Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 12

Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 12
Föstudagur 28. desember 1990 Höfundar og þýðendur bóka þeirra sem Bókmenntafélagið gefur út í ár. Tlmamynd: Aml Bjama Félagsmannaverð kr. 2.800,-. Al- mennt verð er kr. 3.500,-. Vegleg bókaútgáfa Hið íslenska bókmenntafélag gefur út fjölbreytt úrval bóka í ár og er þeirra getið hér á eftir að nokkru. Saga íslands V. (5. bindi). Rit- stjóri Sigurður Líndal. í þessu bindi er sagan rakin frá því um 1400 og fram undir miðja 16. öld — kirkjusagan þó frá miðri 14. öld. Hún hefst þegar plágan mikla gekk yfir landið 1402-04, en lýkur í þann mund sem fyrstu merkja siðbreytingarinnar verður vart og til umskipta bregður um verslunarhagi þjóðarinnar. Meg- inkafli bókarinnar nefnist Enska öldin og er eftir Bjöm Þorsteins- son og Guðrúnu Asu Grímsdótt- ur, en Sigurður Líndal hefur samið nokkra viðauka. Um 1400 hófu Englendingar sigl- ingar til íslands og þá jafnframt sókn sína út á Norður-Atlants- hafið. Náðu þeir slíkum áhrifum og ítökum hér að um skeið horfði svo sem ísland gengi Eiríki af Pommern Norðurlandakonungi úr greipum. Síðar á öldinni lentu þeir í harðri samkeppni við Þjóð- verja og bám þá lægri hlut. Fjöldi mynda er í ritinu og nokkrir uppdrættir. ítarlegar bókaskrár eiga að auðvelda les- anda að afla frekari vitneskju. Staðir og kirkjur III — Skálholt II. Kirkjur, eftir Hörð Ágústsson. Rit þetta fjallar um allar þekktar kirkjur er staðið hafa í Skálholti frá öndverðu og fram að sóknar- kirkjunni, sem rifin var 1956. Leitast er við að túlka niðurstöð- ur fomleifarannsóknanna sem þar voru gerðar á ámnum 1954- 1958, en niðurstöður þeirra birt- ust í ritröð þessari 1988 (Skálholt, Fomleifarannsóknir, útg. Lög- berg Bókaforlag). Jafnframt er aflað annarra tiltækra heimilda um kirkjur þessar, svo sem bygg- ingarleifa, naglfastra muna, ljós- mynda, vatnslitamynda og síðast en ekki síst áður óbirtra ritheim- ilda. Hver kirkja fær sína sér- stöku umfjöllun, en þær em alls níu talsins. Kaflinn um hverja eina kirkju skiptist í framlagn- ingu fyrmefndra heimilda, en þá kemur þáttur um stærð og gerð, þar sem leitast er við í máli og myndum að endurgera viðkom- andi kirkju í teikniformi. Síðan er byggingarsaga rakin, fjallað um höfund, list og stíl viðkomandi kirkju og loks byggingarsögulegt samhengi. Endurgervingu er þó ekki hægt að gera nema af fjór- um yngstu kirkjunum. Ein þeirra er miðaldakirkja sú, sem stærst var timburkirkna á Norðurlönd- um. Bókin er ríkulega myndskreytt; með 300 myndum og teikning- um, sem einstæðar þykja. Skálholt II. Kirkjur var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaun- anna 10. nóvember síðastliðinn. Félagsmannaverð kr. 3.520,-. Al- mennt verð er kr. 4.400,-. Upplýsingin á íslandi. Tíu rit- gerðir. Ritstjóri: Ingi Sigurðsson. Upplýsingin, hin alþjóðlega hug- myndastefna, hafði mikil áhrif í Evrópu og víðar á 18. öld og fram á 19. öld. Hún hefur oft ver- ið kennd við fræðslu og skyn- semistrú og hafði meiri eða minni áhrif á flestum sviðum samfélagsins. Hún er mikilvægur hlekkur í þróun álfunnar frá mið- öldum til nútíma og er því órjúf- anlegur hluti Evrópusögu síðari alda. Að vonum hefur því verið skrifaður fjöldi bóka um stefn- una og áhrif hennar í mörgum löndum og á ýmsum sviðum. Félagsmannaverð kr. 2,800,-. Al- mennt verð er kr. 3,500,-. Safn til iðnsögu íslendinga V. Ritstjóri Jón Böðvarsson. Steypa lögð og steinsmíð rís eftir Lýð Bjömsson. Við lifum á stein- steypuöld, en skammt er síðan torf, grjót og timbur