er æskilegt að nauðsynlegar breytingar á innlánsdeildunum verði gerðar sem allra fyrst. Samvinnuhreyfing- unni komið í takt við tímann Fyrsta samvinnufélagið hér á landi var stofnað að Þverá í Laxár- dal 1882, íslenska samvinnuhreyf- ingin er því rúmlega aldargömul. Hún var ávöxtur frelsisbaráttu Þingeyinga, en breiddist út um land allt á tiltölulega fáum árum. Upphaf hennar er í raun og veru fríverslunarhreyfing og félags- málahreyfmg í senn. Með samvinnuhreyfingunni braut almenningur á íslandi ein- okunarvald erlendra kaupmanna á bak aftur. Hún bætti viðskiptakjör- in og efldi félagsþroskann og varð seinna stórveldi í viðskiptalífinu. Samvinnuhreyfingin hefur gegnt afar mikilvægu hlutverki í at- vinnuþróun landsins. Hún hefur nú um nokkurt árabil átt við fjár- hagslega erfiðleika að etja og hafa þeir reyndar riðið nokkrum sam- vinnufélögum að fullu. Samband ísl. samvinnufélaga hefur, eins og kunnugt er, glímt við alvarlegan fjárhagsvanda, sem nú er verið að leysa með skipulagsbreytingum. Fjárhagsvandi kaupfélaganna stafar að nokkru leyti af því, að skipulagsform samvinnufélaganna er ekki lengur í takt við tímann. Þetta frumvarp, ef að Iögum verð- ur, mun bæta verulega möguleika samvinnufélaga á því að rétta við fjárhag sinn og verða héreftir sem hingað til mikilvæg tæki til að treysta atvinnulíf og efla framfarir í landinu. Með þessu frumvarpi er lagt til að samvinnulöggjöfin verði færð í nútímabúning og samvinnuhreyf- ingunni komið í takt við tímann. /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.