Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 13

Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 13
Föstudagur 28. desember 1990 Tíminn 13 Emanuel Swedenborg og eilííðartrúin mín eftir Helen Keller. Helen Keller (1880-1968) hlaut heimsfrægð sem rithöfundur og brautryðjcmdi í baráttu fyrir mál- stað blindra og heymarlausra um víða veröld. Sjálf varð hún fyrir því áfalli aðeins 19 mánaða gömul að missa bæði sjón og heym af völdum heilahimnu- bólgu, en lærði að tala og tjá sig í rituðu máli og lauk m.a. háskóla- prófi. Ung að ámm kynntist He- len Keller ritum sænska vísinda- mannsins, stjómmálamannsins og sjáandans Emanuels Sweden- borg og varð það til að breyta lífi hennar í grundvallaratriðum, enda segir hún að það sem hann segir um hinn andlega heim hafi reynst henni haldbetra en flest annað. Allt það sem hann hafi sagt hafi einmitt fallið í öllu sam- an við hennar eigin reynslu í hin- um lokaða heimi þagnar og myrkurs sem hún sjálf lifði í. Örn og Örlygur hafa nú gefið út bók Helenar Keller þar sem hún lýsir kynnum sínum af ritum Emanuels Swedenborg og gerir það á svo meistaralegan hátt að í raun er hún hin gagnmerkasta kynning á þessum ritum, auk þess sem hún er í raun einskonar skýringarrit fyrir þau merku fræði og kenningar sem þessi djúpi hugsuður, dulspekingur og guðfræðingur hafði að miðla mannkyninu. Ólafsfj arðarlj óð Út er komin ljóðabókin „Norð- austan ljóðátt". í bókinni eru Ijóð eftir 8 höfunda, sem á einn eða annan hátt eru tengdir Ólafsfirði. Þeir eru: Benedikt Þorkelsson, Gísli Gísla- son, HelgaBökku, Herdís Pála Pálsdóttir, Jón Ámason, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Svavar Alfreð Jónsson, Þórhildur Þorsteinsdótt- ir. Hér yrkir hver með sínu nefi: bóndinn, neminn, blómakonan, bóndakonan, kennarinn, heild- salinn og presturinn. Ljóðin eru bæði rímuð og órím- uð. íslenskir hermenn Bókin íslenskir hermenn er kom- in út hjá Almenna bókafélaginu. Höfundur er Sæmundur Guð- vinsson. Eins og titill bókarinnar gefur til kynna þá komum við íslendingar víða við. Her höfum við aldrei haft, en þó eigum við hermenn. Tölu þeirra vitum við ekki, en í flestum styrj- öldum, sem háðar hafa verið í heiminum á þessari öld, hafa verið einhverjir Íslendingar. Hér segja sex slíkir hermenn frá styrj- aldarreynslu sirtni, tveir úr síðari heimsstyrjöld, einn úr Kóreu- stríðinu, einn úr stríðinu í Víet- nam, einn úr borgarastyrjöldinni í Rhódesíu og einn úr her Sam- einuðu þjóðanna í Líbanon. Þessir fyrrverandi hermenn eru: Þorsteinn E. Jónsson, Njörður Snæhólm, Þorvaldur Friðriksson, Gunnar Guðjónsson, Haraldur Páll Sigurðsson og Amór Sigur- jónsson. Ástarsaga um Mjöll Ný skáldsaga eftir Óskar Aðal- stein er komin út hjá Fjölva. Hún heitir Mjöll — stúlkan í fjörunni og er margslungin örlaga- og ást- arsaga. Sviðið er mest í sjávarp- lássi á Vestfjörðum, en með við- komum í höfuðborginni og í langdvölum erlendis, þar sem önnur aðalsögupersónan, Mjöll, vinnur við bamahjálp á hungur- svæðum Afríku, en hin, Jón Jök- ull, flækist með farskipum til Ástralíu. Bókin um Mjöll fjallar um sterk mannleg átök, þar sem náttúru- öflin grípa inn