voru einu byggingarefnin hérlendis. Samfelld steinsteypusaga hefur ekki áður verið rituð hér á landi. En hér er hún komin. Staðreynd- ir, sem bókarhöfundur setur hér skipulega fram, auka skilning á stoðum hins tæknivædda nútíma þar sem öryggi manna hvílir á að steypa er lögð — og steinsmíð rís. Félagsmannaverð kr. 2,800,-. Al- mennt verð er kr. 3,500,-. íslensk bókfræði. Helstu heim- ildir um íslenskar bækur og handrit. Þriðja útgáfa 1990 aukin og endursamin. Höfundar Einar G. Pétursson og Ólafur F. Hjartar. íslensk bókfræði kemur hér út í þriðja sirm. Ritið er nú mjög auk- ið og endursamið. í bókinni er fyrst gerð grein fyrir bókaskrám almennt. Meginpartur bókarinn- ar er skrá, oftast með umsögn- um, um íslenskar bókaskrár, fremst almennar bókaskrár í ein- stökum efnisflokkum, mann- fræðirit — stéttatöl — sem geta um ritstörf, ritaskrár einstaklinga og bókmenntasögur. Seinast í bóRinni er nákvæm greinargerð fyrir handritaskrám íslenskum. Áftast er lykill að flokkun og re- gistur. Félagsmannaverð kr. 1,320,-. Al- mennt verð er kr. 1,650,-. Undir oki siðmenningar eftir Sigmund Freud. íslensk þýðing og inngangur eftir Sigurjón Bjömsson. Bókin er eitt cif síðustu ritum Sigmundar Freud. Hún er samin síðla árs 1929, réttum ára- tug fyrir andlát hans. Undir oki siðmenningar er aðal- rit Freudsum menningarmál og grípur á veigamiklum spuming- um varðandi stöðu mannsins í heiminum sem einstaklings og samfélagsþegns. Maðurinn þráir frelsi, en samfélagið gerir kröfur sem skerða frelsi hans. Hér sá Freud gmndvöll að sífelldum árekstmm og togstreitu milli manns og samfélags. Trúin gegn- ir veigamiklu hlutverki í þessu samhengi. Félagsmannaverð kr. 1,560,-. Al- mennt verð er kr. 1,950,-. Almannahagur eftir Þorvald Gylfason prófessor. Þessi bók geymir safn sjötíu og fimm rit- gerða um hagfræði og efnahags- mál. Höfuðtilgangur útgáfunnar er að bregða birtu á þrálátan efnahagsvanda íslensku þjóðar- innar og vekja lesendur til um- hugsunar um það, með hvaða ráðum sé hægt að vinna bug á vandanum til frambúðar. Hér er að ýmsu að hyggja, ekki aðeins að undirrót verðbólguvandans, sem er alvarleg meinsemd í þjóð- lífinu enn sem fyrr, heldur einnig að þráfelldum rekstrarerfiðleik- um atvinnuveganna og meðfylgj- andi afkomuvanda almennings. Ritgerðimar í bókinni hafa allar birst áður í einni eða annarri mynd, flestar í Vísbendingu síð- astliðin tvö til þrjú ár, sumar í Morgunblaðinu síðustu þijú til fjögur ár og aðrar í Fjármálatíð- indum yfir lengra tímabil. Efni bókarinnar er skipt í tíu bálka sem hér segir: I. Hagfræði, stjómmál og vísindi. II. Verðbólga, verðbólga. III. Gengi krónunnar. IV. Fjármál rík- isins. V. Bankar, peningar og vextir. VI. Vinnumarkaður. VII. Atvinnuvegir. VIII. Erlend við- skipti. IX. Frá útlöndum. X. Landshagir og lífskjör. í bókaflokknum Lærdómsrit Bókmenntafélagsins koma út eft- irtaldar bækur: Manngerðir eftir Þeófrastos. ísl. þýðing eftir Gottskálk Þór Jens- son sem einnig ritar inngang. Þe- ófrastos (um 372-287 f.Kr.) var grískur heimspekingur sem stundaði nám í Akademíu Plat- óns og var handgenginn Aris- tótelesi. Hann stofnaði skóla, Gangaskólann, í Aþenu eftir dauða Aristótelesar og hélt þar uppi öflugu skólastarfi með um 2000 nemendum. Manngerðir er lýsing á þrjátíu mismunandi „sérkennum í siðum manna" sem ekki geta talist til fyrirmynd ar. í örstuttum greinum er útlist- að hvað einkennir ólíkindatólið, smjaðrarann, blaðrarann, óþokk- ann, dindilmennið, smásálina o.s.frv. í bókinni eru breskar pennateikningar, „lyndislestrar- myndir", frá 