Tíminn - 28.12.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 28. desember 1990
/
Tíminn 7
/ '/
.
VETTVANGUR
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra:
Ný löggjöf um samvinnu-
Jón Sigurösson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, mælti fyrir frum-
varpi til laga um samvinnufélög á
fundi neðri deildar hinn 18. þessa
mánaðar.
Núgildandi lög um samvinnufé-
lög eru að stofni til frá árinu 1921,
en á þeim hafa þó verið gerðar
nokkrar breytingar í áranna rás.
Að gerðum breytingum á þeim ár-
ið 1937 voru þau gefin út sem lög
nr. 46/1937. Arið 1980 ályktaði Al-
þingi að fela ríkisstjórninni að
hefja undirbúning að setningu
nýrrar löggjafar um samvinnufé-
lög og samvinnusambönd í sam-
ráði við samvinnuhreyfinguna.
Skipaði þáverandi viðskiptaráð-
herra fimm manna nefnd til þessa
verkefnis haustið 1980. Nefndin
skilaði drögum að frumvarpi tij
laga um samvinnufélög árið 1983.
Skömmu síðar urðu stjórnarskipti
og var þá horfið að því ráði að skipa
nefnd með víðtækara verksviði,
þar eð hún skyldi endurskoða
helstu löggjöf um stofnanir í at-
vinnurekstri eða níeð önnur íjár-
hagsleg markmið.
Núverandi viðskiptaráðherra
ákvað að láta breytingar á hlutafé-
lagalöggjöfinni hafa forgang, en
lýsti því jafnframt yfir að eftir að
þær væru samþykktar myndi lög-
gjöf um samvinnufélög tekin til
umfjöllunar. í aprflmánuði s.l. var
skipuð nefnd til þess að endur-
skoða lögin um samvinnufélög og
til að semj^ frumvarp til nýrra laga
um það efni.
Nefndin hafði þau frumvarps-
drög, sem áður er getið, til hlið-
sjónar, en hún ákvað fljótlega í
starfi sínu, að ganga miklu lengra í
samræmingu á ákvæðum laga um
samvinnufélög og ákvæðum laga
um hlutafélög, en áður hefur verið
lagt til. í því sambandi kynnti
nefndin sér sérstaklega ákvæði ný-
legra breytinga á finnsku sam-
vinnulögunum, en þau ganga ein-
mitt í sömu átt.
Nefndina sem frumvarpið samdi
skipuðu Björn Friðfmnsson ráðu-
neytisstjóri, formaður; Erlendur
Einarssori f.v. forstjóri Sambands
ísl. samvinnufélaga, Hörður Zóp-
haníasson skólastjóri, Ólafur
Sverrisson f.v. kaupfélagsstjóri og
Stefán Már Stefánsson prófessor.
Frumvarpið er aljmikill bálkur.
Það skiptist í lþ kafla og samtals
106 greinar. Fer hér á eftir megin-
efni framsöguræðu ráðherra með
frumvarpinu.
Frumvarp til nýrra laga um sam-
vinnufélög getur markað tímamót
í atvinnusögu þjóðarinnar og þær
breytingar sem í því eru lagðar til
munu bæta stöðu samvinnufélag-
anna í atvinnulífinu og gefa þeim
kost á að styrkja eiginfjárstöðu
sína.
Samvinnuhlutabréf
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að
samvinnufélög geti starfað áfram í
sama formi og nú er, en það leggur
jafnframt til að veitt verði heimild
til þess að færa reksturinn í form
sem er mjög nærri hlutafélags-
forminu. Því er gert ráð fyrir að
samvinnufélög geti haft tvískiptan
stofnsjóð, þar sem A- deild hans
samsvarar venjulegum stofnsjóði
eins og nú tíðkast, en B- deildin sé
mynduð með sölu hluta og til stað-
festu á eignarhaldi að þeim séu
gefin út svokölluð „samvinnu-
hlutabréf', sem lúta almennum
reglum um viðskiptabréf og geta
gengið kaupum og sölum á mark-
aði. Atkvæðisréttur fylgir ekki
eignarhaldi á hlut í B-deiId stofn-
sjóðs, en hins vegar fylgir honum
forgangur til arðgreiðslna. Með
sölu hluta í B-deild stofnsjóðs geta
samvinnufélög aflað sér eigin fjár á
sama hátt og hlutafélög geta það
með sölu nýrra hiuta og nefndin
sem frumvarpið samdi gerir ráð
fyrir því að einstaklingar fái sam-
bærilega skattalega meðferð í til-
efni af kaupum á hlut í B-deild
stofnsjóðs samvinnufélags og á
kaupum á hlut í hlutafélagi.
