Tíminn - 28.12.1990, Qupperneq 10
10 Tíminn
Föstudagur 28. desember 1990
Stefna ríkisstjórnarinnar varðandi lánamarkað fram til ársins 1993:
MINNKANDIVÆGI
VERDTRYGGINGAR
Rítdsstjómin og Seðlabankinn hafa
komist aö samkomulagi um stig-
minnkandi vægi verðtryggingar á
fjárskuldbindingum og opnun lána-
markaðarins. Stefnt er að því að ár-
ið 1993 muni notkun verðtrygging-
ar ráðast af frjálsu vali aðila á fjár-
magnsmarkaði.
íslenskur fjármagnsmarkaður hef-
ur nú í auknum mæli tengst alþjóð-
legum mörkuðum, þar sem verð-
trygging fjárskuldbindinga hefur
litla útbreiðslu. Það, ásamt auknum
stöðugleika í efnahagslífinu og
minni verðbólgu, kallar á endur-
skoðun á viðhorfum til verðtrygg-
ingar hér á landi, segir í fréttatil-
kynningu frá viðskiptaráðuneytinu.
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur því
verið í þá átt að draga úr vægi verð-
Kaupmannahöfn:
Breytingar
á Jónshúsi
Fyrirhugað er að gera talsverðar
breytingar á Jónshúsi í Kaup-
mannahöfn. Akveðiö hefur verið að
fræðimannsíbúðin í húsinu verði
rýmd og breytt í skrifstofur, fund-
araðstöðu o.fl.
Jónshús í Kaupmannahöfn er hús
sem íslenska ríkinu var gefið árið
1966 af Karli Sæmundsen. Húsið,
sem er kjallari og fjórar hæðir,
stendur við Ösdervulgade 12 og er
frægt og verðmætt fyrir íslendinga
fyrir þær sakir að þar bjó Jón Sig-
urðsson og hafði skrifstofu um all-
langa hríð.
í húsinu hefur síðan verið rekin
nokkur starfsemi. í kjallara og á
fyrstu hæð hússins hefur verið fé-
lagsheimili fyrir íslendinga, menn-
ingarmiðstöð, sem rekin er af náms-
mannafélaginu í Kaupmannahöfn
og íslendingafélaginu. Á annarri
hæð hefur verið íbúð fyrir fræði-
mann sem nú stendur til að færa. Á
þriðju hæð hefur verið minningar-
safn um Jón Sigurðsson en það er
hæðin sem hann bjó á á sínum tíma.
Þar hefur líka verið bókasafn sem ís-
lendingafélagið í Kaupmannahöfn
hefur rekið. Á fjórðu hæðinni hefur
sendiráðsprestur haft íbúð.
Að sögn Karls Kristjánssonar er
verið að vinna að því að kaupa litla
fræðimannsíbúð í nágrenni við
Jónshús með það í huga að það
verði rýmra fyrir félagsstarfsemi í
húsinu. Fræðimaðurinn mun samt
sem áður fá eina skrifstofu til afnota
í húsinu. Fræðimaðurinn er skipað-
ur af sérstakri úthlutanarnefnd og
vinnur við fræðistörf, oftast að ein-
hverju sem tengist gamalli sögu ís-
lendinga, meðan hann dvelur í
íbúðinni yfirleitt í um 2-3 mánuði í
senn.
Áætlað er ný fræðimannsíbúð
muni kosta um sex milljónir en
breytingar á Jónshúsi um þrjár
milljónir en inni í því er breyting á
félagsheimilinu, á fyrstu hæð húss-
ins og í kjallara. Karl sagði að með
því að halda uppi starfsemi í húsinu,
sem að hans sögn er mjög öflug, sé
verið að heiðra minningu Jóns Sig-
urðssonar, auk þess sem Kaup-
mannahöfn tengist mjög sögu sjálf-
stæðisbaráttu íslendinga. Einnig er
í næsta nágrenni við húsið, í Svíþjóð
og annars staðar, mesti fjöldi íslend-
inga sem hefur skammtíma búsetu
eriendis.
khg.
tryggingar í fjárskuldbindingum til
samræmis við alþjóðlega fjármagns-
markaði.
í fréttatilkynningu viðskiptaráðu-
neytisins kemur einnig fram að
stjórnvöld þurfi að skapa þær að-
stæður í efnahagslífinu að verð-
tryggðar skuldbindingar víki fyrir
óverðtryggðum og jafnframt að ekki
verði hvikað frá núverandi vaxta-
frelsi. Þá er einnig talið nauðsynlegt
að markaðir verði vel skilgreindir
áfangar og þannig gert ljóst á hvern
hátt stjórnvöld vilja hvetja til þess
að óverðtryggðar fjárskuldbindingar
nái aukinni útbreiðslu á kostnað
verðtryggðra.
í fyrsta áfanga þessarar stefriumót-
unar, sem hefst um áramótin, mun
ríkissjóður hefja útgáfu á óverð-
tryggðum spariskírteinum til eins
og hálfs til þriggja ára. „Jafnframt
mun Seðlabankinn hefja viðræður
við innlánsstofnanir um ný innláns-
form í því skyni að draga úr vægi
verðtryggðra innlánsreikninga án
þess að það komi niður á samkeppn-
isstöðu innlánsstofnana gagnvart
öðrum fjármálastofnunum," segir í
fréttatilkynningunni. Annar áfangi
hefst 1. janúar 1992, en þá verður
m.a. útgáfa óverðtryggðra og geng-
istryggðra spariskírteina ríkissjóðs
aukin. Lokaskrefið verður stigið í
ársbyrjun 1993 samtímis því sem
síðustu lagaákvæði um verðtrygg-
ingu fjárskuldbindinga falla úr giidi.