19. öld af mann- gerðunum. Lof heimskunnar eftir Erasmus frá Rotterdam. ísl. þýðing eftir Þröst Ásmundsson og Arthúr Björgvin Bollason sem einnig rit- ar inngang. Erasmus frá Rotter- dam (1469-1536) var einn merk- asti fræðimaður á sinni tíð. Lof BÆNDUR! ER NÚ EKKI NÓG KOMIÐ? Leysið mykjuvandamálin í eitt skipti fyrir öll með mykjutækjum frá Vélboða hf. Miðflóttaraflsdæludreifarar - Snekkjudæludreifarar Tryggið ykkur Vélboða mykjudreifara fyrir áramót, því það tryggir ykkur rétt til fyrninga á árinu. Mjög gott verð og greiðslukjör við allra hæfi. Nánarí upplýsingar hjá sölumönnum okkar í síma 91-651800 Ath. nýtt heimilisfang. VELBOÐI Helluhraun 16-18 HF 220 Hafnarfjörður Sími 91-651800 heimskunnar er skopádeila þar sem heimskan kveður sér hljóðs og rekur hvernig mennimir og jafnvel guðirnir megi þakka henni allt það sem einhvers er virði. Saga tímans eftir Stephen W. Hawking. ísl. þýðing eftir Guð- mund Amlaugsson, með inn- gangi eftir Láms Thorlacius. Höhmdur Sögu tímans, Stephen Hawking, hefur á undanfömum ámm leitt rannsóknir i heims- fræði við Cambridgeháskóla. Rannsóknir hans hafa meðal annars beinst að upphafi alheims í miklahvelli og endalokum stjama þegar þær hrynja undan eigin þyngd í svokölluð svarthol. Saga tímans er skrifuð fyrir al- menning fremur en sérfræðinga og hefur hvarvetna hlotið fá- dæma góðar viðtökur. Dreggjar Bókaútgáfan Bjartur hefur sent frá sér skáldsöguna Dreggjar dagsins eftir japanska rithöfund- inn Kazuo Ishiguro. Bókin hlaut bresku Booker- bókmenntaverð- launin árið 1989. Stevens, bryti á ensku yfirstéttar- setri, hefur alla tíð sett starfið og hollustu við herra sína ofar öllu. Hinar fastmótuðu samskiptaregl- ur þjóns og herra hafa verið kjöl- festa lífs hans. Nú hafa aðstæður breyst. Bandarískur auðmaður, með sérkennilegt skopskyn, hef- ur keypt setrið. Nýja herranum fylgja nýir siðir sem kippa fótun- um undan Stevens. Hið fastmót- aða samband þjóns og herra fer úr skorðunum og verður upp- spretta áleitinna spuminga um ábyrgð mannanna á eigin lífi. Sigurður A. Magnússon hefur ís- lenskað söguna. Innbundin kostar bókin 2280.-, kilja 1180.-. Þjóðarsátt um Sigmund? Út er komin hjá Prenthúsinu 9. Sigmund-bókin, sem kallast því lýsandi nafni SIGMUND OG ÞJÓÐARSÁTTIN. Hér er um að ræða úrval óborganlegra mynda Sigmunds úr Morgunblaðinu síðastliðin 5 ár. Eins og gefur að skilja fá margir sinn skammt í bókinni, stjómmálamenn sem listamenn, leikarar sem ljóð- skáld, verkalýðshetjur sem at- hafnamenn. Jafnvel erlendir þjóðhöfðingjar og pólitíkusar verða fyrir pennalist Sigmunds. í fyrsta hluta bókarinnar ber mest á stjómmálamönnunum, til dæmis Borgaraflokknum og Al- bertsmálum hinum mörgu. Kyn- lífsumræða og smokkaáróður fá þó sínar ábendingar, auk þess sem vestfirsk menning og taktar em teknir fyrir. Vinátta Stein- gríms og Arafats gleymist ekki, né heldur 16. sætið í söngva- keppni Evrópu ár eftir ár. Þegar á bókina líður gerast Al- þýðubandalagsmenn æ meira áberandi, einkum fjölmiðlarisinn þeirra, Ólafur Grímsson, eins og vinur hans Sverrir kallar hann. Stefán Valgeirsson fer hamfömm í nokkmm myndum, en varla er orð á gerandi að Þorsteinn Páls- son sjáist þar. Guðrún Helgadótt- ir er vinsælasta kona landsins, ef marka má myndir Sigmunds, enda af mörgum atvikum að taka. Jóhanna fylgir þó fast á eft- ir, ýmist á leið í eða úr ráðherra- stólnum sínum. Hetjudáðir Jóns Baldvins í EB-EFTA-málum hafa Vcikið athygli teiknarans, en ekki síður konan hans, hin gullfallega Bryndís Schram.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.