Ákvæðin sem heimila myndun B-
deiidar stofnsjóðs í samvinnufélagi
eru þýðingarmesta nýmæli frum-
varpsins, en af öðrum nýmælum,
sem þýðingu geta haft fyrir at-
vinnulífið, má nefna að ákvæði
þess falla betur að starfsemi fram-
leiðslusamvinnufélaga, sem hér
hafa einungis tíðkast í smáum stfl,
en er algengara félagsform í öðr-
um ríkjum eins og t.d. í Frakk-
landi. Þá er nú gert ráð fyrir að
lögaðilar geti gerst aðilar að sam-
vinnufélagi, t.d. hlutafélög eða
sameignarfélög.
Helstu atríði
frumvatpsins
í II. kafla laganna er gert ráð fyrir
að lágmarksfjöldi stofnenda sam-
vinnufélags sé 15 og getur þar
bæði verið um einstaklinga og Iög-
aðila að ræða. Þó getur ráðherra
heimilað frávik frá lágmarksfjölda
stofnenda og eru þar einkum fram-
leiðslusamvinnufélög höfð í huga,
sem hentað geta fáum mönnum í
sömu starfsgrein. Þar kemur einn-
ig fram sú meginstefna frumvarps-
ins að gefa félagsmönnum kost á
að aðlaga samþykktir samvinnufé-
lags að margbreytilegum aðstæð-
um og markmiðum.
í III. kafla frumvarpsins er gert
ráð fyrir samvinnufélagaskrá sem
verði landsskrá á sama hátt og
hlutafélagaskrá. Er ráðherra falið
að annast skráningu samvinnufé-
laga og má gera ráð fyrir að verkið
verði í höndum sömu starfsmanna
og nú færa hlutafélagaskrá, en
unnið er nú að breytingum sem
leiða kunna til aukinnar þátttöku
sýslumannsembætta í því. Lagt er
til að aðgangur að samvinnufé-
lagaskrá sé öllum heimill.
IV. kafli frumvarpsins fjallar um
réttindi og skyldur félagsmanna.
Það er almennt einkenni sam-
vinnufélaga að þau eru opin öllum
þeim sem starfa vilja í slíku félagi
og hlíta vilja samþykktum þess.
Félagsréttindi eru ekki framseljan-
leg og erfast ekki og hlutdeild fé-
lagsmanns í óskiptum stofnsjóði
eða í A-deild stofnsjóðs stendur
ekki til fullnustu fjárkröfum
skuldheimtumanna hans. Félags-
aðilar bera ekki ábyrgð á heildar-
skuldbindingum samvinnuféiags
umfram greiðslu aðildargjalds og
eignaraðild að sjóðum félagsins.
I V. kafla eru ítarleg ákvæði um
félagsfundi í samvinnufélagi. Þar
kemur m.a. fram að meginreglan
er sú að í samvinnufélögum eiga
allir félagsaðilar jafnan atkvæðis-
rétt. Hins vegar er opnaður mögu-
leiki á því að ákveða í samþykktum
félags, sem sinnir verkefnum fyrir
framleiðendur vöru og þjónustu,
I að félagsaðilar fái viðbótaratkvæði
á félagsfundum í hlutfalli við við-
I skipti þeirra við félagið á næst-
liðnu almanaksári og einnig er
heimilt að veita lögaðilum sem að-
ild eiga að félaginu viðbótarat-
kvæði. Hér væri um undantekn-
ingar frá hinni almennu reglu að
ræða, en gefið er færi á þeim í því
skyni að tengja áhrif í félagi við
viðskipti framleiðenda og lögaðila,
sem eftirsóknarvert og eðlilegt
kann að vera að hafa í félaginu.
