Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 20

Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Hatnorhusinu v Tryggvagotu, S 28822 l53 MiSSAINI Réttur bíll á réttum stað Ingvar Helgason hf. Sævartiöföa 2 Sími 91-674000 ríniiim FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER1990 Innflutningur aukist tvöfalt meira en útflutningur á árinu þrátt fyrir minni olíukaup: Innflutningur aukist un 17% síðustu mánuði Almennur innflutningur, án olíu, hefur verið miklu meiri síð- ustu fjóra mánuði (ág.-nóv.) heldur en sömu mánuði í fyrra. aukningin er um 17% reiknað á sama gengi bæði árin, en um 22% miðað við gengi á hvoru ári um sig. Frá áramótum til júlí- loka í ár nam almennur innflutningur um 5 milijörðum króna á mánuði, sem var svipað og sömu mánuði í fyrra, eða aðeins 1,4% aukning að meðaltali, reiknað á föstu gengi. En eftir það tók almennur inn- flutningur mikinn kipp upp á við. Því að í ágúst-nóvember jókst almennur innflutningur í 6,2 milljarða á mánuði, eða hátt í einum milljarði meira heldur en sömu mánuði í fyrra. Fyrstu ellefu mánuði ársins var heildarverðmæti vöruútflutnings 5% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Verðmæti heildar- innflutnings var á hinn bóginn 10% meira en á sama tíma í fyrra. Þetta veldur því að jákvæður vöruskiptajöfnuður er nú um helmingi minni en á sama tíma í fyrra, eða um 3,6 milljarðar, bor- ið saman við 7,4 milljarða í fyrra. Á þessu tímabili hafa verið flutt- ar út vörur fyrir 84,1 milljarð króna, en inn fýrir 80,5 milljarða. Vöruskiptajöfnuðurinn er því Innflutningur svokallaðra sér- stakra fjárfestingarvara er nú nær 50% meiri en á síðasta ári. Mest munar þar um 6,7 milljarða innflutning á flugvélum, sem er tvöföldun frá fyrra ári. Innflutningur ÍSAL er nær fjórðungi meiri en í fyrra og járn- blendiverksmiðjunnar rúmlega 40% meiri. Almennur innflutningur nemur um 60,4 milljörðum kr. þessa ell- efu mánuði, sem er um 4 millj- örðum eða 7% meira en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Aukningin er nær öll á síðustu fjórum mánuðunum sem áður segir. Sérstaka athygli vekur, að inn- flutningur olíu er eini liðurinn sem hefur dregist saman milli ára. Olíuinnflutningur er um 5% minni fyrstu 11 mánuði þessa árs heldur en í fyrra. í júlílok var ol- íuinnflutningurinn kominn í 3,6 milljarða kr., sem var 4% minna en á sama tíma í fyrra. Frá því Saddam Hussein og Ge- orge Bush fóru að brýna branda sína við Persaflóa höfum við flutt inn olíu fyrir 2,4 milljarða króna, sem er 200 milljónum kr. eða um 7% lægri upphæð en sömu fjóra mánuði í fyrra. - HEI SJÖ GÁMAR í SJÓINN Sjö gámar, sem innihéldu frosinn fisk, tvo bfla og eina búsióð, fóru í sjóinn þegar Reykjafoss, skip Eim- skipaféíagsins, fékk á sig brotsjó og lagðist á hliðina aðfaranótt 22. des- ember sl. Skipið var á Ieið til ís- lands og var statt um 1000 km suð- vestur af landinu. Við sjópróf sem fóru fram í gær kom í ljós að aftakaveður var þegar gámarnir fóru útbyrðis. Vindhrað- inn var 11 vindstig og fékk skipið á sig brotsjó með fyrrgreindum afleið- ingum. Skipverjar náðu að hlekkja tvo gáma, sem lögðust á hliðina, og bjarga þeim þannig frá því að lenda í sjónum. Lögðu þeir sig í talsverða hættu við það, en enginn slasaðist. Samkvæmt upplýsingum frá tjóna- deild Eimskipafélagsins kemur það fyrir að meðaltali einu sinni á ári að gámar tapast með þessum hætti. Gámar sem eru uppi á þilfari eiga ekki að geta losnað en þegar skip lenda í svona ofsaveðri og fá á sig brot er lítið hægt að gera og ekki er möguleiki að sjá slíka atburði fyrir. —SE Sendingar RUV féllu niður Truflanir frá Rafmagnsveitu afstöðina, virkaði ekki þegar allt Reykjavíkur leiddu til þess að átti að vera í lagi. Straumurinn útsendingar Rikisútvarpsins fór því aftur af þá og útsending féllu niður f um tvo tíma í fyrri- rofnaði á ný. nótt. Að sögn Harðar Vilhjálms- 4 ár eru síðan Ríkisútvarpíð sonar, fjármálastjóra RUV, bil- flutti starfsemi sína upp í aði höfuðrofi í töflu rafstöðvar- Efstaleíti. Sagði Hörður það innar og vegna keðjuverkana fór nokkrum sinnum hafa komið vararafstöðin ekki í gang þegar fyrir að vararafstöðin hafi tekið hún átti að taka við. við af hinni vegna bilana, en í gær um kl. 17.30, þegar ver- stöðvarnar heföu hins vegar ið var að leita að orsökum bilun- aldrei bilað áður samtímis. arinnar í fyrrinótt, kom í Ijós að —khg. spennugjafi, sem ræsa á varar- Stjóm Verðlaunasjóðs Ásu GuðmundsdótturWright veitti í gær Halldóri Halldórssyni heiðursverðlaun fyrir árið 1990. Verðlaunin fékk Halldór fýrir rannsóknir sínar á íslensku máli og fýrir að stuðla að varð- veislu íslenskrar tungu og bættri notkun móðurmálsins. Á myndinni sést Sturia Fríðriksson, einn af þrem- ur í stjóm sjóðsins, veita Halldórí verðlaunin. Hinir tveir í stjóminni em þeir Jóhannes Nordal og Ármann Snævanr. Friðarins hátíð sjaldan rólegri Jólahelgin í ár var ein sú allra frið- sælasta og rólegasta í lögreglu- manna minnum. Eitthvað var um umferðaróhöpp í Reykjavík og ná- grannabyggðarlögum á Þorláks- messu og aðfangadag, en annars var lítið að gera hjá lögreglunni. Sömu sögu er að segja víðast hvar af land- inu. Færð hefur verið erfið í höfuð- borginni og á Vestfjörðum og Aust- fjörðum og víða annars staðar hafa vegir lokast vegna snjóa. Banaslys í Eyjafirði Banaslys varð á Melgerðis- melum í Eyjaflrði 22. desem- ber sl. Átján ára piltur, Er- iendur Árnason, hrapaði til jarðar í svifflugu sem nýbúið var að draga á loft. Svifflugan var komin nokkuð hátt á Ioft þegar hún hrapaði og mun pilturinn hafa látist sam- stundis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.