Tíminn - 28.12.1990, Qupperneq 11

Tíminn - 28.12.1990, Qupperneq 11
Föstudagur 28. desember 1990 Tíminn 11 Landhelgisgæslan: Þörf á nýrri þyrlu til viöbótar þeirri gömlu Landhelgisgæslan hefur lagt til við dómsmálaráðuneytið að keypt verð- ur önnur þyrla, af sömu gerð og sú sem fyrir er, TF-SIF, en að endur- bættri gerð, fyrir starfsemina. Að sögn Gunnars Bergsteinssonar, for- stjóra Landhelgisgæslunnar, hefur það verið vandamál hjá gæslunni að hafa aðeins eina þyrlu, því að þegar hún er í viðhaldi er engin þyrla til taks. Þá er gamla þyrlan orðin fimm ára og viðhald og endurnýjun á hlutum í hana orðið ansi dýrt. Verð á nýrri þyrlu er rúmar 500 milljónir króna. Þá hefur Landhelgisgæslan kynnt dómsmálráðuneytinu hugmyndir á viðhaldskostnaði á varðskipinu Óðni. Að sögn Gunnars þarf að gera miklar breytingar á Óðni, sem orð- inn er 30 ára gamall. Skipta þarf um báðar aðalvélar í skipinu, sem verið hafa í frá upphafi. Þá þarf að breyta öllum mannaíbúðum sem ekki fylla kröfur í dag hvað hita og einangrun snertir. Þilförin, sem að nokkru leyti er tréþilför, verða að takast öll í burtu og endurnýja stálþilfarið und- ir þeim. „Þannig er endalaust hægt að telja upp það sem þarf að gera ef Samskip hf. stofnað Stofnað hefur verið nýtt hlutafélag í Reykjavík. Félagið heitir Samskip og tekur við starfsemi Skipadeildar Sambandsins þann 1. janúar 1991. Stofnendur félagsins eru Samband íslenskra samvinnufélaga og tvö af dótturfyrirtækjum þess, Reginn hf. og Dráttarvélar hf. en samkvæmt stofnsamningi verður félagið opið öllum kaupfélögum og samstarfsfyr- irtækjum Sambandsins, svo og öðr- um viðskiptaaðilum eftir nánari ákvörðun stjórnar. Heildarhlutafé á stofndegi er 900 milljónir króna og er það að fullu innborgað. Stjórnar- formaður Samskipa er Guðjón B. Ól- afsson og framkvæmdarstjóri verður Ómar Hl. Jóhannsson. GS. skipið á að nýtast til gæslu til fram- búðar." Miðað við verðlag í dag er breyting- arkostnaður við skipið áætlaður um 350 milljónir króna. Þess má geta að skoska fiskveiðigæslan byggði fyrir tveimur árum nýtt skip fyrir um 550 milljónir króna. „Næsta ríkisstjórn verður að skoða hvort það eigi að leggja mikinn kostnað í að endur- bæta Óðinn eða hvort eigi að kaupa nýtt skip,“ sagði Gunnar og bætti við að það væri alltaf erfiðara og erf- iðara að halda slíku skipi við sökum hve gamalt það sé. Auk Óðins eru tvö önnur varðskip í notkun hjá Landhelgisgæslunni, Týr 15 ára ogÆgir 22 ára, en fyrir 7 árum hætti Landhelgisgæslan út- gerð á Þór eftir að önnur aðalvélin í honum bilaði. Að sögn Gunnars er alveg lágmark að vera með þrjú varðskip í gangi í einu. Týr og Ægir eiga að vera í þokkalegu ástandi, enda hefur þeim verið vel við haldið. khg. Leikfélag Akureyrar: „Ættarmótið<( frum- sýnt í gærkvðldi í gærkvöldi frumsýndi Leikfélag Akureyrar gleðileildnn ,Ættar- mótið“ eftir Böðvar Guðmunds- son, í leikstjóm Þráins Karlsson- ar. Leikritið færði Böðvar Leikfé- laginu að gjöf sl. vor, er hann kom á sýningu LA á „Fátæku fólki“, leikgerð hans á endurminninga- bókum Tryggva Emilssonar. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar Ieikritið um ættarmót. í fréttatilkynningu segir að þetta sé gleðiletkur með söngvum, sprell- Qörugur ærslaleikur sem ætti að höfða til alh-ar fjölskyldunnar. Á ættaróðalinu Fljótavík, sem er á ótilteknum stað í sveit á Suður- landi, safnast afkomcndur Hall- grims Hafliðasonar saman 19. ág- úst 1990 til að minnast þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu ætt- föðurins. Afkomendumir em um 300 talsins og vægast sagt sund- urleitur hópur. Ætlunin er að af- hjúpa minnisvarða um gamla manninn, halda uppboð á munum úr eigu hans, syngja lög eftír ætt- arskáldið, sýna sig og sjá önnur skyldmenni og skemmta sér með þeim eina helgi. Mikil eftirvænting er í mannskapnum, ekki síst vegna þess að von er á ættíngja frá Amer- íku. Hann birtist í gleðskapnum, en á allt annan hátt en búist var við, auk þess sem óboðinn gestur setur mikinn svip á ættarmótíð og af komu hans spinnast mörg æv- intýr og óvæntar uppákomur. Leikstjóri er Þráinn Karlsson, lýsingu hannaði Ingvar Bjömson, leikmynd og búningar era eftir Gylfa Gíslason og Jakob Magnús- son samdi tónlist við verkið. Þátttakendur í sýningunni era um 20 talsins, sá yngsti 12 ára og sá elstí kominn yfir sjötugt. Meðal leikenda eru: Bjöm Bjömsson, BjÖm Ingi Hilmarsson, Ragnhild- ur Gísladóttír, Valgeir Skagfjörð, Jón Stefán Kristjánsson, Þórey Aðalsteinsdóttir, Sunna Borg, Ámi Valur Viggósson, Rósa Rut Þórisdóttír, Nanna Jónsdóttir, Marinó Þorsteinsson, Kristjana Jónsdóttir, Guðrún og Þórdís Steinarsdætur, Amar Tryggvason, Kristján P. Sigurðsson, Haraldur Davíðsson, Jóhann Jóhannsson, Svavar Guðjónsson og Hörður Kristínsson. hiá-akureyri.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.