í VI. kafla er fjallað um stjórn og
framkvæmdastjóra samvinnufé-
lags og er þar um ítarlegri ákvæði
að ræða, en í núgildandi lögum.
Heimilað er að ákveða stjórnar-
skipan með ýmsu móti í samþykkt-
um félags, en hún skal þó skipuð
þremur mönnum hið fæsta og
þremur til vara. Heimilt er að veita
starfsmönnum, hagsmunasamtök-
um eða stjórnvöldum rétt til til-
nefningar stjórnarmanns eða
stjórnarmanna, en meirihluti
stjórnar skal þó ávallt kjörinn af
aðalfundi. Það nýmæli er í kaflan-
um að lagt er tií að heimilt sé að
hafa fulltrúanefnd í samvinnufé-
lögum. Kostir við slíka nefnd eru
þeir helstir, að félagsmenn geta oft
verið margir í samvinnufélagi og
því verið heppilegt að hafa sérstaka
fulltrúanefnd, sem starfi sem fasta-
nefnd félagsmanna og komi á
framfæri óskum og hagsmunamál-
um þeirra.
B-deild stofnsjóðs
— samvinnu-
hlutabréf
í VII. kafla er að finna hið þýðing-
armikla nýmæli um B-deild stofn-
sjóðs, sem áður er getið um. Mun
það tvímælalaust geta orðið til
þess að efla samvinnufélögin á
komandi árum. Stofnsjóður getur
verið óskiptur eins og nú er. í hann
skal leggja aðildargjald félagsaðila
og í hann rennur hagnaður félags-
ins eftir því sem nánar er ákveðið í
greininni og í samþykktum félags-
ins. Stofnsjóðinn skal árlega vaxta-
reikna og verðbæta eftir því sem
afkoma félagsins leyfir og bætast
vextir og verðbætur við höfuðstól
séreignahlutans. í greininni er
einnig heimilað að stofna B-deild
stofnsjóðsins með sölu hluta í
henni. Njóta eigendur hluta í B-
deild forgangs til arðs, en hlutun-
um fylgir hins vegar ekki atkvæð-
isréttur á félagsfundum. Ætla
verður að stjórnendum samvinnu-
félaga með B-deild stofnsjóðs verði
umhugað um að greiða reglulega
arð af hlutunum, þar eð af því
ræðst gengi samvinnuhlutabréfa
og möguleikar félaganna til að afla
sér aukins eiginfjár með sölu nýrra
hluta.
Meginreglan er sú að séreignar-
hluta félagsaðila í stofnsjóði sam-
vinnufélags skal greiða út við and-
lát félagsmanns. Sama gildir við
slit félags, sem aðild á að sam-
vinnufélagi. Jafnframt skal greiða
út séreignarhlut í stofnsjóði ef
hann flyst af félagssvæði, sem af-
markað er í samþykktum félagsins
eða flyst af landi brott, enda gangi
hann úr félaginu. Jafnframt skal að
ósk félagsmanns greiða honum
stofnsjóðseign, ef hann hefur náð
70 ára aldri, enda þótt hann haldi
áfram þátttöku í félaginu.
í kaflanum eru ítarleg ákvæði um
B-deild stofnsjóðs og um alla með-
ferð á sölu hluta og útgáfu sam-
vinnuhlutabréfa, en nauðsynlegt
er að ganga tryggilega frá öllum
atriðum í því sambandi. Hér er að
sjálfsögðu höfð hliðsjón af hlutafé-
lagalögunum, enda ætlunin að
tryggja að staða eigenda sam-
vinnuhlutabréfa sé eigi lakari en
eigenda hlutabréfa, þótt eignar-
haldinu fylgi ekki atkvæðisréttur.
Samkvæmt VIII. kafla er heimilt
að ákveða í samþykktum sam-
vinnufélaga að tekjuafgangi sé út-
hlutað til félagsmanna í hlutfalli
við viðskipti þeirra hvers og eins,
en þó skal jafnan tekið tillit til
sanngjarnra greiðslna í stofnsjóð
félagsins. Á sama hátt má í fram-
ieiðslusamvinnufélagi ráðstafa
tekjuafgangi til félagsmanna í
samræmi við vinnuframlag hvers
og eins. í kaflanum eru einnig
ákvæði um varasjóð samvinnufé-
laga.
1 næstu köflum frumvarpsins er
fjallað um ársreikninga og árs-
skýrslu stjórnar, um endurskoðun
reikninga, um samruna sam-
vinnufélaga, um samvinnusam-
bönd, um slit samvinnufélags, um
breytingar á félagssamþykktum og
um skaðabóta- og refsiákvæði.
í XVI. kafla er gildistökuákvæði,
þar sem lagt er til að lögin taki
gildi 1. janúar 1992 og falla þá lög-
in frá 1937 úr gildi að undanskil-
inni 29. grein þeirra sem fjallar um
innlánsdeildir samvinnufélaga.
Bankaeftirlit Seðlabanka íslands
hefur um nokkurt skeið bent á, að
innlánsdeildir samvinnufélaga
fullnægi ekki sambærilegum ör-
yggisákvæðum fyrir innstæðueig-
endur og aðrar innlánsstofnanir
og hafa farið fram viðræður milli
bankaeftirlitsins og forsvarsmanna
samvinnufélaga um leiðir til þess
að leggja þær niður eða sameina
þær starfsemi banka og sparisjóða.
Hefur innlánsdeildum og fækkað á
síðustu árum. í fylgifrumvarpi
með þessu frumvarpi er lagt til að
lögum um sparisjóði verði bréytt á
þann veg, að samvinnufélög geti
verið meðal stofnenda sparisjóða
og jafnframt er bráðabirgðaákvæði
í sparisjóðalögunum aðlagað til-
viki, sem upp getur komið við
breytingu á innlánsdeild sam-
vinnufélags í sparisjóð. Sparisjóð-
ur, sem stofnaður er af samvinnu-
félagi, myndi að sjálfsögðu þurfa
að fullnægja öllum reglum spari-
sjóðalaganna, en hann hefur jafn-
framt mun víðtækara starfssvið en
innlánsdeild.
Lagt er til í frumvarpinu að frest-
ur til að leggja niður innlánsdeild-
ir sé til ársloka 1995, en engu að
síður er æskilegt að nauðsynlegar
breytingar á innlánsdeildunum
verði gerðar sem allra fyrst.
Samvinnuhreyfing-
unni komið í
takt við tímann
Fyrsta samvinnufélagið hér á
landi var stofnað að Þverá í Laxár-
dal 1882, íslenska samvinnuhreyf-
ingin er því rúmlega aldargömul.
Hún var ávöxtur frelsisbaráttu
Þingeyinga, en breiddist út um
land allt á tiltölulega fáum árum.
Upphaf hennar er í raun og veru
fríverslunarhreyfing og félags-
málahreyfmg í senn.
Með samvinnuhreyfingunni
braut almenningur á íslandi ein-
okunarvald erlendra kaupmanna á
bak aftur. Hún bætti viðskiptakjör-
in og efldi félagsþroskann og varð
seinna stórveldi í viðskiptalífinu.
Samvinnuhreyfingin hefur gegnt
afar mikilvægu hlutverki í at-
vinnuþróun landsins. Hún hefur
nú um nokkurt árabil átt við fjár-
hagslega erfiðleika að etja og hafa
þeir reyndar riðið nokkrum sam-
vinnufélögum að fullu. Samband
ísl. samvinnufélaga hefur, eins og
kunnugt er, glímt við alvarlegan
fjárhagsvanda, sem nú er verið að
leysa með skipulagsbreytingum.
Fjárhagsvandi kaupfélaganna
stafar að nokkru leyti af því, að
skipulagsform samvinnufélaganna
er ekki lengur í takt við tímann.
Þetta frumvarp, ef að Iögum verð-
ur, mun bæta verulega möguleika
samvinnufélaga á því að rétta við
fjárhag sinn og verða héreftir sem
hingað til mikilvæg tæki til að
treysta atvinnulíf og efla framfarir
í landinu.
Með þessu frumvarpi er lagt til að
samvinnulöggjöfin verði færð í
nútímabúning og samvinnuhreyf-
ingunni komið í takt við tímann.
/