í. Sviðið í Jökulvík er nokkuð auðþekkt eins og því og ýmsum persónum er lýst, þar sem bærirm stendur undir Víkur- hymu og hrikaleg snjóflóð falla á veginn inn í Fjörð. Í sögunni berjast tveir menn um hylli sömu stúlkunnar í ástríðu þar sem jafnvel er gripið til skot- vopns, en líka setja spilaklúbbar með ástríðu til fjárhættuspila mark sitt á söguna, þar sem menn verða öreigar og leggja líf sitt og sinna nánustu í rúst. Heilsuhandbók / Jóns Ottars Fróði hf. hefur gefið út bókina Bætt heilsa - betra líf eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson. Bókin er að hluta byggð á sjónvarpsþáttaröð- inni „Heil og sæl" en hefur verið stómm breytt og endurbætt. Bætt heilsa - betra líf er handbók heimilisins um forvamir, sjúk- dóma og lækningaaðferðir, jafnt hefðbundnar sem óhefðbundnar, þar sem um eitt hundrað af virt- ustu sérfræðingum, þ.á m. flestir þekktustu læknar landsins, gefa almenningi góð ráð um allt frá ofnæmi, streitu og þunglyndi upp í mataræði og megrun. Fyrsta skáldsaga Ómars Ragnarssonar Fróði hf. hefur gefið út fyrstu skáldsögu þúsundþjalasmiðsins Ómars Ragnarssonar, sem nefnist í einu höggi. Ómar er einn kunn- asti skemmtikraftur landsins til margra ára og auk þess vinsæll frétta- og sjónvarpsmaður. Ómar hefur sannarlega reynt margt um ævina og enn kemur hann á óvart — í þetta sinn sem rithöf- undur. Skáldsaga Ómars er að mörgu leyti óvenjuleg. Hann fer óhefð- bundnar leiðir, fléttar saman raunveruleika og skáldskap, þekktum nafngreindum persón- um og sögupersónum. Leiftrandi frásagnargleði Ómars og næmni hans á persónur koma vel fram í bókinni. Handbók fyrir stangaveiðimenn Fróði hf. hefur gefið út bókina Leyndardómar laxveiðanna, sem er alhliða handbók og leiðbein- ingarrit fyrir alla þá sem stunda laxveiðar. Höfundur bókarinnar er Ólafur E. Jóhannsson frétta- maður, sem sjálfur er snjall lax- veiðimaður, en hann hefur einnig leitað til margra landsfrægra veiðimanna sem gefa góð ráð og miðla af fjölþættri reynslu sinni af veiðiskap. Leyndardómar laxveiðanna kem- ur að góðum notum fyrir þá, sem eru byrjendur, og þá sem lengra eru komnir. Í bókinni er lýst mis- munandi aðferðum við laxveiðar, bæði hvað varðar veiðar á flugu, maðk og spón. Að auki eru svo kynnt fyrir lesendum ýmis þau tæki og tól sem notuð eru við veiðamar. Frá skrifstofu Framsóknarflokksins Skrifstofa Framsóknarfiokksins óskar öllum velunnurum ftokksins gleði- legrar jólahátlðar. Jafnframt eru þið boðin hjartanlega velkomin að llta inn á nýja skrifstofu flokksins að Hafnarstræti 20 (við Lækjartorg) III. hæð. Nýtt símanúmer er 91-624480 Framsóknarfíokkurínn Suðurland Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Slminn er 22547. Félagar eru hvattir til að líta inn. _________________________________________K.S.F.S. Norðuriand vestra Skrifstofa Einherja, kjördæmisblaðs framsóknarmanna, hefur verið flutt frá Sauðárkróki á heimili ritstjóra að Ökrum ( Fljótum. Hægt er að ná I rit- stjóra alla daga ( sima 96-71060 og 96-71054. _________________________________________K.F.N.V. Borgnesingar- Bæjarmálefni I veturverðuropið hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu Framsóknarflokksins að Brákarbraut 1. Bæjarfulltrúar fiokksins I Borgamesi verða á staðnum og heitt á könnunni. Allir sem vilja fylgjast með og hafa áhrif á málefni Borgamesbæjar eru velkomnir. Framsóknarfélag Borgamess. Jólahappdrætti S.U.F. Eftirfarandi númer hafa verið dregin út i Jólahappdrætti S.U.F.: 1. des. 1. vinningur2036, 2.vinningur974 2. des. 3. vlnnlngur 3666, 4. vlnningur 20 3. des. 5. vinningur 3203, 6. vinnlngur 3530 4. des. 7. vinningur 5579, 8. vlnningur 1452 5. des. 9. vinningur 3788,10. vinningur 5753 6. des. 11. vinningur 3935,12. vlnningur 3354 7. des. 13. vinningur 5703,14. vinningur 4815 8. des. 15. vinningur2027,16. vinningur 2895 9. des. 17. vinningur3261,18. vinningur 2201 10. des. 19. vinningur 3867,20. vinningur 5194 11. des. 21. vinningur 5984,22. vinningur 864 12. des. 23. vinningur 1195,24. vinningur4874 13. des. 25. vinningur 1924,26. vinningur 716 14. des. 27. vinningur 5840,28. vinningur 5898 15. des. 29. vinningur 2517,30. vinningur 750 16. des. 31. vinningur4582, 32. vinningur3085 17. des. 33. vinningur 1142,34. vinningur4416 18. des. 35. vinningur 3284, 36. vinningur 3227 19. des. 37. vinningur 5252,38. vinningur 5168 20. des. 39. vinningur 3154,40. vinningur 3618 22. des. 43. vinningur 2918,44. vinningur 648 23. des. 45. vinningur 5200,46. vinningur 1862 24. des. 47. vinningur 1606,48. vinningur 1262 Velunnarar. Þeir sem hafa áhuga á að styrkja samtökin, eru hvattir til að greiða heimsenda giróseðla og leggja á þann hátt baráttunni lið. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu fiokksins, Hafnarstræti 20, III. hæð, eða i sima 91-624480. Með kveðju, SUF Jólahappdrætti Framsóknarflokksins 1990 Dregið var i Jólahappdrætti Framsóknarflokksins 24. desember sl., en númerin eru í innsigli hjá borgarfógeta til 7. janúar 1991. Velunnarar flokksins sem ekki hafa greitt heimsendan giróseðil eru hvattir til að gera skil eigi síðar en 7. janúar. Það er enn tækifæri til að vera með. Allar frek- ari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins, Hafnarstræti 20, III. hæð, eða í sima 91-624480. Með kveðju og ósk um gleðilegt nýtt ár og þakklæti fyrir stuöninginn á ár- inu sem er að líða. Framsóknarfíokkurínn. Rangæingar, spilakvöld Framsóknarfélag Rangæinga gengst að vanda fyrir hinum áriegu spila- kvöldum sunnudagana 11. og 25. nóvember, 9. desember og 13. janúar f Hvoli kl. 21.00. Fjögurra kvölda keppni, 3 gilda. Heildarverðlaun ferð til Akureyrar fyrir 2, gist á Hótel KEA 2 nætur. Góð kvöldverðlaun. Mætið öll. Stjómln Reykjanes Skrifstofa kjördæmasambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi, er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Slmi 43222. K.F.R. Fjölskyldupakkarnir okkar fást ekki annars staðar Þú getur valið um fjórar stærðir. Sá minnsti kostar jflMfcliliH krónur, sá næstminnsti kostar RiIiTiH krónur, næststærsti pakkinn kostar krónur og sá stærsti kostar BiIiW krónur. 3000,- Opið: Föstudag frá 8 til 22, laugardag frá 8 til 18 og gamlársdag frá kl. 8 til 12. Auðvitað tökum við greiðslukort. Grandagarði 2, Rvík., sími 28855

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.