„Frá og með ársbyrjun 1993 mun
því notkun verðtryggingar hér á
Íandi alfarið ráðast af frjálsu vali að-
ila á fjármagnsmarkaði," segir að
lokum í fréttatilkynningu viðskipta-
ráðuneytisins.
-hs.
Sex hlutafélög taka við störfum rekstrardeilda
Sambandsins um áramótin:
Skipulagsbreyt-
ingum er lokið
Hugleitt að fjölga bílastseðum við
verslanamiðstöðína Eiðistorg:
tveimur hæðum
Elgcndur verslanamiðstöðvarinnar við
Eíðistorg á Seitjarnarnesi hafa velt fyrir
sér hugsaniegum möguleikum til að
fjölga bílastæðum við miðstöðina. Það
sem helst kemur til greina er að byggja
þak sem bflar geta lagt á yfir núverandi
bílastæðí og bæta þannig við 100 stæð-
Sveinn Hannesson er framkvæmdastjóri
fjármögnunarleigunnar Lýsingar hf., en
Lýsing er einn af eigendum miðstöðvar-
innar. Hann sagði að á skipulagi væri gert
ráð fyrir þaki yfir bflastæðin þannig að
þetta væri ekki ný hugmynd. „Við erum
að kanna málið og það cr engin niður-
staða komin. Það eru margir aðilar sem
tengjast þessu og við höfum að undan-
förnu verið að kanna í hvaða hlutföllum
þetta skiptist á milll þessara aðila og það
er fyrst núna sem það er komið á hrelnt,"
sagði Sveinn. Þar að auki sagði Sveinn að
þeir hefðu rætt við bæjaryfirvöld á Sel-
tjarnarnesi um það með hvaða hætti yrði
að þessu staðið. Aðspurður sagðist
Sveinn ekki geta sagt hvenær von sé á að
framkvæmdir hefjist. Hann sagði að ef
það yrði ráðist í að byggja þetta á annað
borð mætti jafnvel búast við því að nýju
stæðin yrði tilbúin fyrir næstu jól.
STYTTU ÞER LEIÐ
TIL LÍFSGÆÐA!
Áttu þér draum um nýtt og betra líf, um tíma til að
sinna hugðarefnum þínum, ferðast, stofna eigið
fyrirtæki, safna listaverkum eða fágætum bókum...?
Ef þú átt miða í Happdrætti Háskóla íslands gætu
draumar þínir hæglega orðið að veruleika í einni svipan
- og það þarf ekki stærsta vinninginn til.
Nú er lokið skipulagsbreytingum
þeim sem samþykktar voru á
rekstri Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga á síðasta aðalfundi þess
og þann 1. janúar taka formlega til
starfa sex hlutafélög og munu þau
fara með starfssvið fyrrum rekstr-
ardeilda Sambandsins. Hlutafélög-
in eru:
Goði hf, sem tekur við af búvöru-
deild. Hlutafé Goða er 300 millj. kr.
Hlutur Sambandsins er um 50%.
Aðrir eigendur eru sláturleyfishafar
og kaupfélög innan Sambandsins.
Framkvæmdastjóri er Árni S. Jó-
hannsson
íslenskar sjávarafurðir hf. Félagið
tekur við hlutverki Sjávarafurða-
deildar SÍS. Hlutafé er 588 milljónir
kr. Sambandið á 50%. Aðrir eigend-
ur eru ýmis frystihús, frystiskip og
kaupfélög. Framkvæmdastjóri er
Benedikt Sveinsson.
Mikligarður hf. Frá 1. janúar mun
fyrirtækið, auk smásöluverslunar á
höfuðborgarsvæðinu, reka innflutn-
ingsverslun þá sem áður var á hönd-
um Verslunardeildar SÍS. Hlutafé
Miklagarðs er nú 130 milljónir en
ætlunin er að auka það á næstunni.
Framkvæmdastjóri er Ólafur Frið-
riksson.
Jötunn hf. annast innflutning, sölu
og framleiðslu á vélum, fóðri, búvél-
um, raf- og rafeindabúnaði o.fl.
Hlutafé er 140 millj. og að mestu í
eigu Sambandsins. Félagið er opið
viðskiptaaðilum innan og utan Sam-
bandsins. Framkvæmdastjóri er Sig-
urður Á. Sigurðsson.
Samskip hf. tekur við starfsemi
Skipadeildar SÍS. Hlutafé í upphafi
er um 892 millj. kr. en félagið er op-
ið viðskiptaaðilum innan SÍS og ut-
an. Framkvæmdastjóri er Ómar H.
Jóhannsson.
íslenskur skinnaiðnaður hf. Félag-
ið tekur við starfsemi Skinnadeildar
á Akureyri. Stofnfé er 270 milljónir
og stofnfélagar eru Sambandið og á
þriðja tug kaupfélaga víða um land.
Félagið verur opið viðskiptaaðilum.
Framkvæmdastjóri er Bjarni Jónas-
son. -sá
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings